Morgunblaðið - 13.05.1990, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990
Mynd þessi er úr kynningarkortinu og sýnir fyrirhugað íbúðahverfi
í Kópavogsdal
Aóalsldpulag íyrir
Kópavog staðfest
í til'efhi af 35 ára aftnæli Kópavogskaupstaðar sl. fdstudag hefur
verið gefið út sérstakt kynningarkort af aðalskipulagi bæjarins og
því dreift í hvert hús í bænum. Aðalskipulagið var staðfest í april
sl., en það á að ná yfir tímabilið fram til ársins 2008. Er þetta í
fyrsta sinn, sem staðfest aðalskipulag er gefið út fyrir Kópavog.
Húsbréfakerfiö nær lll
eldii eigna eftlr 15. maí
Engri eeróhældiun spáó á markaónum
Kortið sýnir m. a. landnotkun í
Kópavogi en geymir jafnframt
margs konar upplýsingar um bæ-
inn. Þar kemur m. a. fram, að Kópa-
vogur er nú fjölmennasti kaupstað-
ur landsins _og íbúar þar tæplega
16 þúsund. í lok skipulagstímabils-
ins, árið 2008, er gert ráð fyrir, að
íbúamir verði um 24 þúsund og í
Kópavogi fullbyggðum gerir aðal-
skipulagið ráð fyrir, að geti búið
um_32 þúsund manns.
Á árunum 1980-1988 voru full-
gerðar að meðaltali um 100 íbúðir
árlega í Kópavogi. Aðalskipulagið
gerir ráð fyrir, að allt að 150-200
íbúðir verði fullgerðar þar á hverju
ári til aldamóta. Á árunum 1990-
1995 verða byggingasvæðin eink-
um í Kópavogsdal og hluti dalsins
hefur þegar verið deiliskipulagður
sem íbúðarsvæði. Þar verða raðhús
og fjölbýlishús af mismunandi gerð-
um og stærðum. í suðurhlíðum Di-
graness á að rísa blönduð sérbýlis-
húsabyggð á þessum árum. I norð-
anverðri Nónhæð er einnig fyrir-
huguð sérbýlishúsabyggð og gerir
aðalskipulagið ráð fyrir, að hún rísi
á sldpulagstímabilinu.
Áætlað er, að vesturhluti Fífu-
hvammslands byggist á skipu-
lagstímabilinu en eystri hlutinn ekki
fyrr en eftir 2008. Ekki er heldur
gert ráð fyrir, að Vatnsendabyggð
þéttist til neinna muna á þessum
tíma.
Aðalskipulagið gerir einnig ráð
fyrir, að atvinnuhúsnæði eigi eftir
að aukast mjög í Kópavogi. Flatar-
mál þess tvöfaldist fram til ársins
2008 og verði þá um 560 þúsund
fermetrar en í Kópavogi fullbyggð-
um allt að 900 þúsund fermetrar.
UMSÓKNUM um húsbréf hefur
fjölgað mjög að undanfornu. Nú
liggja fyrir um 300 umsóknir, sem
verið er að taka til meðferðar hjá
húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar
ríkisins og afgreiddar verða eftir
15. maí nk., en þann dag opnast
húsbréfakerfið varðandi eldri
eignir og notaðar. Þetta kom fram
í viðtali við Sigurð Geirsson, for-
stöðumann húsbréfadeildarinnar,
nú í vikunni. Sagði Sigurður að
fjölga yrði fólki í deildinni og það
fengið úr öðrum deildum stofnun-
arinnar, aðallega ráðgjafastöðinni
og hugsanlega einnig úr lána-
deildinni.
Sigurður sagði, áð tæplega 180
íbúðir hefðu nú þegar verið seld-
ar samkv. húsbréfakerfinu og tals-
vert af þeim væri utan höfuðborgar-
svæðisins á ýmsunm stöðum úti á
landi. Kvaðst Sigurður ekki eiga von
á þvi, að það myndi opnast nein flóð-
gátt vegna breytingarinnar nú á
húsnæðiskerfinu og hún myndi ekki
hafa áhrif til hækkunar á íbúðar-
verði. — Stór hluti þeirra, sem sækir
um húsbréf, er að stækka við sig.
Sá hópur er. mun minni, sem sækir
um húsbréf til að kaupa sín fyrstu
ibúð. Það verður því ekki bara eftir-
spurnaraukning heldur framboðs-
aukning líka, sagði Sigurður.
— Eg vonast til að meira líf fæ-
rist í markaðinn eftir 15. maí, þegar
húsbréfakerfíð opnast án skilyrða
fyrir eldri eignir eða notaðar, sagði
Jóhann Hálfdánarson, fasteignasali
hjá Eignaborg í Kópavogi. — Ég hef
þó ekki trú á því, að það skelli nein
flóðbylgja yfir og ég hef heldur ekki
mikla trú á því, að húsbréfakerfið
eigi eftir að valda verðhækkun á
fasteignum. Á meðan það er ekki
spenna i atvinnulífinu, þá er ekki við
slíku að búast.
Ef verðið myndi íjúka upp, myndi
eftirspurn í húsbréfakerfinu dragast
saman. Ef t. d. þriggja herb. íbúð,
sem nú kostar 5,5 - 6 millj. kr.,
ætti eftir að hækka um hálfa tií
heila millj. kr., vegna þess að nú er
verður hægt að fá hærra lán, verður
útkoman sú, að fólk, sem á slíka
íbúð og ætlar að selja hana til að
Asíðasta ári var byq'að á fjórtán
íbúðum í einbýlishúsum og rað-
húsum, tveimur íbúðablokkum með
samtals 29 íbúðum, einni verslun og
þremur húsum fyrir atvinnustarf-
semi.
Á þessu ári hefur nú þegar verið
bytjað á 8 íbúðum í raðhúsum og
tveimur iðnaðarhúsum. Þá hófust
eftir áramót framkvæmdir við hús
Veitustofnana og framkvæmdir við
nýbyggingu grunnskólans halda
áfram.
Eftir að veður tók að batna hafa
byggingaframkvæmdir tekið veru-
legan kipp og ljóst að sumarið verð-
ur líflegt.
kaupa 4ra herb. íbúð, fær ekki heim-
ild til að kaupa nema 3ja herb. íbúð.
Engin breyting hefur heldur orðið
á verði þeirra íbúða, sem seldar eru
með húsbréfum. Við hér erum búnir
að selja nokkrar íbúðir þannig og
verð þeirra hefur hvorki verið hærra
né lægra en á öðrum íbúðum, sagði
Jóhann Hálfdánarson að lokum.
í þeim tveimur íbúðablokkum sem
byijað var á í fyrra eru tólf íbúðir
eftir félagslegu kerfi. Bæjarfélagið
hefur nýlega fengið staðfest lánslof-
orð fyrir 8 verkamannaíbúðum og 8
íbúðum eftir félagslegu kerfi. Eftir
er að finna þessum 16 íbúðum stað
en félagslegu íbúðirnar áttu stóran
þátt í því að bygging íbúðablokkanna
hófst í fyrra.
„Það er heilmikið líf í þessu,“
sagði Helgi Helgason bæjarritari um
byggingamálin og Bárður Guð-
mundsson byggingafulltrúi sagði að
um verulega aukningu hefði verið
að ræða frá 1988.
— Sig. Jóns.
Selfoss:
Veruleg aulailng
á nýbyggíngum
Selfossi.
HÚSBYGGINGAR hafa aukist verulega á Selfossi á síðasta ári og það
sem af er þessu. Allar lóðir eru gengnar út sem gerðar voru klárar
í fyrra og eftir eru örfáar inni á milli lóða í eldri hverfiim. Búið er
að bjóða út gatnagerð í nýjasta hverfinu, Tjarnahverfi, þar sem gert
verður klárt fyrir 23 einbýlishús og 26 íbúðir í raðhúsum. í þeim hluta
er þegar búið að úthluta lóðum undir tvö einbýlishús og verktakar
hafa sótt um fjögur raðhús.
SMIÐJAN
Vorrcrlc
VIÐ VONUMST til að sólríkir
og mildir dagar séu nú framund-
an, dagar þeirrar veðráttu þegar
gott er að vinna úti. Dagar sem
góðir eru til að hreinsa til í garð-
inum, áður en sláttuvéla niður
fer að heyrast frá nágranna görð-
um. Þetta eru oft ljúfustu dagar
ársins og börnin geta fengið að
leika sér og bjástra með í garðin-
um.
Ismiðjunni í dag vil ég einmitt
beina athygli okkar að því að
gleðja börnin. Ég held að það hafi
verið fyrir u.þ.b. ári síðan, að í
smiðjunni var grein er bar undirfyr-
irsögnina: „Sjáiði
husið sem hún
mamma mín
smíðaði“ ...
Það kann að
vera að teikningar
sem fylgdu þeirri
grein hafi verið
óþarflega flóknar.
Nú teiknaði ég
einfaldara og minna hús, sem ég
vona að einhver byggi handa börn-
unum í garðinum sínum.
Stærð hússins
Lengd þessa húss er 120 sentí-
metrar, breiddin 90 sentímetrar og
veggjahæðin 68 sentímetrar en
hæðin upp á mæni 115 sentímetrar.
Þetta er því lítið hús og auðvelt
verkefni.
Þótt lítið sé, mun það gefa börn-
um margvíslega möguleika til hug-
myndaríkrar sköpunar v,ið leiki og
þar með veita þeim ómældar gleði-
stundir.
Efnið í grindina: 60x38 mm.
í báðar hliðamar þarf: 4 stk. 120 sm.
8 stk. 60,4 sm. 2 stk. 34,0 sm.
í báða stafnana þarf: 2 stk. 78,0 sm.
4 stk. 66,2 sm. 2 stk. 114 sm.
2 stk. 39,0 sm. 4 stk. 31,6 sm.
í þakið þarf útikrossvið, 2 plöt-
ur, 73x134 sm, og vindskeiðar
22x60 mm. 4 stk. 71 sm.
Á hornunum festast hliðar við
stafna með borðaboltum 110x60
mm tveir boltar í hvert horn.
Samsetning
Þegar lokið er við að saga grind-
arefnið niður í þær lengdir sem
gefnar eru upp hér að framan, er
létt verk og auðvelt að negla grind-
urnar saman. Nota má 75 mm langa
nagla til þess. Naglar halda ekki
vel þegar þeir eru negldir inn í
endatré. Ég ráðlégg því að keyptir
verði 16 gluggavinklar. Vinklana
skal skrúfa innan á aðalhorn
veggjagrindanna. Slíkir vinklar
styrkja grindurnar og halda þeim
saman.
Stuttu stykkin undir gluggunum
ráða ijarlægðinni á milli stoðanna
í hliðum hússins.
Hið sama gildir um stafnana, þar
ákvarða gluggastykkin fjögur hvar
dyrastoðin á að festast.
Vindskeiðarnar á ekki að festa á
stafnana, heldur á að negla þær
neðan á þakplöturnar. Þegar vind-
skeiðarnar verða negldar neðan á
plöturnar, er gott að leggja plöturn-
ar ofan á aðra grind hliðarveggjar,
Blaðalamir með löngum blöðum.
e£EI
en það er lengd þeirrar grindar, að
viðbættum tvöföldum krossviði,
sem ákvarðar málið á millí vind-
skeiðanna.
Grindurnar klæðast svo að utan
með krossviðarplötum, sem negldar
eru á grindina með 25 mm saum.
Til þess að halda þakplötunum
saman í mæninum er gott að kaupa
tvær blaðalamir, með löngum blöð-
um og skrúfa þær utan á þakplöt-
urnar. Með því móti er auðvelt að
leggja þakplöturnar saman þegar
húsið verður skrúfað í sundur til
vetrargeymslu.
Málun
Það er sjálfsagt að mála húsið
bæði að utan sem innan. Börn hafa
ánægju af litum. Litirnir mega vera
hreinir og skærir en vandið val li-
tanna.
Best er að grunnmála allt efnið
áður en grindurnar verða negldar
saman. Eg á við hvíta olíugrunn-
málningu. Þegar hún er orðin vel
þurr má mála einstaka hluta húss-
insí mismunandi litum með innan-
húss vatnsmálningu, þ.e. samskon-
ar málning og notuð er á íbúðir.
Húsbúnaður
Hér framar sagði ég að veggja-
grindurnar ætti að klæða að utan
með krossviðarplötum. Einhveijum
getur komið til hugar að klæða
fremur innan á veggina og að láta
grindina sjást utan á húsinu. Þetta
má auðvitað alveg eins og gefur
þá einnig góða möguleika á lita-
skiptingum.
Sé grindin höfð á innhlið veggja
geta þverslár gegnt hlutverki sem
hillur. Við vitum ekki hvernig húsið
verður notað, e.t.v. sem verslun,
hárgreiðslu- eða snyrtistofa, banki
eða hvað annað sem heimafólki
hússins kemur til hugar.
Ég vil því benda smiðjugestum
dagsins á að útvega húsráðendum
þessa litla húss einhveijar hillur,
lítið börð eða koll og e.t.v. ölkassa
eða aðra hentuga húsmuni.