Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 1
“b Sérblað um Sjávarútveg PRENTSMIDJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 BLAÐ ! Viðunandi sölu á saKsíld er vænzt VIÐRÆÐUR um sölu á síld, saltaðri og frystri, eru nú hafn- ar í Svíþjóð, Finnlandi og Bret- landi og eru framundan í Japan og Sovétríkjunum, sem eru stærstu kaupendur slldar héð- an. Gunnar Flóvenz, formaður stjórnar Síldarútvegsnefndar, segir að við hljótum að vænta þess, að Sovétmenn afli sér gjaldeyrisheim- ilda til kaupa á saltsíld héðan eins og undanfarin ár, enda sé greiðslujöfnuð- ur landanna það sem af er gildandi bókunartímabili íslendingum mjög óhagstæður og stefni mismunurinn í um 5 milljarða króna. Útlit fyrir 5 milljarða króna viðskiptahalla við Sovétríkin „Fyrirframsamningar liggja fyrir um sölu á 50.00 tunnum af saltsíld til Sovétríkjanna, sem afgreiðast eiga fyr- ir áramót, en ósamið er um þá síld, sem afgreiða á eftir áramót,“ segir Gunnar Flóvenz aðspurður um gang mála. „Við bíðum nú eftir því, að sovézk stjórnvöld veiti viðsemjendum okkar í Moskvu gjaldeyrisleyfi til frek- ari saltsíldarkaupa og hljótum að vænta þess að leyfi fáist fyrir viðun- andi magni í tæka tíð fyrir komandi vertíð, enda er greiðslujöfnuður land- anna það sem af er gildandi bókun- artímabili (1. janúar 1986 til 31. 12 1990) íslendingum mjög óhagstæður. Á þeim fjórutn árum, sem liðin eru af gildandi viðskiptabókunartímabili hafa Islendingar greitt 52 milljónum dollara meira fyrir sovézkar útflutningsvörur en Sovétmenn fyrir íslenzkar og flest bendir til þess að þessi mismunur verði kominn upp í 85 til 90 milljónir dollara eða um 5 milljarða króna, þegar bókun- artímabilinu lýkur um næstu áramót. Sovétmenn hafa ekki borið fram neinar óskir um greiðslufrest vegna saltsfldarkaupa þeirra af okkur. Þeir hafa ætíð frá upphafí viðskiptanna staðið fyllilega í skilum með greiðslur á umsömdum tíma, nema hvað smáveg- is töf varð á greiðslum fyrir nokkra síldarfarma sem þeir fengu afgreidda á fyrsta fjórðungi þessa árs. Samingaumleitanir um sölu til Svi- þjóðar, Finnlands og annarra markaðs- landa standa og yfir og reiknað er með að þau mál skýrist nánar áður en ver- tíð hefst,“ segir Gunnar. Þá hafa hollenzkir kaupendur lýst áhuga sínúm á kaupum á ferskri síld héðan í haust. 4 Afli skipa og báta frá40stöðum á landinu. Viðtöl 6 Kári Jónsson og Sigurður T. Garð- arsson. Greínar 8 HermannHans- son, og Sigurður Hjartarson. Togararnir 10 Kort sem sýnir hvartogararnir eru að veiðum. Aflamiðlun 11 Leyfi til ótflutn- ings á ferskum fiski. Rannsöknir 14 Rannsóknastofn- un fiskiðnaðar. GERT KLÁRT FYRIR SJÁVARÚTVEGSSÝNINGU Morgunblaðið/Einar Falur Að mörgu er að huga fyrir alþjóðlegu sjávarútvegssýninguna, sem hefst í næstu viku. Merki sýningarinnar setur að sjálfsögðu svip sinn á sýningarstaðinn og voru starfsmenn að undirbúa að koma því fyrir á gafli Laugardalshaliarinnar í gær Hátt í 500 fyrirtæki frá 20 löndum sýna og er búist við að gestir verði hátt í 20 þúsund. Fréttir Markaðir 107 milljónir ístyrkfrá EB ■ EB ætlar að verja 173 milljörðum ísl. kr. á næstu þremur árum til að end- urnýja fískvinnslufyrirtæki og styrkja þau í samkeppni um hráefnið. Nýlega fékk fyrirtæki í Hull rúmlega 107 milljónir ísl. kr., til að Ijúka við nýja vinnslustöð./2 Viðhaídið er dýrara en olían ■ ÁÆTLAÐ hefur verið að viðhalds- og viðgerðar- kostnaður á íslenzkum fiski- skipum stærri en 200 brl. kosti á íjórða miiyarð króna í ár. Er þetta hærri upphæð en sem nemur oliukostnaði sömu skipa./3 Lítiðfæstaf spærling ■ HÁBERGIÐ úr Grinda- vík hefur undanfarið verið á spærlingsveiðum. Árang- ur hefur verið lítill að sögn Sveins Isakssonar skip- s(jóra./5 ----*-*-*-- Banaslysum hefur fækkað ■ Undanfarin fimm ár hafa færri sjómenn farist heldur en tvö samsvarandi tímabil á undan. Hins vegar hefur bótaskyldum vinnu- slysum á sjó f]ölgað./10 ----*-*-*-- Deilur EB og Kanada ■ KANADAMENN hafa lengi sakað Evrópubanda- lagsríkin um rányrkju utan 200 mílna fiskveiðilögsög- unnar við austurströnd Kanada og nú virðist stefna í nýja brýnu milli þeirra./ 15 ----*-*-*-- Keyra langa leið með fiskinn ■ N okkrir trillukarlar á Yopnafirði hafa í sumar ekið fiski á markað á Dal- vík. Nýlega fengu þeir um 40 krónum hærra verð fyrir kílóið á Dalvík og telja þeir að akstur um 570 kílómetra leið fram og til baka borgi sig fljótt./13 Ovissa ríkir á rækju- mörkuðum ■ ÓVISSA ríkir nú á mörkuðum fyrir frosna og skelfletta rælyu, einkum í Bretlandi. Árið 1986 var verð ákaldsjávarrækju óvenjuhátt og varð það til þess, að eftirspurn minnk- aði og verð lækkaði það hefur síðan lækkað áfram, meðal annars vegna vax- andi framboðs frá Noregi. Verð á norsku rækjunni er heldur lægra en á okkar rækju vegna þess að hún er smærri. Ráðum litlu um verðið ■ MIKLAR sveiflur á verði á hörpudiski eru al- gengar í Bandaríkjunum og veldur því mestu hversu sveiflukenndur hörpudi- skafli þeirra sjálfra er. 1984 öfluðu þeir 400.000 tonna, en aðeins 100.000 1986 og við það rauk verðið upp. 1988 varð aflinn 200.000 tonn og lækkaði verð þá á ný. Við seljum árlega 1.000 til 2.000 tonn árlega á þenn- an markað og ráðum því litlu um verðmyndun./12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.