Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 21. FEBRUAR 1991 B 11 ROLEGT - í kjölfar Persaflóastríðsins hefur farþegum innan Evrópubandalagsins fækkað um þriðjung og eru margar flugstöðvar hálf tómar. Flugrekstur Eastern Airlines í gjaldþrotaskiptum New York, Reuter Bandaríska flugfélagið Eastern Airlines hefur fengið samþykki skiptaréttar fyrir sölu flugvéla, lendingarleyfa, brottfararhliða og annarra eigna félagsins. Að lokinni skiptameðferð verður þetta 65 ára gamla flugfélag lagt niður. Eignir Eastern voru boðnar út í misstórum einingum og seldar hæstbjóðendum. Nokkur af stærstu flugfélögum Bandaríkjanna skiptu á milli sín eignunum. Til dæmis keypti Northwest Airlines áðstöðu og lendingarleyfi Eastern á flugvell- inum í Washington. United Airlines átti þó upphaflega hæsta tilboðið en dómsmálaráðuneytið tilkynnti að komið yrði í veg fyrir kaupin á grundvelli laga um hringamyndun. Talið var að frekari umsvif United Áirlines í Washington myndu draga úr samkeppni. Continental Airlines yfirtók hluta af skuldum Eastern í skiptum fyrir sex Airbus A300 breiðþotur og lendingarleyfi á La- Guardia flugvelli í New York. Þá keypti Delta Air Lines tíu Lockheed L-1011 breiðþotur ásamt varahlut- um. Danmörk Persaflóastríðið, efnahagserfið- leikar í Sovétríkjunum, sameining þýsku ríkjanna og óttinn við sam- drátt í Bandaríkjunum hafa haft mikil áhrif á verðbréfaviðskipti en Jörgen Pagh segir, að óvissan sé óaðskiljanlegur hluti af íjármála- markaðnum. Það sé líka þannig með mikla atburði, að samtímis því að loka einum dyrum opni þeir Flugrekstur Evrópubandalagið bjargar flugfélögum Brussel, Reuter Framkvæmdanefnd Evrópubandalagsins hefur nú til lokaumfjöllunar tillögur um tímabundna aðstoð við flugfélög sem orðið hafa fyrir Ijóni af völdum Persaflóastríðsins. Tillögurnar fela öðru fremur í sér að vikið verður frá ýmsum reglum sem eiga að tryggja sam- keppni í flugrekstri. Að þremur mánuðum liðnum er ætlunin að snúa aftur inn á braut frjálsræðis í samræmi við áætlun um innri markað Evrópubandalagsins 1992. W m Persaflóastríðið hefur leitt til þess að flugfarþegum í löndum Evrópubandalagsins hefur fækkað um tæplega þriðjung. Verði tillög- urnar samþykktar getur Fram- kvæmdanefndin heimilað flugfélög- um að hafa samráð um að minnka sætaframboð á flugleiðum þar sem farþegum hefur fækkað. Slíkt sam- ráð er ólöglegt samkvæmt skráðum reglum bandalagsins. Flugfélög munu einnig halda flugleyfum þótt þau felli niður flug á tímabilinu. Framkvæmdanefndin mun hraða afgreiðslu hækkunarbeiðna flugfé- laga. Hingað til hefur Fram- kvæmdanefndin haft tvo mánuði til að fjalla um hækkunarbeiðnir. Á sama tíma verður lagt að ríkis- stjórnum að fresta innheimtu helm- ings loftferðagjalda um allt að tvö ár. Einnig verður ríkisstjórnum leyft að aðstoða flugfélög við að mæta stórauknum tryggingar- kostnaði. Ríkisstyrkur má þó ekki vera meiri en nemur kostnaðarauka vegna Persaflóastríðsins. Fram- kvæmdanefndin leggur til að virðis- aukaskattur af flugrekstri verði ekki hærri en 9% á tímabilinu. syningar eru okkar fag Eigum gistingu ó IGEDO fatasýninguna i Dusseldorf 10.-13. mars n.k. en hún er ein stærsta sýning sinnar tegundar i heiminum. HlflHIISlÐflH mm -VIÐSKIPTAÞJONUSTA Austurstræti 17 Símar 622011 & 622200 Rétti tíminn til hlutabréfakaupa BOTNINUM er náð og nú er rétti tíminn til að festa fé í hlutabréf- um. Er þetta boðskapurinn í bréfi, sem Jörgen Pagh, frammámaður í danska fjárfestingarfyrirtækinu Rolemu, hefur sent viðskiptavinum sínum og hann fullyrðir, að oft sé best að fjárfesta þegar útlitið er sem dekkst. gjarna aðrar. Segir Pagh, að hluta- bréfaverð sé nú svo lágt, að fjárfest- endur með framtíðarhagsmuni í huga geti gert mjög góð kaup. Rolemu annast jafnt erlend sem innlend verðbréfaviðskipti og er það danskra fjármálafyrirtækja, sem bestum árangri skilaði á árunum 1985-90. Tilkynning um útgáfu markaösveröbréfa: HÚSBRÉF 1. flokkur 1991 Kr. 5.000.000.000,- — Krónur fimmmilljarðar 00/100. Útgefandi: Byggingasjóður ríkisins, húsbréfadeild Útgáfudagur: 15. janúar 1991 Vextir: 6% Lokagjalddagi: 15. janúar 2016 Einingar bréfa: 10.000,100.000,1.000.000 Umsjón með útgáfu: Landsbréf hf. - v- .. , IH m < tn O LANDSBRÉP H.li Landsbankinn stendur með okkur Suöurlandsbraut 24,108 Reykjavik, sími 91-679200 Löggill veröbréfafyrirtæki. Aðili að Veröbréfaþingi Islands. Skrifstofustóllinn sem flestir íslendingar kjósa að sitja á. é R íróstóllinn styður við bakið og eykur vellíðan og af- köst með því að halda líkaman- um í réttum vinnustellingum. Velja má um 15 gerðir. Áklæði, sem kaupandi velur sérstak- lega, er mjög vandað og fæst í fjölbreyttu litaúrvali. Iðni.rknisiolmm hHur prniað Biro skrilMolustóla Irá Birii-Steinari h.l. Biró skril- stoluMólar standast i óllum tilvikum hámarkskrólur htis- Ifagna- og innrétlingaprólana. Idntœknistotnun Isiands b í r ó s t e i n a r SMIOJUuJBi E • 200 KÓPAVOGI • 8ÍMI 4S600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.