Morgunblaðið - 30.05.1990, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990
AKUREYRI
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þessir krakkar fengu viðurkenningu frá Skákfélagi Akureyrar, en þau fengu flest stig eftir laugar-
dagsælíngar félagins í vetur. Frá vinstri Þorbjörg Þórsdóttir, Hafþór Einarsson, Magnús Dagur
Asbjörnsson, Einar Jón Gunnarsson, Gestur Einarsson, Páll Þórsson, Pétur Grétarsson og Helgi
Gunnarsson.
Uppskeruhátíð Skákfélagsins
UPPSKERUHÁTÍÐ Skákfélags
Akureyrar var haldin fyrir
skömmu og voru þá veitt verð-
laun fyrir öll mót á vegum fé-
lagins frá áramótum.
Skáklífið hefur verið öflugt í
vetur og hafa margir setið að tafli
í Félagsheimili Skákfélagsins við
Þingvallastræti. Haidnar voru
æfíngar á laugardögum fyrir
yngstu skákmennina og þar
mættu margir, einkum fyrri part
vetrar.
Skákfélag Akureyrar á nú tvær
sveitir í fyrstu deild deildakeppni
Skáksambands íslands og ungl-
ingasveit frá félaginu vann sigur
í þriðju deildinni, þannig að skák-
menn á Akureyri eru ánægðir
með árangurinn af vetrarstarfínu.
Rúnar Sigurpálsson varð Akur-
eyrarmeistari á Skákþingi Akur-
eyrar sem haldið var seinni hluta
vetrar. Magnús Pálmi Örnólfsson
varð efstur að stigum á þinginu,
Sigurvegarar á Skákþingi Akureyrar, frá vinstri er Bogi Páls-
son, sem varð í þriðja sæti, Rúnar Sigurpálsson Akureyrarmeist-
ari og Magnús Pálmi Ornólfsson sem varð efstur að stigum á
mótinu, en er ekki með lögheimili á Akureyri.
en hann er búsettur á Bolung-
arvík og getur því ekki orðið
Akureyrarmeistari. En Magnús
Pálmi þarf ekki að vera sár, hann
fékk flugferð til útlanda frá Flug-
leiðum fyrir árangur sinn á þing-
inu. í þriðja sæti varð Bogi Páls-
son.
Slippstöðin og Ós hf.:
Stjóm Fiskveiðasj óðs
tók vel í umsókn
um smíði nýs skips
Á FUNDI stjórnar Fiskveiðasjóðs
sem haldinn var í gær var vel
tekið i umsókn Oss hf. í Vest-
mannaeyjum um lán vegna smíði
nýs skips, sem smíðað yrði í
Akureyri;
Ingvar Þor-
valds son sýnir
í Gamla Lundi
INGVAR Þorvaldsson opnar mál-
verkasýningu i Gamla Lundi,
Akureyri, laugardaginn 2. júní
kl. 14.
Á sýningunni eru 40 verk, olíu-
málverk og vatnslitamyndir og er
þetta 20. einkasýning Ingvars.
Sýningin er opin kl. 14—20 daglega
en henni lýkur þriðjudaginn 5. júní.
Slippstöðinni á Akureyri næsta
vetur. Afgreiðslu var þó frestað
þar til ný stjórn sjóðsins kemur
saman í júnibyrjun.
Már Elísson framkvæmdastjóri
Fiskveiðasjóðs sagði að umsókninni
hefði verið vel tekið, enda stæðu
miklir fyrirmyndarmenn að fyrir-
tækinu Öss hf. Þar sem um var að
ræða síðasta fund þessarar stjómar
hefði afgreiðslu málsins verið frest-
að þar til ný stjóm kæmi saman,
en það verður fljótlega í næsta
mánuði.
Fyrir liggur samningur á milli
Óss hf. í Vestmannaeyjum og Slipp-
stöðvarinnar á Akureyri um smíði
á skipinu. Hljóti lánsumsókn Óss
jákvæða umfjöllun hjá nýrri stjóm
Fiskveiðasjóðs og samningurinn
gangi eftir kemur til greina að
Slippstöðin taka hið þekkta aflaskip
Þómnni Sveinsdóttur VE upp í
kaupin.
Nýja skipið verður 37 metra
langt og 8 metra breitt, skuttogari
með möguleika á netaveiðum. Sig-
urður Ringsted forstjóri Slippstöðv-
arinnar sagði að undirþúningur
vegna smíðinnar væri þegar hafínn,
þar sem stefnt væri að því að helja
verkið í haust. „Þetta er nauðsyn-
legt verkefni fyrir okkur til að geta
haldið uppi lágmarksstarfsemi
næsta vetur, þetta yrði það kjöl-
festuverkefni sem við þurfum til
að halda starfseminni óbreyttri frá
því sem nú er,“ sagði Sigurður.
Lést af slysförum
LITLI drengurinn sem slasaðist
við Múlasiðu á Akureyri í síðustu
viku lést á sjúkrahúsi á laugar-
dag. Hann hét Hákon Marteinn
Leifsson og var eins og hálfs árs
gamall. Ekki er að fullu ljóst með
hvaða hætti slysið varð, en talið
er að yfír hann hafi fallið bretti
undan grasþökum.
Samdráttur hjá Kísiliðjimni
á sölu kísilgúrs til útlanda
HAGNAÐUR varð af rekstri
Kísiliðjunnar í Mývatnssveit á
síðasta ári og nam hann 14,1
milljón króna. Þetta kom fram
á aðalfundi fyrirtækisins sem
haldinn var á Hótel Reynihlíð í
gær. Á fúndinum var gengið frá
breytingum á samþykktum fé-
lagsins í samræmi við breytt lög
um Kísiliðjuna, en þau gera
henni kleift að sinna annarri
atvinnustarfsemi en vinnslu á
kísilgúr.
Myndun meirihluta í bæjarstjórn:
Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
bandalag* ræddust við í gær
VIÐRÆÐUR fóru fram á milli Sjálfstæðisflokks og Alþýðubanda-
lags um myndun nýs meirihluta í bæjarstjóm Akureyrar í gær.
Fulltrúar flokkanna ætla að heyra í sínu fólki hvort grundvöllur
reynist fyrir frekari viðræðum og ef svo reynist ætla fúlltrúarnir
að hittast aftur í dag.
í viðræðunum tóku þátt þeir
Sigurður J. Sigurðsson og Bima
Eiríksdóttir frá Sjálfstæðisflokki
og Sigríður Stefánsdóttir og Heim-
ir Ingimarsson frá Alþýðubanda-
lagi.
Sjálfstæðismenn munu hittast í
hádeginu í dag og sagði Sigurður
J. Sigurðsson að ætlunin væri að
kanna hug manna til frekari við-
ræðna þessara flokka. Yrði niður-
staðan sú að mönnum litist á slíkt
samstarf myndu fulltrúar flokk-
anna tveggja hittast aftur 'í dag
og ræða málin frekar. „Það má
segja að málin hafí skýrst í þessum
viðræðum en endanlega ræðst í
dag hvort framhald verður á við-
ræðunum," sagði Sigurður.
Sigríður Stefánsdóttir fulltrúi
Alþýðubandalags sagði að um
óformlegar könnunarviðræður
hefði verið að ræða. Alþýðubanda-
lagsfulltrúarnir væru í sambandi
við sitt fólk og ef menn gæfu já-
kvætt svar yrði viðræðum haldið
áfram. „Það er auðvitað alveg ljóst
að þamá em mjög ólíkir flokkar
að tala saman og ekki við því að
búast að þeir verði sammála um
alla hluti, en þeir gætu orðið sam-
mála um mjög mikilvæga hluti
sem nauðsynlegir em fyrir þennan
bæ“ sagði Sigríður.
Á fundi fulltrúaráðs framsókn-
arfélaganna í fyrrakvöld var kjörn-
um bæjarfulltrúum falið umboð til
að ganga til viðræðna um myndun
nýs meirihluta á Akureyri og
höfðu fulltrúar flokksins samband
við fulltrúa Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags um miðnætti í
fyrrakvöld. Eftir að viðræður hóf-
ust á milli þessara tveggja flokka,
sagði Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
að framsóknarmenn biðu átekta
og ætluðu að sjá hver framvinda
mála yrði. ■' '
Rekstrartekjur félagsins vom
344,5 milljónir króna á síðasta ári,
eiginfjárstaðan er sterk, en eigið
fé fyrirtækisins er 632 milljónir
króna. Eiginfjárhlutfallið er 94%.
Heijdarskuldir eru 38 milljónir.
Á síðasta ári voru framleidd
24.900 tonn af kísilgúr. Til útflutn-
ings fóru 24.216 tonn, en það er
8% samdráttur frá árinu 1988. Á
innanlandsmarkaði voru seld 49
tonn.
Tilgangur með rekstri Kísiliðj-
unnar hefur eingöngu verið að
vinna kísilgúr úr botni Mývatns, en
á aðalfundinum var gengið frá
breytingum á samþykktum félags-
ins í samræmi við breytt lög um
Kísiliðjuna sem samþykkt voru á
Alþingi og staðfest um áramót. Hér
eftir verður félaginu auk þess sem
það vinnur kísilgúr ætlað að tryggja
möguleika á vexti og viðgangi fyrir-
tækisins með arðvænlegum fjár-
festingum í skyldum greinum og
öðrum greinum atvinnurekstrar á
eigin vegum, eða með þátttöku í
öðrum félögum, eða stofnun dóttur-
félaga, eins og segir í viðbót við
3. grein samþykkta félagsins.
Róbert Agnarsson framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar sagði að fyrir-
tækið hefði verið í samstarfí við
Iðntæknistofnun um tveggja ára
skeið þar sem möguleikar hefðu
verið kannaðir á nýiðnaði. Varðandi
þátttöku í atvinnulífinu á öðrum
vettvangi en vinnslu kísilgúrs væri
verið að skoða ýmsa möguleika, en
ekki væri búið að ákveða neitt enn-
þá.
Hjá Kísiliðjunni störfuðu að jafn-
aði 64 menn á síðasta ári.
Seðill frá 1988 upp
úr kjörkassa á Dalvík
ER TALIÐ var upp úr kjörköss-
unum á Dalvík aðfaranótt sunnu-
dags fannst atkvæðaseðill frá for-
setakosningunum árið 1988.
Halldór Jóhannesson sem sæti á
í kjörstjórn á Dalvík sagði að menn
hefðu engar skýringar á því hvern-
ig á atkvæðaseðlinum gæti staðið.
Umræddur atkvæðaseðill úr for-
setakosningunum t kom fram við
talningu utankjörstaðaatkvæða.
„Þessi seðill kom fram alveg í lokin
og menn vissu ekki hvaðan á sig
stóð veðrið. Við höfum engar skýr-
ingar á því hvemig þetta hefur
gerst,“ sagði Halldór.
Seðillinn er nú ásamt öðrum kjör-
gögnum innsiglaður hjá fulltrúa
bæjarfógeta og sagði Halldór að
ekkert yrði aðhafst í málinu fyrr
en að loknum kærufresti.