Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 16
Víterkur og k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill! VIÐSKIPn AIVINNUIIF
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
VICT9R
.. .mest selda tölvan í dag
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
Utanríkisverslun
Fólk
Tækifærissinnar geta ekki
byggt upp útflutning
— segir Björn Guðmundsson viðskiptafulltrúi sem hefur aðsetur í
Kaupmannahöfn og kannar möguleika á auknum útflutningi
SÉRSTAKIR viðskiptafulltrúar
Islands hafa aðsetur í tveimur
löndum, Danmörku og Banda-
ríkjunum. Hlutverk þeirra er að
ýta undir og kanna möguleika á
auknum útflutningi hvers kyns
framleiðslu frá Islandi og er starf-
semi þeirra á vegum samtaka iðn-
aðarins. Annar viðskiptafulltrú-
anna er Björn Guðmundsson og
hefur hann aðsetur í Kaupmanna-
höfn. Auk þess að leita hófanna
í Danmörku hefur hann einnig
þreifað fyrir sér í Færeyjum og
Svíþjóð.
— I þau nærri fjögur ár sem ég
hefi gegnt þessu starfi hef ég oft
rekið mig á að það eru sorglega
margir sem segja að ekki sé hægt
að treysta íslendingum í viðskiptum.
Menn hafa kannski stofnað til við-
skipta af því að þeir vilja til dæmis
fá gæðafisk frá Islandi en eftir fáa
mánuði er allt í einu ekki lengur
hægt að sinna viðskiptunum. Menn
verða að hafa úthald og ákveðna
stefnu. Tækifærissinnar geta ekki
byggt upp útflutning.
Björn segir að þetta eigi sér að
sumu leyti eðlilegar skýringar en að
öðru leyti sé þetta spurning um að
marka sér stefnu, framléiðslustefnu
og að hugsa lengra fram í tímann
en fáa mánuði.
— Stundum er skýringin á snögg-
um endi viðskipta við Island sú að
fyrirtækið hefur orðið gjaldþrota.
Sum íslensku útflutningsfyrirtækin
standa á brauðfótum fjárhagslega.
Þau eru lítil og oft eru menn að
etja kappi hver við annan í stað
þess að snúa bökum saman og heíja
sameiginlega markaðssókn. íslensk-
ur fiskur á í nægri samkeppni við
fisk frá Noregi og Kanada.
SÍF segir Björn dæmi um samtök
margra framleiðenda sem sameinast
•í einn farveg og stunda vöruþróun
og markaðsleit. — Ég held að það
verði að vera takmarkað frelsi í
fiskútflutningi okkar. Stóru samtök-
in standa sig vel og ná bestum ár-
angri þegar til lengdar lætur þrátt
fyrir að einstakir framleiðendur nái
stundum hærra verði. Hins vegar
er þetta ekki bara spurning um verð
á hveijum tíma heldur hvort við ís-
lendingar ætlum að lifa sem sjálf-
stæð þjóð og viðhald atvinnu og
byggð um mest allt landið eða hvort
við ætlum að selja okkur eins og
hverja aðra námuþjóð og selja aðeins
hráefni.
Við hljótum að þurfa að leggja
aðaláherslu á að vinna hráefni okkar
sem mest sjálf. Minnkandi afli kallar
á meiri virðisauka heima fyrir og
að því verður að stefna.
Björn nefnir dæmi um að stór
matvælafyrirtæki á Norðurlöndum
hafi sýnt áhuga á að fá keypt mat-
væli frá íslandi, fulltrúar þeirra hafi
skoðað aðstæður á íslandi, sýnishorn
hafi verið send út og menn verið
ánægðir með þau. Oftar en ekki
hafi erlendu fyrirtækin síðan hætt
við þar sem þau treystu því ekki að
staðið yrði við loforð um magn og
afgreiðslutíma.
— Ætli það þurfi ekki einhvers
konar ungmennafélagsvakningu til
að breyta þessum viðhorfum okkar.
Stjórnendur fyrirtækjanna sem
stunda vilja útflutning þurfa að auka
samvinnu sína og stjórnvöld verða
að skapa þeim ýmis betri skilyrði
en nú eru til að menn geti öruggir
skipulagt starfshætti sína lengra
fram í tímann. Þá held ég að hægt
verði að tefla fram íslenskum út-
flutningsafurðum og ná sterki stöðu
í þeirri hörðu samkeppni sem ríkir
í öllum greinum á heimsmarkaði.
Þá fær slagorðið — íslenskt, veit á
gott — sanna merkingu, segir Björn
Guðmundsson að lokum.
jt
Framkyæmdastjóri
Ágætis
B MATTHÍAS H. Guðmundsson
hefur tekið við stöðu framkvæmda-
stjóra Ágætis hf.
Matthías fæddist
6. maí 1958. Hann
lauk viðskipta-
fræðipróf frá Há-
skóla Islands árið
1983 og varð
starfsmaður í hag-
deild Reykjavík-
urhafnar. Árið
1984 hóf hann störf í Hagdeild
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga. Árið 1985 tók hann við stöðu
skrifstofustjóra Búnaðardeildar
SÍS og árið 1989 varð hann for-
stöðumaður Endurskoðunardeild-
ar. Auk þess var Matthias formað-
ur Tölvustýrinefndar Sambands
íslenskra samvinnufélaga um
skeið. Einnig sinnti hann félagsmál-
um töluvert innan Sambandsins.
Matthías er kvæntur Grétu Kjart-
ansdóttur bankastarfsmanni og
eiga þau tvö börn.
Matthías
Marka ðss tjóri hjá
Útflutningsráði
■ VILHJALM-
UR Guðmunds-
son var ráðinn
markaðsstjóri
matvæla hjá Út-
flutningsráði ís-
lands um áramót-
in sl. Vilhjálmur
lauk stúdentsprófi
frá Verslunar-
skóla íslans 1977 Villijálmur
og útskrifaðist sem viðskiptafræð-
ingur frá HÍ vorið 1985. Hann hef-
ur einnig lokið mastersprófi í alþjóð-
legum viðskiptum frá háskólanum
í Lundi. Vilhjálmur starfaði hjá
Karnabæ hf. til ársins 1985. Árið
1987 var hann ráðinn til Fjárfest-
ingafélagsins, þar sem hann hafði
umsjón með hlutabréfamarkaðnum
og var jafnframt framkvæmdastjóri
Vogalax hf. Áður en hann hóf störf
hjá Útflutningsráði var hann
framkvæmdastjóri Landssam-
bands fiskeldis- og hafbeitar-
stöðva. Sambýliskona Vilhjálms
er Margrét Baldursdóttir og eiga
þau 2 börn.
Breytingar hjá
íslandshanka
MBIRNA Einarsdóttir hefur verið
ráðin útibússtjóri íslandsbanka á
Eiðistorgi, Selt-
jarnarnesi. Birna
er 29 ára gömul
og lauk prófi frá
viðskiptadeild Há-
skóla Islands vo-
rið 1985. Að námi
loknu tók hún við
starfi fram-
kvæmdastjóra ís-
lenskra getrauna
en réðist til Iðnað-
Birna
arbankans í september 1987 sem
forstöðumaður markaðssviðs. í nóv-
ember 1989 tók Birna við starfi
deildarstjóra markaðsdeildar
Stöðvar 2 þar sem hún hefur starf-
að síðan.
MKRISTÍN Guð-
mundsdóttir hef-
ur verið ráðin for-
stöðumaður reikn-
ingshalds og áætl-
anadeildar ís-
landsbanka. Hún
er viðskiptafræð-
ingur að mennt og
lauk prófi frá Há-
skóla íslands árið
1980. Kristín hóf störf hjá Iðnaðar-
bankanum árið 1979 og gegndi
m.a. stöðu fulltrúa útibússtjóra í
útibúinu við Háaleitisbraut. Á ár-
unum 1980-1985 starfaði hún sem
innri endurskoðandi Iðnaðarbank-
ans en tók að því loknu við stöðu
forstöðumanns fjármálasviðs bank-
ans. Frá stofnun Islandsbanka
hefur Kristín gegnt stöðu forstöðu-
manns reikningshalds bankans en
nýverið var sú deild sameinuð áætl-
anadeild. Kristín er gift Ólafi Jóns-
syni, upplýsingafulltrúa
Reykjavíkurborgar og eiga þau
tvö börn.
Kristín
Sjálfstæðari Seðlabanka
VALUR Valsson, bankastjóri og
formaður Sambands íslenskra við-
skiptabanka, vék að því á .upplýs-
ingafundi með fjölmiðlafólki á dög-
unum að bankamenn væru ugg-
andi yfir fréttum af því að í athug-
un sé að færa Seðlabankann til í
stjórnkerfinu og þá úr viðskipta-
ráðuneyti í forsætisráðuneyti. Val-
ur var hér að vísa til starfa svokall-
aðrar stjórnarráðsnefndar Alþingis
sem er milliþinganefnd og var falið
það verkefni að gera tillögur um
breytingu á Stjórnarráði íslands
með það fyrir augum að gera starf-
semi þess markvissari, m.a. með
fækkun ráðuneyta og stofnana
þess og tilfærslu verkefna.
Nefndin hefur nú skilað áliti sem
er til meðferðar hjá þingflokkunum
og ríkisstjórn. Og mikið rétt hjá
Vali Valssyni — ein af tillögum
nefndarinnar hnígur í þá átt að
Seðlabankinn verði fluttur af vald-
sviði viðskiptaráðuneytis til for-
sætisráðuneytisins. Þetta eru ugg-
vænleg tíðindi en það má hins
vegar vera bankamönnum nokkur
huggun að harla lítil eining er um
þessa tillögu meðal stjórnarliða í
stjórnarráðsnefnd. Hún virðist
fyrst og fremst eiga upp á pall-
borðið hjá framsóknarmönnum.
Alþýðuflokksmenn hafa hins
vegar mikinn fyrirvara á þessu at-
riði í áliti stjórnarráðsnefndar og
telja Seðlabankann best kominn
þar sem hann er nú, þ.e. hjá við-
skiptaráðuneytinu. Það er einnig
athyglisvert að á sama tíma og
álit stjórnarskrárnefndar er til at-
hugunar hjá ríkisstjórn og þing-
flokkum er að hefjast í viðskipta-
ráðuneyti endurskoðun á lögum
Seðlabankans í samræmi við sam-
þykkt ríkisstjórnar sem gerð var
er gengið var frá skipun Birgis
Isleifs Gunnarssonar í stöðu seðla-
bankastjóra.
Alþýðubandalagsmenn halda
svo fram þriðja sjónarmiðinu — því
að eðlilegasf s.é að Seðlaþ^nkinn,
heyri undir fjármálaráðuneytið.
Rökin sem væntanlega eru not-
uð fyrir því að fella Seðlabankann
undir forsætisráðuneytið eru
áreiðanlega þau, að hér á landi
hafi mál skipast þannig að forsæt-
isráðuneytið hefur þróast út í ein-
hvers konar efnahagsmálaráðu-
neyti þótt það eigi eðli málsins
samkvæmt ekki að teljast fagráðu-
neyti. Þetta er þó á engan hátt
eðlilegt ef betur er að gáð. Reynsl-
an annars staðar af Vesturlöndum
sýnir ótvírætt að traustustu efna-
hagsstjórnina er að finna þar sem
seðlabankarnir eru sjálfstæðastir
og meira og minna einráðir um
stjórn peningamála meðan ríkis-
stjórnum og þá fyrst og fremstfjár-
málaráðuneytum viðkomandi
landa er ætlað að hafa skikk á ríkis-
fjármálunum. Það má engu að
síður færa fyrir því viss rök líkt og
alþýðubandalagsmenn gera að
eðlilegt geti verið að fella Seðla-
bankann uncjir fjárrriálaráðupeyþ^,,
enda þekkist slíkt allvíða og helg-
ast af því að náin samráð þurfa
að vera milli stjórnar á ríkisfjármál-
um og peningamálum.
Það er þó áreiðanlega heilla-
vænlegast að Seðlabankinn haldi
áfram að heyra undir það fagráðu-
neytið sem fer með málefni pen-
ingamarkaðarins og fjármálastofn-
ana að öðru leyti. í þeirri endur-
skoðun sem er að hefjast innan
viðskiptaráðuneytisins á seðla-
bankalögunum ættu menn því að
stíga skrefið til fulls, veita Seðla-
bankanum sjálfstæði og verkefni á
borð við það sem gerist t.d. hjá
seðlabönkunum í Þýskalandi og
Bandaríkjunum. í þessum löndum
og reyndar víðast hvar annars
staðar í hinum þróaðri hagkerfum
eru það seðlabankarnir en ekki við-
skiptabankarnir sem gefa tóninn
varðandi almennar vaxtaákvarðan-
ir með forvöxtum sínum og fjár-
magnsmarkaðurinn fylgir í kjölfar-
ið. p.ejttá ,eru þjnp.yeg^r; e,kki ,beifiM
fyrirmæli eða tilskipun miðstýrðs
stjórnvalds heldur ábending fag-
legrar stofnunar sem fjármagns-
markaðurinn virðir og tekur mark
á með þessum hætti. Á þennan
hátt verða vextir að áhrifaríku hag-
stjórnartæki sem seðlabankarnir
beita gegn verðbólgu — fari hún
vaxandi hækka þeir vextina en
lækka þá að sama skapi ef sam-
dráttur er í efnahagslífinu með það
fyrir augum að auka fjárfestinguna.
Á þetta hlutverk seðlabanka
hefur skort hér á landi og nú er lag
að breyta því með þeirri endur-
skoðun sem er að hefjast í við-
skiptaráðuneytinu á seðlabanka-
lögunum. Og undir öllum kringum-
stæðum verður Alþingi að koma í
veg fyrir að Seðlabankinn verði
gerður að hreinni málpípu og
handbendi ríkisvaldsins eins og
greinilega er ætlunin með þeim
áformum að færa Seðlabankann
undir forsætisráðuneytið.
- H j i t : I 1 - I ( I • ‘, f : -BVS' ’ • 1