Morgunblaðið - 14.09.1990, Page 13

Morgunblaðið - 14.09.1990, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1990 13 Signrður Helgason „Hjarta- og æðasjúk- dómar munu vera ein algengasta veikinda- orsök hér á landi og því mikil þörf á því að efla þessi samtök og ráðast í ný verkefni til hags- bóta fyrir félagsmenn.“ ræða fyrir þjóðarbúið. Nú hefur unnist sigur í þessu máli og hjarta- aðgerðum verið fjölgað í þrjár á viku og hætt er við fyrirhugaðan samdrátt. Sigur í þessu máli vannst því ekki síst fýrir góða samstöðu fé- lagsmanna. Landssamtökin fengu ennfremur stuðning frá fjölmörgum aðilum, t.d. var mál þetta stutt dyggilega í leiðara Morgunblaðsins þann 14. ágúst sl. Ég vil því nota tækifærið og þakka fyrir hönd Landssamtakanna þennan stuðning, um leið og ég vil þakka stjómvöldum fyrir að hafa séð sig um hönd og breytt um stefnu. Ákveðið hefur verið að þijár hjartaaðgerðir verði gerðar á viku hverri og hugsanleg enn meiri fjölg- un síðar meir. Höfundur er formaður Landsamtaka hjartasjúklinga. Flateyri: Sérfræðingar í snjóflóða- vörnum skoða Eyrarfjall Flateyri. NÝLEGA komu til Flateyrar franskir sérfræðingar í snjó- flóðavörnum á vegum Richard Hannesson hf. til að skoða Eyrar- fjall. I framhaldi af því hefur R. Hannesson hf. sent tilboð í snjóflóðavárnir, annarsvegar í Innrabæjargili og hinsvegar í Skallahvilft. Að sögn Kristjáns Jóhannessonar sveitarstjóra á Flateyri, hefur verið haldinn óformlegur fundur um mál- ið hjá almannavamanefnd á staðn- um og einnig kynnt almannavöm- um ríkisins. Menn hallast að því að skoða einungis hluta tilboðsins þ.e.a.s. Innrabæjargili, því að snjóflóð sem falla úr Skallahvilft falla flest utan við byggðina. Tilboð Frakkanna hljóðar upp á 12-13 milljónir fyrir utan uppsetningu. Enn er óljóst hvað kostar að setja upp slíkar vamir, því enginn mannskapur er þjálfaður í það hér á landi. Áætlað- ur kostnaður er því á bilinu 22-25 milljónir. Gert er ráð fyrir því í tilboði þessu, að sett verði upp girðing í 620 metra hæð, síðan komi fjórar raðir niður í 560 metra hæð, er þetta þriggja metra háir staurar með stálgirðingu, sem getur safnað allt að fjögurra metra djúpum snjó. Staðan í dag er sú, sagði Kristján, að Verkfræðistofa Sigurðar Thor- oddsen á ísafirði er að skoða hættu- matið með tilliti til áður þekktra snjóflóðavarna hérlendis, keilu- byggingu og íeiðigarða. Meðan sú vinna liggur ekki fyrir verður ekk- ert gert í málinu. Líkur er á að eitthvað verði gert í snjóflóðavörnum í haust en ef það verður ofan á að þessi net verði keypt þá er ljóst að ekkert verður framkvæmt í haust, það vinnst ekki tími til þess. _ Magnea. 8 2 § alls staðar OSRAM JÓHANN ÓLAFSSON & CO. HF. Sundaborg-13 - 104 Reykjavík - Sími 688 588 SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.