Morgunblaðið - 06.06.1990, Síða 8
AGANEFND KSI
ÍBV trónir á toppnum
Baklur í tveggja
leikja bann
—■IMIiiWMHiill lll IIIWÍiBIM■—III
■ GUÐMUNDUR Hreiðarsson,
markvörður, sat á bekknum hjá
Víkingum á laugardag. Hann lék
með Turu Diisseldorf í V-Þýska-
landi í vetur, og var ekki orðinn
löglegur með Víkingi á ný fyrr en
nú.
I GRÉTAR Eggertsson var
varamaður hjá KR gegn ÍBV. Hann
hóf að æfa með KR-ingum í vetur
og ók þá tvisvar í viku frá Hvamms-
tanga til Reykjavíkur eða tæplega
1.000 km vikulega.
■ BERGUR Agústsson kom inná
hjá ÍBV gegn KR fyrir Ólaf Árna-
son, sem meiddist á ökkla. Þetta
var fyrsti leikur Bergs á tímabil-
inu, en hann er nýkominn heim frá
námi í Noregi. Bergur var í byij-
unarliðinu í gærkvöldi.
■ FRIÐRIK Friðriksson mark-
vörður Þórs lék á laugardag í fyrsta
skipti gegn gömlu félögum sínum
síðan hann hélt úr herbúðum Fram
til náms í Danmörku haustið 1987.
■ ANDRI Marteinsson lék sinn
100. leik í 1. deild gegn Sjörnunni
á laugardag. Hann hefur leikið í
1. deild með Víking, KR og FH.
■ ARNALDUR Lofísson lék sinn
fyrsta leik í 1. deild með Val gegn
Sfjörnunni í Garðabæ í gær. Hann
er 19 ára og lék í stöðu hægri ba-
kvarðar.
■ ARNI Sveinsson gerði í gær
40. mark sitt fyrir Stjörnuna gegn
Val og það var ekki af verri endan-
um, þrumuskot efst í bláhornið af
20 metra færi. Hann hefur alls
gert 31 mark í 1. deikJ, þijú fyrir
Stjörnuna og 28 fyrir IA.
■ GUÐJÓN Haraldsson er eini
maðurinn, sem á sinn stól í stúku
KR-inga. Hann vann sætið í happ-
drætti á síðasta stúkukvöldi KR og
það sker sig úr — stóllinn er rauður
á fremsta bekk fyrir miðju, en aðr-
ir stólar eru bláir.
■ BO Johansson, landsliðsþjálf-
ari, var á leik ÍBV og FH í Eyjum
í gærkvöldi. „Þetta var góður leikur
og gat farið hvernig sem var, en
Hlynur Stefánsson, ÍBV, stóð sig
best,“ sagði þjálfarinn.
■ GRAHAM Roberts, hinn sterki
miðvörður Chelsea, er líklega á
leið til Bournemouth. Nú stendur
yfir vorhreingerning hjá Chelsea
og vill liðið losna við nokkra leik-
menn. Roberts, sem lék með Tott-
enham og Glasgow Rangers, hef-
ur ekki fallið nógu vel inní lið
Chelsea að mati stjórnenda liðsins
og því vilja þeir selja hann.
NÝLIÐAR ÍBV tróna nú á toppi
* 1. deildar. Þeir gerðu sér lítið
fyrir og unnu silfurlið FH 2:1 í
Eyjum í gærkvöldi. Þetta var
langbesti leikurinn í Eyjum á
tímabilinu, skemmtilegt spil á
báða bóga og mörg marktæki-
færi.
Gestirnir byijuðu vel og Ólafur
H. Kristjánsson skoraði í
fyrstu sókn. Adolf Óskarsson hélt
ekki knettinum eftir gott skot
Andra Marteinsson-
Sigfús ar og Ólafur fylgdi
Gunnar vel á eftir. Heima-
* Guðmundsson menn jöfnuðu eftir
rúmlega hálftíma
leik. Hlynur Stefánsson sendi út í
hægra homið á Tómas Inga Tómas-
son, sem gaf fyrir markið. Sigurlás
Þorleifsson rétt missti af knettin-
um, en það kom ekki að sök fyrir
Eyjamenn, því því Þórhallur
Víkingsson sendi boltann í eigið
mark, 1:1.
FH-ingar virtust ætla að byija
seinni hálfleik eins og þann fyrri,
en Guðmundur Valur Sigurðsson,
sem var í dauðafæri á markteig,
skaut framhjá. Skömmu síðar björ-
guðu FH-ingar í horn eftir skot frá
Jóni Braga Arnarssyni úr góðu
færi. Á 67. mínútu munaði engu
að Birgir Skúlason gerði sjálfs-
mark, en Þorsteinn Bjarnason,
markvörður FH, bjargaði glæsilega.
Tveimur mínútum síðar átti Bjöm
Jónsson hörkuskalla að marki IBV,
en heimamenn björguðu á línu.
Á 69. mínútu gerðist umdeilt
atvik. Andrej Jerina, sem var úti í
vítateig, ætlaði að stinga sér á milli
tveggja FH-inga, en féll við og dóm-
arinn dæmdi vítaspymu. Hlynur
Stefánsson skoraði, en Þorsteinn
var nálægt því að veija. „Vítaspyrn-
an var út í hött,“ sagði Viðar Hall-
Baldur Bjarnason, Fram, var
dæmdur í tveggja leikja bann
af aganefnd KSÍ, sem kom saman
til fundar í gær. Baldur fékk rauða
spjaldið fyrir að bijóta á Sævari
Arnasyni i leiknum gegn Þór
Akureyri á laugardaginn. Sævar
fékk gula spjaldið fyrir að mót-
mæla dómnum, en hann hafði
áður fengið gult og fór þvi einnig
af velli. Sævar var dæmdur í eins
leiks bann.
íttíMR
FOLK
dórsson, annar þjálfari FH, og voru
margir á sama máli. Þjálfarinn og
landsliðsnefndarmaðurinn bætti
við: „Dómgæslan var fyrir neðan
allar hellur og.það verður að gera
vissar kröfurtil dómara í 1. deild.“
Á næstu mínútu lék Hlynur
skemmtilega í gegn, var einn gegn
Þorsteini, sem náði að veija, og
skömmu síðar átti Pálmi þmmuskot
að marki ÍBV, en naumlega fram-
hjá.
Fimm mínútum fyrir leikslok
vildu Eyjamenn fá vítaspyrnu, eftir
þijú dauðafæri. Fyrst varði Þor-
steinn frá Sigurlási Þorleifssyni, en
hélt ekki boltanum, sem fór til Elí-
asar Friðrikssonar. Hann skaut, en
Þorsteinn hálfvarði aftur og enn
skaut Elías, en Birgir varði með
hendi í slá og yfir. „Þetta var ekk-
ert annað en víti,“ sagði Elías, en
Birgir vildi ekki tjá sig um málið.
Sigurður Signrjónsson, sem
ieikur með KS í 2. deild, var
dæmdur í eins leiks bann. Davíð
Garðarsson úr ÍK fékk þriggja
leikja bann og Kristján Sigurðs-
Baldur Bjarnason
son, Reyni Árskógströnd, var
dæmdur í eins leiks bann.
„Skora bara glæsileg mörk“
- sagði Árni Sveinsson, fyrirliði Stjörnunnar, sem gerði sannkallað draumamark gegn Val
NÝLIÐARNIR11. deild, Stjarn-
an, sigruðu Valsmenn með
tveimur mörkum gegn einu á
heimavelli sínum í Garðabæ í
gærkvöldi eftir að hafa fengið
skell gegn grönnum sínum á
laugardag. Þetta var fyrsti sig-
ur Stjörnunnar á Val í Islands-
móti og jafnframt fyrsti heima-
sigur liðsins í 1. deild. Það var
því mikill fögnuður í herbúðum
Garðbæinga eftir leikinn eins
gefurað skiija.
Arni Sveinsson, fyrirliði Stjörn-
unnar, gaf félögum sínum tón-
inn á 16. mínútu er hann gerði
sannkallað draumamark. Fékk bolt-
^■■■■1 ann fyrir utan vfta-
ValurB. teig vinstra megin,
Jónatansson eftir að Valsmenn
skrifar höfðu hreinsað frá
eftir aukaspyrnu,
lagði knöttinn fyrir sig og hamraði
hann í efst í vinkilinn af 20 metra
færi. „Ég skora bara glæsileg
mörk,“ sagði Árni eftir leikinn og
bætti síðan við: „Ég var búinn að
vara Bjama við fyrir leikinn er ég
sagði honum að passa sig á þessum
þrumuskotum mínum,“ sagði hann
brosandi.
Ingólfur Ingólfsson bætti öðru
marki Garðbæinga við á 24. mínútu.
Hann fékk boltann á vítateig fyrir
miðju marki og spyrnti frekar laust
á mitt markið, Bjami virtist eiga
auðvelt með að handsama boltann.
En allt kom fyrir ekki boitinn rúll-
aði yfir vinstri hönd hans og í net-
ið. Klaufalegt hjá landsliðsmark-
verðinum. Undir lok fyrri hálfleiks
fékk Lárus Guðmunsson dauðafæri
er hann skaut hátt yfír frá mark-
teig.
Garðbæingar voru rétt búnir að
fagna öðru markinu er Valsmenn
náðu að minnka muninn. Bergþór
Magnússon náði knettinum eftir
misskilning í vörn Stjörnunnar, lék
KNATTSPYRNA / ISLANDMOTIÐ
Morgunblaðiö/KGA
Valdimar Kristófersson, Stjörnunni, í baráttu við vamarmenn Vals, þá Einar Pál Tómasson til hægri og Arn-
ald Loftsson, sem lék fyrsta leik sinn í 1. deild.
á Jón Otta og skoraði auðyeldlega
í autt markið, 2:1 og þannig var
staðan í hálfieik.
Valsmenn pressuðu stíft í síðari
hálfleik en vörn Stjömunnar var
föst fyrir og Jón Otti greip vel inní.
Bestu færi Vals í síðari hálfleik
fengu Siguijón og Sævar, en í
bæði skiptin sá Jón Otti við þeim
og varði í horn.
Leikurinn var ekki mjög góður,
en þó sáust ágætis leikkaflar hjá
báðum liðum. Garðbæingar voru
mun sprækari í fyrri hálfleik og
uppskáru vel. í síðari hálfleik drógu
þeir sig til baka og gáfu miðjuna
eftir. Það kom ekki að sök því
Valsmenn nýttu sér ekki breidd
vallarins heldur byggðu spilið of
mikið upp miðjuna þar sem vöm
Stjörnunnar var sterkust fyrir. Ný-
liðarnir í 1. deild geta vel við unað,
ÍBV á toppnum með 9 stig og
Stjaman er komin með 6 stig.
I KVOLD
Tveir leikir verða í 1. deild karla
í knattspyrnu í kvöld. Víkingur og
ÍA mætast á Víkingsvelli og á Akur-
eyri leika Þór og KR. Báðir leikirn-
ir hefjast kl. 20. Athygli skal vakin
á því að á Akureyri verður leikið á
aðalleikvangi bæjarins í fyrsta
skipti I sumar. í 1. deild kvenna
er einn leikur: KR fær ÍA í heim-
sókn í Frostaskjólið kl. 20.
: 9 15 16 34 38 + 28