Morgunblaðið - 31.07.1990, Side 5
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞREÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 1990
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 1990
B 5
FRJÁLSAR / BIKARKEPPNI FRÍ
Jöfn keppni við
bestu adstædur
.Morgunblaðið/RAX
Sigurður T. Sigurðsson, FH, sigraði örugglega í stangarstökki.
BIKARKEPPNI Frjálsíþrótta-
sambands íslandsfór fram um
helgina. Keppni í 1. deild fór
fram á Varmárvelli í Mosfells-
bæ, keppni 2. deildar í Borgar-
firði og keppni í 3. deild í Aðald-
al í S-Þingeyjarsýslu. Keppni
var jöfn og spennandi í 1. deild,
en árangur einstakra keppenda
var þó ekki sériega glæsilegur.
Gert var ráð fyrir að keppnin í
1. deild stæði á milli HSK, FH
og ÍR. Sú varð einnig raunin;
eftir fyrsta dag var HSK efst
með 87 stig en FH 82 og svo
fór að HSK sigraði, fékk 154
stig, FH fékk 143 og ÍR 142 stig.
Mótið í 1. deild hófst á laugar-
dag í blíðskaparveðri á 400 m
' grindarhlaupi kvenna, hástökki
kvenna, spjótkasti kvenna og lang-
^■■1 stökki karla. í þess-
Guðjón um greinum bar helst
Guðmundsson til tíðinda að 12 ára
skrifar gömul stúlka, Jó-
hanna Jensdóttir
UMSK, jafnaði íslandsmetið í
stúlknaflokki í hástökki,. stökk 1,50
m. Þórdís Gísladóttir ÍR, íslands-
meistari í hástökki kvenna, varð bik-
armeistari er hún stökk 1,80. Is-
landsmet Þórdísar er 1,87.
Oddný Árnadóttir, ÍR, var óum-
deilanlega maður mótsins. Hún sigr-
aði í 100 m,200 m, 400 m og 800 m
hlaupi og leiddi sveit sína til sigurs
í 1.000 m boðhlaupi; tók við keflinu
í 3. sæti um 30 m á eftir næsta
manni, en sigraði.
Tvær stúlkur kepptu alls í sjö
greinum, þær Birgitta Guðjónsdóttir
UMSE, og Bryndís Hólm ÍR.
Árangur* í kastgreinum mótsins
var heldur slakur, sigurkastið í kúlu-
varpi var til að mynda innan við 18
metra, enda var Pétur Guðmundsson
HSK, sem er í fremstu röð íslenskra
kúluvarpara, fjarri góðu gamni.
Bróðir hans, Andrés, hélt þó merki
HSK á lofti með því að varpa kúl-
unni 17,40 m.
Meðal keppenda í 3000 m hindrun-
arhlaupi karla og spjótkasti karla
voru tveir landskunnir frjálsíþrótta-
menn, Jón Diðriksson og Oskar Jak-
obsson, sem ekki hafa sést í keppnum
hérlendis í mörg ár.
Guðmundur Karlsson, FH, í hrikalegum átökum í kasthringnum. Hann varð bikarmeistari 1990 í sleggjukasti og kastaði 58,70 m.
Varðadkýla
á sprettinn
vegna meiðsla
- sagði GunnarGuðmundsson, sem hyggur
á nám og keppni í Bandaríkjunum
GUNNAR Guðmundsson FH
var bikarmeistari í 100 metra
hlaupi á tímanum 10,91. Gunn-
ar sagðist hafa fundið sig
þokkalega og að sér hefði
gengið vonum framar. Hann
meiddist illa fyrr í sumar og var
frá æfingum af þeim sökum í
tvo mánuði svo sigur hans er
fyrir vikið enn sætari en ella.
Eg fór eitthvað yfir strikið
m í æfingum í vetur og trú-
lega hafa meiðslin tekið sig upp
þá. Eg hef verið mest í lyftingum
og sundi til að halda mér í formi.
100 metra hlaupið hefur verið auka-
grein hjá mér, 400 metrarnir verið
aðalgreinin. Ég sá bara fram á
það í vor að ég hafði misst það
mikið úr æfingum að ég varð bara
að kýla á sprettinn," sagði Gunnar.
Gunnar var mjög ánægður með
aðstæður á Varmárvelli. „Þetta er
eins og það gerist best erlendis. Ég
er sérstaklega ánægður með að
fá svona gott veður núna því
maður hefur horft upp á það að
veðrið hefur verið að eyðileggja
Morgunblaðið/KGA
Gunnar Guðmundsson FH
mótin í sumar.“
Gunnar sagði að svo gæti farið
að hann yrði við nám og keppni
næsta ár í Alabama í Banda-
ríkjunum.
Morgunblaðið/KGA
Martha Ernstdóttir ÍR endurtók afrek sitt frá í fyrra og varð
bikarmeistari í 1500 og 3.000 metra hlaupi.
Rögnvaldur
Ingþórsson:
Sigraði
ífyrstu
keppninni
RÖGNVALDUR Ingþórsson
UMSE sigraði í 3000 m hindr-
unarhlaupi og lagði þar af velli
ekki ófrægari kappa en Jón
Diðriksson, sem nú keppti á
nýfyrir ÍR eftir langa hvíld.
Sigur Rögnvaldar er ekki síst
glæsilegur með tilliti til þess að
þetta er í fyrsta sinn sem hann
keppir á móti í 3000 m hindrunar-
hlaupi. Rögnvaldur er fyrst og
fremst skíðagöngumaður en ekki
langhlaupari.
„Þetta var erfitt hlaup en jafn-
framt mjög skemmtilegt. Það var
góð barátta í hlaupinu og spenn-
andi endasprettur. Þetta gekk bæri-
lega þótt ég hafi lítið getað æft
að undanförnu," sagði Rögnvaldur.
Aðspurður um kepjminauta sína
sagði Rögnvaldur: „Eg var sjálfur
ekki farinn að stunda hlaup þegar
Jón Diðriksson var upp á sitt besta
en það var óneitanlega gaman að
leggja jafnfrægan kappa af velli.“
■ Úrslit/B6
Morgunblaðið/KGA
Rögnvaldur, t.v., skrefmu á eftir Jóhanni Ingibergssyni FH í 3000 m hindrunarhlaupi. Rögnvaldur sigraði.
Óskar Jakobsson mundar spjótið á Varmárvelli. Morgunbiaðið/KGA
Aðstæður á heimsmælikvarða
*
- sagði Oskar Jakobsson. Hafði ekki keppt hér í átta ár
Meðal keppenda í Bikarkeppni FRÍ var hin gamal-
kunna frjálsíþróttakempa Óskar Jakoþsson, sem
lengi átti íslandsmetið í kringlukasti. Óskar er sem
kunnugt þrekþjálfari í bandarískum háskóla en þetta
er fyrsta mótið sem hann tekur þátt í hér á landi í
átta ár.
Óskar keppti í spjótkasti og var ekki alls kostar án-
ægður með árangur sinn sem var um 62 metrar. „Ég
er bara að þessu mér til skemmtunar. Annars líst mér
vel á allar aðstæður hér. Þetta er aðstaða á heimsmæli-
kvarða og ekki skemmir veðrið," sagði Óskar. Hann
sagðist lítið hafa keppt undanfarin ár, aðallega stundað
lyftingar.
Guðrún Arnardóttlr, UMSK, sigraði í 110 m grindahlaupi kvenna.
Morgunblaðið/RAX