Morgunblaðið - 04.12.1990, Page 1

Morgunblaðið - 04.12.1990, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA w i* 1990 KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER BLAD -B Viðar og Amljótur hætta hjá Fram Viðar Þorkelsson og Arnljótur Davíðs- son hafa ákveðið að leika ekki með íslandsmeistaraliði Fram næsta keppn- istímabil. Viðar hyggst leggja skóna á hilluna eftir áratug í vörn liðsins, en Arn- ljótur ætlar að róa á önnur mið. Viðar er viðskiptafræðingur að mennt og stefnir á að fara í framhaldsnám er- lendis næsta sumar. „Það bendir allt til þess að ég fari í nám til Bandan'kjanna um miðjan ágúst. Auk þess er nóg að gera í vinnunni og æ erfiðara að gefa sér tíma í fótboltann. Ég held áfram að æfa með strákunum á meðan ég er á landinu, en ætli kveðjuleikurinn hafí ekki verið á Nou Camp — það er ágætis endir,“ sagði Viðar. Hann er 27 ára og þriðji leikja- hæsti maður liðsins, lék alla leikina í sumar og á 142 leiki að baki í 1. deild, en landsleikimir eru 27. Arnljótur er ákveðinn í að skipta um félag, en hefur ekki tekið ákvörðun um hvert hann fer. „Það eina sem er öruggt er að ég skipti,“ sagði Arnljótur. Hann sagði ennfremur að ýmislegt kæmi til greina, en ekkert lægi á að taka ákvörðun. HANDKNATTLEIKUR / DOMARAR Rögnvald Erlingsson. Stefán Arnaldsson. Rögnvald og Stefán stóðu sig vel í Seoul RÖGNVALD Erlingsson og Stefán Arnaldsson, dómarar í handknatt- leik, stóðu sig vel sem dómarar í Heimsmeistarakeppni kvenna, sem lýkur í Seoul í Suður-Kóreu í dag. Félagarnir dæmdu fjóra leiki og fengu góða dóma hjá dómaranefnd Alþjóða handknattleikssambands- ins. Þetta hefur gengið vonum framar,“ sagði Rögnvald í samtali við Morgun- blaðið. „Flestir fengu fjóra leiki í keppn- inni, en það eru ákveðin dómarapör, sem virðast „eiga“ úrslitaleikina og því emm við ekki óánægðir — þvert á móti — emm á bekk með Norðmönnum, Svíum og Hollendingum." Einn helsti leikurinn í milliriðli var við- ureign Þýskalands B (A-Þýskak) og Rúm- eníu og mörgum á óvart voru Rögnvald og Stefán settir á þann leik, en þeir hafa ekki áður dæmt á Heimsmeistaramóti. „Dómaranefndin sagði við okkur að hún hefði átt í erfiðleikum með að fá sam- þykki fyrir þeirri ákvörðun, en hún hefði trú á okkur og við yrðum að standa und- ir nafni. Erik Elias, formaður dómara- nefndarinnar, kom til okkar eftir leikinn og sagðist vera ánægður með frammi- stöðuna," sagði Rögnvald. Mikil harka var í leiknum, 13 brottv- ísanir litu dagsins ljós, en liðin gerðu jafn- tefli, 15:15. Auk þess dæmu þeir leik Noregs og Búlgaríu, sem var sýndur beint í Noregi eins og allir leikir norska liðs- ins, viðureign Frakklands og Póllands og loks leik Suður-Kóreu og Póllands. Veski stoliö Dómararnir koma heim á fimmtudag eftir 16 daga dvöl ytra. Þeir létu vel að öllum aðbúnaði, en sögðu að þetta væri dýrt áhugamál. Stefán varð fyrir því ól- áni að veski hans var stolið meðan þeir voru að dæma og fannst það ekki. í vesk inu voru 135 dollarar, visa-kort og íslensk skilríki en ekki vegabréfið. Handknatt- leikssamband Suður-Kóreu bætti Stefáni peningaskaðann. KNATTSPYRNA Fimm umférðir á sama leik- degi í 1. deild Ifrumdrögum niðurröðunar leikja á næsta keppnistimabili er gert ráð fyrir að fyrsta um- ferð í 1. og 2. deild fari fram laugardaginn 18. maí. Drögin gera ráð fyrir að allir leikir í fimm umferðum 1. deildar fari fram á sama leikdegi, en annars fara leikir hverrar umferðar fram á tveimur dögum. Félögin eiga eftir að gera athuga- semdir við leikdaga og reynir mótanefnd að koma til móts við óskir þeirra. Í 2. deild er gert ráð fyrir sama fyrirkomulagi og á síðasta keppnistímabili, en þá fóru allir leikir í sömu umferð fram á sama tíma. í 3. deild er ráðgert að heíja keppni laugardag- inn 25. maí, en í fyrstu umferð leika ÍK-Þróttur N., BÍ-Völsungur, Dalvík-Völsungur, Leiftur- Magni og Reynir A.-Skallagrímur. Síðasta umferð í 1. og 2. deild verður laugardag- inn 14. september, en 3. deild lýkur viku fyrr. Arsþing KSI / B2 HANDKNATTLEIKUR „Égerekkií nægilega góðrí æfingu“ - segir Héðinn Gilsson, sem fer á séræfingar hjá Bredemeier, landsliðsþjálfara V-Þýskalands mr Eg fann það þegar ég kom heim til að leika með landsliðinu - að ég er langt frá því að vera í nægiiega góðri æfingu,“ sagði Héðinn Gils- son, landsliðsmaður í handknattleik, en hann lék ■■■ með Dússeldorf gegn Hagen á FráJóm sunnudag, eða sama dag og hann H. Garðarssyni hélt frá Danmörku, þar sem hann i V-Þýskalandi j£k með íslenska landsliðinu. Héðinn skoraði þrjú mörk í sigur- leik, 27:23. „Ég þarf að æfa meira til að komast aftur í góða æfingu," sagði Héðinn, en hann mun fara í séræfingar hjá Horst Bredemeier, landsliðs- þjálfara V-Þýskalands, sem liefur tekið við stjórn- inni hjá Dússeldorf á ný. Það kom í ljós á dögunum þegar Héðinn lék gegn Tékkum að hann hafði ekki yfir eins miklum krafti að ráða og áður. Bambir hættir með landsliðið Gústaf ráðinn í hans stað Slavko Bambir, landsliðsþjálfari kvenna í hand knattleik undanfarin þijú ár, hefur sagt starfí sínu lausu í fuilu samráði við landsliðsnefnd kvenna og stórn HSÍ. Gústaf Björnsson tekur við þjálfun kvennalandsliðsins. Gústaf var í nokkur ár þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fram og náði góðum árangri með lið- ið. Hann var þjálfari meistarafiokks Fram, en sagði starfi sínu lausu fyrir skömmu. Næsta verkefni kvennalandsliðsins er alþjóðlegt mót, sem fram fer hér á landi dagana 18. til 20. desember. Þátttökuþjóðir verða; Portúgal, Spánn, unglingalandslið og A-landslið íslands. KNATTSPYRNA Helgi fótbrotinn Helgi Bjarnason, knattspyrnumaður úr Víkingi fótbrotnaði á æfingu með liði sínu í gær. Helgi verður frá vegna meiðsla i minnst átta vikur. Víkingar hafa fengið liðsstyrk. Gunnar Guð- mundsson úr ÍK og Hólmsteinn Jónsson úr Fram hafa ákveðið að leika með félaginu næsta sumar. FIMLEIKAR: ÁRMENNINGAR UIMNU TVÖFALT í BIKARKEPPIMINNI / B4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.