Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 2

Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR ÞREÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 KNATTSPYRNA / 45. ARSÞING KNATTSPYRNUSAMBANDS ISLANDS Nei:53—já:52 Mesta spennan á þinginu var þegar tillaga um breytingar á bikarkeppni KSÍ var borin upp. Meiri hluti milliþinganefndar lagði til að lið úr 1. deild kæmu inn í keppnina í 32 liða úrslit, en ekki 16 liða eins og verið hefur. Mikil umræða var um fyrirhugaða breyt- ingu á ráðstefnu um mótafyrir- komulag á laugardag, þar sem kost- ir og gallar breytingarinnar voru ræddir oer sýndist sitt hveijum. Áður en til atkvæðagreiðslu kom var sterklega varað við að sam- þykkja breytt fyrirkomulag og vom helstu rökin ijárhagslegs eðlis — þegar litið væri til langs tíma myndi hreyfmgin tapa á breyttu fyrir- komulagi. Þegar atkvæði höfðu verið talin kom í ljós að aðeins munaði einu atkvæði; 53 voru á móti breyting-- unni en 52 með. 25 þúsund í sekt Töluverðar breytingar voru samþykktar á starfsreglum aganefnd- ar. Nefndin getur nú gefið aðilum kost á munnlegum eða skrifleg- um málflutningi, ef mál eru alvarlegs eðlis, en nú fjallar hún ekki aðeins um brot leikmanna, félaga og forystumanna heldur einnig áhorf- enda. Ef þjálfara eða forystumanni er vísað frá leikvelli skal aganefnd sekta viðkomandi félag og skal lágmarkssekt vera 25.000 krónur, en allar sektampphæðir hjá KSÍ breytast í samræmi við breytingar á aðgöngumiðaverði í 1. deild. Ef áhorfendur áhorfendur gerast sekir um vítaverða eða hættulega framkomu gagnvart leikmönnum, dómara eða línuvörðum, getur aga- nefnd sektað viðkomandi félagogerþá lágmarkssektin 25.000 krónur. Morgunblaðið/Júlíus Lúðvík S. Georgsson með reglugerðina um stöðu félaga og leikmanna, leikmannasamning og félagaskipti, sem var samþykkt samhljóða á þinginu. Tímamótaþing 45. ÁRSÞÍNG Knattspyrnusamband íslands, sem var haldið á Hótel Loftleiðum um helgina, verður vafalaust minnst sem tíma- mótaþings vegna tillögu um leikmannasamninga, sem var ein- róma samþykkt. Með þessari breytingu var að flestra mati stig- ið stórt skref f ram á við, sem á að tryggja hag samningsbund- inna leikmanna og veitir félögum, sem gera samninga við leik- menn, aukinn starfsfrið. Að auki voru samþykktar mikiar breyt- ingar á mótafyrirkomulagi yngri flokka, starfsreglum aganefndar og samþykkt að bjóða upp á keppni fyrir lið utan deilda. Stefán Guðmundur Glæsileg kosning Kosið var um fjóra menn í aðal- stjórn og gáfu allir fráfarandi stjórnarmenn kost á sér og einnig Stefán Gunnlaugsson, sem hætti sem formaður knattspyrnudeildar KA fyrir skömmu eftir 15 ára stjómarstarf, þar af 10 ár sem formaður. Stefán sópaði til sín at- kvæðunum og hlaut glæsilega kosn- ingu. Sömu sögu er að segja af Guð- mundi Haraldssyni, milliríkjadóm- ara, sem er nú hættur að dæma eftir þriggja áratuga farsælt starf. Hann gaf kost á sér í varastjórn ásamt þeim þremur, sem fyrir voru og í kosningunni fékk Guðmundur næst flest atkvæði í kjörinu. Lúðvík S. Georgsson var for- maður milliþinganefndar, sem undirbjó tillöguna um leikmanna- samningana, aðalmál þingsins. Eins BBHI og fram kom í blað- Steinþór inu á laugardag var Guöbjartsson framsaga hans ein- skrifar staklega greinargóð og treystu menn sér ekki til að gera miklar breytingar, en þökkuðu formanni nefndarinnar fyrir sérstaklega góða undirbún- ingsvinnu. Engu að síður var um- ræða þó nokkur, en alls fóru um þijár klukkustundir á þinginu í málið. „Ánægður „Þetta hefur verið mikil vinna og mig dreymdi aldrei um að málið færi einróma í gegn. Mótttökur þingfulltrúa á föstudag gáfu hins vegar til kynna hvert stefndi og ekki er annað hægt en að vera ánægður með niðurstöðurnar," sagði Lúðvík. Nefnd, sem fékk málið til með- ferðar á þinginu, gerði minni háttar breytingar á tillögu milliþinga- nefndar og reglugerðin með áorðn- um breytingum var síðan samþykkt samhljóða. Ekki skilyrði Engu félagi er gert að gera leik- mannasamninga og leikmönnum er einnig í sjálfsvald sett, hvort þeir geri samning. Enn er enginn samn- ingsbundinn og aðeins venjulegt félagsskiptagjald gildir fyrir leik- mann, sem skiptir í félag í neðri deild, sem ger- ir ekki leikmannasamninga. Lúðvík sagði að kominn hefði verið tími til að fá reglugerð um umrætt efni, því félög hefðu þegar verið farin að gera samninga við leikmenn og jafnvel misnotað rétt sinn. „Nú hefur þetta verið sam- ræmt og þá sitja allir við sama borð. Ef félag ákveður að gera samning við leikmenn fær það starfsfrið, meðan samningar eru í gildi, og það hlýtur að veita því ákveðið öryggi. Samningur tryggir leikmanni ákveðna tryggingu og aðstöðu, en samt er mikilvægt að aðilar hugsi sig vel um áður en samningar eru gerðir. Það liggur ekkert á og mikilvægt er fyrir alla, sérstaklega félög í neðri deildum, að gera sér grein fyrir hvaða hags- munir vinnast og hvað tapast," sagði Lúðvík. Lengra tímabil Miklar breytingar voru gerðar á keppnisfyrirkomulagi í yngri flokk- unum, en hluti þeirra kemur ekki til framkvæmda fyrr en 1992. Tímabilið verður lengt og þriggja stiga reglan verður tekin upp nema í 5. flokki b. í 2. flokki verður liðum skipt í riðla eftir getu og í 3. flokki verður úrslitakeppninni breytt. ÍÞR&mR FOLK H ELIAS Hergeirsson, gjalkeri KSÍ, skilaði 21 milljón í hagnað og þingfulltrúar sýndu í verki, að þeir kunnu vel að meta störf gjaídkerans — hann fékk 150 atkvæði af 152 í stjórnarkjörinu. ■ ÞÓR Símon Ragnarsson, ritari og fyrrverandi gjaldkeri, fékk einn- ig glæsta kosningu — 146 at- kvæði. Stefán Gunnlaugsson fékk 118 atkvæði og Sveinn Sveinsson, meðstjómandi, fékk 113 atkvæði, en Ragnar Marinósson fékk 77 atkvæði og náði ekki kjöri. ■ SNORRI Finnlaugsson fékk 134 atkvæði í kosningu í vara- stjórn^ Guðmundur Haraldsson 119, Ásgeir Ármannsson 111, en Ingi Jónsson 51 atkvæði og náði ekki kosningu. ■ LANDSHL UTAFULLTR Ú- AR voru endurkjömir án mótfram- boða; Kristján Jónasson, Vestur- landi, Rafn Hjaltalín, Norðurlandi, Guðmundur Bjarnason, Austur- landi, og Jóhann Ólafsson, Suður- landi. ■ EINhreylingv'drð gerð á vara- mönnum landshlutafulltrúa, en allir voru sjálfkjörnir. Smári Krisljáns- son, Suðurlandi, kom í staðinn fyr- ir Bárð Guðmundsson, en hinir eru Þorgeir Jósefsson, Vesturlandi, Ingólfur Freysson, Norðurlandi, og Albert Eymundsson, Austur- landi. ■ STEFÁN Haraldsson, KR, Jónas Sigurðsson, ÍBV, og Þor- geir Jósefsson, Akranesi, voru kjörnir í nefnd, sem á að endur- skoða og samræma reglur varðandi merkingar og auglýsingar á bún- ingum og búnaði knattspymuliða. Nefndin á að skila áliti fyrir 1. mars 1991. ■ t ÁRSSKÝRSLU KSÍ kemur fram að rúmlega 83% iðkenda em karia. 51,71% eru karlar yngri en 16 ára, 32,46% karlar eldri en 16 ára, 10,53% konur yngri en 16 ára og 5,29% konur eldri en 16 ára. ■ AGANEFND fékk 1.759 mál til meðferðar á starfsárinu eða 256 fleiri en í fyrra. Leikir á vegum KSÍ voru 2.630, þannig að nærri lætur að eitthvað hafi verið að í tveimur af hveijum þremur leikjum sumarsins. Lýst var yfir áhyggjum vegna þessa. ■ HELGI Daníelsson, rannsókn- arlögreglumaður, sagði að agaleysi væri vaxandi í þjóðfélaginu, en for- varnarstarfið væri greinilega mikið í íþróttafélögunum og leggja bæri enn meiri áherslu á aga og íþrótta- legt uppeldi frekar en sigra í yngri flokkunum. Morgunblaðið/Júlíus Stjórn KSÍ, varastjórn og landshlutafulltrúar næsta starfsár. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Sveinsson, Elías Hergeirs- son gjaldgeri, Eggert Magnússon formaður, Guðmundur Pétursson varaformaður, Þór Símon Ragnarsson ritari, og Sig- mundur Stefánsson. Aftari röð frá vinstri: Stefán Snær Konráðsson framkvæmdastjóri, Guðmundur Haraldsson, Helgi Þorvaldsson, Kristján Jónasson, Stefán Gunnlaugsson, Ásgeir Ármannsson, Guðmundur Bjarnason, Snorri Finnlaugsson og Jóhann Olafsson. Jón Gunnlaugsson í aðalstjórn og Rafn Hjaltalín, landshlutafulltrúi, voru farnir, þegar myndin var tekin. IMæsta þing ™áHöfrT" Albert Eymundsson, formaður Sindra m.m. á Höfn í Horna- firði, lagði fram ósk þess efnis að ' næsta ársþing yrði Haldið á Höfn, en í lögum Knattspyrnusambands- ins segir m.a. að „stefnt skal að því að þing sé haldið þriðja hvert ár utan Reykjavíkur." KSÍ-þing var síðast haldið utan Reykjavíkur á Selfossi, en áður í Vestmannaeyjum, á Húsavík og Akureyri, en aldrei á Austurlandi. Albert sagði að tími væri til kom- inn, viðkomandi aðilar á Höfn væru tilbúnir að taka þingið að sér og auk þess væri þetta gott innlegg í byggðarstefnuna. Þingheimur tók boðinu með dynjandi lófaklappi og samþykkti þingstað fyrir sitt leyti, en stjórnin tekur endanlega ákvörð- un. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði að þetta yrði athugað á Morgunblaðið/KGA Eggert Magnússon, formaðurKSÍ mjög jákvæðan hátt, en spurði Al- bert hvað væri boðið upp á. Svarið kom um hæi: „Sama og Reykjavík- urborg hefur boðið upp á, þegar þingið hefur verið haldið í Reykjavík."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.