Morgunblaðið - 10.11.1990, Page 8

Morgunblaðið - 10.11.1990, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 FYRIRLESTUR A VEGUM STOFNUNAR SIGURÐAR NORDALS: Slúður — orðræða hinna valdalausu Helga Kress segir frá fyrirlestri sínum sem húnkallar „Var þar komin Þórhalla málga" páii Pampic- hler Pálsson Morgunblaðið/Einar Falur HAFNARBORG: Tríó Reykjavíkur frumflytur verk eftir Pól P. Pálsson TEXTI: SÚSANNA SVAVARSDOTTIR STOFNUN Sigurðar Nordals mun í vetur standa fyrir röð fyrirlestra um bók- menntir. Þegar hafa fjórir fyrirlestrar verið ákveðnir í vetur og svo skemmti- lega vill til að flestir þeirra eru byggðir á þemum úr fornsögum okkar — þeirri óþrjótandi námu. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn næstkomandi miðvikudag, 14. nóvember, klukkan 17.15, í stofu 101 í Odda, hugvís- indahúsi Háskóla Islands. Þar flytur Helga Kress, dósent í almennri bók- menntafræði, erindi sem nefnist „... var þar komin Þórhalla málga“. og er um slúður sem uppsprettu frásagnar í Eddu- kvæðum og Islendingasögum. Helga hef- ur skrifað fjölmargt um kvennabók- menntir og vinnur nú að feminískum rannsóknum á íslenskum fornbókmennt- um og kvennabókmenntasögu. Slúður er nú kannski ekki það sem við viljum blanda okkur í, þótt fæstir komist hjá því og því þótti mér þetta forvitnilegt efni, dálítið öðruvísi, og bað Helgu að segja mér á hverju hún byggði fyrirlest- urinn og hvernig hún skilgreindi „slúður" með tilliti til hans. Slúður er tal u'm aðra sem eru fjarver- andi,“ svaraði Helga. „Það er munn- f legt form sagna, tilheyrir munnlegri sagnahefð. Það er óheft orðræða sem breyt- ist frá einni sögu til annarrar, „flæðir" á máli táknfræðinnar og merking þess færist sífellt til. Það er sjaldnast hægt að finna upptök þess og erfítt að reka til baka eða leiðrétta. Það er margrætt og eins og skáld- legt mál er það á mörkum viðurkenndrar orðræðu. Slúður lætur oft í Ijós annað gild- ismat en ríkjandi menning. Þannig ber það í sér gagnrýni á samfélagið með sína ein- ræðu og endanlegu merkingu — og ógnar því.“ Er mikið slúðrað í íslendingasögunum? „Slúður er ein af meginuppsprettum frá- sagnar íslendingasagna. Það má jafnvel ganga svo langt sem að segja að íslendinga- sögur séu umformað slúður. Það er ekki aðeins að slúður hrindi atburðarás af stað, og sé virkt afl í framvindu sagnanna, held- ur má einnig finna það í formgerð frásagn- arinnar sjálfrar. Einnig er sífellt verið að vísa í slúður sem heimildar fyrir atburðum. Setningar eins og „þat var allra manna mál“, „það hafa menn fyrir satt“ og „svo er þetta í orðróm fært“, vísa beint í slúður. Samfélag sagnanna logar í slúðri sem frá- sögnin vinnur úr. Eitt megineinkenni á slúðri er að það varðar orðstír manna,_ sæmdina og það á það sameiginlegt með íslendingasögum sem eru sí og æ að fjalla um sæmdina. Sæmdin fel.st svo aftur í karlmennskunni. Slúðrið í íslendingasögum beinist framar öðru að því að rífa niður orð og athafnir karlhetjanna, karlmennskuna sjálfa og draga hana — og þar með karlveldið — í efa. Slúður tengist því mjög kynferði og konum. Það er orðræða hinna valdalausu og er, þar með, á vissan hátt kvenleg orð- ræða. Konur eiga oft upptök að slúðri og þær bera það á milli, til að mynda þangað sem síst skyldi,,það er til karlanna, oft með hrikalegum afleiðingum. „Oft hlýst-illt af kvennahjali," segir Auður í Gísla sögu í frægri slúðursenu sem fer fram í dyngju og markar upphaf atburða í Gísla sögu. Karlhetjurnar slúðra hins vegar ekki, heldur bitnar slúðrið á þeim. Þeir reyna þess vegna, með misjöfnum árangri, að þagga niður í slúðri og konum. Slíka niður- þöggun má sjá á mörgum stöðum í íslensk- um fornbókmenntum og má taka Hávamál sem dæmi, þar sem beinlínis er varað við orðum kvenna. Það er athyglisvert að þegar slúðrað er um konur er það um vergirni þeirra, en í slúðri um karla er talað um ergi þeirra, það er hómósexúalítet, og þeim eignaðir kven- legir eiginleikar. Slúður tengist því mjög níði sem er beinlínis bönnuð og refsiverð orðræða. Samband kvenna og hins kvenlega í slúðri er mjög margþætt. Sem dæmi má taka Hallgerði í Njálu. Það er ekki aðeins að hún eigi upptök að slúðri og beri á milli, heldur er hún sjálf búin til úr slúðri. Einnig tengist slúður oft hlátri, sem er óheft tjáning, og drykkju. Ef menn eru drukknir þá gæta þeir ekki tungu sinnar og slúðra. Þetta verður þeim oft að falli. Um þetta er Lokasenna gott dæmi, en kvæð- ið er borið uppi af slúðri um goðin, vergirni kvennanna og ergi karlanna, enda Loki hvort tveggja í senn, karl og kona. Fyrir slúðrið er hann útlægur ger úr samfélagi goða. Slúðurstig sagna, ef svo má að orði kom- ast, er mjög mismunandi. Það er mjög mik- ið um slúður bæði í Laxdælu og Njálu. Hallgerður á uþptök að Njálsbrennu með slúðrinu sem hún kemur af stað um tað- skegglinga og karl hinn skegglausa. Öll saga Guðrúnar og Kjartans fleytir sér áfram á slúðri. Það er ekki bara Þórhalla málga á ferð, heldur fylgir slúður þeim frá upphafi til enda. I báðum þessum sögum skipa konur og hið kvenlega mjög háan sess, þótt á mismunandi hátt sé. Það er því spurning hvort sjá megi samband milli slúð- urstigs og þess hve áhrifa kvenna og sjónar- miða þeirra gæti í sögunum." TEXTI: SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR TRÍÓ Reykjavíkur verður með tónleika í Hafnarborg, menningar- og listastofn- un Hafnarfjarðar', á morgun, sunnudag- inn 11. nóvember, og hefjast þeir klukk- an 20.00. Þetta eru aðrir tónleikarnir í tónleikaröð sem Hafnarborg og Tríó Reykjavíkur standa fyrir í sameiningu. A tónlcikunum verður frumflutt nýtt verk eftir Pál Pampichler Pálsson, sem hefur verið samið sérstaklega fyrir tríó- ið. Sem kunnugt er er Tríó Reykjavíkur skipað þeim Halldóri Haraldssyni, píanó- leikara, Guðnýju Guðmundsdóttur, fiðlu- leikara, og Gunnari Kvaran, sellóleikara, og auk þess að frumflytja verk Páls, flytja þau tríó í H-dúr, eftir Jóhannes Brahms ogtríó eftir Maurice Ravel. Þessi tvö tríó ættu að vera tónlistarunn- enduin vel kunnug, en þar sem ekki er kostur á að hlýða á nýtt íslenskt verk á hverjum degi, var Páll beðinn að segja aðeins frá sínu tríói — og Guðný frá tónlcikunum. X g kalla þetta verk Sumartónlist," sagði Páll. „Það var samið í miklum liita úti á svölum í húsi foreldra minna í Graz í Aust urríki. Það var gríðar- leg ur hiti þar í sumar, svo mikill að ég fór alltaf inn í stofu til að kæla mig. Ég skrifaði þetta verk í sumar — varð að gera það. Það var nefnilega svo, að ég var búinn að vera að semja verk fyrir Sinfóníuhljóm- sveit Islands — og var orðinn þreyttur á að vinna svona lengi við sínfónísk verk. Datt í hug að það gæti verið gaman að glíma við þetta. Einn daginn hitti ég Guðnýju og sagði henni frá hugmyndinni. Hún sagði: „Bless- aður vertu, þú gerir þetta," og það var ekki nótá komin á blað, þegar farið var að auglýsa verkið á efnisskrá Tríósins." Hvers konar verk er þetta? „Heitt.“ Og Guðný bætir við: „Enda hitnar okkur við'að flytja það. Það er ekki auðvelt — en ákaflega skemmtilegt. Og auðvitað er alltaf gaman að fá að frumflytja verk — sérstaklega vegna þess að við erum á leið í tónleikaferð til Danmerkur og Finnlands og verðum með það á efnisskránni þar.“ Er eitthvert eitt hljóðfæri leiðandi? „Nei, nei,“ svarar Páll, „Öll hljóðfærin eru jafnvíg. Þetta eru mjög góðir hljóðfæra- leikarar, þannig að maður getur boðið þeim upp á dálítið mikið. En það er auðvitað alltaf glíma að finna leið til að gera hljóð- færunum jafn hátt undir höfði.“ „Páll fer ekki þá Ieið sem flest nútímatón- skáld fara,“ segirGuðný,„það er að segja að skrifa allt annað fyrir hljóðfærið en það er smíðað til að framkvæma; láta hljóðfæra- leikarana gera eitthvað allt annað við hljóð- færið en að spila á það. Það er ekki til í verkum hans. Að því leyti er tríóið klass- ískt uppbyggt og hljóðfærin fá að njóta sín í verkinu. Hljóðfæraleikarar verða alltaf þakklátir fyrir að fá svona verk upp í hend- urnar. Þau eru ekkert síður erfið, en það skilar sér fyrir hljóðfæraleikara að leggja það erfiði á sig.“ Hvernig er verkið byggt upp? „Það er í þremur köflum," svarar Páll, „fyrst hraður, síðan hægur og þá aftur hraður — svona í grófum dráttum. Það eru hröð móment inni í miðkaflanum og síðasti kaflinn er mjög ákveðinn. Fyrsti kaflinn hefst á píanóinngangi — á sömu nótum og hann endar á, mjög mystískum og inn í þennan píanóinngang kemur strengjadúett sem nær hámarki í lítilli kadensu. Annar kaflinn er söngur, eiginlega lítið næturljóð sem ég kalla „Grazioso," — með tilvísun til Graz. Þá kemur hraður kafli, þar sem reynir mjög á alla hljóðfæraleikarana. Sellóið kemur fyrst með aðalstefið og fiðlan kemur inn og spilar spegil af því. Þennan dúett trufl- ar síðan píanóið í lok kaflans — svona eins og það sé að stríða hinum en að síðustu næst jafnvægi og kaflinn endar í friði. Þriðji kaflinn er ákveðinn og hraður, með stuttum nótum til að byrja með — síðan koma laglínur fyrir hljóðfærin þijú og skipt- ast á milli þeirra. Þessar laglínur eru líking- ar við austurrísk þjóðlög og út úr öllu þessu kaosi sprettur vals — verkið endar hér á jörðinni, á báðum fótum með lífsgleði en mikilli spennu." Er verk Páls eitthvað skylt hinum tveim- ur verkunum á tónleikunum? „Nei, öll verkin eru mjög ólík. Brahms er hárómantískur, Ravel . impressjónískt tónskáld og verk Páls glænýtt íslenskt/ austurrískt verk.“ Tríó Reykjavíkur hélt fyrstu Hafnarborg- artónleika sína í september. Næstu verða, sem fyrr segir, á morgun, þeir þriðju í mars og lokatónleikarnir í júní. En hvers vegna Hafnarborg? Vegna þess að þarna er alveg frábær aðstaða. Við leituðum lengi að stað til að vera með svona tónleikaröð á Stór-Reykja- víkursvæðinu og Hafnarborg varð mjög auðveldlega ofan á. Þetta er fallegur salur og góður, aðstaða fyrir hljóðfæraleikara er góð — einnig aðstaða fyrir gesti — og flygillinn er einn sá albesti í landinu."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.