Morgunblaðið - 30.05.1990, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1990
41
Sigrún Sigurjóns-
dóttir - Minning
Fædd 27. mars 1940
Dáin 18. maí 1990
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur hið sama;
en orðstír
deyr aldrei,
þeim er sér góðan getur.
(Hávamál)
Ævistarf Sigrúnar frænku
minnar var hjúkrun. Hennar líkum
kynnast fæstir oft. Hún var ákaf-
lega heil manneskja, sá alltaf björtu
hliðarnar á lífinu og mönnunum.
Fyrir þremur árum veiktist Sig-
rún af krabbameini, barátta hennar
var hetjuleg og stundum hélt ég
að hún væri búin að sigrast á sjúk-
dómnum. Oft óskaði ég mér þess
að ný lyf yrðu fundin upp og eng-
inn þyrfti að þjást af þessu lengur.
Þegar höggvið er svona nærri, finn-
ur maður, hversu dauðleg við ann-
ars erum.
Sigrún skilaði sínu og vel það á
þeim annars of stutta tíma sem hún
lifði.
Það er huggun okkar sem hana
syrgjum að hún er á góðum stað,
og minningin um hana lifir.
Ég bið guð að blessa Gauja,
Tomma, Diddu og Kötu og veita
þeim styrk og huggun.
Kristín firænka
Þann 25. maí, á einum fegursta
degi þessa langþráða sumars,
kvöddum við hinstu kveðju elsku-
lega vinkonu okkar og skólasystur,
Sigrúnu Siguijónsdóttur. Þessi dag-
ur var táknrænn fyrir hana og
hennar líf, hlýr og bjartur. Ótrú-
legri baráttu við erfiðan sjúkdóm
er lokið, en eftir lifir minningin um
einstaka konu, sem átti svo margt
að gefa.
Það var vorið 1972, að K-holl
hóf nám í Hjúkrunarskóla íslands,
og þótti hópurinn ærið sundurleitur
í byijun. Við vorum komnar mis-
langt í skóla lífsins, og höfðum ólík-
an bakgrunn. Þrátt fyrir að Sigrún
hafi haft í mörg horn að líta er
skóladegi lauk — hún átti Gauja
sinn og börnin heima — þá var það
hún öðrum fremur, sem sameinaði
þennan hóp. Hún lagði ætíð gott
til málanna og reyndi að finna ljósu
punktana í heitum umræðum í setu-
stofunni í HSÍ og þó ekki væri hún
hávær, þá hlustuðum við allar á
hana.
Við útskrifuðumst 32 hjúkrunar-
konur vorið ’75, og hurfum til starfa
á hinum ýmsu stofnunum. En
grunnurinn að þeim vinskap, er
lagður var á námsárunum var
traustur, og stór hluti hópsins hefur
hist reglulega og átt góðar stundir
saman og þar lét Sigrún sig aldrei
vanta. Síðustu misserin vofði ský
alvarlegs sjúkdóms yfir, en umvafin
ást og kærleika Gauja og ljölskyld-
unnar tókst henni að njóta lífsins
þannig til hinstu stundar, að við sem
eftir erum megum margt af því
læra.
í febrúarlok komum við „hollið“
okkar síðast saman, rétt fyrir 15
Hrunamannahreppur:
Konur í meirihluta
Syðra-Langholti.
ÞRJÁR konur og tveir karlmenn
eru í nýrri hreppsnefiid Hrauna-
mannahrepps og eru konurnar
því í meirihluta.
Úrslit í kosningum voru á þann
veg að á H-lista óháðra kjósenda
var kosin Helga G. Halldórsdóttir
en H-listi fékk 75 atkvæði. K-listi
samtarfshóps um sveitarstjronamál
hlaut 277 atkvæði og 4 menn
kjörna. Loft Þorsteinsson, Kjartan
Helgason, Guðrúnu Hermannsdótt-
ur og Helgu Teitsdóttur. Konur eru
því í meirihluta í hreppsnefnd
Hrunamannahrepps.
- Sig.Sigm.
ára útskriftarafmælið, og fundum
við þá vel að hveiju dró, einkum
er hún kvaddi okkur hveija og eina,
og sagði okkur að enn ein aðgerðin
stæði fyrir dyrum.
Sigrúnar verður sárt saknað í
okkar hópi, hún var burtu kvödd
allt of fljótt. Elsku Gaui og fjöl-
skylda, megi allar minningarnar um
elskulega eiginkonu og móður verða
ykkur styrkur í sorginni.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
Skólasystur í K-holli
Haldin á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík: Frá 5. -15. júní, 18. - 29. júní og 13. - 24. ágúst
Kópavogur: Frá 18.—29. júní
Hafnarfjörður: Frá 2.-13. júlí
Mosfellsbær: Frá 30. júlí—10. ágúst
Akureyri: Frá 13.-24. ágúst
^o 0 a> c & cn Austfirðir: Frá 9. -16. júní. Sumarbúðir á Hallormsstað.
o
E < SKRÁNft IG OG UPPLYSINGAR1SIMA 2 67 22
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
TOLVU-
MÖPPUR
frá Múlalundi... z
þar er tölvupappírinn vel geymdur. |
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50