Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 9
8 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐTAL MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ VIÐTAL MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 B 9 FRUMKVÆÐIÐ KOMIFRÁ FYRIRTÆKIUNUM TAPI snúið í hagnað, aukið hlutfall saltfísks í fyrsta flokk, verð- mæti humarútflutnings aukið með heilfrystingu, sundmagavinnsla og frysting með köfnunarefni. Fyrir þessa þætti og fleiri á sviði sjávarútvegs hefur Fiskiðjuver KASK á Höfn í Hornafírði verið í fréttum Morgunblaðsins undanfarin misseri. I hveiju liggur galdurinn? „Við getum ekki búizt við því að ytri aðstæður verði okkur miklu hagstæðari en nú er,“ segir Hermann Hansson, kaupfélags- sljóri. „Við vitum að það þýðir ekki eingöngu að heimta einhver ákjósanleg rekstrarskilyrði af stjórnvöldum, þar sem lífið í sjónum og framboð og eftirspurn á erlendum mörkuðum ræður úrslitum um afkomu sjávarútvegsins hveiju sinni. Við þessar staðreyndir lifum við og tökum á innviðum fyrirtækisins til að ná árangri. Komi frumkvæðið ekki frá okkur sjálfum, verði til innan fyrirtækj- anna sjálfra, ná menn tæpast árangri. Gott starfsfólk gerir svo útslagið," segir Hermann. Hermann Hansson, kaup félagsstj óri á Höfn í Hornafirði Fiskvinnslan bætir upp annan rekstur Veigamesti þátturinn í starfsemi Kaupfélags Austur-Skaftfellinga er á sviði sjávarútvegsins. Fiskiðjuve- rið tók á síðasta ári á móti tæpum mmmmmmm 11.000 tonnum af eftir bolfiski, um 150 tonn- Hjört um af humri, 4.800 Gíslason tonnum af síld og lít- ils háttar af loðnu til frystingar. KASK er einnig um- svifamikið í útgerð í gegnum dóttur- fyrirtækið Borgey, gerir út þrjá báta og einn togara og á hlut í öðrum togara. Þá á KASK stóran hlut í Fiskimjölsverksmiðju Horna- fjarðar, sem meðal annars vinnur töluvert af loðnu, rekur stóra síldar- söltunarstöð og gaffalbitaverk- smiðju. Brúttóhagnaður fiskvinnsl- unnar á síðasta ári nam 586 milljón- um króna, en hagnaður af rekstri að frátöldum fjármagnskostnaði og sameiginlegum kostnaði nam 71 milljón. Hagnaður af sameiginlegri aðalstarfsemi KASK varð 51,4 milljónir króna og því er ljóst að sjávarútvegurinn hefur þar lagt sitt að mörkum til að hindra taprekstur. Hermann tók við stöðu kaupfé- lagsstjóra KASK af Ásgrími Hall- dórssyni í ágúst 1975 og hafa um- svifin töiuvert breytzt síðan. Verzl- unarsvæðið hefur stækkað með yfirtöku verzlunarreksturs á Djúpa- vogi og nær nú yfir alla Austur- Skaftafellssýslu og þrjá syðstu hreppa Suður-Múlasýslu. Þegar Hermann tók við, var nýtt fískiðju- ver í byggingu og lauk henni árið 1977. Megin breytingin frá þessum tíma er sú, að 1975 voru allar út- gerðir á staðnum í viðskiptum við KASK, sem var eini fiskverkandinn á staðnum. Nú eru fiskverkendur á Höfn orðnir 4 auk þess, sem um- boðs- og þjónustufyrirtækið Hrellir hf. annast útflutning á físki í gám- um og fiskmiðlun í nokkrum mæli. „Mér líkar þetta spaug vel í strákun- um að nefna gámaútflutningsfyrir- tækið Hrelli, enda sögðust þeir vera að þessu til að hrella okkur kaupfé- lagsmenn. Viðhorfin hafa gjör- breytzt á nokkrum árum og það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að fisk- verkendum hafi fjölgað og við not- færum okkur þjónustu Hrellis eins og aðrir,“ segir Hermann. „Meðal annars í Ijósi breyttra aðstæðna var ákveðið að efla hráefnisöflun fyrir fiskiðjuverið með því að auka þátt KASK í útgerð. KASK átti hlut í útgerðinni Borgey hf., sem þá gerði út tvo báta, en nú gerum við út einn togara, Þórhall Daníelsson, og þijá báta. Þá á KASK hlut í útgerð- inni Samstöðu, sem keypti togarann Otur og gerir út héðan, en hann heitir nú Stokksnes. Með þessu höf- um við tryggt okkur afla tveggja togara, þriggja báta auk annarra, sem vilja leggja upp hjá okkur. Breyttur hugsunarháttur Hér hefur oft verið deilt um fisk- verð og yfirborgana krafizt af út- gerðarmönnum. Reyndin hefur ver- ið sú að vinnslan hefur teygt sig býsna langt og þegar illa hefur árað hjá útgerðinni, höfum við yfirborgað fisk þó allir vissu að það þýddi tap á vinnslunni. Menn eru hvergi bundnir af. lágmarksverði, en við höfum það auðvitað til viðmiðunar og höfum um langt skeið gefið út okkar eigið verð eftir því, sem við teljum okkur kleift. Síðan ráða þeir, sem eiga fískinn, hvort þeir selja okkur hann eða ekki. Öll þessi viðskipti eru orðin mun fijálsari en áður og hafa gengið að ýmsu leyti vel. Með tilkomu kvótans hefur hugs- unarháttur manna breytzt verulega. Á vertíðinni 1981 fiskuðu til dæmis allir undir drep. Menn hugsuðu í tonnum og fleygðu aflanum bara í land og okkar var svo að sjá um að koma honum í verð. í apríl þetta ár tókum við á móti meiri afla í einum mánuði en nokkru sinni í sögu KASK og tókst að koma hon- um í verð með því að verka í salt og skreið auk frystingar og selja fisk til annarra fyrirtækja. Nú, þeg- ar menn verða svona áþreifanlega varir við að auðlindin er takmörk- uð, hugsa þeir allt öðru vísi. Nú koma menn með úrvals hráefni að landi og það hefur hjálpað okkur til að ná umtalsverðri verðmæta- aukningu, einkum í saltfískinum. Með úrvals hráefni er ýmislegt hægt að gera og í landi höfum við gætt þess að gera að og salta vertíð- arfískinn, þegar hann kemur i land í stað þess að láta hann bíða óað- gerðan til næsta dags. Þannig fáum við betri útkomu í vinnslunni, sem gerir okkur kleift að hvetja sjómenn til að koma með gæðafisk að landi. Yfírborgunum högum við þannig, að mest kemur á bezta fiskinn en minnst eða ekkert á þann slakasta. Nú hugsa menn líka meira um af- komu veiða og vinnslu í samhengi og njóta þar aukinnar þekkingar. á erlendum mörkuðum. Hér ríkir því að mörgu leyti gott andrúmsloft og menn vinna hver fyrir sig innan þess svigrúms, sem heildarafkoman gefur, til að ná sem beztum ár- angri á öllum stigum veiða og vinnslu. Menn fara varlega í fjárfestingar Það eru ýmsar leiðir til að ná árangri. Þar má nefna breytt hugar- far stjórnenda og annars starfs- fólks, breytt vinnubrögð og aukna tækni og markaðssetningu. Aðalat- riðið er að frumkvæðið komi frá fyrirtækjunum sjálfum. Við getum ekki búizt við betri aðstæðum en nú ríkja í sjávarútveginum. Menn geta ekki eingöngu krafið ríkið um einhver • ákveðin rekstrarskilyrði. Það ræður litlu um Iífíð í sjónum og gang mála á erlendum mörkuð- um. Afurðaverð er hátt um þessar mundir, en það gæti farið að lækka eins og gerðist er hámarkinu var náð 1987., Þá bjuggum við við hag- stæða kjarasamninga, verðbólga var á niðurleið, gengi fast og það Morgunblaðið/HG I ALDARFJORÐUNG A HOFN Hermann Hansson er 47 ára, fæddur á bænum Eyjuin í Kjós og ólst þar upp svo og á Hjalla í sömu sveit. Foreldrar hans eru Hans Guðnason, bóndi og eiginkona hans Unnur Hermannsdóttir. Hermann stundaði nám í Samvinnuskólanum og útskrifáðist þaðan á átjánda ári. Hann hefur síðan starfað innan vébanda samvinnufé- laganna, þar af síðustu 25 árin hjá KASK. Fyrstu 10 árin sem aðalbókari og skrifstofustjóri, en kaupfélagsstjóri fráárinu 1975. Eiginkona Hermanns er Heiðrún Þorsteinsdóttir og eiga þau 3 börij. Hermann situr í stjórn Iceland Seafood Corp., dótturfyrirtækis Sambandsins í Bandaríkjunum og er varamaður í stjórn Sambands- ins. Hann situr í Síldarútvegsnefnd og er formaður Félags síldar- saltenda á Norður- og Austurlandi, er í stjón Vinnumálasambands Samvinnufélaganna og í stjórn Landsamtaka sláturleyfishafa. er því óhjákvæmilegt að stokka reksturinn upp og sú leið að gera einstakar deildir að hlutafélögum, þar sem Sambandið verði eignar- haldsfélag, er að mínu mati vænleg. Sjávarafurðadeildin hefur skilað tekjuafgangi öll sín ár nema í fyrra og var það fyrst og fremst vegna afskrifta útistandandi skulda. Starf- semin hefur gengið með ágætum, merkið „Samband of Iceland“ er þekkt að góðu erlendis og áfram þarf að halda á sömu braut. Helm- ingur hagnaðar af rekstrinum hefur runnið til frystihúsanna á sérstök- um séreignarreikningum, en annar hagnaður hefur runnið til Sam- bandsins." HJA KASK A HOFN Hermann Hansson kaupfélagsstjóri (á efri myndinni) og togarinn Þórhallur Daníelsson, sem er í eigu Borgeyjar og leggur afla sinn að mestu upp hjá KASK. voru erlendar verðhækkanir á fisk- afurðum, sem stóðu undir þessu öllu. Síðan féll verðið og menn töp- uðu á rekstrinum, uppsöfnuð þörf fyrir gengisfellingu kom öll á mjög skömmum tíma og blaðran hrein- lega sprakk. Árið 1987 gerðu menn upp með nokkrum verðbreytingar- tekjum og lágum vöxtum og verð- bótum. 1988 snérist þetta allt við, en þá voru menn enn í skýjunum vegna velgegninnar árið áður og höfðu fjárfest í stórum stíl, bæði í veiðum og vinnslu. Nú er viðhorfið allt annað. Menn átta sig á því að sveiflur verða alltaf á verði sjávaraf- urða og lækkandi verð þýðir skerta getu til að halda uppi verði á fiski upp úr sjó og svo framvegis. Því fara menn varlega í fjárfestingum 4im þessar mundir, en þó er ég hræddur um að þokkalega góð af- koma nú rugli fólk í ríminu, því það er ekki allt sem sýnist. Útgerðar- menn og fiskverkendur verða að fá tækifæri til að greiða niður skuldir og laga rekstrarstöðuna, áður en farið verður að krefjast hækkandi Iauna svo dæmi séu nefnd. Fólk gerir sér til allrar lukku æ betur grein fyrir því að það er ekki kaup- hækkun í krónum talið, sem öllu máli skiptir, heldur kaupmátturinn. Launþegar og atvinnurekendur vita hvorir um sig hver staðan er, hvað er til skiptanna og því eru samning- ar um kaup og kjör í raun samkomu- Iag um skiptingu þess, sem til skipt- anna er og það er mismikið hveiju sinni. Fiskvinnslustefnu vantar Kvótakerfíð hefur skilað okkur ýmsu. Kannski má segja að heldur hægt hafí gengið að fækka í flotan- um. Þá má einnig segja að þau for- réttindi, sem útgerðinni hafa verið fengin með því að framselja henni fiskinn í sjónum, séu full mikii. Mér fyndist rétt að vinnslan réði líka yfir einhveijum kvóta. Að öðru leyti er ég sáttur við ríkjandi fyrir- komulag. Menn verða að einbeita sér að því að ná markmiðum fisk- veiðistjórnunarinnar, það er fækkun fiskiskipa og efling fískistofnanna og ég er sannfærður um að mikil hreyfing á eftir að koma á það mál áður en langt um líður. Hins vegar v.antar fiskvinnslu- stefnu hér. Það ríkir nokkuð gott aðhald í veiðum og smíði fiskiskipa, en sama aðhald vantar í vinnsl- unni. Þar hefur ekki miðað sem skyldi þó benda megi á jákvæðar breytingar í Reykjavík þar sem er sameining Hraðfrystistöðvarinnar pg Granda hf. og þar áður samruna ísbjarnarins og Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Hið gagnstæða er allt of algengt. Með aflakvóta á vinnslu- stöðvar væri hægt að stuðla að fækkun þeirra og jafnframt með því að framfylgja reglum Ríkismats- ins um lágmarkskröfur um hrein- læti og aðbúnað við fískvinnslu. Staðreyndin er sú, að það vantar stjórntæki til þess að hluta til og þau, sem til eru, eru misnotuð. Þá er aðgangur að lánsfé orðinn of auðveldur og Fiskveiðasjóður nýtist því ekki sem stjórntæki eins og ella. Lánveitingar geta verið bjarnargreiði Hvað sem mönnum finnst um þessa sjóði, verð ég að segja að Atvinnutryggingasjóður varð okkur —— ■—- Fiskiðjuver KASK Afíamagn 1989 1988 Braytlng ( Bofflskur, VGtrarvertíð 7.202 tn. 8.443 tn. (14,7%) Bolfiskur, sumar og haustvertið 3.690 tn. 4.144tn. (11.0%) | Humarhaiar 83 tn. 135 tn. (38,5%) Heillhumar 71 tn. 46 tn. 54,3% 1 Síld 4.810tn. 3.840 tn. 26,3% Loðrta 24 tn. 54 tn. (55,6%) | Samtals: HMMWt*. 18.888 tn. (4.7W Aflavorðmsotl Þúa. kr. Þua. kr. ( Bofflskur, VGtrarvertið 261.494 262.137 : £0.2%) : ■: Bolfiskur, sumarog haustvertið 135.635 130.757 3,7% [ Humarhaiarog heillhumar 67.801 73 054 (7,2%) Síld 39.081 30.325 28,9% [ Loðna 170 444 (81,7%) Samtals: 604.181 496.717 1,6% Sklptlng hráafnla aftlr vlnnalugr.: ( Frysting 8.479 tn. 7.703 tn. 10.1% Söltun 6.314tn. 8.489 tn. (25,6%) [ Hersla 74 tn. 116 tn. (36,2%) Annað 1.013tn. 354 tn. 186,2% f Bamtáfa: 16-WOt*. 18.668 tm 166,8% 1 i hér og mörgum öðrum ákaflega mikils virði í kjölfar erfiðleikanna 1988. Þá fengum við lausaskuldum og rekstrartapi breytt í langtíma lán. Sjóður sem þessi er mikilvægur ventill, þegar almennt gengur illa, en sé tapið af eigin völdum, er lán slæmur kostur. Oft hefur fyrirtækj- um verið gerður bjarnargreiði með því að lána þeim of mikla peninga. Menn hugsa kannski ekki alltaf um ávöxtun eigin fjár. Kvóti á hvert skip er orðin staðreynd og því liggja mögulegar tekjur hverrar útgerðar meira og minna fyrir. I Ijósi þess hafa menn að mínu mati í of mörgum tilfellum lagt of mikið fé í skipin. Sóknarmarkið hefur kannski átt þátt í þessu meðan það hefur verið við lýði, en nú verður það ekki til lengur eftir áramót. Ég á því von á því að fjárfestingar í skipum, nýsmíði til dæmis, fari minnkandi, en í staðinn fjárfesti menn í kvóta. Það skilar sér mun betur. Menn hugsa miklu meira um afkomuna en áður og þá á ég við hvað þeir geta gert sjálfir í því máli. Þar er um nokkra hugarfars- breytingu að ræða, en menn hafa heldur ekki gleymt þörfum heima- byggðarinnar og þeim gagnkvæmu skyldum, sem þar ríkja milli hags- munaaðila. Byggðastefna í sjávarútvegi er svo bæði til góðs og ills eins og hún hefur verið framkvæmd. Stundum hafa menn lent á villigötum í byggðamálunum, þegar þeir hafa lagt of mikið fé og fyrirhöfn í að halda gangandi illa reknum fyrir- tækjum, en almennt séð er byggða- stefna öllum til hagsbóta." Óhjákvæmilegt að stokka rekstur Sambandsins upp Heildarrekstur Sambandsins gengur illa um þessar mundir, en Sjávarafurðadeildin hefur gengið vel og lagt fram fé til að mæta taprekstri á öðrum deildum. Telur þú rétt að skipta Sambandinu upp í hlutafélög eftir deildum? „Ég er hlynntur skiptingu Sam- bandsins upp í hlutafélög. Rekstur þess hefur gengið erfiðlega undan- farin ár og þau þijú síðustu hefur verið um verulegt tap að ræða. Það Enginn vandi að selja þegar markaðinn skortirfisk Heimildum til útflutnings á fryst- um fiski til Bandaríkjanna var breytt fyrir nokkrum árum, er einkaleyfi SH og Sambandsins var afnumið, en útflutningur er fijáls á aðra markaði að undanskildum salt- fiskinum. Ertu fylgjandi þessu fyrir- komulagi og þeim breytingum, sem gerðar voru?. „Ég sé ekki að það hafi breytt miklu. Smærri aðilar ná ekki sama árangri og hinir stóru þegar til langs tíma er litið, þó þeir geti af og til við sérstakar aðstæður náð hærra verði fyrir lítið magn. Þvf halda stóru útflutningssamtökin áfram að vera til, enda hafa þau náð góðum árangri. Það er enginn vandi að vera til, þegar markaðinn vantar fisk. Vandinn verður, þegar þarf að eyða miklum tíma og fyrir- höfn í að vinna afurðum okkar markaði. Það hafa SH og Samband- ið gert, þeir smærri fylgja svo í kjölfarið og njóta í því verka hinna stóni. í saltfiskútflutningum hefur SÍF náð árangri og þarf ekki að óttast samkeppni meðan það stendur sig. Saltfiskmarkaðurinn er mjög við- kvæmur og komist menn bakdyra megin inn á hann með gallaða vöru eða takmarkaðan stöðugleika og áreiðanleika, geta þeir skemmt fyr- ir hinum og má þar nefna flatta ferska fiskinn. Okkur skortir hér eitthvað, sem kalla mætti markaða stefnu hvað varðar útflutning hráefna. Við verð- um að hugsa um þá vinnu, sem við flytjum úr landi með ferskfisksöl- unni. Við hljótum að stefna að því að flytja afurðir okkar út á sem hæstu vinnslustigi og því hlýtur ferskfiskútflutningur að verða aukaatriði, afgangsstærð að vissu marki, þó hann sé bæði gagnlegur og nauðsynlegur í takmörkuðum mæli. Því verður hins vegar ekki neitað að á sínum tíma bjargaði mörg útgerðin sér á gámaútflutn- ingi, þegar skórinn kreppti að, en slíkur útflutningur getur aldrei orð- ið keppikefli eða markmið manna. Við hjá KASK höfum yfir úrvals fólki að ráða, bæði stjórnendum og almennum starfsmönnum og það er lykillinn að þeim árangri, sem náðst hefur. Þegar allir leggjast á eitt, nást markmiðin. Annars getur það gengið illa að ná settu marki,“ segir Hermann Hansson. HUNI Kemst í vana að sullast þetta í ágjöfinni fyrir bankann og foðuriandið Sig-urður Bjarni Hjartarson á Húna frá Bolungaivík BOLUNGARVÍK- SIGURÐUR Hjartarson er einn af þeim einstaklingum sem helga sig sjómenns- kunni af lífi og sál. Fiskveið- ar og útgerð eru lífið. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti Sigurð um borð í m.b. Húna, tíu lesta bát sem hann gerir út. Sigurður var fýrst spurður að því hvort aldrei hafi komið annað til í hans lífi en að stunda sjómennsku. „Er það ekki draumur margra að vera sjálfs síns herra?“ sagði Sigurð- ur. „Það er nú reyndar svo með mig, að ég fæddist inn í þennan trillubúskap. Lífsafkoma á mínu æskuheimili byggðist nefnilega á útgerð smábáts, og maður kynntist því fljótt að það fylgja mörg hand- tökin þessari vinnu og miklar sveifl- ur eru hvað afkomu varðar. Það er eins og þeir sem kynnst hafa trillulíf- inu í æsku, losni aldrei við þetta. Ég tók fiskimannapróf í Stýri- mannaskólanum og var á stærri bátum og togurum en endaði svo aftur á smábátum. Þetta er að mörgu leyti ágætis líf, félagsskapur mannanna á bátunum er mikils virði, samkenndin er mikil og hjálp- semi ríkjandi er eitthvað bjátar á.“ — Eru trillukarlar sérstakir per- sónuleikar, nú eru margar sögur til af sérvitrum trillukörlum. „Já, já sjálfsagt eru flestir trillu- karlar dálítið sérvitrir, hver á sinn hátt, en það kryddar bara tilveruna, því kynlegir kvistir eru að verða sjaldséðir hvort eð er. Ég get sagt þér að það eru nánast trúarbrögð marga í okkar hópi að vera á móti snurvoð og þorskanetum og verða þeir næstum óvirkir ef slík veiðar- færi nálgast þá á miðunum. Mín skoðun er sú að menn eigi í sem mestu bróðerni að fá að elta uppi þessa fáu titti sem hveijum er út- hlutað.“ Kvótinn og aftur kvótinn — Bryggjuspjallermikiðstundað af trillusjómönnum að minnsta kosti hér í Bolungarvík, um hvað eru menn aðallega að spjalla? „Það er að sjálfsögðu kvótinn maður, áður var það veðrið, vinsæl- asta umræðuefni landsmanna, en kvótinn hefur slegið öll met. Tveir menn mega vart hittast án þess að allt verði glóandi. Ég skal segja þér að við þær aðstæður sem nú eru uppi er ákaflega erfitt fyrir þessa smærri báta útgerð að hanga réttu megin við núllið, þetta á auðvitað sérstaklega við um nýjustu bátana sem kosta tíu til fimmtán milljónir króna og fá úthlutað kannski 70 til 100 lesta kvóta. Þar að auki búum við víða úti á landi við fiskverð sem jafnast á við gúanóverð á mörkuðun- um fyrir sunnan. Við teljumst góðir að fá t.d. hér í Bolungarvík fimmtíu og mest fimmtíu og átta krónur fyrir kílóið meðan sjómenn við Faxa- flóa fá þetta 80-100 krónur fyrir kílóið. Við getum aúðvitað lagað okkar stöðu með því að fara suður á vertíð á vorin og skilið vinnsluna í heimabænum eftir fisklausa. Við eru efnaðir geti sankað að sér kvóta til að styrkja stöðu sína í framtíð- inni er ákaflega neikvætt og getur skapað ættarauð fárra fjölskyldna eða fyrirtækja sem síðan gengi í erfðir. Ég er ekki að tala í niðrandi merkingu um þá sem hafa efni að gera út með reisn og geta keypt kvóta, þvert á móti ég ber talsverða virðingu fyrir þessum aðilum, því að þeir eru auðvitað aðeins að spila eftir þeim nótum sem kvótakerfis- platan leggur þeim til.“ — Nú höfum við verið að tala almennt um afkomumöguleika í smábátaútgerðinni, í stuttu máli hvernig hagar þú útgerðinni á þínum bát? Á bryggjuspjalli á Bolungarvík getum líka eftir næstu áramót, þeg- ar nýju kvótalögin taka gildi og trillukvótar verða söluvara, selt kvótann hæstbjóðandi. Nei, það er Ijóst að eigi þessi landsbyggðarút- gerð að geta gengið þá þurfum við að fá það verð fyrir fiskinn sem eðlilegt markaðsverð getur talist. Þá færi fiskurinn ekki út og suður heldur yrði eftir í heimabyggð öllum sem þar búa til góðs.“ Fiskigengd að aukast — Hveijir eru helstu vankantar á núverandi kvótakerfi að þínu mati? „Kvótakerfið má ekki verða svo ósveigjanlegt að menn hafi engar smugur til að bjarga sér, krafan um takmarkalausar krókveiðar a.m.k. handfæraveiðar á fullan rétt á sér, veðrið sér mönnum fyrir banndögum og það í ríkum mæli. Fiskigengd í fjörðum og flóum a.m.k. hér vestan- lands hefur verið að aukast ár frá ári, og óheftar krókveiðar á þessum svæðum yrðu örugglega.ekki alvar- leg ógnun við fiskistofnana. Sú staða sem komin er upp að stórar og efnaðar útgerðir séu að kaupa upp trilluflotann, getur orkað tvímælis, og einnig það að þeir sem Morgunblaðið / Gunnar „Ég endurnýjaði bátakost minn um síðustu áramót og það sem af er árinu hefur gengið sæmilega að ná því aflamagni sem mér var út- hlutað. Rækjuvertíðin var að vísu í lágmarki sökum smárækju í aflan- um og var því fremur rýr afkoma af þeim veiðum. Veiðir síld í beitu Nú er þorskkvótinn búinn og ekk- ert framundan nema bið eftir haust- veiðunum, sem hefjast venjulega í október. Reyndar er ég nú að gutla með nokkur síldarnet til þess að ná í beitusíld fyrir línubátana enda er síldin úr lsafjarðardjúpi sú feitasta og fallegasta í sjónum við landið. Þetta útgerðarbasl mitt höktir svona á horriminni með því að hafa allar klær úti, en ekki má mikið bera út af til að afkoman verði afleit. Það vekur þó góðar vonir að verð á fisk- afurðum virðist fara hækkandi í heiminum og það þýðir ekki annað en að vera bjartsýnn, það fer að komast upp í vana að sulla þetta í ágjöfinni fyrir bankann og föður- landið,“ sagði Sigurður B. Hjartar- son að lokum. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.