Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 1
I VIKUNA 29. DESEMBER PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 4. JANUAR BLAÐ i Aramóta- skaupið Hver drap Sir Harry Oakes? Fyrri hluti framhaldsmyndar í tveimur hlutum, Hver drap Sir Harry Oakes? (Passion and Paradise), er á dagskrá Stöðvar 2 á nýársdag. Myndin fjallar um sannsögulega atburði. Sir Harry Oakes var einn rikasti maður í heimi og áhrifamikill á Bahameyj- um. Hinn 8. júlí árið 1943 var hann myrtur á hroðalegan hátt, misþyrmt og síðan brendurtil dauða. Grunur féll þegar á eigin- mann dóttur hans, sem hafði gift sig gegn vilja föðurs síns. En eftir því sem rannsókn málsins miðaði áfram féll grunur á fleiri. Síðari hluti myndarinnar er á dagskrá3. janúar. Elektra Jólaleikrit Útvarpsins, sem flutt verður á Rás 1 á sunnudaginn, er Elektra eftir Evripídes og er þetta frumflutningur verksins hér á landi. Þýðandi er Helgi Hálfdan- arson og leikstjóri Sveinn Einars- son. Leikritið segir frá konungsbörn- unum Elektru og Órestesi sem hafa verið hrakin úr konungs- garði eftir að Ægistos hefur myrt föður þeirra, Agamemnon kon- ung, með hjálp Klítemnestru móður þeirra og sest sjálfur í konungssæti. Eftir langan að- skilnað hittast þau systkinin aftur og sverja að hefna föðurs síns. Leikendur eru Anna Kristin Arngrímsdóttir, Kristján Franklín Magnús, Helga Bachmann, Viðar Eggertsson, Rúrik Haraldsson, Stefán Jónsson, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Ragnheiður Stein- _ þórsdóttir og Þorsteinn Gunn- arsson. Áramótaskaupið er orðið jafnómissandi íslensku þjóðinni og greiðslukortin enda er það á sínum stað á dagskrá Sjónvarpsins á gamlárskvöld. Það er Andrés Sigurvinsson leik- stjóri sem leiðir harðsnú- inn og óvæginn flokk í krossferð útúrsnúninga, afbakana og eggbeitts háðs um atburði og per- sónur nýliðins árs og eng- um er hlíft. Á þriðja tug leikara blandast inn í Skaupið með einum eða öðrum hætti en handrits- höfundar eru þeir Gísli Rúnar Jónsson og Rand- ver Þorláksson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.