Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 1
N N A
1991
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Sigurður Sveins-
son til í slaginn!
SIGURÐUR Sveinsson, sem leikur með Atlético Madríd á
Spáni, er tilbúinn að leika með landsliðinu í handknattleik á
ný, íslendingar mæta Ungverjum í Laugardalshöll 11. og 12.
febrúar og verður Sigurður með svo framarlega sem hann fær
grænt Ijós frá spænska félaginu. Kristján Arason, sem hef ur
ekki náð sér eftir uppskurð s.l. sumar, á erfitt með að leika
dag eftir dag og verður þvf að öllum líkindum ekki með í
þessum leikjum.
SigTirður sagði við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að hann
væri tilbúinn að leika með lands-
liðinu nú.
„Ég er til í slaginn gegn Ung-
verjum, en verð að sjá til með
framhaldið,“ • sagði Sigurður.
Hann sagði að eins og staðan
væri nú væru 50% líkur á að hann
léki í Höllinni á mánudag og
þriðjudag i næstu viku, því félag-
ið hefði ekki sagt nei. Hins vegar
væru erfíðir leikir framundan í
deild og Evrópukeppni; gegn
Kristjáni Arasyni og samherjum
í Teka á Iaugardag, gegn Ale-
cante á miðvikudag í næstu viku
og síðan Evrópuleikur gegn
Moskva annan laugardag.
Sigurður hefur átt hvern stór-
leikinn á fætur öðrum með At-
lético Madríd í vetur og hefur að
margra áliti sennilega aldrei verið
betri. Hann hefur ekki enn gert
upp við sig hvort hann leikur
áfram með spænska liðinu næsta
tímabil eða kemur heim og því
segist hann ekki geta sagt til um
framhaldið með landsiiðinu. Hann
lék síðast landsleik í Noregi s.l.
vor og var þá fyrirliði.
BADMINTON / ISLANDSMOTIÐ
Árni ÞórHallgrímsson:
„Stærsti sigur-
inn á ferlinum”
ÁRNI Þór Hallgrímsson kom,
sá og sigraði á þessu íslands-
móti. Hann sigraði Brodda
Kristjánsson í úrslitaleik í ein-
liðaleik karla nokkuð sannfær-
andi og hnekkti þar með ein-
veldi Brodda í einliðaleiknum,
en Broddi hafði unnið titilinn
níu sinnum.
ÆT
Ami Þór er 22 ára og bytjaði
að æfa badminton á Akranesi
þegar hann var átta ára. Hann
flutti síðan til Reykjavíkur fyrir sex
árum og hefur æft hjá TBR síðan.
„Þetta er stærsti sigurinn á ferlin-
um. Urslitaleikurinn var ekki svo
erfiður, fyrri lotan var auðveld en
eftir að Broddi komst í 10:3 í síðari
lotunni var erfitt að vinna það upp
.en það hafðist," sagði Árni Þór.
Ilann sagðist hafa unnið Brodda
tvisvar í einliðaleik í vetur, en
Broddi hefði þrisvar unnið. „Nú hef
ég jafnað og það var skemmtilegt
að gera það á íslandsmótinu. Nú
er stefnan tekin á að vinna sér
sæti á Ólympíuleikunum í Barce-
lona 1992.“
Árni Þór segist æfa 12-15 tíma
í viku. Hann hefur starfað 'hjá TBR
sem unglingaþjálfari í vetur. „Ég
hef aldrei getað æft eins mikið og
í vetur og alveg sloppið við meiðsli
og ég held að það hafi skilað sér í
þessum góða árangri," sagði Árni
Þór.
Mótið / B4-b5
Morgunblaðið/Bjarni
Árni Þór Hallgrimsson var maður íslandsmótsins
Einar í KA
Einar Einarsson,
miðvallarleikmaður
úr Víkingi, hefur ákveð-
ið að ganga til liðs við
1. deildarlið KA á Akur-
eyri fyrir komandi
keppnistímabil. Einar,
sem er 25 ára, lék 15
af 18 leikjum Víkinga
í 1. deildinni sl. sumar
en hann á alls að baki
50 leiki í 1. deild með
félaginu og hefur gert
þijú mörk. Þá lék Einar
um tíma með 2. deildar-
liði Selfoss.
Einar Einarsson
Stefán til Leifturs
Stefán Aðalsteinsson, sem lék einnig _ með
Víkingi, hefur ákveðið að leika með Leiftri Ólafs-
firði í 3. deildinni næsta sumar. Þjálfari liðsins er
reyndar Aðalsteinn, bróðir Stefáns.
Þýskaland:
Eyjólfur í byrjun-
arliði Stuttgart
Christoph Daum, þjálfari VfB Stuttgart, segist
búinn að finna út hvaða ellefu leikmenn koma
best út saman og skipi byijunarlið félagsins þegar
deildarkeppnin hefst á ný í Þýskalandi 23. þessa
mánaðar. Eyjólfur Sverrisson er meðal þessara
ellefu og verður í fremstu víglínu ásamt Fritz
Walter. Þeir náðu mjög vel saman á æfmgamótinu
í Brasilíu fyrir helgi.
Stuttgart vann fyrri leik sinn 2:1 en tapaði þeim
síðari 0:2. Þrátt fyrir það hældi þjálfarinn framherj-
unum, sagðl að þeir hefðu unnið vel saman.
Dómarar:
Eyjólfur dæmir
í Danmörku
Eyjólfur Ólafsson hefur verið skipaður dómari
í leik Danmerkur og San Marínó í undan-
keppni Ólympíuleikanna og Evrópukeppni U-21
árs. Leikurinn fer fram í Danmörku 17. apríl nk.
Dómararnefnd KSÍ hefur skipað Óla P. Ólsen
og Ara Þórðarson sem línuverði með Eyjólfi.
Guðmundur þjálfar
landsdómara
Guðmundur Ólafsson, íþróttakennari og fyrrum
þjálfari Völsungs, hefur verið ráðinn þjálfari
landsdómara. Hann kemur til með að stjórna æf-
ingum þeirra tvisvar í viku er þeir undirbúa sig
fyrir sumarið.
KORFUBOLTI
KR heima gegn
UBK í bikarnum
rnr
Islandsmeistarar KR drógust gegn Breiðabliki í
átta liða úrslitum bikarkeppni karla í körfu-
knattleik, en Kópavogsliðið er það eina úr 1. deild
sem eftir er í keppninni. Dregið var í beinni útsend-
ingu í íþróttaþætti Sjónvarpsins á laugardag.
Leikur liðanna fer fram í Laugardalshöll mið-
vikudaginn 13. febrúar kl. 20.00 en hinir leikirnir
þrír verða allir deginum áður, þriðjudag 12. febrú-
ar. Valur og ÍBK mætast þá að Hlíðarenda kl.
20.00 og Grindavík og Njarðvík á sama tíma í
Grindavík. Þór og ÍR eigast við á Akureyri og
hefst leikur liðanna kl. 19.30.
FRANC BOOKER: VILDISJÁ HEIMINIM / B2
i>.>>y ,xic
mo»