Morgunblaðið - 30.05.1990, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Morgunblaðið/Bjarni
Pétur og Atli Eðvaldsson fagna sigri landsliðsins í leiknum gegn IMoregi í Evrópukeppninni, 9.
september 1987, á Laugardalsvelli. Þeir verða báðir í eldlínunni í kvöld.
„Skyndisókn-
ir Albana
hættulegar"
- segirGuðni Bergsson. „Biliðá
milli landsliða minnkarstöðugt"
GUÐNI Bergsson verður aftasti maður íslensku varnarinnar
gegn Albönum í kvöld. „Nú byrjar alvaran. Þetta er ekki æf-
ingaleikur, heldur fyrsta viðureignin í Evrópukeppninni. Allir
leikir í mótinu eru mikilvægir, en þetta er einn mikilvægasti
leikurinn, þvi við verðum að fá tvö stig, ef við ætlum að
bæta okkur.“
Guðni áréttaði að breyting á
leikskipulagi þýddi ekki að
framtíðin væri beinn og breiður
vegur. „Við höfum náð stórgóðum
úrslitum saman ber jafnteflið í
Moskvu í fyrra, en liðsheildin og
baráttan hafa hingað til fleytt
okkur áfram. Við verðum áfram
að betjast fyrir öllu, en það eru
viss tímamót hjá landsliðinu.
Sterkur varnarleikur og skyndi-
sóknir hafa verið aðal okkar, en
stefnan hlýtur að vera að ná meiri
tökum á leiknum, halda boltanum
lengur og spila. Við höfum mann-
skapinn til þess, en breytingin
gerist ekki á einni nóttu.
Fólk verður að meta stöðuna
rétt og allra síst höfum við efni
á að vanmeta mótherjana. Bilið á
milli landsliða minnkar stöðugt
og Albanía getur náð stigi af
hvaða liði sem er, rétt eins og við
höfum gert á góðum degi.“
Guðni sagði að óþolinmæði
mætti ekki gera vart við sig.
„Leikirnir gegn Austur-Þjóðvetj-
um, fyrir þremur árum annars
vegar og í haust sem leið hins
vegar, eru okkur víti til varnaðar.
Við Verðum að sækja, en megum
ekki gleyma vörninni — skyndi-
sóknir Albana eru hættulegar."
Sigurður Grétarsson eftir að
hann meiddist á æfingunni í
gærmorgun.
ÍÞRÖmR
FOLK
■ ASGEIR Sigurvinsson og eig-
inkona hans, Asta Guðmunds;
dóttir, verða sérstakir gestir KSÍ
á leiknum í kvöld og verður Asgeir
heiðraður sérstaklega fyrir leikinn.
■ SIGURÐUR Grétarsson
meiddist lítillega á æfingunni í
gærmorgun. „Eg steig ofan í holu
í veilinum og snéri mig á ökklan-
um,“ sagði hann við Morgunblaðið.
Ökklinn var þegar í stáð kældur
j«g reiknaði Sigurður með að verða
orðinn góður fyrir leikinn.
■ FORSALA á leikinn verður á
fjórum stöðum í dag. Miðar fást í
Sportvöruversluninni Spörtu,
Laugavegi 49, frá kl. 9 til 16, í
Kringlunni og Austurstræti frá
kl. 12 til 16 og við íþróttaleikvang-
inn í Laugardal frá kl. 12, en leik-
urinn hefst kl. 20.
■ VEÐURSTOFAN gerir ráð
fyrir svipuðu veðri í Reykjavík í
dag eins og var í gær, suðvestan
hægviðri með skúrum öðru hvoru.
. Hitastigið verður 8 til 13 stig.
fð YLLI Shehu verður með al-
banska liðinu í dag, en hann lék
ekki í síðari viðureigninni gegn
Svíum í HM. Hann var hins vegar
í eldlínunni í fyrri leiknum, sem
fram fór í Albaníu, og var mjög
góður að sögn Bo Johanssons
landsliðsþjálfara. Shehu leikur
-^vinstra megin í framlínunni og er,
að sögn, leikmaður sem getur gert
út um leiki upp á eigin' spýtur...
Sköpum okkur fleiri færi
Pétur gerði eitt mark í Lúxem-
borg í vor, tvö gegn Bermúda
og síðan eitt í Bandaríkjunum. „Það
var ekkert ofboðslega leiðinlegt að
skora tvö gegn Tyrkjum! En ég var
auðvitað ekki að hefna mín á Sieg-
fried Held á neinn hátt, heldur að
gera mitt besta fyrir ísland." Held
valdi Pétur ekki í lið sitt eftir að
hann gaf ekki kost á sér í síðari
leikinn gegn Noregi 1987 vegna
brúðkaupsferðar. „Það var ánægju-
legt að koma inn í liðið á ný gegn
Tyrkjum. Ég leit svo á að ísland
væri að beijast fyrir sæti í úrslita-
keppni Evrópumótsins og þjálfari
má ekki hafa „prívat“ ástæður fyr-
ir því hvernig hann velur liðið.
Hann verður alltaf að velja sterk-
asta liðið. En það getur svo sem
verið að Held hafi ekki álitið liðið
það sterkasta þegar ég var með.“
Svipaðir Tyrkjum?
Um leikinn í kvöld, sem hefst
kl. 20, sagði Pétur: „Albanir virðast
„teknískir" og fljótir. Ekki ólíkir
Tyrkjum að sumu leyti. Á útivelli
leika þeir algjöran varnarleik —
með fjögurra manna varnalínu og
einn þar fyrir aftan að auki, og
beita síðan skyndisóknum. Okkur
hefur ekki gengið neitt allt of vel
þégár við leggjum á.h.erplu & að
- með því að beita leikaðferðinni 4-4-2 í stað 5-3-2
son, sem gert hefur sjö mörk í síðustu fimm
PÉTUR Pétursson hefur skorað
sjö mörk í síðustu fimm lands-
leikjum sínum. Hann gerði ann-
að marka íslands gegn Noregi
í undankeppniEvrópukeppn-
innar á Laugardalsvelii 9. sept-
ember 1987 en Siegfried Held
stillti honum ekki framar upp í
liði sínu. Það var ekki fyrr en
rúmlega tveimur árum síðar,
20. september ífyrra, að Pétur
klæddist landsliðspeysunni á
ný — er Held var farinn til Tyrk-
lands og Guðni Kjartansson við
stjórnvölinn. Og þá sló KR-
ingurinn heldur betur í gegn.
Eins og knattspyrnuáhuga-
mönnum er enn í fersku minni
skoraði Pétur bæði mörkin í
2:1 sigri á Tyrkjum á Laugar-
dalsvelli og hefur verið óstöðv-
andi með landsliðinu síðan.
, segir Pétur Péturs-
íandsleikjum
Morgunblaðið/Skapti
Það var slegið á létta strengi á æfingunni í gærmorgun. Hér eru það Arnór Guðjohnsen, Ólafur
Þórðarson og Guðmundur Torfason sem taka létta júdósyrpu!
sækja, en við stefnum að því nú
að pressa á þá framarlega á vellin-
um. Ná að spila sóknarleik. Þetta
er nýtt fyrir okkur og verður erfitt,
en ég vona að fólk fjölmenni á leik-
inn og styðji vel við bakið á okkur.
Við þurfum alltaf stuðning hér
heima; ef við fáum hann stöndum
við okkur betur.“
Líst vel á 4-4-2
Pétri líst vel á að beita leikaðferð-
inni 4-4-2, en undir stjórn Sigi
Held beitti liðið 3-5-2 aðferð. „Þetta
er betra fyrir sóknarmennina. Við
höfum oft verið í því hlutverki að
beijast fyrir liðið allan tímann,"
sagði Pétur og bætti við að síðan
Johansson tók við stjórninni „nema
í leiknum við Bandaríkjamenn, höf-
um við framlínumennirnir fengið
boltann mun fyrr fram og sköpum
okkur fleiri færi. Þetta er breyting
fyrir okkur og ef vel tekst til er
þetta auðveldara fyrir vörnina líka.
En til að svo verði er það skilyrði
að allii' vinni vel saman.“
Engin pressa
Þrátt fyrir gott gengi í síðustu
landsleikjum sagði Pétur enga
pressu á sér að skora í dag. „Það
skiptir engu máli hver skorar ef við
vinnum. En mér hefur gengið vel
í leikjunum að undanförnu og von-
ast auðvitað til þess að svo verði
áfram.“
Byrjunarliðið?
Byrjunarlið íslands verður tilkynnt á hádegi í dag. Líklegast er
að það verði þannig: Bjarni Sigurðsson í marki, Ormarr Öi'lygsson
hægri bakvörður og Gunnar Gísiason vinstra megin. Guðni Bergsson
og Atli Eðvaldsson miðverðir. Kanttengiliðir verða Þorvaldur Örlygs-
son, vinstra megin, og Ólafur Þórðarson hægra megin. Sigurður
Grétarsson og Arnór Guðjohnsen verða þá inni á miðjunni og í
fremstu víglínu Pétur Pétursson og Guðmundur Torfason. Skv. þessu
verða varamenn Birkir Kristinsson, Kristján Jónsson, Pétur Ormslev,
Eyjólfur Sverrisson og Sævar Jónsson. Gunnar Gíslason hefur að
vísu ekki gengið heill til skógar og treysti hann sér ekki til að leika,
er sennilegt að Kristján taki stöðu hans.