Morgunblaðið - 30.05.1990, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990
39
Loðdýrabændur! Bregðið
vonlausum búum ykkar
eftir Magnús H.
Skarphéðinsson
í allri umræðunri nú um vanda
loðdýraiðnaðarins er ríkinu sífellt
kennt um hvernig komið er fyrir
ykkur bændur sem fóruð út í þenn-
an fyrirfram vonlausa hryllingsiðn-
að. En það er bara ekki rétt.
Núna á innan við áratug hefur
meðal loðskinnaverð lækkað um
60-70% á heimsmarkaðnum. Fyrir
þessu gat ríkið ekkert frekar séð
en þið. Svo sökin er sameiginleg
allra þeirra sem á einn eða annan
hátt stuðluðu að þessari fyrirfram
dauðadæmu búgrein (sem betur fer
með tilliti til lífstefnunnar). En
þetta er samt ekki heldur aðalmálið
í stöðunni í dag.
Það eru alls engar líkur á
að markaðurinn lagist aftur
Það sem menn og konur sem
standa í þessari búgrein í dag þurfa
að gera sér grein fyrir er hvort
nokkurt vit sé í að reyna að klórast
fram úr þessu gjörsamlega von-
lausa ástandi í gi-eininni, í veikri
og vonlausri bið eftir betri tíð á
markaðnum. En um það er bara
alls_ ekki að ræða, kæru bændur.
Arið 1980 nam heildarsala allra
loðskinna í veröldinni samtals um
12 milljörðum ísl. króna. Árið 1989
var þessi heildarsala komin niður í
tæplega 2,8 milljarða króna, eða
innan við 'A hluta þess sem það
hafði verið aðeins níu árum áður.
Algjörlega er út í hött að reyna
að skýra þetta stanslausa verðfall
skinnanna allan þennan tíma með
einhveiju óvenjuhlýju árferði niðri
í Evrópu síðastliðin tvö ár eins og
forsvarsmenn loðskinnaðiðnaðarins
hér heima hafa tönnlast í sífellu á,
algjörlega upp á sitt eindæmi. Og
án allrar ábyrgðar eins og vai'ðandi
flestallar fyrri ráðleggingar þeirra
til loðdýraræktenda hérlendis.
Þó hlýindaárin hefðu jafnvel ver-
ið þijú eða fjögur samfleytt í Evr-
ópu þá breytir það bara engu um
hina raunverulega níu ára linnu-
lausa og borðliggjandi orsök verð-
fallsins. Þetta verðfall var byijað
löngu áður en þessar hlægilegu
skýringar forsvarsmanna iðngrein-
arinnar gætu hafa átt við. Það
hefðu allir með lágmarks þekkingu
á markaðnum getað séð fyrir. Að-
eins með því að kynna sér hina
raunverulegu stöðu mála um kaupin
og horfurnar í greininni.
Á að hlusta enn á sömu
vonlausu ráðgjafana?
Er nú ekki komið nóg af ráðum
þessara óskabjartsýnis- og Bjarma-
lands-„ráðgjafa“ í greininni? Eg
held að þið bændur hljótið að geta
svarað því best sjálfir. Á ykkur og
flölskyldum ykkur brennur eldurinn
heitast, en ekki á skrifborðsmönn-
unum í kaupstaðnum. Og því síður
á möppudýrunum í ráðuneytunum
og víðar í höfuðstaðnum.
Auðvitað verður samneyslan að
koma hér strax til hjálpar og að-
stoða ykkur sem og allt það fólk
og fjölskyldur sem í þessu standið,
við að komast út úr þeim álögum
sem þessi helstefna og heliðnaður
hefur leitt það og reyndar allt líf-
kerfið út, í bæði efnahagslega og
siðferðislega.
Það sem gerst hefur er að dýra-
vinir allra landa hafa náð þetta
góðum árangri í baráttunni fyrir
loðdýrunum, til að enda þessa hel-
Magníis H. Skarphéðinsson
„Árið 1980 nam heild-
arsala allra loðskinna í
veröldinni samtals um
12 milljörðum ísl.
króna. Árið 1989 var
þessi heildarsala komin
niður í tæplega 2,8
milljarða króna.“
för þeirra, að markaðurinn hefui'
hrunið í rúst sem betur fer að mínu
mati og allra sannra lífstefnusinna.
Ég veit þetta er kannski nokkuð
kaldranalega sagt. En svona er nú
ástandð samt. Staðreyndir liggja á
borðinu: Það eru nánast engar líkur
á að markaðurinn lagist nokkurn
thnan til frambúðar. Einhver blæ-
brigðahækkun skinnanna gæti orð-
ið í fyrsta lagi eftir tvö eða þijú
ár. En hvaða glóra væri að gera út
'á þann vonlausa tígultvist í þessari
lönguvitleysu? Hver vill spila áfram
í þessum rússneska póker?
Takið upp geðslegri
búgreinar bændur
Ekki bara sem dýravinur heldur
einnig sem bændavinur og dreifbýl-
isaðdáandi þá hvet ég loðdýrabænd-
ur til að bregða búi sem fyrst og
koma sér upp einhverri geðslegri
fyrirvinnu svo fegurra mannlíf og
dýralíf nái að þróast hér ögn á
hærra plani, hér á þessu rykkorni
sem við búum á í alheimnum, nefni-
lega hótelinu Jörð.
Það er nefnilega ekki lengur um
það deilt að hótelið sjálft mun ekki
græða. Það fer að verða gjaldþrota
vegna örtraðar og kapps gestanna
(boðflennanna) um að ná sér sífellt
í betri sæti. Sæti sem samt eru
ekkert betri en hin sem að ytra
útliti líta kannski ekki eins vel út.
En markmið allra góðra og krist-
inna manna hlýtur að vera: Burt
með helstefnu allra landa!
Höfundur er baráttumaðurgegn
loðdýraræktun og hvalveiðum.
Búðu sjálfum þér og fjölskyldunni
sælureit f garðinum
Húsasmiðjunni færðu allt efni í sólpalla, Við gerum tilboð eftir málum. Taktu nú
skjólveggi og girðingar. Og í bæklingi
upp tommustokkinn, mældu hvernig þú
Húsasmiðjunnar um þessi efni er að finna vilt hafa sólpallinn, skjólvegginn eða
hugmyndir um útlit, vinnuteikningar og
efnis'stærðir sem henta best.
girðinguna og komdu svo í Húsasmiðjuna
eða hringdu til okkar.
HUSASMIÐJAN
Súðarvogi 3-5 ■ 104 Reykjavík ■ Sími 91-687700
Húsasmiðjan hjálpar þér að njóta sumarsins.