Morgunblaðið - 09.10.1990, Page 6

Morgunblaðið - 09.10.1990, Page 6
6 B MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞEŒUUDAGUR 9. OKTÓBER 1990 4 „Magic“ Johnson bauðst til að gefa eftir 250 til 500 þúsund af laun- um smum... ÍÞRÓmR FOLX Gunnar Valgeirsson skrifarfrá Bandaríkjunum ■ EINS og skýrt var frá fyrir skömmu bauð lið Miami Heat í NBA-deildinni John „Hot Rod“ Williams hjá Cleveland Cavs met- laun í deildinni næstu sjö ár. Will- iams voru boðnar 26,5 milljónir dala, þar af fimm milljón fyrir næsta keppnistímabil, fyrir samninginn. Samkvæmt reglum deildarinnar hafði Cleveland rétt á að jafna þetta boð. Félagið hefur nú gert það og Williams leikur því áfram með liðinu. ■ EKKI var látið þar við sitja. Framkvæmdastjóri Cleveland bauð öllum leikmönnum í byijunarliði Cavs launahækkanir til að tryggja góðan liðsanda næsta tímabil, eins og hann orðaði það við fréttamenn. ■ EIGANDI liðs Los Angeles Raiders í bandarísku NFL-ruðn- ingsdeildinni, A1 Davis hefur í allt sumar hótað að flytja lið sitt aftur til Oakland ef hann fengi ekki meiri peninga frá eigendum Los Angeles Coliseum leikvangsins. Af yfirlýsingum Davis í sumar mátti ráða að það væri næsta víst að Oaklandbúar fengju sitt heitt- elskaða lið aftur, en nú hefur hann tilkynnt að eigendur Coliseum hafi gengið að kröfum sínum og sitja því aðdáendur liðsins í Oakland eftir með sárt ennið. ■ ÚRSLITAKEPPNIN í banda- ríska hafnaboltanum hófst um helg- ina. Talið er víst að meistarar Oak- land A’s leiki til úrslita við annað- hvort Pittsburg eða Cincinnati. ■ LOS ANGELES Lakers í NBA-deildinni fékk til liðs við sig bakvörðinn Terry Teagle frá Golden State Warriors í vikunni. Það væri í sjálfu sér ekki merkileg frétt ef ekki hefði komið til kasta „Magic“ Johnson í málinu. Með því að kaupa upp samning Teagle hefðiLakers-liðið farið uppfyrir „launaþak" í deildinni, en Johnson tók þá til sinna ráða og bauðst til að gefa eftir 250 til 500 þúsund af launum sínum á komandi keppn- istímabili! Svo mikið var kappanum í mun að fá stuðning í bakvarðar- stöðunni. ■ DOUG MOE, þjálfara Denver Nuggetts í NBA-deildinni, var sagt upp störfum fyrir skömmu. Hann var þjálfari liðsins í tíu ár. „Átti ekki voná öllum þessum mörkum“ Tvöfaldur meistari sem ætlaði að einbeita sér að golfi FYRIR rúmum 26 árum, þann 18. maí 1964 var bókað í f und- argerð FH: „Ragnar Jónsson hefur eignast son og er hann hérmeð skráðuríFH." Rúmum 25 árum síðar ákvað sonurinn, Jón Erling, að ganga til liðs við Fram, í trássi við flesta félaga sína og segist ekki sjá eftir þeirri ákvörðun. Hann ertvö- faldur íslandsmeistari; með FH f handknattleik og Fram í knatt- spyrnu en velti því alvarlega fyrir sér fyrir nokkrum árum að hætta i knattspyrnu og snúa sér að golfi! Jón er alinn upp í FH í bókstaf- legri merkingu. Faðir hans er mikill FH-ingur og fæstir áttu von á að sonurinn myndi yfirgefa félag- ið. „Það var alls ekki Eftir auðvelt að fara frá Loga Bergmanh FH en í raun fannst Eiðsson mér ég ekki eiga nokkurra kosta völ. Það hafði lengi staðið til og ég ákvað að drífa í því og taka afleið- ingunum. Ég var búinn að vera tvö ár að læra í Bandaríkjunum og hafði komið seint um sumarið en fannst ég engu að síður ekki fá þau tækifæri með liðinu sem mér bar. Ég leit á þetta þannig að það væri betra að byija ferskur hjá nýju fél- agi en að hanga fúll í því gamla og sé ekki eftir því,“ segir Jón. Bætir svo við eftir svolitla um- hugsun „En ég get ekki neitað því að það var hrikalega erfitt.“ Allt í góðu „Auðvitað fann ég fyrir mikilli pressu. Bergþór [formaður FH], bróðir pabba, hringdi á hveijum degi og margir reyndu að telja mér hughvarf en ég var ákveðinn. Smám saman sættu menn sig við þetta og ég fór í góðu. Að vísu fékk ég fúlar glósur frá áhorfendum þegar ég mætti á leiki hjá FH. Auk þess fór liðinu að ganga vel eftir að ég fór og það var svolítið neyðar- legt að fara úr FH í Fram og lenda sæti neðar í deildinni.“ Jón skipti á óheppilegum tíma og var ólöglegur með Fram í tvo mánuði. „Eg spilaði ekkert um sumarið og var alveg sáttur við það. Félagaskiptin tóku sinn tíma og ég var á bekknum í síðasta leikn- um í deildinni. Ég heid þó að ég hafi gert rétt því á þessum tíma kynntist ég liðínu og komst inní hópjnn. Ég get ekki annað en verið sátt- ur við þetta sumar. Ég kom seint inní liðið, og var svolítinn tíma að komast í takt við það, en taldi mig eiga góða möguleika. Ég byijaði Jón Erling Ragnarsson Jón fæddist 24. maí 1964 í Hafnarfirði. Atvinna: Verslunarstjóri hjá Spörtu Arangur í handbolta: Þrisvar sinnum íslands- meistari með FH 1984, 85 og 90 og íslandsmeistari utanhúss. Gerði 42 mörk í 18 leikjum FH í fyrra. Árangur í fótbolta: Meist- ari í 2. deild með FH 1988, íslandsmeistari innanhúss með Fram 1989, íslands- meistari með Fram 1990 og með 1. flokki sama ár. Gerði ellefu mörk í 17 leikj- um sínum með Fram í sum- ar og var varamaður í sjö þeirra. vel en verð að viðurkenna að ég átti ekki von á öllum þessum mörk- um.“ Sterkur andi hjá Fram „Þeir voru margir sem héldu að við værum að tapa mótinu þegar við byijuðum skyndilega að tapa. Raunin er hinsvegar sú að fá lið geta haldið fullri ferð heilt mót ög spurningin er bara hve illa þau fara útúr slæmu köflunum. Við vorum óheppnir og misstum alltof mörg stig. Andinn hjá Fram er hinsvegar mjög sterkur og þar eru menn sem þekkja ekkert annað en sigur. í fyrra unnum við bikarinn og lentum í 3. sæti í deildinni. Engu að síður fannst mönnum það slæmt tímabil og vonbrigðin voru mikil. Það voru allir ákveðnir í að sætta sig ekki við neitt annað en meistaratitil." Lið Fram hefur breyst nokkuð síðustu misseri; nýir leikmenn hafa fengið tækifæri og það virðist engu skipta hvað þeir heita, allir standa þeir sig vel. „Annat fíokkur Fram er mjög efnilegur og þar eru sex til átta strákar sem eiga eftir að koma í meistaraflokkinn og leika stóra rullu næstu ár. Ásgeir treyst- ir þeim og þeir finna það og það hefur mikið að segja. Ef lið á að ná árangri verður alit að vera pottþétt. Þannig er það hjá Fram. Stjórnin er sterk, liðið gott og stuðningsmannahópurinn líklega sá besti.“ Spennandi verkefni gegn Barcelona „Leikirnir gegn Djurgárden voru erfiðir og í raun ótrúlega gott að komast áfram. En þó að ég sé bjart- sýnn held ég að við eigum ekki möguleika á að ná í þriðju umferð. Það er stórkostlegt að fá tækifæri til að spila við sterkt og frægt lið á borð við Barcelona og leikurinn á Nou Camp verður án efa eftir- minnilegur. En úrslitin. . . líklega slæm,“ segir Jón og brosir útí ann- að. Var hættur í handboltanum FH-ingar urðu íslandsmeistarar í handknattleik síðastliðið vor og kom það ekki á óvart. Liðið var sterkt en Jón byijaði reyndar ekki að æfa fyrr en seint. „Ég var ákveðinn í að láta hand- boltann sigla fyrir síðasta vetur. Þorgils Ottar hringdi svo í mig og bað mig um að mæta á æfingu. Þá hafði ég ekki kastað bolta í þtjú ár og átti ekki von á miklu. Én í fyrsta leiknum gerði ég þijú mörk og festi mig í liðinu. Arið var svo mjög skemmtilegt og einvígið við Val eftirminnilegt. Eins og í fót- „Þá hafði ég ekki kastað bolta í þrjú aði seint að æfa fyrir síðustu handbolta Hér skorar hann gegn KR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.