Morgunblaðið - 30.05.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990
29
Búnaðarþingskosningar á Suðurlandi:
B-listinn jók fylgi sitt
í KOSNINGUM til Búnaðarþings, sem fram fóru á Suðurlandi sam-
hliða sveitarstjórnakosningunum, jókst fylgi B-lista framsóknar-
manna um 3% frá síðustu kosningum. Þrír fúlltrúar náðu kosningu
af B-lista og tveir af D-lista sjálfstæðismanna, en það er óbreytt frá
því sem var í kosningunum 1986.
Á kjörskrá voru 1.698 og kusu
1.354, eða 79,7%. B-listinn fékk
836 atkvæði í kosningunum, éða
61,7%, og D-listinn fékk 461 at-
kvæði, eða 34,0%. Auðir og ógildir
seðlar voru 57 talsins. í kosningun-
um 1986 greiddu 1.397 atkvæði og
var kjörsókn þá 82,8%. Þá fékk
B-listinn 822 atkvæði, eða 58,8%,
og D-listinn 520 atkvæði, eða
37,2%. Auðir og ógildir seðlar voru
þá 55 talsins.
Búnaðarþingsfulltrúar á Suður-
landi næsta kjörtímabil eru þeir Jón
Hólm Stefánsson, Gljúfri, Páll Sig-
uijónsson, Galtalæk og Einar Þor-
steinsson, Sólheimahjáleigu, af B-
lista, og Hermann Siguijónsson,
Raftholti og Jón Ólafsson, Eystra-
Geldingaholti, af D-lista. Eru þetta
sömu fulltrúar og áður, að öðru
leyti en því að Páll Siguijónsson
kemur í staðinn fyrir Jón Kristins-
son, Lambey.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
29. maí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 86,00 77,00 81,70 8,274 676.003
Þorskur(smár) 40,00 40,00 40,00 0,130 5.200
Ýsa 84,00 72,00 77,86 3,926 305.673
Skötuselur 150,00 150,00 150,00 0,388 58.200
Karfi 31,00 31,00 31,00 0,425 13.175
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,166 3.320
Steinbítur 33,00 33,00 33,00 0,021 693
Ufsi(smár) 20,00 20,00 20,00 0,049 980
Langa 30,00 30,00 30,00 0,058 1.740
Lúða 190,00 80,00 165,87 0,722 119.756
Skata 40,00 40,00 40,00 0,006 240
Blandað 43,00 43,00 43,00 0,011 473
Samtals 83,62 14,176 1.185.453
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(sL) 83,00 61,00 70,15 47,834 3.355.564
Þorskur(smár) 52,00 52,00 52,00 2,788 144.960
Ýsa 124,00 54,00 73,90 50,909 3.762.391
Undirmál 37,00 32,00 34,36 1,266 43.503
Karfi 37,00 30,00 34,06 8,535 290.716
Ufsi 43,00 6,00 41,62 142,648 5.937.398
Steinbítur 36,00 34,00 34,37 1,228 42.204
Skata 80,00 80,00 80,00 0,108 8.640
Langa 44,00 39,00 40,73 2,250 91.639
Lúða 230,00 100,00 180,13 0,872 157.075
Skarkoli 48,00 41,00 42,61 0,395 16.832
Sólkoli 52,00 52,00 52,00 0,477 24.804
Skötuselur 295,00 115,00 141,70 1,287 182.370
Keila 8,00 8,00 8,00 0,030 240
Rauðmagi 120,00 115,00 116,36 0,107 12.450
Grásleppa 10,00 10,00 10,00 0,234 2.340
Samtals 53,93 260,967 14.073.126
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 98,00 49,00 70,88 34,616 2.453.402
Ýsa 83,00 35,00 73,09 13,766 1.006.168
Karfi 37,00 33,00 36,05 0,861 31.041
Ufsi 35,00 22,00 29,85 1,692 50.499
Steinbítur 45,00 38,00 42,49 0,755 32.078
Hlýri 38,00 38,00 38,00 0,315 11.970
Langa 43,00 40,00 42,07 1,250 • 52.583
Lúða 220,00 220,00 220,00 0,058 12.670
Skarkoli 34,00 11,00 25,64 0,055 1.410
Sólkoli 88,00 79,00 83,53 0,723 60.393
Langlúra 43,00 43,00 43,00 0,931 40.033
Keila 15,00 15,00 15,00 0,200 3.000
Öfugkjafta 21,00 21,00 21,00 0,994 20.874
Skata 74,00 74,00 74,00 0,036 2.664
Skötuselur 345,00 345,00 345,00 0,408 140.760
Koli 20,00 20,00 20,00 0,081 1.620
Undirmál 38,00 38,00 38,00 0,126 4.788
Humar 1.500,- 720,00 1 .190,00 0,750 892.500
00
Samtals 83,63 57,617 4.818.543
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA
VESTUR-ÞÝSKALAND
29. maí. GÁMASÖLUR í Bretlandi 29. maí.
Þorskur 121,92 98,25 Þorskur 146,05 97,37
Ýsa 164,94 57,37 Ýsa 134,69 105,48
Ufsi 93,23 35,86 Ufsi 64,91 48,68
Karfi 110,44 64,54 Karfi 89,25 68,15
SKIPASÖLUR í Bretlandi 21. til 25. maí.
Þorskur 125,83 189,445 23.887.314
Ýsa 133,19 57,140 7.610.211
Ufsi 48,15 40,105 1.931.134
Karfi 63,55 10,855 691.744
Koli 112,12 0,965 108.194
Blandað 106,93 15,743 1.683.356
Samtals 114,11 314,283 35.861.958
Selt var úr Guðrúnu VE í Hull, 84 tonn, meðalverð 84,84 kr., Hjörleifi RE í
Grimsby, 77 tonn, meðalverð 132,30 kr., Guðmundi Kristni SU í Grimsby, 78
tonn, meðalverð 122,99 kr. og Geira Póturs ÞH í Hull, 76 tonn, meðalverð
118,87 kr.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 21. til 25. maí.
Þorskur 126,09 499,174 62.940.672
Ýsa 128,25 539,049 69.131.267
Ufsi 47,25 40,796 1.927.998
Karfi 71,41 26,058 1.860.836
Koli 100,48 111,156 11.168.845
Grálúða 105,69 44,680 4.722.298
Blandað 115,60 130,301 15.063.044
Samtals 119,91 1.391,807 166.914.999
SKIPASÖLUR í Bremerhaven í Vestur-Þýskalandi 21. til 25. maf.
Þorskur 94,61 34,756 3.288.153
Ýsa 144,61 2,040 295.002
Ufsi 80,35 44,374 3.365.367
Karfi í 06,65 123,934 13.217.001
Blandað 92,00 4,125 379.512
Grálúða 95,86 135,704 13.009.170
Samtals 97,86 344,933 33.754.204
Selt var úr Engey RE, 194 tonn, meðalverð 99,35 kr. og Skagfirðingi SK, 151
tonn, meðalverð 95,95 kr,
° Morgunblaðið/Björn Blöndal
40 nýstúdentar voru brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem er óvenju stór hópur.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
95 nemendur brautskráðir
Að þessu sinni hlutu 7 nemendur viðurkenningar fyrir góðan námsár-
angur. Frá vinstri eru: Rúnar Gísli Valdimarsson húsasmiður, Agnar
Már Olsen fyrir hagfræði, Nikulás Ægisson fyrir sögu og félags-
fræði, Jón P. Haraldsson fyrir sögu og raungreinar, Guðlaug María
Lewis fyrir íslensku, ensku, dönsku, þýsku og frönsku, Inga Sigríður
Haraldsdóttir fyrir dönsku og Anna B. Geirfinnsdótfir fyrir bók-
færslu.
Keflavík.
FJÖLBRAUTASKÓLA Suður-
nesja var slitið í Keflavíkurkirkju
laugardaginn 19. maí að viðstödd-
urn fjölda gesta. Helga Andrés-
dóttir sem var að Ijúka stúdents-
prófi lék á fiðlu við undirleik Gróu
Hreinsdóttir við upphaf athafnar-
innar. Að þessu sinni voru braut-
skráðir 95 nemendur og sagði
Ægir Sigurðsson skólameistari að
hópurinn væri óvenju stór að
þessu sinni. Nú hafa 1437 nemend-
ur verið brautskráðir frá Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja frá upp-
hafi og þar af 496 stúdentar.
Sturlaugur Ólafsson aðstoðar-
skólameistari lýsti starfi skólans í
vetur og þakkaði góðar gjafir sem
honum hefðu borist. Hann sagði að
nemendur í dagskólanum hefðu ver-
ið 600, í öldungadeild 130 og í náms-
flokkum 70 nemendur auk þess sem
Elínrós Eyjólfsdóttir við verk sín.
■ ELÍNRÓS Eyjólfsdóttir, heid-
ur málverkasýningu í Eden í Hvera-
gerði dagana 28. maí til 10. júní
nk. Á sýningunni eru að mestu
vatnslitamyndir af blómum, en hún
er kunn fyrir blómamyndir sínar.
Elínrós lauk námi úr málaradeild
M.H.Í. árið 1987. Hún hefur jafn-
framt stundað nám í Skidmore
College, Saratoga Springs í New
York, Bandaríkjunum á árunum
1986, 1987 og 1989. Auk þess hefur
hún numið postulínsmálun í Dan-
mörku og Bandaríkjunum og hefur
unnið að þeirri listgrein samhliða
vatnslita- og olíuverkum. Verk henn-
ar hafa verið sýnd á nokkrum sam-
sýningum og meðal annars í Skid-
more og hjá Roger Fine Arts Cent-
er Gallery — Salsbyry, Pennsyl-
vania. Þetta er sölusýning, öllum
opin og ókeypis aðgangur á þeim
tímum sem Eden er opin frá kl.
8.30—23, alla daga. Listakonan mun
vera á staðnum og vinna við list sína
þannig að gestir og gangandi geta
fylgst með hvernig listaverk verður
tii.
■ AÐALSAFNAÐARFUNDUR
Digranessóknar verður- haldinn í
Safnaðarheimilinu, Bjarnhólastíg
26, fimmtudaginn 7. júní kl. 20.30.
Fyrir utan venjuleg aðalfundarstörf
verður kirkjubyggingarmálið til
umræðu.
Leiðrétting
í hreppsnefnd á Stokkseyri voru 7
kjörnir en ekki 5 eins og sagt var
í Morgunblaðinu í gær. Þar vantaði
Gauta Gunnarsson af D-lista sem
fékk 2 menn kjörna og Valgerði
Gísladóttur af K-lista sem fékk 3
menn kjörna en ekki 2. Þetta leið-
réttist hér með.
ýmis námskeið hefðu verið haldin í
skólanum.
Brautskráðir nemendur að þessu
sinni voru 40 stúdentar, 16 af flug-
liðabraut, 12 af iðnbraut, 12 af
tveggja ára braut, 6 sjúkraliðar, 3
af skipstjórnarbraut, 3 af hár-
greiðslubraut, 2 tækniteiknarar og
einn nemandi af annars stigs vél-
stjórabraut. Að venju voru veittar
viðurkenningar fyrir góðan náms-
árangur en þær hlutu 7 nemendur
að þessu sinni. Þar bar hæst frábær
árangur Guðlaugar Maríu Lewis sem
fékk viðurkenningu fyrir góðan
námsárangur í 5 greinum, íslensku,
ensku, dönsku, þýsku og frönsku.
Árangur Guðlaugar Maríu í íslensku
var afbragðs góður og hlaut hún
bikar Sparisjóðsins í Keflavík sem
veittur er þeim nemanda sem bestum
árangri nær i íslensku. Nikulás
Ægisson fékk viðurkenningu fyrir
sögu og félagsfræði, Jón Páll Har-
aldsson fyrir sögu og raungreinar,
Inga Sigríður Harðardóttir fyrir
dönsku, Anna B. Geirfinnsdóttir fyr-
ir bókfærslu, Agnar Már Olsen fyrir
hagfræði og Rúnar Gísli Valdimars-
son húsasmiður. — BB
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK:
25.-27. maí
Lögreglan þurfti rúmlega
hundrað sinnum að hafa afskipti
af ölvuðu fólkið, auk fyölda mála,
sem ölvað fólk tengdist á einn eða
annan hátt. Um 60 einstaklingar
voru vistaðir í fangageymslum um
helgina vegna ölvunaróláta,
skemmdarverka, slagsmála, inn-
brota og þjófnaða. 8 þeirra voru
færðir fyrir dómara að morgni, en
aðrir voru færðir til frekari
skýrslutöku eða leyft að fara eftir
að hafa sofíð úr sér áfengisáhrifin.
5 óskuðu gistingar vegna þess að
þeir áttu hvergi annars staðar
höfði sínu að halla.
5 umferðarslys urðu í umdæm-
inu um helgina. Barn á reiðhjóli
varð fyrir bifreið í Fossvogi á
föstudag. Þann dag varð gangandi
vegfarandi fyrir bifreið við gatna-
mót Pósthússtrætis og Austur-
strætis. A laugardag varð drengur
á hjólabretti fyrir bifreið við Kaup-
stað í Mjódd. Þá meiddist einnig
ökumaður er bifreið hans valt á
Miklubraut við Grensásveg. Á
sunnudag lenti barn fyrir bifreið á
Arnarbakka. í flestum tilvikunum
var um óveruleg meiðsli að ræða.
Annríki var hjá lögreglu á kosn-
ingadaginn 26. eins og venja er
af því tilefni. Umstangið felst í
vörslu á og við kjörstaði, umferðar-
stjórn, gæslu og flutningi kjör-
gagna auk annarra verkefna
tengdum kosningunum. Allt fór
þetta vel fram, enda almenningur
í sólskinsskapi. Talsverð ölvun var
um nóttina. Lögreglan varð að
hafa afskipti af ölvuðu fólki í
heimahúsum eftir slagsmál og
nokkra ölvaða einstaklinga þurfti
að flytja úr miðborginni vegna ölv-
unaróláta. Ölvaður ökumaður ók á
ljósastaur við Reykjanesbraut við
Breiðholtsbraut og þurfti að flytja
tvo úr bifreiðinni á slysadeildina.
14 ökumenn eru grunaðir um
að hafa verið undir áhrifum áfeng-
is við akstur um helgina svo og 4
aðrir, sem lentu í umferðaróhöpp-
um.
16 voru kærðir fyrir of hraðan
akstur um helgina svo og fyrir
önnur umferðarlagabrot.
Tilkynnt var um 7 innbrot og
12 þjófnaði. Þá voru 3 staðnir að
hnupli í verslunum.
Tilkynnt var um skemmdarverk
á 15 stöðum, en „einungis" tvö
rúðubrot. 4 slys urðu á fólki í
umdæminu og 4 sinnum var til-
kynnt um lausan eld.
7 sinnum var tilkynnt um
líkamsmeiðingar. Flestar þeirra
voru afleiðingar slagsmála ölvaðs
fólks. Ölvaður maður var handtek-
inn í Lækjargötu eftir að hafa ráð-
ist þar að lögreglumanni. Þá var
annar ölvaður maður handtekinn
í Lækjargötu eftir að hafa ráðist
þar að fólki aðfaranótt sunnudags.