Morgunblaðið - 30.05.1990, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1990
13
Framtoningen
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Sænskur blásarakvintett sem
kallast Framtoningen hélt tón-
leika í Norræna húsinu sl. laugar-
dag og flutti verk eftir Hindem-
ith, Bo Nilsson, Kokkonen og Li-
geti. Tónleikarnir hófust á Kleine
Kammermusik Op. 24, nr. 2, sem
er vinsælt viðfangsefni blásara,
eitt af þeim verkum sem Hindem-
ith samdi til að þóknast áheyrend-
um, „smeðjulegast af yngri verk-
um hans“ (David Evans). Verkið
var þokkalega leikið en vantaði
þann „danshúsa anda fyrri heims-
styrjaldarinnar" (Arthur Cohn),
sem einkennir verkið og kemur
einkum fram í glensi og skemmti-
legum skopstælingum.
Annað verkið er eftir Bo Nils-
son, sem var helsti framúrstefnu
tónhöfundur Svía fyrir nokkrum
árum. Hljótt hefur verið um hann
síðustu árin. Lítið fór fyrir nýjung-
um í þessu verki hans, sem ber
nafið „Deja connu, Deja entendu“.
Verkið er eins konar blanda, eða
útþynning á þekktum stefjum og
gamansemin og gerð þess heldur
svona smáleg en var ágætlega
leikið.
Síðustu verkin, kvintett eftir
Joonas Kokkonen og Sex smálög
eftir György Ligeti, voru bestu
verkin á tónleikunum. Kokkonen
vinnur sitt verk á hefðbundinn
hátt, þar sem tónferlið, samskipan
tóna, þ.e. hljómanin og hrynskip-
an myndar einn samfelldan tón-
bálk. I „smálögunum" eftir Ligeti
er hver smáþáttur byggður á
einni tónhugmynd, sem ýmist er
útfærð sem staðbundið þrástef
eða sem eftirlíkingar. Verkið er
sniðuglega unnið og skemmtilegt
áheyrnar en Ligeti er talinn vera
einn þeirra nútímahöfunda, sem
tekist hefur að gæða tónverk sin
leikrænum og tilfinningalegum
þáttum og þar með losnað undan
hugmyndafræðilegri kerfisokun
kenninga, eða líkt og Bartok, sa-
mið lifandi tónlist, sem stendur
utan við og ofar öllum kenningum
og vinnuaðferðum.
Félagarnir í Framtoningen eru
vel samæfðir og allgóður kammer-
hópur og var flutningur þeirra
bestur í verkinu eftir Bo Nilsson
og skemmtilega útfærður í „Smá-
lögunum“ eftir Ligeti. Það sem
vantaði á heildarsvip tónleikanna,
var hversu ósamstæð tónmyndun-
in gat verið, þar sem óbóið og
fagottinn voru oft sérkennilega
áberandi en svo aftur á móti í
veiku samspili, þá gat oft að
heyra fallegt og vel útfært sam-
spil.
Dyngjuvegur
Lítil en snotur 55 fm kjíb. Ekkert áhv. Verð 3,6 millj.
Jörfabakki
Falleg 90 fm íb. á 1. hæð ásamt aukaherb. í kj. Ný við-
gert hús. Góð sameign. Verð 5,9 millj.
Blöndubakki
Falleg 115 fm íb. á 3. hæð ásamt herb. í kj. Sérþvhús.
Verð 6,5 millj.
Boðagrandi
Falleg 100 fm endaíb. á 1. hæð ásamt bílskýli.
Ugluhólar
Glæsileg 110 fm íb. á 2. hæð ásamt bílskúr. Suðursv.
Hraunbær
Stórgl. 120 fm endaíb. á 3. hæð. Sérþvhús og geymsla
innan íb. Mögul. á fjórða svefnherb. Verð: Tilboð.
Álftamýri
Mjög falleg 100 fm endaíb. á 4. hæð ásamt bílsk. Áhv.
veðdeild 2,1 millj. Magnað útsýni. Tvennar svalir. Verð
7,8 millj.
Seljahverfi
Glæsileg 130 fm íb. á 1. hæð ásamt bílskýli. 4 svefn-
herb. Verð 7,7 millj.
Æsufell
Stórglæsileg 130 fm „penthouse" ásamt blómaskála
og bílskúr.
Kambsvegur
Falleg og skemmtileg 150 fm fyrsta sérhæð ásamt
bílskúr.
Kirkjuteigur
Önnur 130 fm férhæð ásamt risi. Bílskúrsrétiur. Verð:
Tilboð.
Fossvogur
Mjög gott 220 fm raðhús ásamt bílskúr. Ákv. sala.
Verð 13,2 millj.
Kópavogur - Vesturbær
Falleg 160 fm einbýli ásamt ótöldu og óinnr. risi. Bílskúr
24 fm. 5 svefnherb. Fallegur garður. Verð 12 millj.
28 484 NðSEIGMIR
" VELTUSUNDI 1 D (Min
SIMI 28444 WL
Daníel Ámason, logg. fast.,
Heigi Steingrímsson, solustjóri.
Askriftarsíminner 83033
Hver er meistari fyrir framkvæmd sem ekki er fullhönnuð eða afgreidd hjá byggingarnefiid?
Olögleg byggmgarft*amkvæmd
effirSkúlaH.
Norðdahl
í næsta hefti tímaritsins Arkitekt-
úr og skipulag er grein um höfundar-
rétt, siðferðilegar og menningar-
sögulegar skyldur.
Með leyfí ritstjóra er hér birtur
lokakafli greinarinnar.
„Menning felst m.a. í því að
skynja og skilja arflefið undangeng-
inna kynslóða hvort heldur er hug-
læga eða verklega. Menning felst
einnig í því að skynja og skilja hyað
skilur á milli ■ menningararfleifðar
annarra þjóða og menningarheilda
og sinnar eigin.
Það verður ekki hjá því komist
að tengja þessar hugleiðingar nýj-
asta atburði á þessu sviði í um-
hverfí okkar — ÞjóðleikHúsi íslend-
inga.
Höfundur hússins er látinn. Höf-
undarréttur hans mun vera í höndum
embættis húsameistara ríkisins og
þá um leið yfirmanns þess embætt-
is, þ.e. forsætisráðherra.
Húsið er meðal elstu opinberu
bygginga í eigu þjóðarinnar. Liðin
eru um 60 ár frá því húsið var teikn-
að og fjörutíu ár frá því að húsið
var tekið í notkun. Nú hefur hópur
manna undir forystu menntamála-
ráðherra tekið sér fyrir hendur að
gjörbreyta húsinu. Þeir sem þar eru
Verð fró 1.290 þúsund
GREIÐSLUSKILMÁIAR
FYRIR ALLA
HIhoivoa
VATNAGÖRÐUM 24 RVÍK., SÍAAI 689900
Skúli H. Norðdahl
„Nú hefiir hópur manna
undir forystu mennta-
málaráðherra tekið sér
fyrir hendur að gjör-
breyta húsinu. Þeir sem
þar eru ákafastir í
flokki eru nokkrir lista-
menn, sem að sjálf-
sögðu gera kröfii til að
höfimdarréttur þeirra á
list sinni sé að fullu virt-
ur.“
ákafastir í flokki eru nokkrir lista-
menn, sem að sjálfsögðu gera kröfu
til að höfundarréttur þeirra á list
sinni sé að fullu virtur.
Skýtur það nokkuð skökku við.
Hér höggva þeir er hlífa skyldu.
í þessu samhengi er ástæða til
áð bera saman gerðir þeirra og at-
hafnir og hvernig brugðist er við
meðal gamalgróinna menningar-
þjóða.
í síðasta stríði var skaddaður og
stórskemmdur fjöldi opinberra bygg-
inga og þar á meðal fjöldi leikhúsa
af sömu gerð og Þóðleikhúsið er.
Hvernig er við því brugðist?
Það er fómað gífurlegum fjár-
hæðum, efni og vinnu við að endur-
byggja þau í sinni upprunalegu
mynd.
Hvers vegna?
Vegna þess að þessi mannvirki
eru veigamikill þáttur menningar-
arfleifðar þessara þjóða. Það sem
meira er. að þessi leikhús þjóna best
til að sýna megin þorra þeirra leik-
bókmennta, sem eru kjaminn í leik-
listarsögunni frá fomu fari og sem
era enn að verða til. Hér er verið
að rækja menningarsögulega
skyldu.
Þessa skyldu virðist sá hópur ekki
skynja sem nú ræðst að Þjóðleikhús-
inu í óþökk alls þorra almennings
og þeirra er þá skyldu virða.
Af þessum sökum er hér með
skorað á forsætisráðherra að stöðva
tilræðið við Þjóðleikhúsið með því
að beita höfundarrétti þeim, sem í
höndum hans er og rækja þar með
siðferðislega og menningarsögulega
skyldu við þjóð sína.“
Höfíindur er arkitekt.
Seljahverfi
Falleg 120 fm íbúð á tveimur hæðum ásamt bílskýli.
Suðursvalir. Ákv. sala.
oonnn húseignir
VELTUSUNDI 1 O C|#1D
SÍMI 28444
Daníel Árnason, lögg. fast., Jp
Helgi Steingrimsson, sölustjóri. II
M
Oskast til leigu í Fossvogi
eða nágrenni
Óskað er eftir fyrir traustan aðíla 4ra-5 herb. íbúð eða
húsi til leigu í nokkra mánuði eða lengri tíma.
VAGN JÓNSSON <f
FASTEIGNASALA SUÐURLANDSBFAUT18 SÍMI'84433
LÖGFRÆÐINGURATLI VAGNSSQN