Morgunblaðið - 16.01.1991, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 16.01.1991, Qupperneq 7
B 7 ' MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR Togarinn Runólfur SH 135. Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon Afkoman hefur aldrei verið betri Rekstur Sæfangs í Grundarfirði gekk vel GRUNDARFIRÐI - AFKOMA Sæfangs í Grundarfirði hef- ur aldrei verið betri en á nýliðnu ári og sama má segja um togarann. Heildar- afli ársins á Runólfi var 3.877 tonn á 210 dögum, en það er að meðaltali 18,5 tonn á dag. Aflaverðmætið var tæpar 170.000.000,- krónur. Aflinn er unninn í fiskverkuninni Sæfangi hf., sem er rekin af sömu aðilum og togarinn. Góð afkoma togarans og fiskvinnslunn- ar á árinu er öllum í Grundarfirði mikið ánægjuefni. í suðvestan ofsaveðri fór fréttarit- ari niður á bryggju að ræða við áhöfn togarans Runólfs, sem var nýkominn úr síðustu veiðiferð árs- ins. Reyndar var það hálfgert glap- ræði að fara þennan spöl fótgang- andi, sjórinn gekk yfir bryggjuna og sterkustu hviðurnar hefðu hæg- lega getað feykt hveijum sem er á haf út. í hafnarmynninu glitti í 100 tonna bát, sem gerði hveija tilraun- ina eftir aðra til að leggjast að bryggju. Um borð í Runólfi voru menn að vonum í góðu skapi, vel heppnaðri veiðiferð var lokið og framundan kærkomið jólafrí. Togarinn Runólf-. ur var keyptur nýr til Grundaríjarð- ar í byijun ársins 1975. I fyrstu var aflinn unninn í Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar og Fiskverkun Sof- faníasar Cecilssonar, en árið 1979 stofnuðu eigendur ásamt fleirum fiskverkunina Sæfang hf. sem þeg- ar í upphafi tók við u.þ.b. þriðjungi aflans í vinnslu. Þá var starfs- mannafjöldinn rúmlega 10 manns. Smátt og smátt var fiskverkunin stækkuð og árið 1981 gat Sæfang unnið allan afla togarans. Næstu níu árin gekk vinnslan fyrir sig á hefðbundinn hátt, en í byijun árs 1990 var sett upp flæði- lína og olli það byltingu í vinnsl- unni, að sögn Mósesar Geirmunds- sonar verkstjóra. Flæðilínan sem er að öllu leyti íslensk hönnun og smíði, hefur reynst mjög vel. Starfs- fólkið fær hærra kaup en áður var og afköstin eru meiri. í Sæfangi starfa nú 50-55 manns, að langmestu leyti heima- fólk og vinnan er sam'felld allt árið. Flestir starfsmennirnir hafa starfað þarna lengi og taldi Móses afar mikilvægt fyrir starfsemina að hafa fastan og öruggan starfskraft á flestum sviðum. Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri Sæfangs upp- lýsti að afkoman hefði aldrei verið betri en í ár og sama mætti segja um togarann. Heildarafli ársins á togaranum Runólfi vár 3.877 tonn á 210 dögum, en það er að meðal- tali 18,5 tonn á dag. Aflaverðmæt- ið var tæpar 170.000.000,- krónur. I tengslum við útgerðina er rekið netaverkstæði, sem sinnir veiðar- færum flestra báta í Grundarfirði. Við útgerðina starfa nú samtals 25 manns. Skipstjóri togarans er Run- ólfur Guðmundsson, en fram- kvæmdastjórinn heitir Svanur Guð- mundsson. Lásamirfrá Crosby fástnú á einstöku tilboðsverði í stærðum frá VS' til Vs". Hver einstakur !ás er prófaður af framleiðanda við tvöfalt vinnsiuþol. (sjá töfluna). Allar stærðir á lager. Notfærðu þér tilboðsverðið og gerðu góð kaup. Stærð Hámarks vinnsluþol Tilboðsverð án vsk. með vsk. 1/4" 6-7 mm 1860 kg. 481,- 599,- 3/8" 10 mm 3300 kg. 612,- 762,- 1/2" 12-13 mm 5900 kg. 681,- 848,- 5/8" 16 mm 9200 kg. 1001,- 1246,- 3/4" 18-20 mm 13300 kg. 1434,- 1785,- 7/8" 22 mm 18000 kg. 1910,- 2378,- SENDUM UM ALLT LAND * Grandagarði 2, Reykjavík, sími 28855 RADA UGL YSINGAR ATVINNA Sjómann vantar pláss 18 ára drengur óskar eftir plássi á sjó. Er vanur. Upplýsingar á kvöldin í síma 94-2039. Vélstjóri óskast 2. vélstjóra vantar á mb Sunnuberg GK-199. Upplýsingar í símum 92-68107 og 98-33521. Sigluberg hf., Grindavík. Vélstjóri 2. vélstjóra vantar á skuttogarann Gnúp GK 11 frá Grindavík. Upplýsingar í síma 92-68168, Kjartan. Stýrimaður 2. stýrimaður óskast á skuttogara frá Sauðár- króki. Þarf að geta leyst af sem 1. stýrimaður. Upplýsingar í síma 95-35761. ÝMISIEGT Plötufrystir GRAHM Tilboð óskast í GRAHM-plötufrysti, 8 stöðva ca 600 kg frystigeta á 2-272 tíma. Frystirinn er nánast ónotaður. Hér er unri að ræða sambyggt, sjálfstætt tæki, algerlega sjálfvirkt stýrikerfi á pressu. 90 pönnueiningar fylgja. Vinsamlegast hafið samband við Hólmgeir eða Ragnar í síma 91-51505. KVÓTI Framtíðarrækjukvóti Óskum eftir að kaupa framtíðarrækjukvóta. Áhugasamir leggi inn tilboð merkt: „NK - 7900“ á auglýsingad. Mbl. fyrir 2. febrúar '91. Kvóti 1/1-31/8 Óskum eftir að kaupa þorsk-, ufsa- og karfa- kvóta til notkunar á tímabilinu 1/1-31 /8’91. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „L - 7806“. Kvótasala Til sölu kvóti frá 1/1 1991 til 31/8 1991. Þorskur 92 tonn, karfi 65 tonn, ýsa 43 tonn og ufsi 79 tonn. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 19. janúar merkt: „K - 8811“. Framtíðarkvóti Óskum eftir að kaupa framtíðarkvóta af öllum tegundum. Tilboðum skal skila á auglýsingadeild Mbl. merkt: „A - 8630“ fyrir 1. febrúar ’91. Rækjukvóti 40 tonn fæst í skiptum fyrir þorsk. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „ R - 8631“ fyrir 23. jan. nk. Kvóti Otur hf. óskar eftir árskvóta af ufsa. Upplýsingar í síma 96-61497, heimasími 96-61416, Gunnlaugur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.