Morgunblaðið - 12.06.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.06.1990, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990 KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA Breiðablik byrjar vel Stúlkurnar í KR náðu ekki _að fylgja eftir góðum sigri á ÍA frá síðustu viku er þær mættu Breiðabliki á mölinni á KR-velli á ■^■^■1 laugardag. Leikur- Katrín inn var ekki mínútu Fríðríksen gamall þegar skrifar Breiðablik hafði náð forystunni með marki Sigrúnar Óttarsdóttur. Guðný Guðnadóttir jafnaði fyrir KR eftir tíu mínútna leik en fleiri urðu mörkin ekki fyrir hlé. í síðari hálfleik tóku Blikastúlkur öll völd á vellinum og um miðjan hálfleikinn skoruðu þær tvö mörk með stuttu millibili. Kristrún Daða- dóttir skoraði fyrra markið eftir að Klara Bjartmarz í marki KR hafði varið góðan skalla Ástu B. Gunn- laugsdóttur. Ásta var aftur á ferð- inni nokkru síðar er hún stakk vam- armenn KR af rétt innan við miðju og skoraði þriðja mark Breiðabliks af miklu öryggi. Breiðablik hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir sumarið og sýndi í þessum fyrsta leik sínum að liðið er til alls líklegt og verður vafalítið ofarlega í baráttunni um Islands- meistaratitilinn eftir nokkurra ára hlé á þeim vígstöðum. Dýr sigurVals Valur sigraði KA á Akureyri á laugardag með þremur mörkum gegn engu. Hera Ármannsdóttir, Bryndís Valsdóttir og Helga Jons- dóttir skoruðu mörk Vals. Sigur Vals var þó dýrkeyptur því að Kristín Briem, aftasti maður í vörn liðsins, meiddist illa eftir samstuð við Hjördísi Úlfarsdóttur og er ótt- ast að hún hafi slitið liðbönd í ökkla. FRJALSAR IÞROTTIR Góður árangur Mörthu Martha Ernstdóttir náði besta árangri sínum í 3000 metra hlaupi á alþjóðlegu móti í Antony, úthverfi Parísar á sunnudag. Mörthuvar boðið til mótsins eftir góðan árangur í alþjóðlegu götu- hlaupi þar síðastliðið haust. Martha varð fímmta f hlaupinu á 9.25,23 mínútum, en besti tími hennar fyrir hlaupið var 9.30,6. Sigui’vegari í hlaupinu var portúgalska hlaupakonan Albertina Dias á 9.06 minútum. Morgunblaðiö/RAX Ásta B. Gunnlaugsdóttir átti góðan leik gegn KR á laugardag. Hún skor- aði eitt marka Breiðabliks í 3:1 sigri og lagði upp annað. GOLF Guðmundur og Ragnhildur unnu Ragnhildurfór holu íhöggi á mótinu GUÐMUNDUR Sveinbjörns- son, Golfklúbbnum Keili, sigr- aði á stigamóti hjá GR, Nissan mótinu, um helgina. Ragnhild- ur Sigurðardóttir, GR, vann í kvennaflokki. rír voru jafnir í karlaflokki, höfðu notað 154 högg eftir lokahringinn. Var þá gripið til bráðabana. Guðmundur tryggði sér sigur strax á fyrstu holu, en hinir voru enn jafnir. Siguijón Arnars- son, GR, náði svo öðru sæti á ann- arri holu er hann vann Kristinn G. Bjarnason, GL. Frábær frammistaða Ragnhildar Sigurðardóttur á 10., 11. og 12 holu seinni daginn gerði útslagið í kvennakeppninni. Hún byrjaði þess- ar seinni níu holur á því að ná fugli (einu undir pari), síðan fór hún á erni (tveimur undir) er hún fór holu í höggi á elleftu braut og loks fór hún þá tólftu á fugli. ■ Úrslit / B6 HANDKNATTLEIKUR Minsk Evrópumeistari FIMM þúsund áhorfendur troðfylltu íþróttahöllina íBarc- elona á laugardag og sáu frá- bæran leik milli Barcelona og Minsk frá Sovétríkjunum í seinni úrslitaleik liðanna í Evr- ópukeppni meistaraliða. Barc- eíona sigraði 29:27 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 13:11. Barcelona tapaði fyrri úrslita- leiknum 16:21 og þurfti því að vinna upp fimm marka forskot sov- éska liðsins. Það reyndist Spán- ^^■■■1 veijunum ofviða og Atli þeir náðu mest Hilmarsson þriggja marka for- skrifarfrá skoti f leiknum, Spam 15:12. Spánska liðið hafði þó yfirleitt yfirhöndina, en undir lokin jafnaði Minsk 27:27. Barcelona skoraði tvö síðustu mörk- in, en það dugði ekki til og Minsk tryggði sér Evrópumeistaratitilinn. Besti leikmaður vallarins var án efa júgóslavneski leikmaðurinn Veselin Vujovic sem skoraði 10 mörk fyrir Barcelona. Portner skor- aði einnig 10 mörk, þar af sjö úr vítum. Spænski markvörðurinn Rico hefur oft átt betri leik og má segja að það hafi gert gæfumuninn, þó svo að hann hafi alls ekki verið slakur. Milan Kalina spilaði síðasta leik sinn á ferlinum, eftir 5 ár í Barcelona. Tútsjkín og Iakímovítsj skoruðu níu mörk hvor fyrir Minsk. Sovéska liðið skipti 4 leikmönnum í vörn og sókn allan tímann og gafst það liðinu mjög vel. • ARSÞING HSI Jón Hjaltalín Magnússon endurkjörinn formaður: —- f Miklar breytingar á fram- kvæmda- og sambandsstjórn Rekstrarhagnaður á starfsárinu tæpar þrettán milljónir króna 63 FULLTRUAR sátu ársþing HSÍ sem fram fór í íþróttamið- stöðini í Laugardal um helgina. Helstu mál þingsins voru breytingar á deildarfyrirkomu- laginu, sérstaklega í 1. deild karla þar sem var ákveðið að fjölga um tvö lið, úr tíu f tólf. Jón Hjaltalm Magnússon var endurkjörinn formaður og þrjár breytingar voru á fram- kvæmdastjórn HSÍ. Jón Hjaltalín Magnússon, for- maður HSÍ, sagði að þingið hafi verið vinnuþing og mjög málefna- legt. Hann segir að fjárhagsstaða HSI hafi batnað verulega og um leið hefur sambandinu verið tryggð- ar nokkuð fastar rekstrartekjur næstu árin. Rekstrartekjur sam- bandsins á síðasta starfsári hljóð- uðu upp á tæpar 64 milljónir króna og gjöld rúmlega 50 milljónir. Rekstrartekjur umfram gjöld námu tæpum 13 milljónum króna. Skuldir sambandsins voru samtals 8 millj- ónir. Samþykkt var að gera stórátak í fræðslu- og útbreiðslumálum sam- bandsins og á Þorbergur Aðal- steinsson, landsliðsþjálfari, að fylgja þeim málum eftir ásamt út- breiðslunefnd HSI. Á fjárhagsáætl- un næsta starfsárs er gert ráð fyr- ir 6 milljónum króna í þetta verk- efni. Félagaskipti leikmanna Reglum um félagaskipti leik- manna var lítillega breytt frá sem verið hefur. Heimilt er að skipta um félag á tímabilinu 1. júní til 15.* júlí ár hvert. Ef félögin eru ekki sammála um félagaskipti viðkom- andi leikmanns fyrir 15. júlí skal leikmaður sæta leikbanni, með sínu nýja félagi, í allt að sex mánuði. Ef félögin koma sér hins vegar saman um félagaskiptin á þessu sex mánaða tímabili, er leikmanninum heimilt að leika með sínu nýja fé- lagi um leið og undirskrift félag- anna hefur farið fram. Tillaga kom fram á þinginu um að leyfa tvo erlenda leikmenn í deildakeppninni. Sú tillaga fékk ekki fylgi og því eftir sem áður aðeins heimilt að nota einn erlendan leikmann innanborðs í hveiju liði. Breytingar á stjórn Úr framkvæmdastjóm gengu þrír fulltrúar; Þau Ólafur Jónsson, Guðmundur F. Sigurðsson og Arn- þrúður Karlsdóttir. I þeirra stað voru kosin; Björn Jóhannesson, Þórður Sigurðsson og Helga Magn- úsdóttir, sem jafnframt er gjaldkeri sambandsins. Aðrir í framkvæmda- stjórn eru Jón Hjaltalín Magnússon, formaður og Gunnar K. Gunnars- son, varaformaður. Sambandsstjórnin er skipuð eft- irtöldum: Björn Jóhannesson, Davíð B. Sigurðsson, Ólafur Jónsson, Gunnar Þór Jónsson, Helga Magn- úsdóttir, Þór Valtýsson, Sigurður Haraldsson, Kjartan Steinbach, Gunnar Kvaran, Sigurður I. Tómas- son, Þorsteinn Jóhannsson, Erling- ur Hannesson, Valdimar Björgvins- son, Kristinn Sigurharðarson, Sig- urður Ananíuasson og Þórður Sig- urðsson. Jón Hjaltalín Magnússon. KARFA / NBA Bakverðir Detroít fóru á kostum DETROIT Pistons sigraði Port- land, 121:106, i þriðja leiklið- anna í úrslitum um NBA titilinn í Portland á sunnudag. Detroit hefur því yfir 2:1 eftir þrjá leiki. Þetta var fyrsti sigur Detroit í Portiand síðan í október 1974, eðaí16ár. Þetta var besti leikur Detroit í úrslitakeppninni nú. Staðan í hálfleik var 58:51 fyrir Detroit. Eftir þriðja leikhluta var staðan 90:82 og Detroit Frá gerði fyrstu átta Gunnari stigin í fjórða leik- Valgeirssyni hluta og átti Port- / Bandrikjunum ,and afdrei mögu. leika eftir það. Bakverðirnir þrír hjá Detroit; Vinnie Johnson, Dumars og Isiah Thomas, léku frábærlega og gerðu samtals 75 stig. Johnson gerði 15 stig í öðrum leikhluta og samtals 21 stig, Thomas gerði einnig 21 stig og Dumars var stigahæstur með 33 stig. Jerome Kersey var stigahæstur í liði Portland með 27 stig og Clyde Drexler kom næstur með 24 stig. „Það er ekki hægt annað en hæla leikmönnum Detroit fyrir þennan leik,“ sagði Rick Adelman, þjálfari Portlands. „Þeir náðu fljót- lega þægilegri stöðu og héldu henni út leikinn. Þeir léku hreint frábæran körfuknattleik og var þetta örugg- lega besti leikur liðsins í vetur.“ KORFUKNATTLEIKUR Tékki ráðinn til Tindastols Körfuknattleiksdeild Tinda- stóls hefur ráðið dr. Milan Rozanek, tékkneskan þjálfara til úrvaldsdeildarliðs félagsins fyrir næsta vetur. Liðið hefur að undanf- örnu ,átt í viðræð- um við þjálfara frá Tékkoslóvakíu, en sá sem þeir höfðu augastað á í upphafi fékk sig ekki lausan frá liði sínu. Þess í stað var gengið frá samningum við dr. Milan Roz- anek sem er 49 ára Tékki með Frá Birni Björnssyniá Sauöárkróki mikla reynslu að baki í þjálfun. Rózanek hefur undanfarin ár ver- ið í hópi þálfara sem hafa séð um þjálfum A-landsliðs Tékka. Þá hefur hann síðustu tíu ár verið varaformaður tékkneska körfu- knattleikssambandsins. Rozanek kemur til landsins 1. ágúst ásamt sovéska leikmannin- um Aleksander Sevtsjenko sem mun leika með Tindastóíi líkt og Morgunblaðið skýrði frá fyrir helgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.