Morgunblaðið - 28.12.1990, Page 3

Morgunblaðið - 28.12.1990, Page 3
■' -i, KÍIWERSKA STÚLKAIM WMM Ástin spyr ekki um kynþátt eða 155 hörundslit, líkt og rakið var eft- “ irminnilega í söngleik Leonards Bernsteins, West Side Story. Síðan hann var gerður hefur margt breyst, en ástin er söm við sig og Stöð 2 frum- sýnir í kvöld kvikmyndina Kínverska stúlkan, China Girl, sem rekur ástar- samband ítalsks pílts og kínverskrar stúlku. Myndin gerist í New York, en þar er Canal-stræti óopinber landa- mæri milli kínverska hverfisins og þess ítalska og samskipti í lágmarki. Þetta ógnarjafnvægi fer úr skorðum þegar ítalskur piltur og kínversk stúlka feila hugi saman og skerst í odda milli kyn- þáttanna. Pilturinn og stúlkan eru ákveðin í að ekkert fái skilið þau að, en rennur ekki grun hveijar afleiðingar þessarar staðfestu verða. Með aðalhlut- verk fara James Russo, Richard Paneb- ianco Sari Chang og Russel Wong. Maltin gefur ★ ★ ’A. Paul McCartney HEIMSREISA McCARTIMEYS ■■■■ Breski bítillinn Paul McCartney hefur verið iðnastur OQ 00 Bítlanna við tónlistina síðan Bítlarnir liðu undir lok. Hann ~~ hefur sent frá sér fjölda breiðskífna og verið iðinn við tón- leikahald víða um heim. Á síðasta ári sendi hann frá sér breiðskífu og þessu ári eyddi hann meira eða minna á gríðarmikilli tónleika- ferð um heim allan. Á þeirri ferð lék hann lög af síðustu plötu sinni, en einnig mikið af klassískum bítlalögum, sem sum hver höfðu aldr- ei verið leikin á tónleikum áður. Tónleikaferðinni lauk í heimaborg Pauls, Liverpool, og Stöð 2 sýnir í kvöld upptöku frá lokatónleikun- um. Tónleikunum verður einnig útvarpað á Bylgjunni fyrir þá sem vilja stereóhljóm. AMLÓÐI - riddarinn hugumpnúði ■■■■■ Þýskar, austurískar og nokkrar Austur-Evrópskar sjón- M10 varpsstöðvar hafa á undangengnum árum ekki dregið af — sér við framleiðslu ævintýramynda sém nokkrar hveijar hafa þegar ratað á skjái landsmanna. Myndir þessar eiga það sameig- inlegt að sækja efnivið sinn í nægtabrunn ævintýra, einkum úr safni Grimms-bræðra. Sjónvarpið sýnir í dag eina ævjntýramynd úr þessum flokki, hug- ljúft ævintýri skoskt að uppruna. Nefnist það Amlóði, riddarinn hug- umprúði og segir frá prinsessunni Blómarós sem þykir undurfögur en kaldlynd. Föður hennar til sárrar hrellingar ann~bún engu á jarðríki fremur en eðalsteinum, og þá sér í lagi þeim gimsteinum sem hún sækir í dal nokkurn. Herra þessa dals er enginn annar en Beberich sem er konungur í Neðribyggðum. Beberich grípur hina fögru blómarós glóðvolga í dalnum góða og eru nú góð ráð dýr. s < I kvöld syng- 1Q 05 ur Einsöngv- ““ arakórinn íslensk þjóðlög með undirleik hljóðfæraleik- ara í Sinfóníuhljómsveit Íslands á Rás 1. Einnig syngur Söngflokkurinn Islandica nokkur lög og Sinfóníuhljómsveit ís- lands leikur Forleikinn að „Nýársnóttinni" eftir Árna Björnsson. Páll P. Pálsson stjórnar. SVIPMYIMDIR ■■■■■ Það er orðið fastur liður í dagskrá gamlársdags að starfsmenn fréttastofu taki OA 20 saman yfirlit hins helsta er borið hefur til tíðinda á árinu sem er að líða. Árið ““ 1990 hefur verið venju fremur viðburðaríkt, einkum þó hvað erlenda atburði áhrærir, og ætti því ekki að verða hörgull á efniviðum í frétlaannála ársins. Hinn innlendi hefst kl. 20.20 og verður Gunnar Kvaran fréttamaður umsjónarmaður hans. í kjölfarið fylgir hinn erlendi í umsjá Árna Snævarr og hefst hann kl. 21.10. Hefð- um samkvæmt verða annálarnir síðan endursýndir á nýársdag að loknu ávai-pi Forseta íslands kl. 13.30. Disneyférðin ■■■■ Á síðasta ári mátti líta í Stundinni 1 r 40 okkar valda þætti úr ævintýraferð -LO tveggja krakka, þeirra Reynis og Völu, til Flórida í Bandaríkjunum en þangað fóru þau í boði Flugleiða. Þar suður frá er að finna einhvern best búna skemmtigarð í heimi hér, Disney World, og var ferð þeirra Reynis og Völu heitið á undralendur þessa vandaða ævintýraheims. Svo háttaði nefnilega til, að mikki karlinn Mús átti sextugsafmæli á síðasta ári og því bar ríka nauðsyn til að íslenskir krakkar færðu músinni síungu afmælisgjöf. í för með þeim Reyni og Völu var sjálfur kapp- inn, hann Lilli úr Stundinni okkar, að ógleymd- umfulltrúum barnaefnis Sjónvarpsins, þeim Helgu Steffensen og Sigríði Rögnu Sigurðar- dóttur. í Disney World var farið vítt og breitt um garðinn, í fylgd tæknimanna Sjónvarps, og undur hans fest á filmu sem nú hefur verið feld saman í eina heildstæða ferðafrásögn. Einnig var víðar borið niður, í nágrenni skemmtigarðsins, enda margt að skoða í Flórida. Myndatöku annaðist Páll Reynisson en umsjá hafði Helga Steffensen. STOÐ 2I MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 Gamlárskvöld SJONVARPIÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.