Morgunblaðið - 30.05.1990, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990
félk í Jéi
fréttum .. ■ mI
Þetta er eitt af björgunarskipum þýska sjóslysavarnafélagsins í Bremen. Skipið var tekið í notkun
1988. Það er 27,5 metra langt.
bjorgunaStorf
JJ
Afinæli sjóslysavarnafélags í Bremen
Islensk fískiskip sigla oft til
Bremen í Þýskalandi. Nýlega
var þar haldið upp á 125 ára af-
mæli Þýska sjóslysavamafélags-
ins, eða félagsins til að bjarga
skipum í neyð, eins og það heitir
í orðréttri þýðingu. Eins og Slysa-
varnafélag íslands á félagið i
Bremen rætur að rekja til fram-
taks áhugamanna um björgunar-
störf, sem tóku fyrst höndum
saman í Þýskalandi 1865. Nú
veitir félagið vaktþjónustu allan
sólarhringinn og á skip sem senda
má til björgunarstarfa með
öskömmum fyrirvara.
Fyrir utan sérþjálfaða menn í
áhöfnum björgunarskipa getur
þýska félagið leitað til 220 sjálf-
boðaliða sem em fúsir til að sinna
björgunarstörfum. Þeir létu úr
höfn 2.200 sinnum á síðasta ári
og björguðu um 2.000 manns úr
neyð. Frá því að félagið var stofn-
að hafa meira en 50.000 manns
í neyð hvaðanæva úr veröldinni
hlotið aðstoð félagsins. 42 félags-
menn hafa týnt lífí við störf sín.
Þýska sjóslysavarnafélagið er
alfarið rekið fyrir styrki og gjaf-
afé frá 180.000 félagsmönnum í
því. Á síðasta ári námu útgjöld
félagsins samtals tæpum 700
milljónum króna og runnu þau
nær einvörðungu til björgunar á
sjó og til að tryggja nauðsynlega
aðstöðu í landi svo að unnt væri
að sinn'a björgunarstörfum með
viðunandi hætti.
Zsa Zsa Gabor ásamt eiginmanni sínum Frederik von Anhalt.
UNDANBROGÐ
Zsa Zsa reynir enn að
skjótast undan afþlánun!
Dómari í Beverly Hills, sá hinn
sami og dæmdi Zsa Zsa Ga-
bor til 120 stunda launalausrar
vinnu við félagsstörf fyrir að reka
lögreglu þjóni kinnhest, hefur nú
varað leikkonuna við því að hann
muni þyngja dóminn ef hún reyni
einhver undanbrögð. Hafa að sönnu
verið brögð að slíku að undanförnu.
Hefur Zsa Zsa meðal annars frei-
stað þess að reikna með tímann sem
það tekur hana að farða sig að
morgni dags, en á vikugrundvelli
er það fjöldi klukkustunda. Einnig
hefur hún dregið frá þann tíma sem
það tekur hana að aka til og frá
góðgerðastofnuninni sem hún star-
far fyrir. Er talið að hin umdeilda
Zsa Zsa láti sér nú segjast, því að
dómarinn hefur þegar þyngt dóm-
inn einu sinni, en hann bætti 60
stundum við fyrir fáeinum vikum,
er hún var með alls konar undan-
brögð og brellur til að komast hjá
vinnunni.
Frúnni hefur verið tilkynnt að
næsta þynging dómsins leiði til
fangelsunar. Er hún svo æf af reiði
vegna þessa, að hún blés til frétta-
mannafundar fyrir skömmu og
sýndi með töflum og dagbókar-
færslum hvernig hún fengi út að
hún hefði nú þegar skilað af sér
135 klukkustundum. Helmingur
þeirra stunda fór í að sanka saman
áheitarloforðum með símhringing-
um um allar jarðir. Yfirmaður Bern-
ardi Senior-góðgerðastofnunarinn-
ar sem Zsa Zsa starfar nú fyrir
hefur hins vegar sagt að frúin megi
alls ekki_ reikna sér þær klukku-
stundir. í úrskurði dómarans segir
að leikkonan eigi að starfa á meðal
þeirra sem lent hafa á glapstigum
eða minna mega sín í þjóðfélaginu.
HLUTVERKASKIPTI
Patti Hearst reynir
kvikmyndaleik
Patty Hearst, fjölmiðlaerfínginn
frægi sem er e.t.v. þekktust
fyrir að hafa gengið á mála með
borgarskæruliðum hér um árið og
rænt banka með þeim, hefur nú
snúið sér að kvikmyndaleik. Ungfrú
Hearst leikur eitt aðalhlutverkið í
myndinni „Cry Baby“ sem John
Waters hefur leikstýrt og var sýnd
á kvikmyndahátíðinni í Cannes á
dögunum. Málin hafa heldur en
ekki snúist við hjá Patti sem var
sjálf Ieikin af leikkonunni Natöshu
Richardson í kvikmynd sem fjallaði
um lífshlaup ungfrú Hearst, ekki
síst tímabilið er hún var í tygjum
við fyrrnefndan rumpulýð.
6LÆSILEGT 2JA ÁRA FISKISKIP TIL SÖLU
- Á MJÖ6 HAGKVÆMU VERUI
M.S. Lisa Maria T-12-T Tromsö, Noregi, DNV +1A1,
37,5 metra línu og netaveiðiskip, byggt 1988, Portúgal,
með 32.000 króka autoline-búnaði, frystingu 24 tonn/24
tíma, fullkominn vinnslubúnaður (Baader) fyrir heilfryst-
ingu, flakafrystingu og saltfiskvinnslu. Aðalvél 1100 hest-
öfl. Skipsskrokkur hannaður til breytinga í togveiðiskip.
Nánari upplýsingar gefa:
Halfdan Eilertsen, Tromsö, Noregi, sími 9047-83-85530,
Úlfar Ármannsson, Vélorka, Reykjavík, sími 621222, hs.
52245.
Christiania Bankog kredidkasse,
Grönnegt 80, Tromsö, Norge.
Patti Hearst.
VIÐURKENNING
Níu ára stúlka hæst í Vogum
Níu ára stúlka, Guðrún Stef-
ánsdóttir, var með hæstu
einkunn á vorprófum frá Stóru-
Vogaskóla í Vogum að þessu
sinni. Hún var nemandi í 3.
bekk og er samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins yngsti nem-
andinn sem nær hæstu einkunn
frá skólanum. Það kom- þvf í
hennar hlut farandbikar, til
varðveislu til næstu vorprófa,
sem er veittur fyrir bestan
árangur.
Guðrún sagði í samtali við
fréttaritara Morgunblaðsins að
sér þætti gaman í skólanum,
en skemmtilegustu fögin sagði
hún vera handavinnu, stærð-
fræði og sund.
Aðspurð sagðist hún ekki
hafa þurft að leggja sérstaklega
mikið á sig við námið.
- EG.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Guðrún Stefánsdóttir með bikar
sem var veittur fyrir hæstu ein-
kunn frá skólanum.
Lærið Naprapat-meðferð!
Naprapat er nútímalegt meðferðarform á sviði sjúkraþjálfunar, þar sem einkum
er fengist við meinsemdir í vöðvum, liðum og hrygg. Náminu er skipt upp í
eftirfarandi grunnþætti:
Læknisfræði:
Líffærafræði, aflfræði, lífefnafræði, lífeðlisfræði
taugasjúkdómafræói, næringarfræði, bæklunar
lækningar, meinafræði.
Sjúkraþjálfun:
Raflækningar, nudd og teygjur.
Handlækningar:
Greining, vinnuvistfræði, líffærafræði, endur
hæfíng.
íþróttalækningar:
Íþróttalífeðlisfræði, íþróttasálarfræði, íþrótta
meiðsli.
Umsóknarfrestur fyrir haustið 1990 er til 10. júní
Kennsluna annast háskólakennarar, læknar og
viðurkenndir sérfræðingar á þessu sviði.
(4 NaprapothicSchool
- skólinn sem annast alla kennslu í
Naprapat-meöferð á Norðurlöndum.
Observatoriegatan 19-21,113 29Stockholm
Sími 8-16 01 20