Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991 Efnahagsmál Viðskiptahallinn tæplega 10 milljarðar króna SVO virðist sem viðskiptahallinn verði upp undir 10 milljarðar króna sem er talsvert meiri halli á viðskiptajöfnuði en talið hafði verið. Þetta kemur frá í nýjustu þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar frá 14. febrúar sl. en þar segir að bráðabirgðatölur um vaxta- og þjónustu- jöfnuð bendi nú til þess að halli á viðskiptajöfnuði fyrir sl. ár verði um 10 milljarðar króna í heild og svari til um 3% af landsframleiðslu. I þjóðhagsspánni frá 20. desember sl. er hins vegar talið að viðskipta- hallinn verði um 7 milljarðar króna á því ári eða um 2,4% af lands- framleiðslu, sem er talsvert lægra hlutfall en gert var ráð fyrir í upphaflegri þjóðhagsáætlun, eða 2,9%. Þarna hafa því orðið veruleg umskipti til hins verra á skömmum tíma. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir reyndar að nú sé komin á daginn villa í Engar hömlur mega vera á við- skiptum hlutabréfa með skráningu í B-hluta. Fjöldi hluthafa þarf að vera a.m.k. 50, eigið fé 15 milljónir og fyrirtækið þarf að hafa starfað í a.m.k. eitt ár. HMARK mun í vikulegum auglýs- ingum í Viðskiptablaði Morgunblaðs- ins birta gengi hlutabréfa í B-skrán- ingu og mun gengið byggjast á til- boðum um kaup eða sölu sem liggja fyrir. Ef slík tilboð eru ekki fyrir mun birtast verð síðustu viðskipta. gögnum Hagstofunnar sem valdi því að viðskipahallinn sé að líkind- um ofmetinn um u.þ.b. 500 milljón- Fyrirtæki sem skráð verða í B- hluta þurfa að láta HMARKI í té ársreikninga um leið og þeir liggja fyrir svo og milliuppgjör þegar þau eru gerð. Það þarf ennfremur að til- kynna HMARKI um öll atriði sem kunna að hafa áfgerandi áhrif á fjár- hag eða markaðsstöðu. Þá er áskilið að fyrirtæki tilkynni um breytingar á hlutafjáreign þeirra hluthafa sem eiga 5% hlutafjár eða meira, svo og viðskipti stjómenda með hlutabréf í fyrirtækinu. ir króna en engu að síður sé niður- staðan talsvert lakari en búist hafi verið við undir lok síðasta árs. Breytinguna megi fyrst og fremst rekja til mjög aukins innflutnings sem komi fram í tölum undir lok ársins og sé að verulegu leyti sérs- taks eðlis, þ.e. annars vegar þotu- kaup Flugleiða og hins vegar veru- leg aukning í innflutningi á vöru- og sendibílum umfram það sem gert hafi verið ráð fyrir og stafi af því að menn hafi verið að nýta sér virðisaukaskattinn til frádráttar fyrir áramótin. Þórður segir einnig ýmsar vísb'endingar vera um heldur meiri veltubreytingar undir lok ársins og atvinnuleysisstigið hafi verið lægra en áætlanir hljóðuðu upp á, svo að á einhveijum tíma hafi gætt heldur meiri bjartsýni heldur en tekið var með í reikninginn. Ekki sé fráleitt að ætla að álvæntingar hafi átt hér hlut að máli en stríðsvindar í upp- hafi þessa árs slóu á þessa þróun, því að Þórður Friðjónsson ekkert í kortunum þessa stundina gefa til- efni til að óttast að þensla og verð- bólga kraumi undir niðri heldur verði þjóðarbúskapurinn að teljast í viðunandi jafnvægi að þessu leyti. Þórður bendir hins vegar á að í síðustu þjóðhagsspánni sé vikið að tveimur þáttum sem ástæða sér til að gefa frekari gaum, þ.e. miklum lántökuáformum hins opinbera á innlendum markaði, sem nánar er vikið að í annarri frétt og hins veg- ar þeirri kyrrstöðu sem ríkir í þjóð- arbúskapnum en nú eru allar horfur á að upp renni fjórða árið í röð án teljandi hagvaxtar. Þórður segir að svo langvinnt samdráttarskeið hafi ekki gengið hér yfir síðustu áratug- ina því að yfirleitt hafa þessar nið- ursveiflur ekki staðið lengur en um tveggja ára skeið. Því er í þjóðhags- spánni áhersla lögð á mikilvægi þess að ijúfa þessa kyrrstöðu til að koma efnahagslífinu á braut hagvaxtar á ný. IHI.Mll Sérrit um * Mand fylg- ir Financ- ial Times DAGBLAÐIÐ Financial Times ætlar að gefa út sérrit um ísland sem fylgja mun blaðinu 16. mars nk. Verður þar fjallað um efna- hagsmál íslendinga, stjórnmál, orku- og ferðamál, atvinnugrein- ar eins og fisk- og áliðnað o.fl. Financial Times er selt víða um heim og er upplag þess að jafnaði rúmlega 300.000 eintök. Er blaðið prentað í Frankfurt, Tókíó, Frakk- landi, New York og Englandi. Að sögn Einars Guðjónssonar umboðsmanns Financial Times á ís- landi hafa ýmsir aðilar eins og bankastofnanir, einstaklingar og ein- staka fyrirtæki sýnt töluverðan áhuga á að fá birtar auglýsingar í blaðinu. Frestur til að skila auglýs- ingum rann hins vegar út sl. þriðju- dag. Áætlað er að sérritið verði a.m.k. ijórar blaðsíður að stærð og verður efni þess unnið af blaðamönn- um Financial Times, sem voru á ferð hér á landi nýlega til aðafla sér éfnis. omRon SJÓÐSVÉLAR Gera meira en að uppfylla kröfur fj ármálar áðuney tisins. Yfir 15 gerðir fyrirliggjandi Verð frá kr. 29.800.- SKRIFSTOFUVÉLAR sund hf NÝBÝLAVEGI 16 • SÍMI 641222 -tækxii og þjónusta á traustum grunni Hlutabréfamarkaður HMARK að hefja B- skráningu hlutabréfa HLUTABRÉFAMARKAÐURINN HMARK tekur á næstunni upp svo- nefnda B-skráningu hlutabréfa. Um er að ræða hlutabréf fyrirtækja sem uppfylla ekki öll skilyrði til þess að HMARK gerist viðskiptavaki. Þessi hlutabréf verða því eingöngu tekin í umboðssölu. Markmiðið er að greiða fyrir viðskiptum með hlutabréf í fyrirtækjum sem t.d. hafa fáa hluthafa, lítið eigið fé eða hafa starfað í skamman tíma. FRAKKLAIMD — Frá stofnfundi Fransk-íslenska verslunar- ráðsins í ágúst 1990. Aðalfundurinn verður haldinn í París í mars nk. Verslun Fransk-íslenska verslunar- ráðið heldur aðalfund íParís AÐALFUNDUR Fransk-íslenska verslunarráðsins, F.Í.V., verður haldinn í Frakklandi 19. mars næstkomandi. Ráðið var stofnað 29. ágúst síðastliðinn með það að markmiði að vinna að eflingu viðskiptatengsla milli landanna tveggja. Verslunarráð í Boulogne- sur-Mer er miðstöð þessara samskipta af hálfu Frakka. íslenski hópurinn fer utan sunnudaginn 17. mars að sögn Árna Reynissonar, framkvæmda- stjóra F.Í.V. Daginn eftir verður farið í skoðunarferðir, m.a. að Ermasundsgöngunum. Þá verður haldinn vinnufundur með félögum ráðsins. Aðalfundur Fransk- íslenska verslunarráðsins fer fram þriðjudaginn 19. mars í Bou- logne-sur-Mer. Þar munu Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis- ráðherra íslands og Jean-Marie Rausch, utanríkisviðskiptaráð- herra Frakklands halda erindi um fransk-íslenskt samstarf á sviði viðskipta. Formaður ráðsins, Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sölusambands íslenskra fiskframleiðanda og Ro- bert Hyzy, viðskiptafulltrúi Frakk- lands á íslandi, munu ræða um viðskipti Frakklands og íslands. Á fundinum verður einnig fjall- að um tæknisamvinnu landanna tveggja og orkumál. Frakkar og íslendingar eiga í vaxandi sam- vinnu innan Evrópu um tækni og vísindi (EUREKA áætlunin) m.a. á sviði hafrannsókna og tækni í sjávarútvegi. Á sviði orkumála verður kynning á möguleikum ís- lendinga, en Frakkar eru mikil- vægir framleiðendur búnaðar til orkuflutninga auk þess sem þeir flytja sjálfir út orku til Bretlands. Þá verða umræður um ferðamál. Að fundi loknum verður gestum boðið til Alberts Guðmundssonar, sendiherra íslands í Frakklandi. Daginn eftir gefst þátttakend- um kostur á að leita nýrra við- skiptasambanda með aðstoð Fransk-íslenska verslunarráðsins. Þessi þáttur verður undirbúinn fyrirfram. Áætluð heimkoma er fimmtudaginn 21. mars. 1. MITSUBISHI Fjöldi 119 % 27.0 2. TOYOTA 94 21.4 3. SUBARU 53 12.0 4. AE-LADA 27 6.1 5. NISSAN 23 5.2 6. HONDA 20 4.5 7. SUZUKI 13 3.0 8. MAZDA 13 3.0 9. CHRYSLER 12 2.7 10. SKODA 10 2.3 Aðrir 57 12.7 Bifreiðainn- flutningur jan ’90 og ’91 - FÓLKSBÍLAR, nýir og notaðir HÓP- VÖRU- og 8ENDIBÍLAR, nýir og notaðir 122 HEILDARBÍLAINNFLUTNINGUR j janúar á þessu ári var 602 miðað við 395 á sama tíma í fyrra. Innfluttir fólksbílar voru að venju stærsti hluti heildarinnar. í síðasta mánuði voru fluttir inn 480 fólksbílar, en í sama mánuði í fyrra voru þeir 308. Innfluttum vörubílum í janúar fækkaði miðað við sarría tíma í fyrra. Þá voru fluttir inn 53 vörubílar, en aðeins 17 í ár. Hins vegar jókst ínnflutningur sendibíla enn. I síðasta mánuði voru fluttir inn 105 sendibílar samanboriö við 34 i fyrra. Mitsubishi var með mesta markaðs- hlutdeild i innflutningi nýrra fólksbíla í janúar, eða 27%. Þar á eftir kom Toyota með 21,4% markaðhlutdeild. Af Subaru voru seldir 53 nýir fólksbílar í mánuðinum sem gaf 12% markaðshlutdeild. Aðrar tegundir náðu ekki 10% af markaðnum. Mitsubishi flutti einnig inn mest af nýjum sendibílum í siðasta mánuði eða 18 sem voru tæp 24% af markaðnum. Toyota og Ford voru hvor um sig með 13,2% markaðshlutdeild og Nissan fylgdi fast á eftir með 11,8%. —........———— t i ' - 'i........... ií ...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.