Morgunblaðið - 30.05.1990, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1990
Afinælisganga
Ferðafélagsins
eftir Sigurð
Kristinsson
Fimmta afmælisganga FÍ er í
kvöld kl. 20, Rauðukusunes —
Þingvellir. Ekið verður gegnum
Mosfellsbæ, áfram austur yfir
heiði og staðnæmst á Rauðukusu-
nesi neðan bæjar á Kárastöðum.
Þar lauk 4. gönguferð og 5.
gönguferð hefst, kvöldganga inn
í þjóðgarðinn og um sögusvæðið.
Á nesinu er greiðfær leið á
gömlu hrauni. Von bráðar er kom-
ið syðst á vesturbarm Almanna-
gjár og honum fylgt um stund.
Heitir þar Hrútagjá, síðan Lamba-
gjá og Hestagjá sunnan hringsjár-
innar. Þar verður stansað og ör-
nefni athuguð. Héðan má sjá þá
tign, sem í tindum býr en vatnið
og Bláskógar neðar. Örnefni
verða ekki talin upp á þessu blaði
heldur minnst á ljóð eftir skáld,
sem átti bernsku á næsta bæ,
varð borgarbúi síðar en alla ævi
barn Þingvallasveitar. Um skáld-
skapargildi ljóða má alltaf deila
en tilfinning fyrir náttúrunni fer
ekki milli mála, svo rík er hún og
raunsönn í þessu ljóði:
Land með útsýn yfir
auðn og klakahlekki.
Land með fjallafeiknir
feigð og gróðurhnekki.
Þama í þrengstum götum,
þar sem sporin gleymast,
gull frá auðnum alda
æskplýðnum geymast.
Utsýn frá vesturbarmi Al-
mannagjár birtir apdstæður ljóss
og Iita, gróðurs og eyðingar með
öllum þeim blæbrigðum er árstíðir
skapa. í þeirri sýn samtvinnast
uppbyggingarsaga landsins og
örlagasaga íslenskrar þjóðar f
1100 ár. Árangur þeirrar fram-
vindu er ferli vort á þessari öld.
Frá skífunni verður gengið um
Kárastaðastíg niður í gjána og
eftir henni að Drekkingarhyl.
Samkvæmt Stóradómi var vand-
inn leystur með því að drekkja
sekum konum í hylnum, aldurtili
sekra karla varð á Höggstokks-
eyri neðar við ána en sál galdra-
fólks var hreinsuð með því að
brenna það við vestustu gjána í
Þingvallahrauni.
Frá hylnum verður horfið gegn-
um Hamraskarð og meðfram
Snorrabúð, niður Hallinn, um
búðarústirnar varðveittar „undir
sverðinum grænum", yfir Öxarár-
brú og eftir stíg upp með ánni
að austan að Bisk'upabúð í Þing-
vallatúni. Leggja mætti lykkju á
halann að Skötutjörn en að lokum
verður gengið að Byrgisbúð á
Spöng og stigið í bíl við brú á
Nikulásargjá. Á heimleið má rekja
þjóðsöguna um vatnið í Óxará,
segja frá mannskaðanum á Mos-
fellsheiði og fara með ljóðið um
Þingvallaveginn. Hittumst heil.
Morgunblaðið/Bjarni
Auður Eyvinds, stúdent af ferðabraut, tekur við prófskírteini sínu
úr hendi Ingólfs A. Þorkelssonar, skólameistara.
Menntaskólinn í
Kópavogi:
Fyrsti stúd-
entinn af
ferðabraut
útskrifaður
MENNTASKÓLANUM í Kópa-
vogi var slitið við hátíðlega at-
höfn í Kópavogskirkju föstudag-
inn 25. maí. Fimmtíu og níu stúd-
entar brautskráðust frá skólan-
um. Þeirra á meðal var Auður
Eyvinds, fyrsti stúdentinn af
ferðamálabraut.
Athöfnin hófst á því að Ingólfur-
A. Þorkelsson , skólameistari, flutti
skólaslitaræðu, í ræðunni skýrði
hann frá því að uppbygging ferða-
fræða væru ofarlega á baugi í innra
starfi skólans. Áformað er að Hót-
el- og Veitingaskóli íslands verði í
framtíðinni til húsa í nýrri viðbygg-
ingu við MK og sameinist honum
þannig að Menntaskólinn í Kópa-
vogi verði hvort tveggja í senn bók-
mennta- og verkmenntaskóli þar
sem kennslukraftar og húsnæði
verði samnýtt. Þannig munu hótel
og veitingagreinarnar tengjast
ferðamálabrautinni.
Þá afhenti skólameistari
prófskírteini og viðurkenningar fyr-
ir ágætan námsárangur í einstökum
greinum. Flestar viðurkenningar
fengu Gunnar Freysteinsson, stúd-
ent af náttúrufræðibraut, og Þor-
kell Sigurgeirsson, stúdent af við-
skiptabraut. Viðurkenningar fyrir
ferðagreinar fengu Hrafnhildur
Pálsdóttir og Dagný Baldvinsdóttir.
Helga^ívarsdóttir, stúdent á nátt-
úrufræðibraut, lauk flestum náms-
einingum eða hundrað og sextíu.
Hundrað ijörutíu og ijórar einingar
nægja til að ljúka stúdentsprófi.
Skójakórinn söng undir sjórn
Jóns Ólafssonar. Einn úr hópi ný-
stúdenta, Jón Magnússon, flutti
ávarp og árnaði skólanum allra
heilla. Tíu ára stúdentar færðu skól-
anum veglega gjöf sem Kristján
Ragnarsson afhenti með ávarpi. Þá
flutti Kristín Halldórsdóttir, for-
maður Ferðamálaráðs, ræðu í tilefni
af útskrift fyrstu stúdentana af
ferðabraut.
Bjöllukórinn „Pine Three Academy Bell Ringers".
Bandarískur bjöllukór á Islandi
BANDARÍSKUR bjöllukór „Pine
Three Academy Bell Ringers"
heldur tónleika í Aðventukirkj-
unni Ingólfsstræti 19 á fostudag-
inn kl. 20:30. Aðgangur er ókeyp-
is.
Bjöllukórinn hefur komið fram víða
í Bandaríkjunum. Má þar nefna
Radio City Music Hall, New York
City, United States Capitol, Florida,
Texas, Main State Capitol og
Bermuda. Árið 1987 hélt kórinn 62
tónleika í Suður-Ameríku. Nú er
ferðinni heitið til Júgúslavíu og
Póllands með viðkomu á íslandi.
Kórinn skipa 10 ungmenni sem
leika fjórar áttundir með 49 bjöll-
um. Stjórnandi kórsins er Doris
Krueger.
Þol - þakmálning
Þekur, verndar og fegrar
Þarftu að mála þakið? Þá vantar þig Þol
þakmálningu frá Málningu hf. Hún er
sérstaklega framleidd fyrir bárujáni
og aðra utanhússfleti sem
þarfnast varanlegrar vamar.
Þol er hálfgljáandi alkýð-
málning sem er auðveld í
notkun. Þol þakmálningin dregur nafn af
einstöku veðrunarþoli sínu og litaúrvalið er
fjölbrcytt. Þol þakmálningin frá
Málningu hf. er punktur-
inn yfir vel málað hús. -
Það segir sig sjálft.
hnálning'í
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er — það segir sig sjdlft —