Morgunblaðið - 12.06.1990, Side 5

Morgunblaðið - 12.06.1990, Side 5
h MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990 B 5 ítalir og Vestur Þjóð- veijar með yfirburðalið - segirgamla kempan ErnstHapp- ell, þjálfarinn frægi FRANZ Beckenbauer, þjálfari Vestur-Þjóðverja, var sáttur við 4:1 sigur sinna manna gegn Júgóslavíu á sunnudaginn, en sagði að liðið þyrfti nokkra leiki til að gera það sem til væri ætlast. Það ætti samt ekki við um fyrirliðann, Lothar Matt- háus. „Þegar hann leikur svona snýst honum enginn snúning — þá er hann bestur í heimi.“ Beckenbauer sagði að áhersla hefði verið lögð á sóknarleik frá fyrstu til síðustu mínútu. „Við getum ekki veitt okkur þann munað að halda boltanum á okkar vallar- helmingi eins og lið frá Suður- Ameríku." Þjálfarinn sagði að leikurinn hefði verið skemmtilegur. „Það var góð hreyfing á stundum og á köflum brá fyrir mjög góðri knattspyrnu.“ Matheus gaf tóninn og bætti öðru marki við áður en yfir lauk. „Þetta var óvenjulegt, en það var gaman að skora. Hins vegar ber að þakka félögum mínum, því þeir léku vel,“ sagði fyrirliðinn og bætti við að andinn í hópnum væri allt annar og betri en hann hefði áður kynnst. Bæði mörkin voru glæsileg — þrumuskot utan teigs. I síðara skiptið fékk Mattháus knöttinn á eigin vallarhelmingi, óð alla leið upp að vítateig áður en hann sendi bolt- ann í netið með þrumufleyg. Það voru „ítalirnir" i liði Þjóðveija sem voru í aðalhlutverkunum — Jtirgen Klinsmann skoraði með glæsilegum skálla eftir sendingu Andreas Breh- me, en þeir leika báðir með fyrirliða sínum hjá Inter Mílanó. Rudi Völl- er, sem er á mála hjá AS Roma, gerði svo fjórða markið af stuttu færi eftir að markvörður Júgóslava hafði varið þrumuskot Brehme en ekki haldið knettinum. Það er mál manna í Vestur- Þýskalandi að leikurinn á sunnudag hafi verið sá besti hjá liðinu í mörg ár hjá liðinu í HM. Tveir kunnir þjálfarar, Cesar Lúis Menotti og Ernst IJappell, liældu Þjóðveijum á hvert reipi eft- ir sigurinn. Menotti, sem þjálfaði Argentínumenn er þeir urðu heims- meistarar 1978, sagði leik Þjóðveija þann besta í keppninni til þessa. „Þjóðveijar eru með yfirburðalið í keppninni ásamt ítölum,“ sagði hann. Ernst Happell, Austurríkis- maðurinn frægi, tók í sama streng. „Þýska liðið er það eina sem getur slegið heimamenn út. Þetta eru tvö iangbestu liðin í keppninni," sagði hann þrátt fyrir að ekki hafi enn sést til sumra liðanna. Gestgjafarnir, ítalir, byijuðu ein- mitt mjög vel. Sigruðu Austurríkis- menn þó ekki nema 1:0 með marki Schillachi eftir fyrirgjöf Gianluca Vialli. Heimamenn höfðu gífurlega ' yfirburði og áttu að vinna mun stærri sigur. Óðu í færum en Lind- enberger Austurríkismanna átti stórleik. tlins idum Reuter Tomas Brolin í baráttu við einn varnaiTnanna Brasilíu á sunnudaginn. ÞjáHari Kamerún meðtvö tromp á hendi svenskan fyrir GF Sundsvall og lið- ið féil í 1. deild. En sænsku meistar- arnir IFK Norrköping keyptu piit- inn, hann þakkaði traustið og skor- aði þrennu gegn IFK Gautaborg í fyrstu umferð sænsku Allsvens- kunnar í vor. Hann hélt áfram að ausa inn mörkunum, gerði sjö mörk í sjö leikjum og fékk tækifæri með landsliðinu í æfingaleik gegn Wales í lok apríl. Hann gerði sér lítið fyr- ir og skoraði tvö mörk og fékk aft- ur tækifæri í síðasta leik Svía fyrir HM, gegn Finnum í lok maí. Þar hélt ævintýrið áfram og aftur skor- aði liann tvö mörk. Fæstum á óvart fékk hann því tækifærið gegn Brasilíu og hann þakkaði fýrir sig með því að skora fimmta mark sitt í þremur landsleikjum. Eftir leikinn var Brolin um- kringdur fjölmiðlafólki — 10 sjón- varpsstöðvum, álíka mörgum út- varpsstöðvum og um 100 blaða- mönnum. Hann tók uppistandinu með stófskri ró, eins og lionum ein- um er lagið og sagði: „Eg er ánægð- ur með markið og eigin frammi- stöðu, en hvaða máli skiptir það þegar við töpum? Nú er það leikur- inn gegn Skotum á laugardaginn, sem skiptir öllu rnáli. Ef við spilum gegn Skotum eins og í seinni hálf- leik gegn Brasiiíu, þá vinnum við.“ Olle Nordin, landsliðsþjálfari Svía, tók í sama streng. Sagðist mjög ánægður með seinni hálfleik og hrósaði sérstaklega þeim Jonas Thern og varamanninum Glenn Strömberg, sem átti skfnandi leik þær 20 mínútur, sem hann var inná. Þá benti hann á að fyrirliðinn Glen Hysen, sem missti af leiknum vegna meiðsla, yrði til í slaginn gegn Skotlandi, sem styrkti vamarleikinn veruiega, en vörnin hefði verið höf- uðverkur Svía gegnm Brasilíu. „Erfitt að pissa“ Eftir ieikinn voru markvörðurinn Thomas Ravelli og Joakim Nilsson valdir tii að setjast á FIFA-klósett- ið vegna lyfjaetirlits. Ravelli gekk heldur illa að hrissta fram stna prufu. Það var loks eftir þijá klukk- utíma og tvo og hálfan lítra af vatni að Ravelli losnaði úr prísundinni. „Það er ansi erfitt að pissa eftir pöntun og sér í lagi þegar eftirlits- maður stendur yfn* manni til að ganga úr skugga um að engin brögð séu í tafli,“ sagði Ravelli. VALERY Nepomniachy, þjálfari Kamerún, segist vera með tvö tromp á hendi fyrir leikinn gegn Rúmeníu á fimmtudag. „Ef Rúmenar leika eins og gegn Sovétmönnum er ég með ákveðna áætlun og skipti þeir um leikaðferð erum við einnig tilbúnir," sagði sovéski þjálfar- inn. epomniachy sagði að Kamerún væri með lakasta liðið í riðlin- um. „Rúmenar eru sterkir á miðj- unni og það verður okkár höfuð- verkur. Mínir menn gerðu það sem fyrir þá var lagt gegn Argentínu, léku agað og efldust við mótlætið, en Maradona var ekki svipur hjá sjón.“ Þjálfarinn sagðist hafa fundið til méð löndum sínum, þegar þeir töp- uðu 2:0 fyrir Rúmeníu, en hann áréttaði að Kamerún myndi gera allt sem hægt væri tii að sigra Sovétmenn. „Það er erfitt, en sigur skiptir öllu. Þetta er starf mitt. og ég verð fyrst og fremst að hugsa um það.“ ■ JAN Ceulemans verður ekki með Belgum gegn Suður-Kóreu í dag. Miðheijinn hefur verið meiddur í baki, en Marc Van der Linden tekur stöðu hans. ■ ÍTALINN Carlo Ancelotti meiddist gegn Austurríki og leikur ekki með gegn Bandaríkjunum á fimmtudag. RÚMENSKIR stuðningsmenn á Ítalíu fögnuðu vel og lengi eftir 2:0 sigurinn gegn Sovétmönnum á laugardag. Um 2.000 Rúmenar eru á Ítalíu og eru þeir sannfærðir um að lið þeirra hafi þegar tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum. ■ ANDRE Kana-Biyik og Benj- amin Massing, Kamerún, voru dæmdir í eins leiks bann eftir að hafa fengið að sjá rauða spjaldið gegn Argentínu. Þá þurfa þeir að greiða um 400.000 krónur hvor í sekt. ■_ TALIÐ er að um 24 milljónir á Ítalíu hafi fylgst með leik Ítalíu og Austurríkis í beinni útsendingu sjónvarps. ■ LANDSLIÐ Egyptalands hef- ur undirbúið sig vel fyrir keppnina — leikmennirnir hafa verið saman síðustu fimm mánuði. ■ MATS Magnusson á við meiðsl í nára að stríða, en þrátt fyrir með- ferð eftir leikinn gegn Brasilíu er hann ekki bjartsýnn. „Mér líður betur, en ég veit ekki hvenær ég get leikið næst,“ sagði miðheijinn í gær. ÍfQká| m- f Magnusson. Van Basten. ■ BELGAR voru síðasta liðið sem mætti til leiks á Italíu, aðeins þrem- ur dögum fyrir fyrsta leik sinn við Suður-Kóreu. „Ástæðan fyrir því að við komum svona seint er sú að við ætlum okkur að vera hér lengi,“ sagði Michel D’Hoghe, forseti belgíska knattspyrnusambandsins við komuna til Italíu. ■ GUY Thys, þjálfari Belga, er bjartsýnn á gott gengi liðs síns. Hann varaði menn þó við að ván- meta Suður-Kóreu og vitnaði í því sambandi í leik Argentínumanna og Kamerún. „Við erum í mjög erfiðum riðli. Fyrsta markmið okkar er að komast áfram eftir riðla- keppnina og síðan að fara eins langt og mögulegt er,“ sagði Thys. ■ MIKIL gleði ríkir í herbúðum Kamerún eftir sigurinn gegn Arg- entínu. Leikmenn fengu sem sam- svarar 630 þúsundum íslenskm króna hver fyrir sigurinn, og þeir vita að góð úrslit gegn Rumenum á fimmtudag tryggja þeim sæti í 2. umferð. ■ MARCO van Basten, marka- skorarinn mikli í liði Hollands, fór viðurkenningarorðum um lið Eng- lendinga í samtali við blaðamenn á laugardag. „Enska landsliðið spil- ar ekki þennan dæmigerða enska fótbolta. Leikur liðsins er mun betri en svo og þeir nýta kantana mjög vel,“ sagði van Basten sem hrósaði sérstaklega Peter Beardsley og sagði hann stórkostlegan leikmanrf. Van Basten, sem skoraði þrennu í síðustu viðureign Hollands og Eng- Iands, kannaðist við flesta leikmenn Englendinga. Það þótti þó kald- hæðnislegt að hann hafði ekki heyrt minnst á Des Walker, vamarmann- inn snjalla, sem líklega fær það lilutverk að gæta van Basten í við- ureign liðanna næsta laugardag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.