Morgunblaðið - 30.05.1990, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990
45
UPPGJÖR
Skauta-
drottning’
á hálum ís
Trier. Frá Steingrími Sigurgeirssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
Katarina Witt, skautadrottn-
ingin frá Austur-Þýska-
landi, var til skamms tíma kölluð
„fegursta andlit sósíalismans" í
vestrænum fjölmiðlum. I dag er
hún forsmáð af landsmönnum
sínum og helsti skotspónn „gulu
pressunnar" í Vestur-Þýskalandi
með fjöldablaðið Bild í farar-
broddi. Skautadrottningin sjálf,
sem predikaði sósíalisma en lifði
eins og broddborgari, á mjög
erfitt með að átta sig á þessum
snöggu umskiptum.
Katarina Witt var aldrei ein
af þeim sem gagnrýndi stjórn-
kerfí Austur-Þýskalánds á með-
an kommúnistar voru þar enn
við völd. Það stóð aldrei á henni
að láta taka af sér mynd bros-
andi við hliðina á kommúnista-
leiðtogum á borð við Erich Hon-
ekcer eða Egon Krenz. Þau eru
líka ófá viðtölin við hana sem
birtust í vestrænum fjölmiðlum
þar sem hún lýsti því hvað lífið
væri nú dásamlegt í Austur-
Þýskalandi og einræði sósíalis-
mans væri hið besta samfélag-
skerfí sem völ væri á. Þegar
austur-þýskir borgarar flykktust
í sendiráð Vestur-Þýskalands í
Prag og Búdapest síðastliðið
haust sagði hún í viðtali við
Junge Welt, málgagn FDJ, æsk-
ulýðssamtaka Kommúnista-
flokksins: „Ég hef aldrei skilið
af hveiju fólk vill yfirgefa Aust-
ur-Þýskaland.“ Sjálf gæti hún
ferðast um allan heiminn að vild
og hafði verulegar tekjur af aug-
lýsingasamningum við vestræn
fyrirtæki. íþróttamenn á heims-
mælikvarða voru hluti af austur-
þýsku forréttindastéttinni og
beinist reiði almennings því nú
ekki síður að þeim en forystu-
mönnum flokksins.
Hvers konar taugar almenn-
ingur í Austur-Þýskalandi ber í
garð Katarinu Witt kom í ljós
þegar í febrúar er hún var við-
stödd frumsýninguna á myndinni
Carmen (þar sem hún er í aðal-
hlutverki) í Dresden. Einungis
„heiðursgestirnir" klöppuðu fyrir
Witt.
Hin 24 ára gamla Katarina
Witt dvelst nú í Bandaríkjunum
og gerir það gott. Hún virðist
eiga erfítt með að átta sig á
atburðunum í gamla heimal-
andinu og hefur í blaðaviðtali
sagt að þetta allt saman geri
hana sjálfa „ringlaða“. í nýlegri
grein í vestur-þýsku tímariti, þar
sem hún reynir að útskýra sjón-
armið sín, segist hún helst ekki
Katarina Witt, „stjarna" aust-
ur-þýsks kommúnisma, nýtur
lítilla vinsælda heima fyrir en
á gilda sjóði í Bandaríkjunum.
vilja hugsa um Þýskaland eins
og er. I mars hafí hún verið í
Þýskalandi, nánar tiltekið í Berl-
ín, og þar hafi allt hótelið verið
fullt af fjármálamönnum sem
einungis hefðu áhuga á að græða
og létu sig fólkið lítið varða. Má
helst ráða af orðum hennar að
hún hyggist setjast að í Banda-
ríkjunum (en þar nema tekjur
hennar tugum ef ekki hundruð-
um milljóna íslenskra króna).
Ef dæma má af því hvemig
rætt er um Witt í Þýskalandi er
ólíklegt að hennar verði saknað.
FAGNAÐUR
Þorri blót-
aður í
Suður-Kalif-
orníu
Islendingar í Suður-Kaliforníu
héldu þorrablót 3. mars sl. á
Holiday Inn í bænum Torrance og
sóttu rúmlega 200 manns sóttu
í SUMARSKAPI
Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegs
sumars viljum við benda öllu áhugafólki um
hagstæð viðskipti á að í Kolaportið koma að
jafnaði 10-15 þúsund manns alla laugardaga.
Þetta er líka allt áhugafólk um hagstæð viðskipti.
T.d. er Ari litli Ijómandi ánægður að komast í
gamla Viggó viðutan bók á 100 kall. Anna litla
fann (og fékk) fínan dúkkuvagn á 400 krónur.
Mamman keypti grænmeti og ávexti sem dugðu
vel út alla vikuna og pabbinn gekk sæll og glaður
út með nýtt skiptilyklasett og fannst hann
hafa gert góð kaup.
Þetta er örlítil dæmisaga um viðskiptin í
Kolaportinu. Við bjóðum alla kaupmenn og
verðandi kaupmenn velkomna og hvetjum ykkur
til að hringja inn og bóka sölubása.
Viðskiptunum í Kolaportinu fylgir alltaf gleði
og stemmning.
Síminn er 687063. Oþið frá 4—6.
ATH! Það verður opið i Kolaportinu
laugardaginn 2. júní eins og alla aðra
laugardaga.
KOLAPORTID
M^RKa-ÐXíORíf
...alltafá laugardögum
skemmtunina. Kom fólk frá San
Diego, San Francisco og fleiri stöð-
um. Meðal gesta var Halla Linker,
sem er konsúll á þessum slóðum,
námsfólk.
Þorramatur var fenginn frá Slát-
urfélagi Suðurlands og einnig var
matur frá Holiday Inn og hljóm-
sveit Rúnars Júlíussonar og María
léku fyrir dansi.
Ný stjórn var kosin í íslendinga-
félaginu 1. desember sl. fyrirfélag-
ið og tók hún við 3. mars sl. Hafði
þá Katrín G. Johnson verið formað-
ur í fjögur ár, Rúri M. Kaneen,
varaformaður, og Katrín E. Warr-
en, ritari. í nýju stjórninni eru: Jó-
hanna Sigurþórsdóttir Lewis, for-
maður; Margrét Símonardóttir
Johnson, varaformaður; Lovísa
Guðjónsdóttir Afzal, gjaldkeri; Þóra
Thoroddsen, ritari; Aðalsteinn Jón-
atansson, ritari; Heba Þórisdóttir,
meðstjórnandi, Oddný Arthursdótt-
ir, meðstjórnandi, og Hringur Haf-
steinsson, meðstjórnandi.
- Jóhanna S. Lewis
^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Verðkönnun Verðlagsstofnunar, 4. tbl., apríl 1990, 10. árg.
| Verðkönnun á Ijósmyndafilmum,
I f ramköllun og stækkun
Framköllun og stækkun Framköllun og stækkun Eftirtaka Litfilmur, 36 mynda,
9x 13cm________ _______10x 15cm_______ Verðpermynd ___________________100ASA
12 mynda 24 mynda 36 mynda 12 mynda 24 mynda 36 mynda 9x13 cm 10x15 cm 13x18 cm KodakGold Fujicolor
Amatörverslunin Laugavegi 82, Reykjavlk 487 783 1079'» 538 885 1232" 25 31 130 520 435
Bókaverslunin Veda Hamraborg 5, Kópavogi 633 1041 1449 633 1041 1449 36 36 165 520
Express Suðurtandsbraut 2. Reykjavík 633 1041 1449 633 1041 1449 36 36 450
Filman Hamraborg 1, Kópavogi 633 1041 1449 633 1041 1449 36 36 140 495 355
Framköllun á stundinni Lækjargötu 2, Reykjavlk 570 930 1290 594 978 1362 32 34 150 520
Framköllun á stundinni Ármúla 30, Reykjavlk 594 978 1362 34 520
Hans Petersen Bankastræti 4. Glæsibæ,
Austurveri og Kringlunni, Reykjavík 633 1041 1449 633 1041 1449 36 36 165 520
Hraðfilman Drafnarfelli 12, Reykjavlk 633 1041 1449 633 1041 1449 36 36 155 520
Ljósmyndabúbin ingóKsstrœli 6, Reykjavlk 386 636 686 434 714 994 23 25 96 485 395
Ljösmyndahúsið Dalshrauni 13. Halnarfirði 645 1065 1485 645 1065 1485 37 37 165 515
Ljósmyndaþjónustan Laugavegi 178. Reykjavlk 633 1041 1449 633 1041 1449 36 36 165 520
Ljósmyndavörur Skipho’lti 31, Reykjavlk 599 983 1367" 611 1007 1403" 34 35 155 435
Myndsýn Depluhólum 5. Reykjavlk 633 1041 1449s* 633 1041 14495* 36 36 192
Spodmaðunnn Lóuhólum Z-6, Reykjavlk21 633 1041 1449 633 1041 1449 36 36 165 520
Sælgætis og vídeóhöllin Garðat. Garðabæ. 3) 633 1041 14495* 633 1041 14495* 36 36 192 520
Tónborg Hamraborg 7, Kópavogi3) 633 1041 144951 633 1041 14495* 36 36 192
Týti Austuretræti 6, Reykjavík 633 1041 1449 633 1041 1449 34 34 150 430
Úlfarsfell Hagamel 67. Reykjavlk 580 940 1300 604 988 1372 32 34 495 395
Hæsta verð 645 1065 1485 645 1065 1485 37 37 192 520 435
Lægsta verð 386 636 886 434 714 994 23 25 96 450 355
Mismunur l prósentum . 67.1% 67.5% 67.6% 48.6% 49.2% 49.4% 60.9% 48.0% 100.0% 15.6% 22.5%
Mismunur 1 krónum 259 429 599 211 351 491 14 12 96 70 80
1) Verö á framköllun og stækkun eru tilboösverö 3) Framköllun og stækkun framkvæmd hjá Myndsýn.
2) Framköllun og stækkun framkvæmd hjá Hans Petersen. 4) Þeim sem hafa látið framkalla og stækka filmu hjá þessu fyrirtæki er boðin ný filma með 25% afslætti.
5) Innifaliö í verði á framköllun og stækkun er 36 mynda Konica litfilma.