Morgunblaðið - 30.05.1990, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1990
(Jtflutningur á óunnum fiski umfram heimildir:
Afiiema ber Aflamiðlun og
setja kvóta á hvert skip
- segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, segir það skoðun sína
að afiiema eigi Aflamiðlun í haust og heimila þess i stað að ákveð-
inn hundraðshluta aflakvóta hvers skips megi flytja út óunninn. Slíkt
leyfi verði framseljanlegt og myndi ganga kaupum og sölum á mark-
aði. Núverandi skömmtunarkerfi bjóði spillingu heim og það hafi
sýnt sig að hagsmunaaðilum gangi ekki úthlutunin betur í gegnum
aflamiðlunina heldur en viðskiptaskrifstofú utanríkisráðuneytisins á
sinum tíma þrátt fyrir nánari tengsl við þá sem hagsmuna eigi að
gæta nema síður væri.
Jón Baldvin sagði að í tengslum
við kjarasamninga hefði utanríkis-
ráðuneytið fallist á það fyrirkomu-
lag að fela hagsmunaaðilum, full-
trúum útgerðar, fiskvinnslu, sjó-
manna og fiskvinnslufólks, að hafa
hina daglegu umsjón með úthlutun
leyfa varðandi útflutning á óunnum
fiski, hvort heldur í skipum eða
gámum, og eftirlit með framkvæmd
þess. Það hefði verið undirskilið að
þessir aðilar hyggðust takmarka
útflutninginn meðal annars með til-
liti til atvinnusjónarmiða.
„Þeir töldu sig geta unnið verkið
betur heldur en viðskiptaskrifstofa
ráðuneytisins vegna þess að þeir
væru í svo nánum og góðum tengsl-
um við þá aðila sem mestra hags-
muna hefðu að gæta. Meðan leyfis-
veitingin var í höndum ráðuneytis-
ins linnti ekki árásum Kristjáns
Ragnarssonar á framkvæmdina. I
hvert sinn sem verð sveifluðust á
erlendum mörkuðum voru spunnar
upp sögur til þess að kenna þetta
slælegri framkvæmd ráðuneytisins
auk þess sem söguburður um land
allt um spillingu varðandi úthlutun-
ina var grasserandi. Nú er komið á
daginn og þarf engum að koma á
óvart að þessum aðilum sem sögð-
ust vera í svo nánum tengslum við
hagsmunaðila veitist erfitt að hemja
gámavini sína og tryggja að menn
hlýti settum reglum og má um það
segja hið sama og við svörum stund-
um þegar talað er um meintar óvin-
sældir ríkisstjórnarinnar: Enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur," sagði Jón Baldvin.
Hann sagði að vandkvæði af
þessu tagi væru innbyggð í öll slík
skömmtunarkerfi. Sannleikurinn
væri sá að hugmyndin um aflamiðl-
un væri ekki góð hugmynd. Það
væri ekki aðalatriðið hver fram-
kvæmdi skömmtunina. Slík kerfi
væru í sjálfu sér af hinu vonda og
byðu upp á spillingu eða tilraunir
til þess að komast framhjá kerfinu.
Það segði sig sjálft.
„Ég held þessi tilraun sé ekki til
frambúðar. A sínum tíma voru mun
betri tillögur uppi um hvernig ætti
að framkvæma þetta eftir markaðs-
leiðum, nefnilega með því að hver
kvótaleyfishafi mætti ráðstafa
ákveðnum hundraðshluta af afla
sínum til útflutnings og það leyfi
gæti gengið kaupum og sölum á
markaði. Það myndi tryggja miklu
meiri jöfnuð, bæði milli útgerða og
útgerðastaða, og innbyrðis innan
sjómannastéttarinnar heldur en
þetta skömmtunarkerfi sem nú er
á snærum LÍU. A sínum tíma
strandaði þetta á því að erfitt var
að koma þessu við meðan sóknar-
markskerfið var við lýði, en nú þeg-
ar aflamark verður almenna reglan
í haust með nýjum lögum um fisk-
veiðistjórnun, þá tel ég að við ætt-
um að afnema þessa aflamiðlun og
allt þetta skömmtunarkerfi og
framkvæma þessar hugmyndir sem
meðal annars nutu mikils stuðnings
formanns Vinnuveitendasambands-
ins,“ sagði Jón Baldvin.
Sjómenn landa fiski
Morgunblaðið/Sigurgeir
kör í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.
Sigurbjörn Svavarsson, formaður stjórnar Aflamiðlunar:
20% skerðing hjá þeim sem
fluttu út umíram heimildir
SIGURBJÖRN Svavarsson, formaður stjórnar Aflamiðlunar, segir
að útflutningsheimildir þeirra sem flutt hafa út isfisk umfram heim-
ildir hafi verið skertar um 20% í þessari viku. Það sé mjög hóflegt
að hans mati og margir teyi að það sé alltof vægt í sakimar farið.
Það sé mál Vestmannaeyjaflotans að sigla til hafnar, Aflamiðlun
ráði engu um það.
„Þeir hafa tekið sér það leyfi að
fara fram úr og hafa okkar úthlut-
anir að engu. Af 50 útflutningsaðil-
um eru þetta einu aðiiamir sem
gera þetta og ég er hræddur um
að margir hinna vildu sjá miklu
harðari aðgerðir. Það er ekki um
annað að ræða meðan einhver
stjóm er á þessu en að það sé, far-
ið eftir reglum og allir gangist und-
ir þær. Við gefum útflutningsleyfí
og ef menn eru að flytja út án
þeirra þá er það auðvitað brot á
lögum,“ sagði Sigurbjörn.
Hann sagðist aðspurður að tolla-
yfirvöld hefðu ekki svarað ennþá
formlega erindi Aflamiðlunar um
hvernig taka beri á útflutningi
umfram heimildir. Óformlegt sam-
band hafi verið haft í síðustu viku
og formlegt erindi varðandi þetta
sent í gær. Tollayfirvöld hefðu tek-
ið því vel að allur útflutningur ætti
að afgreiðast með tilskyldum leyf-
um.
Aðspurður hvort útflutningurinn
hefði verið með þessum hætti með-
an utanríkisráðuneytið fór með
heimildirnar til útflutningsins, sagði
Sigurbjörn ekki geta fullyrt um það
almennt, en hann yissi til þess að
eitt þessara fyrirtækja hefði haft
þennan háttinn á meðan utanríkis-
ráðuneytið fór með úthlutunina. Því
miður hefði Aflamiðlun ekki gögn
frá utanríkisráðuneytinu um þeirra
úthlutanir og þeir vissu ekki hvaða
munstur hefði verið á úthlutunum
ráðuneytisins til einstakra útflytj-
enda.
„Vestmannaeyingar hafa sakað
okkur um að hafa dregið frá þeim
og fært til annarra og þeir fái ekki
eins miklu úthlutað og áður var,
en það var mál sem við gátum ekk-
ert vitað um, því upplýsingar þar
um fengum við ekki. Við úthlutum
bara eftir því sem umsóknir berast
og reynum að gera öllum til hæfis.
Við lítum þannig á að enginn einn
eigi frekari rétt en annar,“ sagði
Sigurbjörn.
Aðspurður um þá gagnrýni að
Aflamiðlun úthlutaði ekki nógu
stórum kvóta til útflutnings og að
útflutningur umfram heimildir hefði
ekki haft merkjanleg áhrif á verð
á mörkuðunum, sagði Sigurbjörn:
„Eflaust mætti úthluta og senda
út meira magn, en þá er það spurn-
ing hvað verðið fer niður. Það getur
vel verið að það mætti senda út
10-20% meira magn, en málið er
ekki svo einfalt. Aflamiðlun er vett-
vangur hagsmunaðila í sjávarút-
vegi. Þar er rifist nánast um hveija
einustu úthlutun, þar sem fulltrúar
fiskvinnslu og verkafólks halda
ákveðnum sjónarmiðum fram og
útvegsmenn og sjómenn öðrum. Þar
er verið að komast að málamiðlun-
um. Þetta er í sjálfu sér ekki af-
greiðslustofnun fyrir enska mark-
aðinn. Þá þyrfti enga aflamiðlun
og í rauninni enga stjórn, nema
kannski einn mann.“
Sigurbjöm sagði að í hverri viku
væri sótt um heimildir til útflutn-
ings á tvisvar sinnum meira magni
í gámum eingöngu, en það sem
markaðurinn úti teldi æskilegt að
kæmi.
„Þetta er spuming imi hversu
vel sjáandi menn eru í pólitík“
- segir Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins um gagnrýni
á sameiginleg fi*amboð vinstri manna og að þau hafi mistekist
„Þetta er spurning um hversu
vel sjáandi menn eru í pólitík.
Ég spyr hvert var markmiðið
með Nýjum vettvangi út frá
sjónarmiði okkar Alþýðuflokks-
manna? Og það er rétt að spyrja
líka; hvaða líkur voru á því að
Alþýðuflokkurinn styrkti stöðu
Leiðrétting
í grein Helga Hálfdanarsonar,
Enskan er lævís og lipur, sem
birtist hér í blaðinu í gær (29.
maí), varð prentvilla sem gerði setn-
ingu illskiljanlega. Þar átti að
standa:
Nú heyrist æ oftar sagt sem svo:
Fólkið talaði hvert við annað (eða
jafnvel: við hvert annað). Þarna er
fleirtölumerkingin í eintöluorði enn
að verki á enska vísu, þannig að
saman ruglast „Bömin töluðu hvert
við annað“ og „Fólkið talaði hvað
við annað“.
sína í borgarstjórn Reykjavíkj-
ur, ef hann hefði boðið upp á
hreint flokksframboð við þessar
aðstæður?" sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, aðspurður um þau orð
Guðmundar Arna Stefánssonar,
efsta manns á lista Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði að það sé
blindur maður sem ekki sjái að
sameiginleg framboð vinstri
flokkanna í kosningunum hafi
mistekist.
„Staðreyndimar eru þær að Nýr
vettvangur er stærsta andstöðuaf-
lið gegn sjálfstæðismeírihlutanum
með 15% atkvæða og tvo borgar-
fulltrúa. Alþýðuflokkurinn fékk í
kosningunum 1986 10% atkvæða
og einn borgarfulltrúa. En, segja
menn, fyrrverandi borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins náði ekki kjöri í
3. sætinu. Það er rétt, en á móti
kemur að ég tel afar líklegt, þó
reynslan verði að skera úr um
það, að báðir borgarfulltriiar Nýs
vettvangs muni um það er lýkur
teljast fullgildir jafnaðarmenn,"
sagði Jón Baldvin.
„Alla vega varð Nýr vettvangur
til þess að Alþýðubandalagið hefur
glatað forustuhlutverki sínu meðal
stjómarandstöðuafla í Reykjavík
sem það og forverar þess hafa
notið í bráðum hálfa öld. Það
hmndi úr 20% niður í 8%. Það
missti tvo af þremur borgarfulltrú-
um. Ef þeir kalla þetta varnarsigur
að missa tvo, hefðu þeir þá kallað
það stórsigur að missa þá alla.
Eins og ég sagði; það er spurning
hversu vel sjáandi menn era í
pólitík. Það er til dæmis hægt að
spyija. Út frá markmiðum okkar
Alþýðuflokksmanna hefði það ver-
ið metið mjög jákvætt ef Nýr vett-
vangur hefði fengið til dæmis 25%
atkvæða og 4-5 borgarfulltrúa?
Er þá ekki hætt við að félagsskap-
urinn hefði ef til vill ofmetnast og
talið að nú væri komið fram nýtt
stjómmálaafl í landinu til frambúð-
ár? Athýglisverð -spurnin'g! Nýr
vettvangur var brú yfir til okkar
jafnaðarmanna fyrir þá menn sem
áður vora í Alþýðubandalaginu eða
höfðu flestir hverjir stutt það í
kosningum. Þeim eru nú ekki
vandaðar kveðjumar af forastu
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
og þeir munu ekki leita til baka
yfir þá brú. Með öðrum orðum Nýr
vettvangur skilaði þeim árangri að
styrkja stöðu jafnaðarmanna í
Reykjavík verulega frá því sem hún
var áður og frá því sem hún hefði
getað orðið á hreinum flokkslista.“
Aðspurður sagðist hann aldrei
hafa talað um einhveija fyrirhug-
aða sameiningu Alþýðuflokksins
og Alþýðubandlagsins. Hann hefði
talað um sameiningu jafnaðar-
manna og það þýddi nákvæmlega
að þeir menn sem hefðu sameigin-
lega lífsskoðun og lífsviðhorf og
Alþýðuflokksmenn og það væri
hluti Alþýðubandlagsins, að þeim
væri opnuð leið til samstarfs við
Alþýðuflokkinn.
rmolui r/ iÁA‘> raoin úiv bn .unióæva
Morgunblaðið/Sigurgeir
Vænn fengur
Þórður Sigursveinsson og son-
ur hans Hjörleifur Þórðarson
14 ára, sem rær nú sitt annað
sumar með föður sínum,
kræktu í þessa 250 punda lúðu
á handfæri í gær og er það
óvenju vænn fengur á hand-
færi. Þeir náðu ekki að inn-
byrða lúðuna, hausinn slitnaði
af og kræktu þeir þá í sporðinn
og keyrðu með hana á síðunni
af miðunum til hafnar í Vest-
mannaeyjum.