Morgunblaðið - 20.04.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRIL'1991
11-19.00 og þriðjudaga til föstu-
daga, klukkan 15.-19.00. Þar er útl-
ánsdeild, auk þess sem þar er sögu-
stund fyrir böm einu sinni í viku.
Bústaðasafn og bókabílar hafa
sínar bækistöðvar í Bústaðakirkju
og er opið mánudaga til fimmtu-
daga, klukkan 9-21, föstudaga,
klukkan 9-19 og laugardaga, ktukk-
an 13-16. Þar er útlánsdeild og bæki-
stöð bókabíla. Sögustund fyrir börn
er þar einu sinni í viku. Bústaðaúti-
búið er lokað á laugardögum frá 1.
maí til 1. september.
Sólheimasafnið tilheyrir reyndar
ekki Reykjavíkurborg lengur, en það
er til húsa í Sólheimum 27 og er
opið mánudaga til fimmtudaga,
klukkan 9-21, föstudaga, klukkan
9-19 og laugardaga, klukkan 13-16,
nema frá 1. maí til 1. september,
þá er lokað á laugardögum. í Sól-
heimasafninu er útlánsdeild, auk
þess sem þar er sögustund fyrir böm
einu sinni í viku. Þar að auki býður
safnið upp á heimsendingarþjónustu
við fatlaða og aldraða.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi er
opið mánudaga til fímmtudaga,
klukkan 9- 21, föstudaga, klukkan
9-19 og laugardaga, klukkan 13-16.
Þar er útlánsdeild og tónlistardeild,
auk þess sem boðið er upp á sögu-
stund fyrir börn einu sinni í viku.
Eins og önnur bókasöfn borgarinnar,
er safnið í Gerðubergi lokað á laugar-
dögum, frá 1. maí til 1. september.
Sögustundimar eru mjög mark-
visst unnar og má nefna sem dæmi
að núna í apríl em lesnar bækur sem
fjalla æum listsköpun af ýmsu tagi,
vegna Listahátíðar æskunnar. Dag-
skrá sögustunda í Bústaðabókasafni
hefur því verið með eftirfarandi
hætti: Þann 3. apríl var lesin sagan
Fuglinn sem ekki vildi syngja, úr
„Berin á lynginu" og „Kuggur, Mosi
og mæðgurnar," eftir Sigrúnu Eld-
járn. Þann 10. apríl var þýtt efni;
„í sjónvarpinu," eftir Kunnas,
„Hljómsveitin fljúgandi," eftir Löf-
gren og „Stína snjalla og Snati, I,“
eftir Hayton. Þann 17. apríl var les-
in bók Herdísar Egilsdóttur um
Pappírs-Pésa og sagt var frá fólki
og ræningjum í Kardemommubæ,
eftir Egner. Þann 24. apríl, meðan
á listahátíðinni stendur, verður lesin
sagan „Bétveir bétveir," eftir Sigr-
únu Eldjárn„,Tumi bregður á leik,“
eftir Wolde. Þá verður sýnt mynd-
band sem ber heitið „Jurtin,“ og leik-
in verður snælda með „Pétri og úlfin-
um,“ eftir Prokofjev. Auk þess kem-
ur Sigrún Eldjárn í heimsókn, mánu-
daginn 22. apríl, klukkan 10.00,
kemur Sigrún Eldjárn og les úr verk-
um sínum. ssv
Borgarbókasafn Reykjavikur hefur ýmislegt upp á að bjóða, fyrir
yngstu börnin, meðan á Listahátíð æskunnar stendur. Mánudaginn 22.
apríl, klukkan 10.30, kemur Sigrún Eldjárn i heimsókn í Bústaðabóka-
safn, les upp úr verkum sínum og ræðir við krakkana. Klukkan 11.00
verður dagskrá um blindraletur í Sólheimabókasafninu og klukkan
14.00 verður Sigrún Eldjárn í Grandasafni. í bókasafninu í Gerðubergi
verður svo brúðuleikhúsið „Dúkkukerran", með sýningu, klukkan 14.00.
Þriðjudaginn 23. apríl klukkan 14.00 verður dagskrá um blindraletur
í bókasafninu í Gerðubergi. Miðvikudaginn, 24. apríl, klukkan 10.00,
er sögustund i Bústaðabókasafni, einnig í Sólheimabókasafni og bóka-
safninu í Gerðubergi — og klukkan 14.00 í Grandasafni. I sögustundun-
um verður lesið efni sem tengist listum. Eftir lesturinn verður teikn-
að, litað og málað. A bókasöfnunum verður jafnframt sýning á verkum
barna, sem hafa verið unnin í sögustundum.
rdís Þorvaldsdóttir er borgar-
bókavörður ög aðspurð um
þátttöku safnsins í Listahátíð
æskunnar, sagði hún: „Reykjavíkur-
borg er annar þeirra aðila sem standa
að hátíðinni og þar komum við inn
í dagskrána. Það sem við leggjum
af mörkum eru í rauninni okkar venj-
ulegu dagskrár, aðeins framlengd-
færanlegt frá ári til árs. Meðan á
Listahátíð æskunnar stendur, eru
sögustundirnar yfirleitt frá klukkan
tíu til ellefu á morgnana og svo
ýmislegt aukreitis eftir hádegi.
En það er ekki bara verið að lesa,
heldur eru börnin alltaf að teikna eða
búa til ýmsa hluti. Oft er það tengt
efninu sem verið er að lesa, en stund-
Rætt við Þðrdísi Þor-
valdsdóttur
borgarbókavðrð
um er það eitthvað allt annað, jafn-
vel veðrið. Svo þarf fólk ekki endi-
lega að mæta í auglýstar sögustund-
ir, því dagmæður og fóstrur geta
hringt og pantað sögustund. Við er-
um líka með skipulagðar kynningar-
dagskrár á söfnunum fyrir böm úr
grunnskólum, en það hefur komið í
ljós að fullorðið fólk sækir ekkert
síður í þær kynningar og hver sem
er getur beðið um þær.“
Borgarbókasafnið teygir anga sína
víða um borgina. Aðalsafnið er í
Þingholtsstræti 29a, og er opið
mánudaga til fímmtudaga, klukkan
9-21, föstudaga, klukkan 9-19, laug-
ardaga klukkan 13-16. Frá 1. maí
til 1. september er aðalsafnið lokað
á laugardögum. í aðalsafninu eru
útlánsdeild og lestrarsalur, auk þess
sem þar er sögustund fyrir bömin
einu sinni í viku. Lestrarsalurinn er
lokaður í júní, júlí og ágúst.
Grandaútibú er við Grandaveg 47
og er opið mánudaga, klukkan
Morgunblaðið/KGA
BJOÐUM UPP A
SÖGUSTUNDIR,
UPPLESTUR OG BRÚÐULEIKHÚS
Börn ó dag-
vistarheim-
ilinu Valhöll
við undirbún-
ing Listahó-
tíðarinnar.
ar.
u
Fyrir hvaða aldurshóp em sögu-
stundimar?
„Þessar almennu sögustundir eru
fyrst og fremst fyrir böm á aldrinum
fjögurra til sjö ára. Það er lesið fyr-
ir þau og föndrað með þeim, auk
þess sem lesin er fyrir þau saga.
Stærri krakkar, sem eru sjálfír fam-
ir að lesa, koma bara sjálf. Tilgang-
urinn er fyrst og fremst að lesa fyr-
ir litlu krakkana sem geta bara skoð-
að myndirnar. Síðan er spjallað við
þau og reynt að skýra textann. Hver
sögustund er rúmur klukkutími."
Hvaða börn koma helst?
„Það eru fyrst og fremst krakkar
úr hverfunum, auk þess sem fóstrur
og dagmæður koma með börn sem
era í dagvistun. Þetta er mjög vin-
sælt og á hveiju ári koma um 2.000
börn í sögustundir safnsins. í hvetju
útibúi er einn bókasafnsvörður sem
sér um sögustundimar og það er
mjög mikil vinna við þær, því það
þarf að leita að rétta efninu og oft
þarf að þýða það. Við höfum fengið
skuggamyndir erlendis frá, sem þarf
að fara í gégnum og velja úr, auk
bóka. Stundum bjóðum við rithöfund-
um að koma og lesa upp úr bókum
sínum og spjalla við börnin og á
hveiju ári er brúðuleikhús á einhveij-
um af þessum stöðum. Brúðuleikhú-
sið og höfundarnir eru það eina sem
er út fyrir það sem safnið gerir
sjálft."
Á hvaða tíma eru sögustundimar?
„Þær eru venjulega á milli klukkan
tvö og þijú á daginn, en það er þó
BÖRN EIGA RÉTT
í Nýja tónlistarskólanum hafa fjórir krakkar stundað strangar æfingar
upp á síðkastið — þar sem þau munu flytja Tríósónötu eftir Corelli, á
hátíðardagskránni í Borgarleikhúsinu í dag. Þetta eru þau Níels Rúnar
Gíslason, 11 ára nemi í fiðluleik, Guðrún Jónsdóttir, 11 ára, sem einn-
ig lærir á fiðlu, Sólveig Gísladóttir, 14 ára sellónemi og Pétur Snæ-
björnsson, 14 ára nemi í píanólcik.
Rrakkarnir eru mislangt komnir
í námi; Níels er á 2. stigi, Guð-
rún á 3. stigi, Sólveig á 4. stigi
og Pétur á 5. stigi og öll ljúka þau
þessum stigum í vor. Hópurinn hefur
leikið saman áður, bæði í dúettum
og tríóum og Pétur hefur verið undir-
leikari hjá öllum strengjunum. En
hvers vegna hafa þau valið sér þessi
hljóðfæri?
Níels: „Mamma valdi mitt — og
ég er alveg ánægður með það. Ef
ég ætti að velja sjálfur, mundi ég
vilja læra á gítar. En ég mundi ekki
vilja sleppa fiðlunni, heldur halda
áfram að læra á hana líka.“
Guðrún: „Ég var í forskóla og
kennarinn benti mér á fiðluna. í for-
skólanum sungum við líka með „Litlu
strengjasveitinni," á vortónleikum,
svo ég kynntist fiðlunni aðeins þar
og er mjög ánægð með hana.“ Sól-
veig: „Ég var í forskóla úti í Þýska-
landi og í lok skólaársins kom kenn-
arinn rneð nokkur hljóðfæri til að
sýna okkur. Mér fannst sellóið
áhugaverðast og valdi það.“
Pétur: „Það hefur alltaf verið til
píanó heima hjá mér. Bróðir minn
lærði á það og mig langaði alltaf til
að læra líka.“
Þegar þau era spurð, hversu lengi
þau æfa sig á degi hveijum, segjast
fiðlurnar alltaf reyna að æfa sig í
hálfa klukkustund á dag, sellóið eitt-
hvað aðeins lengur, en Pétur segir
píanóið ganga dálítið fyrir öðru: „Ég
æfi mig alltaf áður en ég fer að
læra — og aftur þegar ég er búinn
að læra.“ Auk þess að vera í eink-
atíma tvisvar í viku, era krakkarnir
í tímum í tónheyrn og ýmist í tón-
fræði eða hljómfræði — og strengja-
leikararnir æfa einnig með strengja-
sveit skólans."
En hvað finnst þeim um að halda
sérstaka Listahátíð æskunnar?
„Börn eiga rétt á henni.“ svarar
Guðrún. Þau hin taka undir það:
„Það er margt áhugavert á dagskrá
á hátíðinni og það er mjög gaman
að fá að taka þátt í hátíðardag-
A ÞESSARI HATIÐ
Níels, Guðrún, Sólveig og Pétur. M°nÞ>»N»WKGA
Rætt við tjóra tönlist-
arnema sem leika á
hátíðardagskránnií
Borgarleikhúsi
skránni. Og maður reynir að komast
yfir að sjá eins mikið og maður get-
ur.“ Hinsvegar er tími fjórmenning-
anna takmarkaður, því þau koma
víða fram meðan á hátíðinni stend-
ur, meðal annars með strengjasveit
allra tónlistarskólanna í Reykjavík,
á tónleikum í Bústaðakirkju, laugar-
daginn, 27. apríl, og það er ljóst að
mikill tími fer í æfíngar alla næstu