Morgunblaðið - 30.05.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990
17
í minnisblaði frá iðnaðarráðu-
neytinu frá 3. maí 1990 um starfs-
leyfi fyrir Atlantsál segir m.a.:
„I 8. kafla mengunarreglugerðar
nr. 386/1989 er fjallað um veitingu
starfsleyfa fyrir atvinnurekstur,
sem getur haft í för með sér meng-
un. Akvæðum reglugerðarinnar
verður fylgt eftir því sem kostur
er, en þó er stefnt að því að samn-
ingur um meginskilmála varðandi
útblástur og aðra þætti mengunar-
vafna verði undirritaður samhliða
undirritun aðalsamnings um nýtt
álver. “
í greinargerð frá Hollustuvernd
ríkisins til iðnaðarnefndar, dags.
3. maí 1990, segir m.a.:
„Mengunarvarnir HoIIustuvernd-
ar ríkisins telja, sérstaklega í Ijósi
þess að stefnt er að samkomulagi
um umhverfismál samhliða aðal-
samningi, að nokkuð hafi skort á
til þessa, að stofnunin tæki nægi-
legan þátt í mótun krafna og að
upplýsingar um stöðu mála hafi
borist. “
Náttúruverndarráð segir m.a. í
bókun sem rakin er í bréfi til iðnað-
arnefndar neðri deildar, dags. 3.
maí 1990:
„Náttúruverndíirráð leggur
áherslu á að í nýju álveri er kann
að verða reist hér á landi, verði
gerðar ýtrustu kröfur um mengun-
arvarnir og ekki minni en gerðar
eru í nágrannalöndunum.
Að gefnu tilefni er lögð áhersla
á vothreinsun S02 og byggir það á
eftirfarandi. “
í greinargerð með frumvarpi um
raforkuver (bls. 17), sagði m.a.:
„Eitt helsta álitaefni varðandi
mengun frá nýju álveri er, hvort
krefjast skuli vothreinsunar á S02.
Forsendur þess að gera kröfu um
vothreinsun geta verið nokkuð aðr-
ar en t.d. í Noregi og Svíþjóð, sem
einkum hefur verið horft til.“ (Let-
urbreyting HG).
Staðarval á uppboði
Einn ósæmilegasti þáttur varð-
andi undirbúning álbræðslu lýtur
að meðferð stjórnvalda á hugsan-
legri staðsetningu verksmiðjunnar.
í stað þess að ákveða staðarval slíks
fyrirtækis að vel yfirveguðu ráði,
eigi það að rísa á annað borð, er
sveitarfélögum og landshlutum att
út í keppni um fjárfestinguna. Hef-
ur það m.a. leitt til þess, að einstök
byggðarlög eru farin að bjóða niður
framkvæmdakostnað í þágu útlend-
inganna. I apríl sl. framsendi iðnað-
arráðuneytið erindi frá Atlantal til
nokkurra valinna sveitarstjórna,
þar sem þær eru hvattar til að veita
útlendingunum svör um staðbundin
málefni, m.a. um viðhorf sín til
umhverfismála.
I þessu erindi ráðuneytisins f.h.
Atlantal segir:
beran mel. Einnig verður nokkuð sáð
af grasfræi og áburði í flag og gerð-
ar tilraunir með víðitegundir á víða-
vangi. Vinnusvæðið verður Inn-
Garður og unnið 25. maí.
Stóru-Vogaskóli (s. 92-46655):
Sáð verður grasfræi og áburði í ná-
læga byggð í byijun júní.
Grunnskólinn í Grindavík (s.
92-68020): Nemendur vinna að sán-
ingu og uppgræðslu auk gróðursetn-
ingar í nágrenni Þorbjarnar og í
Selskógi. Verkefnið verður unnið í
byijun júní.
Holtaskóli (s. 92-11135): Gróður-
settar verða plöntur á vegum „Skóg-
ræktarátaks" 23. maí. Einnig verða
gróðursettar 3.000 lúpínuplöntur í
melana fyrir ofan Keflavík 25. maí.
Grunnskóli Njarðvíkur (s.
92-14399): Gróðursetning í Sól-
brekkum, lagað til og hreinsað 25.
maí.
Grunnskólinn í Sandgerði (s.
92-37439): Sáð verður grasfræi og
áburði í kringum gijótnám ofan við
bæinn. Einnig verður gerð tilraun
með sáningu lúpínufræja 25. maí.
Að lokum vill undirritaður þakka
Landgræðslu og Skógrækt ríkisins
fyrir gott samstarf við framkvæmd
landgræðsludaganna okkar á Suður-
nesjum. Guðleifur Sigurjónsson fær
sérstakar þakkir fyrir aðstoð við efni-
söflun.
Höfundur er yfírkennari í
Grunnskólanum íSandgerði.
Ó;í U.. J)-. BÓI I ' IJISIUCÚ
„Sérstök athygli er vakin á því
að Atlantal-aðilarnir telja nauðsyn-
legt að staðsetning verði valin með
hliðsjón af því að stækka megi ál-
verið einhvern tíma í framtíðinni í
allt að 400.000 árstonn og að byggð
verði rafskautaverksmiðja. “
Þessi bréfaskipti og annað sem
að staðarvali álbræðslu lýtur varpar
skýru ljósi á afleiðingar þess að
fela forræði í slíku fyrirtæki í hend-
ur útlendinga, sem hafa munu
síðasta orðið um staðarval, ef til
kemur. Fráleitt er með öllu að
reisa stórfyrirtæki af þessu tagi
á höfuðborgarsvæðinu og grennd
eins og staðan er nú í byggðamál-
um, en ja&iframt ber að varast
að líta á byggingu risaálbræðslu
sem lausn á erfiðleikum lands-
byggðarinnar í atvinnumálum.
Þar þurfa önnur ráð að koma til.
I umræðu um álbræðslumálið er
með villandi hætti reynt að gylla
hagvöxt og aukningu ráðstöfunar-
tekna vegna framkvæmda. í því
sambandi er gengið út frá einskon-
ar núll-lausn, þ.e. annars vegar að
reist verði álver en að öðrum kosti
gerist ekkert í atvinnumálum. Þeir
sem þannig tala gleyma þeim fjöl-
þættu möguleikum, sem hér eru á
mörgum sviðum og munu þróast
og dafna, ef stjórnvöld hlúa að
menntun, rannsókna- og þróunar-
starfi og skapa góðan jarðveg til
rekstrar og athafna sem víðast á
landinu.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Alþýðubandalagið á Austurlandi.
Stykkishólmur:
Eyjaferðirnar vinsælar
SUMARVERTÍÐIN er að hefjast
hjá Eyjaferðum og nóg framund-
an enda eru ferðirnar vinsælar
hjá ferðamönnum sem koma til
Stykkishólms. í þessum ferðum
er komið við á merkum stöðum
og stjórnendur skýra fyrir fólk-
inu dásemdir eyjanna sem hver
fyrir sig geymir sögu og aðrar
minningar.
Eyjaferðir fara margar leiðir og
eru svo tilbúnar fyrir hópa að fara
lengri og skemmri tíma eftir því
sem um semst og farþegar geta
eytt miklum tíma. En það er ekki
ofsögum sagt af töfrum eyjanna
og sundanna milli þeirra í Breiða-
firði, en því miður hafa þær svo
að segja tæmst af fólki. Það er
ekki lengra síðan en fyrir tæpum
50 árum að 30 þeirra voru byggðar
og samtals í eyjunum áttu þá heima
yfir 400 manns.
Saga þeirra er mikil í gegnum
aldirnar og það er sagt að þær
hafi verið matarkista mikil þegar
annað brást víða um land. Flatey á
sína sögu og enn eru þar mannvirki
sem minna á liðna tíð.
- Arni
ikra rafknúin
garðverkfæri
fíHtfUL!) ódýrar,
amerískar sláttuvélar
KOMDU BEINT
TIL OKKAR...
...og sparaðu þér sporin. í Sláttuvélamarkaðnum
er ótrúlegt úrval vandaðra sláttuvéla. Verðið
kemur á óvart. Öflug, amerísk MTD sláttuvél með
3.5 hestafla vél frá Briggs & Stratton, með
rafeindakveikju og 20 tommu hníf kostar til
dæmis aðeins kr. 171X00,-
[gingej gæðavélar
á góðu verði
raf- og bensín
knúnar loftpúðavélar
OG LÚM2)
minitraktorar
ALLT A SAMA STAÐ í
Sláttuvélamarkaðnum í Nútíðinni,
FAXAFENI 14, SKEIFUNNI, SÍMI 685580
VERSLUN, VARAHLUTIR OG
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Athugið að fyrirtækið er flutt
. úr Kópavogi
m
IÍ8i8
G.A. Pétursson hf
Nútíðinni F
sími
68
iu( irpn h nsvri la/ ,i:ijfcny9i liö tma mu[B9n .inullö ti i iin.I