Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 B 3 /iðhald skipa kostar meira heldur en olían KOSTNAÐUR við viðhald á í íslenzkum skipum stærri en 200 brúttólestir hefur verið áætlaður á flórða milljarð króna á ári á núvirði. Er þetta hærri upphæð en sem nemur olíukostnaði þessara skipa í íslenzka flotanum. Helgi Laxdal formaður Vélstjóra- félags íslands sagði í samtali við blaðið að menn hefðu lengi undrast hve þessum stóra gjaldalið útgerð- arfyrirtækja hefði verið lítill gaumur gefinn. Þarna væru gífurleg verð- mæti í húfi og jafnvel hinn minnsti ávinningur af bættu verkskipulagi skilaði umtalsverðum fjármunum til útgerða, sjómanna og þjóðarbúsins. Fyrir nokkrum árum var gerð könnun á nýtingu vinnutíma við skipaviðgerðir og kom þá í ljós að hreinn verktími við 13 viðgerðar- verkefni var 44,3%. Meðal atriða sem betur máttu fara voru óljósar verklýsingar, lítill undirbúningstími vegna þess hve seint viðgerðarlisti barst, skortur á varahlutum og lítið eftirlit frá útgerð. Landssamband íslenzkra útvegs- manna, Samband íslenzkra kaup- skipaútgerða og Vélstjórafélag Is- lands hafa sameiginlega undirbúið ítarlegt námskeið um viðhald skipa og beitingu skipulagðra vinnu- bragða við framkvæmd þess. Fyrsta námskeiðið verður haldið í Tækni- garði Háskóla íslands 1.—4. október næstkomandi. Námskeiðið er eink- um ætlað þeim sem annast viðhald skipanna, hvort sem það eru eftir- litsmenn í landi, starfandi vélstjórar eða jafnvel skipstjórnarmenn og tæknilegir stjórnendur útgerða, sem og viðkomandi starfsmenn þjón- ustufyrirtækja. Einar Hermannsson hjá SÍK, Jón Ó. Halldórsson hjá LÍU og Helgi Laxdal hjá Vélstjórafélaginu sjá um undirbúning námskeiðsins í sam- vinnu við Iðntæknistofnun og gefa þeir upplýsingar um námsefni og fyrirkomulag. Hátt í 10% í viðhald Árið 1988 nam viðhaldskostnaðurinn rúmlega 1,94 milljörðum á sama tíma og olíukostnaðurinn var 1,73 milljarðar, viðhaldið nam um 9,3% af tekjum og olían 8,3% af tekjum. Sambærilegar tölur fyrir 1987 voru um 1,85 milljarðar í við- haldskostnað og 1,4 milljarðar í olíu, sem hlutfall af tekjum fóru 11,3% í viðhald og 8,7% í viðhald það ár. Hittogþetta Gufuþurrkun ístaðelds ■ STEFNT er að því að endurbætt loðnuverksmiðja Síldarverksmiðja ríkisins á Seyðisfirði verði tekin í notk- un um áramót. Meðal annars verður möguleiki á tölvustýr- ingu á öilum stigiun fram- leiðslunnar og í stað eld- þurrkunar verður gufu- og loftþurrkun í verksmiðjunni. ----*-*-*- Björgunar- bátur til Eyja ■ HJÁLPARSVEIT skáta í Vestmannaeyjum hefur fest kaup á nýjum björgunarbát af gerðinni Seabear, 9,20 metrar á lengd og 3,32 metr- ar á breidd. Ganghraði báts- ins er um 35 mílur. Lokað hús er á bátnum og rúmar það sjúkrabömr auk sæta fyrir allt að 5 manns, segir í IJjálparsveit-artJðindum. PAKKAÐ í PLAST í STAÐ PAPPA Morgunblaðið/Börkur „VIÐSKIPTAVINIR okkar sem stunda útfiutning á laxi teþ'a sig hafa hækkað skilaverð af hveiju kUói um 15-20 krónur með því að notast við þessa nýju pökkunaraðferð,“ sagði Ottó Þorm- ar sölustjóri sjávarafurða lyá Plastprent í samtali við blaðið, en fyrirtækið er nú að . i •* 1 •! ^ kynna nýja aðferð við /AllLrin Cul ln\7nv*n pökkunásjávarafurð- UKIU ölVllíiVUIU um Hún felst - j)VÍ að til útflytjenda ósvipaða og filinu sem gosdrykkjafiöskum er pakkað í, og er árangurinn léttari eining, sem auk þess heldur vatni og lykt. Aðferðin er sú, að umbúðirnar eru settar í sérhannaða plast- poka, og að því loknu rennt um sérstök hitagöng. Við þetta herpist plastið utan um fiskumbúðirnar. Plastfilman, sem er nokkuð þykk, hefur reynst sterk hlíf, að sögn Ottós, og að auki væru pokarnir ódýrari í innkaupum en eldri gerðir umbúða, til dæmis pappakassar. Þá væru plastumbúðirnar mun léttari, til að mynda vægi plastfilma utan um laxpakka 0,2 kíló, en pappinn sem áður var notaður hefði verið um 2,5 kíló á þyngd. Þannig mætti spara umtalsverðan flutningskostnað. Möguleiki er á að hafa sex lita prentun á plastumbúðunum, en slíkt var ekki mögulegt á eldri umbúðum. Ottó sagði, að rætt hafí verið um að taka þessa pökkunarað- ferð upp um borð í frystitogurum. Eins og fyrr segir hefur aðferðin verið notuð við útfiutning á laxi, en Ottó segir, að nú sé verið að helja notkun hennar í ýmsum greinum sjávarútvegs. „Flugleiðir hafa lagt blessun sína notkun þessara umbúða, þar sem hverfandi hætta er á að lykt berist frá þeim, eða að leki komi að þeim, og mér skilst að fiskur hafi jafnvel verið fluttur í þeim með farþegaflugi. Við höfum fallprófað umbúðirnar, og þær héldu fiski, vökva og lykt þrátt fyrir að frauðplastkassinn innan plaslsins hafi brotnað eftir þrjú föll úr axlarhæð,“ sagði Ottó. Myndin að ofan er tekin í Islenskum matvælum í Hafnarfirði; Sævar Steingrímsson, Ottó Þormar og Guðjón Oddsson við sýnishorn af framleiðslu Plastprents. I íslenskum matvælum er laxi frá nokkrum fyrirtækjum á Reykjanesi pakk- að til útfiutnings. • • • Rétt eins og skip þarfnast góðrar vélar þarfnast vélin góðrar olíu. Nýja EXXMAR TP smurolían fyrir skipadíselvélar býr yfir ótrúlega mörgum kostum. Allar fjórar gerðirnar, EXXMAR 12TP, 24TP, 30TP og 40TP, eru unnar úr fyrsta flokks grunnolíum. EXXMAR TP olíurnar hafa bætiefnakerfi í sérstökum gæðaflokki, sem tryggja yfirburða vatnshreinsun olíunnar, sóthreinsun, sótdreifingu og súrnunarvörn. Þetta eru eiginleikar sem halda vélarsliti í algjöru lágmarki og vélinni hreinni. Allar tegundir EXXMAR TP eru fáanlegar í tveimur seigjuflokkum, SAE 30 og 40. EXXMAR TP olíurnar eru framleiddar til að standast þau erfiðu skilyrði sem skapast í aflmiklum nútíma dfselvélum, hvort sem þær ganga fyrir gas- eða þungolíum. Olíurnar hafa langan notkunartíma og lengja þann tíma sem líður milli upptekninga, viðgerða og olfuskipta. Vél skipsins erj því vel sett með EXXMAR TP. Olíufélagið hf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.