Morgunblaðið - 06.06.1990, Side 1
HANDKNATTLEIKUR
Óli P. og Ólafur
dæmdu bikar-
úrslitin í ísrael
Oli P. Ólsen og Ólafur Haraldsson dæmdu úr-
slitaleikina í bikarkeppninni í handknattleik
í ísrael, sem fram fóru fyrir nokkrum dögum.
Félagarnir dæmdu alls þrjá leiki og fengu góða
dóma. íslenskir handknattleiksdómarar hafa ekki
fyrr dæmt í ísrael, en á síðasta ári gerðu hand-
knattleikssambönd þjóðanna samning um að skipt-
ast á dómurum vegna sérstakra verkefna árlega.
í vetur komu tveir dómarar frá ísrael og dæmdu
hér landsleiki. Óli lét mjög vel að dvölinni í ísrael
og sagði að heimamenn hefðu tekið sérlega vél á
móti þeim félögum, „en hitinn var frekar mikill,“
sagði dómarinn.
SUND / ÞJALFARAMAL
[ KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Cawley hætlur
með landsliðið
CONRAD Cawley, landsliðs-
þjálfari í sundi, sagði upp störf-
um frá og með deginum í gær.
„Ég kann vel við mig á íslandi
og kom með því hugarfari að
vera f ram yfir Ólympíuleikana
1992 og jafnvel lengur, en sam-
starfsvilji hjá formanni Sund-
sambandsins var ekki fyrir
hendi. Mér var sagt upp, en
sagt að ég gæti verið til 1. sept-
ember og jaf nvel lengur. Ég hef
lifað i voninni um að tekið væri
á landsliðsmálum af festu, en
ég sætti mig ekki lengur við
starfshætti formannsins,"
sagði Cawley við Morgunblað-
ið í gærkvöldi.
Conrad Cawley hóf störf sem
landsliðsþjálfari 11. nóvember
1988. Hann gerði starfsáætlun til
átta ára, en er nú hættur eftir 18
mánaða starf. „Það voru samstarfs-
örðugleikar milli hans og stjórnar,"
sagði Guðfinnur Ólafsson. „Við höf-
ÍPRÚm
FOLK
■ LEEDS United hefur ákveðið
að kaupa skoska landsliðsmanninn
Gary McAllister frá Leicester.
Liðið verður líklega að láta um
milljón pund fyrir
FráBob hann en það verður
Hennessy ákveðið af sérstakri
íEnglandi nefnd þarsem liðin
gátu ekki komið sér
saman um sanngjarnt verð.
■ ÞA hefur því verið hvíslað að
Leeds ætli sér að kaupa Peter
Beardsley frá Liverpool og jafn-
vel verði gengið frá því í dag. Fram-
kvæmdastjóri Leeds, Howard
Wilkinson, hefur þegar boðið eina
og hálfa milljón punda og hefur
jafnvel boðist til að láta leikmann
fylgja með. Þá hefur Leeds boðið
Beardsley 4.000 pund á viku og
er það meira enLiverpool vill
greiða leikmönnum sínum. Þess má
geta að Wilkinson hefur þegar
keypt leikmenn fyrir tæplega sex
milljónir punda.
Conrad Cawley er hættur sem
landsliðsþjálfari Islands í sundi.
um ekki náð saman, en fjárhags-
staða sambandsins hefur einnig
mikið að segja. Hún er slæm og
við verðum að skera niður.“
Cawley sagðist ekki skilja hvers
vegna fjárhagsstaðan væri eins og
hún er. „Sundsambandið fær miklar
tekjur, en víst er að þeim er ekki
eitt í sundfólkið. Það þarf að greiða
sínar ferðir sjálft og til dæmis þar
hver og einn að borga 45 þúsund
vegna Frakklandsferðarinnar [sem
greint er frá annars staðar á
síðunni]. Ég held að ástæðan sé
fyrst og fremst skipulagsleysi. Það
er mikið af hæfu fólki innan sam-
bandsins, en það vinnur ekki sam-
an. Ég hef bent á það sem miður
hefur farið og lagt til breytingar,
en það hefur ekki verið vilji til að
fylgja hlutunum eftir. Gagnrýninni
hefur verið illa tekið og því miður
er staðan eins og hún er.“
Cawley er kvæntur íslenskri
konu og eiga þau þrjú börn. Hann
sagði að þau myndu vera áfram á
íslandi og hugsa sitt mál. „Ég get
fengið starf í Englandi, en eins
kemur til greina að þjálfa íslenskt
félagslið, en vonandi skýrist fram-
haldið fljótlega, því það er erfítt að
lifa lengi í óvissu."
SUND
Landsliðið
til Frakklands
Ólafur Gunnlaugsson tekur við þjálfuninni
ÓLAFUR
Gunnlaugs-
son, þjálfari
Vestra, verður
landsliðsþjálf-
ari i sundi til
1. september.
Fyrsta verk-
efni hans
verður að fara
með landsliðið
í æfinga- og
keppnisferð til Olafur
Frakklands. Haldið verður ut-
an á morgun og komið heim
21. júní.
Landsliðið fer til Canet í Frakk-
landi þar sem sundfólkið tek-
ur m.a. þátt í alþjóðlegu móti.
Að sögn Guðfinns Ólafssonar,
formanns Sundsambandsins,
skiptir mótið miklu máli, því sum-
ir munu reyna þar við lágmörk
vegna Evrópumótsins og eins hef-
ur landsliðinu verið skipt í a- og
b-hóp og þurfa keppendur að ná
vissum lágmörkum til að komast
í hópana.
Átta sundmenn fara til Frakk-
lands: Magnús, Bryndís og Arnar
Freyr Ólafsbörn frá Þorlákshöfn,
Logi Kristjánsson, ÍBV, Eðvarð
Þór Eðvarðsson og Ævar Jónsson
frá Sundfélagi Suðumesja, Helga
Sigurðardóttir, ísafírði, og Ragn-
heiður Runólfsdóttir, 1A. Farar-
stjóri verður Jón B. Helgason.
ANGIST!
Sigurður Guðmundsson, markvörður Stjörnunnar, horfir með
angistarsvip á eftir knettinum í leik Stjörnunnar gegn FH á laugar-
daginn. Ólafur Kristjánsson skoraði markið og var öllu hressari
enda hrósuðu FH-ingar öruggum sigri, 5:1. Gamanið kárnaði þó
hjá FH-ingum í gærkvöldi er þeir töpuðu fyrir Vestmannaeyingum
í Eyjum. Þá fengu Stjörnumenn hinsvegar ástæðu til að brosa
því þeir fögnuðu óvæntum sigri á Val.
■ Laugardagsleikirnir/B2, B3
■ Leikirnir I gærkvöidi/B8
BHBHHBBBBHbH
_
mmSSRWBDm
KNATTSPYRNA: HEIMSMEISTARAKEPPNIN AITALIU / B4