Morgunblaðið - 09.10.1990, Side 12
ÍÞR&mR
Fyrsti
leikurinn
Fyrsti leikur Pétur Guð-
mundssonar með Tindastóli
var heldur styttri en til stóð
þarsem hann fór útaf með
fimm villur. Tölurnar úr leikn-
um fylgja hér á eftir:
Skotnýting: 14/10 (71,4%)-
Víti 4/1 (25%).
Fráköst: 14 (10/4).
- segir Pétur Guðmundsson sem fór frá
San Antonio til Sauðárkróks
Ruglast
enná
nöfnunum
HANN er stór og mikill og ber
höfuð og herðar yfir aðra í
teignum. Engu að síður fer
ekki mikið fyrir honum og þrátt
fyrir að mikið gangi á í leikjum
heyrist hvorki hósti né stuna f
honum. Sögurnar segja að
hann sé með ráðherralaun en
hann vill ekkert gefa útá það.
Pétur Guðmundsson segist
bara vera kominn til íslands til
að spila körfubolta og launin
séu einkamál hans.
Eg beið allan fyrravetur eftir til-
boði og ekkert gerðist. Eftir
það sá ég engan tilgang í að hanga
heima og þegar ég fékk tilboð frá
Tindastóli ákvað ég
Efiír að slá til. Þetta er
Loga stórt stökk en ég hef
Bergmann trú á að þetta
gangi,“ segir Pétur.
„Liðið er gott þótt það vanti kannski
aðeins meiri breidd og ég held að
það geti náð langt.“
Fyrsti leikurinn lofaði góðu.
Tindastóll sigraði Val nokkuð ör-
ugglega á útivelli, þrátt fyrir að
Pétur og Tékkinn Ivan Jonas hafi
farið útaf með fimm villur. „Mér
líst vel á liðið og við stefnum að
titlinum. Ég hef aldrei orðið meist-
ari hér heima og held að við getum
í það minnsta reynt.“
Ekki seldur til Mjólkursam-
lagsins
Auglýsingin á búningunum hjá
Tindastóli er frá Flugfélagi Norður-
lands. í fyrsta leiknum lék Pétur
hinsvegar með auglýsingu frá
Mjólkursamlaginu og strax hófust
vangaveltur um hvort þar væri
fundið fyrirtækið sem fjármagnaði
Varin skot: 5.
Stoðsendingar: 6.
Bolta stolið: 2.
__ -■■■ ■■ MorgunblaðiÖ/Sverrir
Mættur til leiks
Pétur Guðmundsson ér kominn aftur og það fór ekki framhjá áhorfendum í Valsheimilinu. Rúmlega fimm hundruð manns voru mættir og stór hluti hópsins kominn
að norðan til að fylgjast með sínum mönnum. Eins og sjá má á stærri myndinni bar Pétur höfuð og herðar yfir aðra í teignum en á þeirri minni veltir hann stöðunni
fyrir sér áður en leikurinn hefst.
SMr^
mmm*
KORFUKNATTLEIKUR
kaupin. „Ja hérna," segir Pétur og
hristi höfuðið. „Skýringin á þessu
er sú að við vorum að fá nýja bún-
inga og númer 13 var ekki til nema
í þeim gömlu. Það er númerið mitt
og ég vildi halda því. Ég var ekki
seldur til Mjólkursamlagsins," segir
Pétur og bætir við glottandi, „Eg
hefði örugglega vitað af því.“
Meira harka í NBA
Pétur fékk fimmtu viiiuna um
miðjan síðari hálfleik. „Það tekur
mig líklega svolítinn tíma að venj-
ast boltanum héma heima. Það er
meiri harka í NBA-deildinni og
meiri snerting. í þessum leik fékk
ég þrjár villur fyrir ruðning þegar
ég var bara að snúa mér. Auk þess
eru komnar nýjar reglur og það
tekur mig tíma að venjast þeim.
En þær eiga vonandi eftir að skila
sér með fleiri stigum.
Pétur segir að munurinn sé þó
fyrst og fremst í hugarfari leik-
manna. „Það er meiri grimmd og
barátta í NBA-deildinni. Leikir eru
yfírleitt jafnir í þtjá fjórðunga en í
þeim síðari ræður barátta úrslit-
um,“ segir Pétur.
Pétur, sem er 2,18 m á hæð, lék
með Val áður en hann fór út til
Bandaríkjanna í skóla og kom svo
heim og varð bikarmeistari með lið-
inu 1981. Síðan fór hann til Port-
land Trail Blazers og svo aftur heim
og lék með ÍR eitt ár. Þaðan fór
hann til Los Angeles Lakers og var
svo seldur til San Antonio Spurs
og var þar í tvö ár til 1989. Síðan
hefur hann ekki leikið í NBA-deild-
inni og segist frekar gera sér vonir
um að komast að í Evrópu næsta ár.
„Nú ætla ég bara að koma mér
fyrir á Sauðárkróki. Konan mín
kemur fljótlega og ég vona að okk-
ur eigi eftir að líða vel fyrir norð-
an. Þetta er kannski ekki mikil
breyting því þrátt fyrir að í San
Antonio búi rúm milljón er svolítil
dreifbýlisbragur á borginni, allir í
„country & western“ í gallabuxum
og með kúrekahatt. Nú, ef við fáum
heimþrá þá er stutt í Kántríbæinn."
Áhorfendur á æfingu
Sauðárkrókur er mikili körfu-
boltabær og þar er gríðarlegur
áhugi fyrir íþróttinni. „Ég fann það
strax á æfingunni. Þar var töluvert
af áhorfendum og ég hlakka til að
mæta Grindvíkingum á sunnudag-
inn og upplifa stemmninguna. Þá
verð ég líka búinn að æfa með lið-
inu og fell líklega betur inní liðið.
Ég náði ekki nema einni æfíngu
fyrir þennan leik og við rétt rennd-
um yfir kerfln. Ég þarf að kynnast
strákunum og verð reyndar að við-
urkenna að ég rugiast enn á nöfn-
unum,“ segir Pétur.
■ Úrvals-
deildin / B10