Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 13
5T —f * * r Tf ' r»riíT:f'i'nr'*iTf5r > ,írT.ry„-,^M MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991 B 13 ifli sgfess llÍSíglÍ Mýjung Iðnaður VlfndofJeV. (y>9'imc MlCtOR 5í5t*-- Victor „M‘‘ tölvurnar eru fáanlegar í þremur gerðum, V286M-12Mhz, V386M-16Mhz og V386M-25Mhz. Ninni, hijóðlátari og aflnieiri Ef þú mættir velja þér tölvu, fyndist þér þá ekki aö hún ætti að vera hljóðlát, fyrirferð- arlítil og öflug? Og fyndist þér ekki líka að hún þyrfti að vera vel samhæfð, afkastamikil og vel hönnuð? Á hún ekki líka að vera auðveld í notk- un, vinsamleg tölva, sem einfaldar líf þitt í stað þess að flækja það? Og svo viltu auðvitað vera viss um gott endursöluverð, er það ekki? • VICTOR „M" LtNAN . M » Tölvur framtíðarinnar • Victor M - ein öruggasta fjárfestingin á tölvumarkaðnum EinarJ. Skúlason hf Grensásvegi 10, sími 686933 VICTOR SZiJ** Búnaðursem minnkar útblásturs- mengun bifreiða um a.m.k. 35% D.E.B. þjónustan á Akranesi flytur inn útbúnað fyrir bifreiðar, sem minnkar mengun frá útblæstri um a.m.k. 35%, eldsneytiseyðslu um allt að 7,5% og eykur vélarafl um 3,5%, að sögn David Butt, innflytj- anda tækisins. Tölur þessar eru komnar frá tveimur hlutlausum fyrirtækjum í Bretlandi, sem gerðu úttekt á notkun tækisins, sem kostar hér á landi um 12.000 krónur. í greinargerð frá fyrirtækjunum segir einnig, að bílar sem ekki var ætlað að nota blýlaust bensín gengu ágætlega með blýlausu bensíni, þegar Powerplus útbúnaðurinn var Fundur um vernd eignarréttar MEÐFERÐ einkaleyfisumsókna og veiting einkaréttinda sam- kvæmt væntanlegum einkaleyf- islögum er meðal þess sem rætt verður um á fundi Samtaka um vernd eignarréttar á sviði iðn- aðar í dag. Frummælendur á fundinum verða Gunnar Örn Harðarson tæknifræðingur og Ómar Grétar Ingvarsson, verk- fræðingur. Gunnar Örn sagði í samtali við Morgunblaðið að nú lægi fyrir þingi frumvarp til nýrra laga um einkaleyfi. Núgildandi iög eru frá 1923 og því orðin úrelt að mörgu leyti. Að sögn Gunnars fela helstu breytingarnar í sér skýrari ákvæði um verndarsvið einkaleyfa og eins verður með nýju lögunum mikil breyting á málsmeðferð einka- leyfa. Með þessu væri verið að færa reglurnar til samræmis við reglur í nágrannalöndum okkar og Evrópusáttmála um einkaleyfi. Fyrirlestrar Gunnars og Ómars munu að miklu leyti fjalla um breytingar á málsmeðferð einka- leyfa. Rætt verður hvernig um- sóknir skulu gerðar úr garði og hvemig farið verði með þær af hálfu ráðuneytisins. Að loknum erindunum verða almennar um- ræður og fyrirspurnir. Fundurinn verður í Kornhlöðunni, Lækjar- brekku og hefst kl. 17.00. notaður. Tækið er hægt að færa á milli bifreiða og er lágmarksending- artími þess með ábyrgð 240 þúsund kílómetrar, að sögn Davids. Nokkur fyrirtæki hér á landi eins og Sementsverksmiðja ríkisins, Reykjavíkurborg og Akraneskaup- staður hafa keypt tæki til reynslu. „Prófanir hjá Sementsverksmiðj- unni hafa leitt í ljós að eftir 3.500 km akstur með Powerplus náðist milli 12-13% sparnaður á eldsneyti. Bíllin sem tækið var fest á var vöru- bíll af gerðinni Scania 112H,“ sagði David Butt. „Eftir að þetta kom í ljós hafa þeir keypt tæki á fleiri bíla. Powerplus er hólkur sem tengdur er inn í eldsneytislögn. í honum er m.a. tin sem ásamt segulsviði er notað sem efnahvarfi til að bæta brennslu eldsneytis í vélinni. Tinið gegnir sama hlutverki og blýið, það húðar og ver' ventla, stimpla og sprengirými, auk þess að auka okt- an/cetane-tölu. Tinið veldur hins vegar minni mengun en blý.“ Segir David Butt, að með notkun Powerplus/Clearnburn í skipum sé gert ráð fyrir a.m.k. 5% eldsneytis- sparnaði. Hlutabréfaviðskipti Verðbréffaviðskipti Samvinnubankans kaupa og selja hlutabréf eftirtalinna hlutafélaga gegn staðgreiðslu: Almenni hlutabréfasj. hf. Auðlind hf. Flugleiðirhf. Hampiðjan hf. Hlutabréfasjóðurinn hf. íslandsbanki hf. Olíufélagið hf. Samvinnusjóður jslands hf. Skagstrendingurhf. Tollvörugeymslan hf. Verslunarbankinnhf. Alþýðubankinn hf. Hf. Eimskipafélag íslands Grandihf. Hlutabréfasjóður VÍB hf. Iðnaðarbankinn hf. íslenski hlutabréfasj. hf. Olíuverslun Islands hf. Sjóvá-Almennarhf. Skeljungurhf. Útgerðarfélag Akureyringa hf. Þróunarfélagið hf. Verið velkomin í afgreiðslu okkar að Suðurlandsbraut 18. VERÐBRÉFflVIÐSKiPTI SAMUINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18 ■ SÍMI 688568 VIDSKIPTI/ATVINNULÍF DAGBÓK Fundir FEBRÚAR ■ AÐALFUNDUR Fjárfest- ingarfélags íslands hf. verður haldinn að Hótel Holiday Inn þriðjudaginn 26. febrúar kl. 16.00. Á dagskrá eru aðalfund- arstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins og tillaga um heimild til aukningar á hlutafé. MARS ■ AÐALFUNDUR Eim- skipafélags íslands verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu fimmtudaginn 7. mars nk. og hefst kl. 14.00. Á dag- skrá eru aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins. Tillaga um útgáfu jöfnuanr- hlutabréf og önnur mál. ■ AÐALFUNDUR Sjóvá- Almetinra verður haldinn 22. mars í Súlnasal Hótels Sögu og hefst kl. 15.00. Lögð verður fram tillaga um breytingar á samþykktum félagsins. } augljós

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.