Morgunblaðið - 13.05.1990, Blaðsíða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990
FA5T6IGNASALA
VITA5TÍG 13
Opið í dag kl. 1-3
Maríubakki. Einstaklíb. 30 fm,
sérinng. Verð 2,4 millj.
Spítalastígur. 2ja herb. íb. 37
fm. Góður garður. Verð 2,8 millj.
Grettisgata. 2ja herb. íb. á jarðh.
ca 50 fm. Verð 2,5 millj.
Mosgerði. 2ja herb. íb. ca 40 fm
á 1. hæð. Verð 2,6 millj.
Garðhús. 4ra herb. sérhæð
100 fm auk bílsk. Selst fokh. að
innan en húsið fullb. að utan.
Verð 6,7 millj. Teikn. á skrifst.
Njálsgata. 5 herb. íb. í risi
85 fm. Frábært útsýni. Verð 4,6
millj.
Miklabraut. 2ja herb. góö íb. 70 fm. í kj. Nýlegar innr. Sér- inng. Laus. Verð 5,0 millj. Kambasei. Raðhus á tveimur hæöum 180 fm. Inn- byggður bílsk. Verð 11,5 millj.
Miklabraut. 2ja herb. íb. á
2. hæð. Ca 60 fm. Nýl. innr.
Sameign nýstands. Laus fljótl.
Verö 4,2 millj.
Hraunbær. 2ja herb. íb. á
1. hæð 80 fm. Laus. Verð 4,6
millj.
Grettisgata. 3ja herb. íb.
60 fm auk 30 fm geymslurýmis
á 1. hæð. Verö 3,2 millj.
Espigerði. 3ja herb. góö íb.
á 2. hæð, 84 fm. Sérlega falleg
sameign. Laus.
Garðhús. 3ja herb. íb. 75 fm í
tvíbh. íb. selst fokh. að innan en húsið
fullb. að utan. Verð 4,7 millj.
Kjarrhólmi. 3ja herb.
endaíb. 75 fm á 2. hæð. Þvotta-
herb. í íb.
Skipasund. 3ja herb. íb. 60 fm,
mikið endurn. Verð 4,5 millj.
Vesturberg. 4ra herb. fal-
leg íb. ca 90 fm. Nýtt parket.
Stórar sv. Fallegt útsýni.
Kleppsvegur. 4ra herb. íb.
75 fm á jarðh. Verð 4,8 millj.
Klapparstígur. 3ja herb. íb. ca
115 fm í nýbygg. Fráb. útsýni. Selst tilb.
u. trév. Bílskýli. Til afh. strax.
Vesturgata. 4ra herb. íb.
á 2. hæö 115 fm. Tilb. u. trév.
Verð 6,5 millj. Tilb. til afh. strax.
Laugavegur. 4ra herb. íb.
á 2. hæö 100 fm t bakhúsi. Verö
5,5 millj.
Rauðarárstígur. 4ra herb. íb.
100 fm. Sérinng. Verð 5,2 millj.
Grettisgata
4ra herb. glæsil. íb. 140 fm.
Tvennar svalir. Innr. í sérflokki.
Grettisgata. 4ra herb. ib. á 4.
hæð, 126 fm. Verð 6,2 millj.
Snorrabraut. 110 fm sér-
hæð auk bílsk. Suðursvalir. Góð-
ur garður.
Uthiíð. Efri hæð 112 fm auk
28 fm bílsk. Suðursv. Verð 9,0
millj. Góð lán áhv.
Básendi. 5 herb. sérh. 115 fm.
Makaskipti möguí. á góðu raðh. eða
einbh. á góðum stað.
Hraunbær. 4ra herb. íb. á
3. hæð, 110 fm auk herb. á jarð-
hæð. Tvennar svalir. Fráb. út-
sýni. Verð 6,5 millj.
Hraunbær. 5 herb. íb. á
2. hæð ca 120 fm. Suðursvalir.
Verð 6,9 millj.
Kleifarsel. Endaraðh. 175
fm. Innb. bílsk. Fallegar innr.
Suðurgarður. Verð 11,5 millj.
Ásbúð — Gbæ. Raðh. á tveimur
hæðum 170 fm m. bílsk.
Flúðasel. Glæsil. raðh. á tveimur
hæðum, 150 fm auk bílskýlis.
Garðhús. Parh. á tveimur
hæðum 195 fm. Stór bílsk. Húsiö
skilast tilb. u. trév. og fullb. að
utan. Teikn. á skrifst.
Hálsasel. Raðhús á 2 hæð-
um 170 fm auk 30 fm bílsk. Suð-
urgarður. Verð 11,5 millj.
Sjávargata — Álfta-
nesi. Einbh. á einni hæð 190
fm. Góöur bílsk. Húsið selst fokh.
að innan. Fullb. að utan. Teikn.
á skrifst.
Miðhús. Einbhús á tveimur
hæðum ca 180 fm auk 50 fm
bílsk. Húsiö skilast fullb. utan,
fokh. að innan. Teikn. á skrifst.
Esjugrund. Fullb. 6 herb.
einbhús á tveimur hæöum 125
fm ásamt 50 fm bílsk. Gott út-
sýni.
Funafold. Einbhús á einni
hæð 170 fm auk garðstofu. Fal-
legt útsýni. Nýl. húsnæöislán.
Mávanes — Gbæ. Glæsil.
einbhús ca. 270 fm auk 50 fm
bílsk. Sérl. fallegur garður. Skipti á
minna sérbýli mögul. í Garðabæ.
Fossagata. Einbhús 240
fm. 40 fm bílsk. Sérl. fallegur
garður. Myndir á skrifst.
Salthamrar. Einbhús á einni hæð
185 fm m/innb. bílsk. Húsið skilast fullb.
að utan, fokh. að innan. Teikn. á skrifst.
Skólavörðustígur. Til
sölu ca 50 fm verslhúsn. við hlið-
ina á nýja bílastæðahúsinu. Verð
3,5 millj.
Lyngás - Gbæ. Til sölu
iðnaðar- og verslhúsn. sem er
100 fm og 190 frri að stærð f
nýbyggingu. Tvennar stórar ínn-
keyrsludyr á hverju bili. Teikn á
skrifst. Góð lán áhv.
Smiðjuvegur. Til sölu 250
fm iðnaðarhúsn. Góð lofthæð.
Stórar innkeyrsludyr. Uppl á
skrifst.
Bíldshöfði. Til sölu 211 fm
húsnæði á 2. hæð.
Bíldshöfði. Til sölu 165 fm
skrifsthæð. Fráb. útsýni.
Vantar allar gerðir eigna á skrá
— Skoðum og verðmetum samdægurs
Vantar fasteignir á söluskrá — mikil sala.
Seljendur ath. Erum með fjölda af ákveðnum
kaupendum á skrá.
Leitið til okkar — við vöndum fráganginn.
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson hs.
77410.
220 helctara svæói ■ 6000-7000 manna liveiii ■
mýstárlegl sldpulag
Framtíðarbyggð
Reykjaúkur verö-
ur á Geldlnganesi
— segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, horgarfull-
trúi og formaóur sldpulagsnefndar borgarinnar
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur
og- formaður dómnelhdarinnar í hugmyndasamkeppninni um Geld-
inganes. Til hliðar við hann má sjá teikningar úr þeirri tillögu, sem
sigraði í samkeppninni.
EKKI hefur áður verið efiit til
hugmyndasamkeppni um skipu-
lagningu á jafh stóru svæði hér
á landi og Geldinganesi, en það
er um 220 hektarar að flatar-
máli. Þátttaka var líka eftir því,
en alls bárust 30 tillögur í sam-
keppnina og voru þrjár þeirra
verðlaunaðar. Ákveðið var að
kaupa Qórar aðrar og fímm til-
lögur að auki fengu viðurkenn-
ingu sem athyglisverðar tillögur.
Alls nam verðlauna og innkaup-
afé rúml. sex millj. kr.
Geldinganesið er framtíðarbygg-
ingarsvæði Reykvíkinga. Svo
getur vel farið, að byggt verði á
svæðinu fyrr en ætlað var, jafnvel
fyrir aldamót, sagði Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson,
formaður skipu-
lagsnefndar
Reykjavíkur í við-
tali við Morgun-
hlaðið, en hann var
jafnframt formað-
ur dómnefndar
samkeppninnar. —
Samkvæmt
keppnislýsingu var það viðfangs-
efnið að kanna byggingarmögu-
leika á Geldinganesi og áherzla á
það lögð, hve sérstætt nesið er frá
náttúrunnar hendi sem byggingar-
svæði.
— Reykjavíkurborg hefur vaxið
gífurlega hratt undanfarna áratugi.
Ný hverfi hafa risið nánast með
undraverðum hraða og er Grafar-
vogurinn nærtækasta dæmið, held-
ur Vilhjálmur áfram. — Þar hafa
verið byggðar um 2000 íbúðir á sex
árum. íbúafjöldi borgarinnar hefur
aukizt um rúmlega 14.000 frá 1980
og jafnframt hefur margvísleg þjón-
ustu- og atvinnustarfsemi eflzt
verulega. Þessi þróun á vafalaust
eftir að halda áfram og því er brýn
þörf á nýjUm byggingarsvæðum,
enda lítum við að sjálfsögðu á það
sem skyldu okkar að stuðla að
þróttmikilli uppbyggingastarfsemi í
borginni. í framtíðinni á borgin
einkum eftir að vaxa'í austur og
skipulagning nýrra hverfa þar er
þegar í fullum gangi.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er
fæddur í Reykjavík 1946. Hann
varð stúdent frá Verzlunarskóla
íslands 1968, en fór svo í Háskóla
íslands og útskrifaðist þaðan sem
lögfræðingur 1974. Hann varð
borgarfulltrúi í Reykjavík fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 1982 og hefur
m. a. verið formaður skipulags-
nefndar borgarinnar frá þeim tíma.
í borgarráði hefur hann setið frá
1986.
— Það er skoðun mín, að sam-
keppnin um Geldinganes hafi tekizt
afar vel, segiv Vilhjálmur ennfrem-
ur. — Það bárust margar ágætar
tillögur og ég tel tvímælalaust, að
byggt verði á þeim, þegar að því
kemur, að gert verði deiliskipulag
fyrir Geldinganes. Borgin er ekki
bundin við að fara í einu og öllu
eftir verðlaunatillögum. Við getum
líka nýtt okkur hugmyndir úr inn-
kaupstillögunum og þeim tillögum,
sem fengu viðurkenningu sem at-
hyglisverðar.
Jaftivægi milli byggðar og
umhverfis
Þar sem um hreina hugmynda-
samkeppni var að ræða, voru kepp-
endum gefnar mjög fijálsar hend-
ur. Þannig var ekki kveðið á um
þéttleika byggðarinnar eða fjölda
íbúða, heldur lagt í hendur kepp-
enda að gera tillögur um hæfilegt
jafnvægi milli byggðar og umhverf-
is. Þeim var einnig fijálst að gera
tillögur um nýtingu svæðisins fyrir
aðrar stofnanir eða þjónustu en al-
mennt er krafizt í íbúðahverfum
samkvæmt aðalskipulagi.
Sem kunnugt er, hlaut tillaga
arkitektanna Hróbjarts Hróbjarts-
sonar, Richards Ólafs Briem,
Sigríðar Sigþórsdóttur og Sigurðar
Björgúlfssonar _ fyrstu verðlaun í
samkeppninni. í mati dómnefndar-
innar kemur fram, að styrkur þess-
arar tillögu felist í einfaldri megin-
hugmynd, sem er lipurlega útfærð
og skilar í heild góðum árangri.
Eitt helzta einkenni verðlauna-
hugmyndarinnar felst í því, að þjón-
ustustarfsemi, verzlun og félags-
starfsemi svæðisins verður innan
“múrs“ eða “borgar" þriggja til sex
hæða húsa, sem standa eiga uppi
á hábungu Geldinganessins. Innan
múrsins verður t. d. garðar, íþrótta-
aðstaða, svonefnt “menningar-
torg“, skólar og önnur aðstaða af
því tagi. Húsin umhverfis mynda
múrin og þar verða verzlanir og
þjónustufyrirtæki á götuhæðinni en
yfirleitt íbúðir á efri hæðunum.
Þar sem útsýni frá Geldinganesi
er mjög gott bæði til Reykjavíkur,
fjallanna í norðri og eyjanna í Kolla-
firði er gert ráð fyrir að safngötur,
sem liggja út frá múrnum, verði í
stefnu á kennileiti í umhverfinu.
Kerhólakambur í Esju mun t. d.
blasa við frá einni götunni með
svipuðum hætti og Keilir frá Suður-
götunni í Reykjavík.
Lægri byggð með raðhúsum og
einbýlishúsum tekur svo við fyrir
utan múrinn og er hún umlukt
hringvegi um nesið. Utan við hring-
veginn tekur svo við breitt strand-
belti umhverfis allt nesið. Það verð-
ur látið ósnortið sem útivstarsvæði
að öðru leyti en því, að göngustígar
verða lagðir fyrir ofan sjávarhamr-
ana.
— Þegar keppnin hófst, var
gengið frá forsögn varðandi þau
atriði, sem dómnefrtdin taldi nauð-
synlegt og raunar æskilegt, að lögð
væri áherzla á við framtíðarskipu-
lag þessa svæðis, segir Vilhjálmur.
— Það tók töluverðan tíma að gera
þessa forsögn, þannig að hún yrði
vel úr garði gerð og var það verk
unnið fyrst og fremst af dómnefnd-
inni í samráði við borgarskipulag,
borgarverkfræðing og ýmsar aðrar
stofnanir borgarinnar.
Á undanförnum árum hefur risið
myndarleg byggð í Grafarvogi
vegna þeirrar stefnumörkunar, sem
tekin var 1982 um að byggja með-
fram ströndinni en ekki við Rauða-
vatn eins og áformað hafði verið
áður samkvæmt aðalskipulagi svo-
nefndra austursvæða, sem var sam-
þykkt 1981. Gert er ráð fyrir, að á
skipulagstímabilinu það er til 2004
dugi svæðin að mörkum Mosfells-
bæjar og Reykjavíkur.
Samkvæmt íbúaspá 1984 var
gert ráð fyrir, að íbúafjöldi í
Reykjavík 1990 yrði um 96.000.
Nú er hann heldur meiri eða rúm-
lega 97.000, þannig að ekki munar
miklu. — íbúafjölgunin í borginni
verður sennilega heldur hægari, en
verið hefur undanfarin ár, segir
Vilhjálmur. — Borgaryfirvöld hafa
ekki enn tekið ákvörðun um, hve-
nær hafizt verður handa _við að
skipuleggja Geldinganesið. Á þessu
ári verður aðalskipulag Reykjavíkur
eftir Magnús
Sigurðsson