Morgunblaðið - 09.10.1990, Page 1
i g 'Z ; * g ^ ; % . V x
1990
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTOBER
BLAÐ
-B
KNATTSPYRNA / LANDSLEIKUR
Spánn - ísland:
„Lítlar líkur
ábeinni
sjónvarps-
útsendingu
U
ÍSLENSKA rikissjónvarpið og Knattspyrnusamband Island eru
orðin að bitbeini í spænskum fjölmiðlaslag. Canal Plus sjón-
varpið keypti sjónvarpsréttinn á leik íslands og Spánar í
Evrópukeppninni á næsta ári, en í þeim samningi er m.a.
kveðið á um rétt íslenska Sjónvarpsins til útsendingar frá
leiknum. Canal Plus er hins vegar að reyna að nota réttinn
sem skiptimynt fyrir rétt til sjónvarpssendinga f rá íþróttavið-
burðum á Spáni, sem spænska ríkissjónvarpið, TVE, hefur
einkarétt á og er ekki tilbúið að láta af hendi. TVE er með
einkarétt á leik Spánar og íslands annaðkvöld og lætur hann
ekki af hendi nema tryggt sé um leið að stöðin fái að sýna
seinni leik þjóðanna íbeinni útsendingu. „Hagsmunir okkar
og KSÍ fara saman í þessu máli, en eins og staðan er nú eru
litlar líkur á beinni sjónvarpsútsendingu hér á landi frá leikn-
um annaðkvöld," sagði Ingólfur Hannesson, yfirmaður íþrótta-
deildar Ríkissjónvarpsins, aðspurður um málið ígærkvöldi.
Málið er þannig til komið að
Sjónvarpið gerði samning
við KSI varðandi landsleiki ís-
lands í Evrópukeppninni og
greiddi ákveðna upphæð fyrir sýn-
ingarrétt á leikjum heima og er-
lendis. KSÍ framseldi réttinn á
leikjum hérlendis til hollensks fyr-
irtækis, sem seldi Spánarleikinn
á næsta ári áfram til fyrirtækis á
Spáni og það seldi Canal Plus
réttinn. Réttur íslenska Sjón-
varpsins er áfram í gildi, en Canal
Plus hefur ekki staðið við gerða
samninga.
„Þetta er mjög alvarlegt mál,
en það er hvorki í okkar höndum
né KSÍ að leysa það,“ sagði Ing-
ólfur. „Eggert Magnússon hefur
fyrir hönd KSÍ beitt mikilli hörku
við Spánverjana og við höfum
hótað hörðum viðbrögðum, verði
ekki staðið við gerða samninga.
Þetta hefur eitthvað hreyft við
viðkomandi, en útlitið er svart.“
Ingólfur sagði ennfremur að í
samningnum væri ákvæði um
gríðarlegar skaðabótakröfur, ef
ekki væri staðið við samninginn,
en svo virtist sem Canal Plus vildi
frekar borga sekt en láta trompið
af hendi, sem er leikur íslands
og Spánar á næsta ári.
KNATTSPYRNA
Sigurður
ergóð
fyrírmynd
George Graham er ekki sáttur við óþolinmæði
varamanna sinna hjá Arsenal. Hann gagnrýn-
ir þá fyrir að hlaupa í blöðin með ásakanir, þegar
þeir eru ekki valdir í byijunarliðið, og biður þá
um að hætta þessu væli og einbeita sér þess í
stað að því, sem þeir eiga að gera. Sigurður Jóns-
son er undantekning og fyrir leikinn gegn Norwich
á laugardaginn sagði Graham um Sigurð: „Ég
vona að honum gangi vel, vegna þess að það er
ávallt ánægjulegt að sjá leikmenn leggja hart að
sér eins og hann hefur gert, þó hann hafi ekki
verið í byijunarliðinu."
Sigurður verður í sviðsljósinu með íslenska
landsliðinu í Sevilla á morgun, þar sem það mætir
Spánveijum í Evrópukeppni landsliða. Landsliðið
æfði í gærkvöldi í fljóðljósum á Benito Villamarin-
leikvellinum. Uppselter - 45 þús. áhorfendur verða
þar í sæti.
■ Sjá nánar fréttir um lands-
liðið / B2,3,4
KNATTSPYRNA
Ólafur fer
undir hníf inn
mr
Olafur Þórðarson mun fara í upp-
skurð eftir næstu helgi. Hann hefur
átt við þrálát meiðsli að stríða í hné.
Ólafur, sem verður settur í gifs, verður
frá æfingum og keppni í tvo mánuði.
■ Ólafur og Teitur til
Lyn? / B7
Pétur meiddist
á ökkla
Pétur Pétursson meiddist á æfingu í
gærkvöldi í Sevilla, en þá tognaði
hann á ökkla. „Það á ekki af mér að
ganga. Ég fékk flensu í Tékkóslóvakíu
og gat ekki leikið þar, en nú togna ég
á ökkla,“ sagði Pétur, sem beið spenntur
eftir að geta leikið í Sevilla, en þar lék
hann oft með Hercules um árið.
Guðmundi boð-
ið til Stuttgart
Asgeir Sigurvinsson, útsendari hjá
Stuttgart, hefur boðið Guðmundi
Benediktssyni, unglingalandsliðsmanni
úr Þór á Akureyri, að æfa með þýska
félaginu. Guðmundur, sem hefur leikið
bæði með U-16 og U-18 liðinu í sumar,
fer til Belgíu á laugardag og æfir með
Ekeren í mánuð, en síðan verður hann
í tvær vikur hjá Stuttgart.
'
Atli skor-
adi 11 mörk
Atli Hilmarsson hefur staðið sig mjög vel með
Granollers í spænsku deildarkeppninni í hand-
knattleik. Hann hefur gert 24 mörk og er þriðji
markahæsti leikmaður deildarinnar. Um helgina
vann Granollers Pontevedra 32:24 og var Atli með
11 mörk, þar af fimm úr vítaskotum.
„Þetta hefur gengið mjög vel og það er ekki á
hveijum degi, sem ég geri 11 mörk — náði því
einu sinni með Leverkusen og einnig með Fram,
en það er langt síðan. Hins vegar er staðan í lið-
inu þannig að ég verð að skjóta, því aðrar skyttur
eru ekki fyrir hendi. Þess vegna er spilað upp á
þetta, leikmennirnir opna vel fyrir mig og sérstak-
lega er Geir Sveinsson dijúgur í því sambandi."
Atli hefur leikið meiddur á hné, en verið spraut-
aður fyrir hvern leik. „Ég er búinn að vera slæmur
í nára síðan í maí, en liðsins vegna get ég ekki
farið í uppskurð fyrr en í lok nóvember og á þá
pantaðan tíma.“
Atli lék í fimm ár í Þýskalandi, en er nú að
hefja þriðja tímabilið á Spáni og lofar byijunin
sannarlega góðu.
■ Handboltaúrslit / B9,B10
VIÐTAL: JON ERLING TVÓFALDUR MEISTARI / B6