Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 2
ieer íam .e auoAauiMMi'í 1ÍJIIWHIVTA\IT11H2QIV GiGAuanuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991
2 C
Fundur
Einkavæð-
ing aðal-
mál á aðal-
fundi VSÍ
DR. Madsen Pirie, formaður
Adam Smith stofnunarinnar í
London verður sérstakur gestur
á aðalfundi Vinnuveitendasam-
bands íslands þriðjudaginn 14.
maí nk. Þessi stofnun hefur um
árabil verið helstra uppspretta
hugmynda um einkavæðingu
ríkisfyrirtækja sem bresk stjórn-
völd hafa verið að hrinda í fram-
kvæmd. Verður einkavæðing
sérstaklega til umfjöllunar á
fundinum og munu þeir Siguður
B. Stefánsson,, framkvæmda-
stjóri VÍB, Kristinn Björnsson,
forstjóri Skeljungs og Páll Kr.
Pálsson, framkvæmdasljóri Iðn-
tæknistofnunar, einnig leggja
þar orð í belg.
Gestur fundarins Dr. Pirie hefur
verið ráðgjafi ríkisstjómar Bret-
lands á sviði einkavæðingar og ha-
græðingar í opinberum rekstri og
GESTUR —- Dr. Madsen
Pirie frá Adam Smith hagfræði-
stofnuninni í London er sérstak-
ur gestur fundarins.
farið víða um heim til að kynna
þessa málefni. Hann er höfundur
bókanna Micropolitics og Privatiz-
ation en auk þess ritað fjölda greina
um betrum bætur á starfsemi hins
opinbera.
A aðalfundinum mun Einar Odd:
ur Kristjánsson, formaður VSÍ
flytja ræða og Davíð Odsson, for-
sætirsráðherra, ávarpar fundinn en
undir lokin verða pallborðsumræður
með forystumönnum stjórnmála-
flokkanna sem Víglundur Þor-
steinsson stýrir.
Fyrirtæki
Hagnaður Kaupfélags
Héraðsbúa um 65 milljónir
HAGNAÐUR Kaupfélags Hér-
aðsbúa varð alls um 65 milljónir
á síðastliðnu ári samanborið við
tæplega 50 milljóna tap árið áð-
ur. Eru þessi umskipti í rekstrin-
um rakin til hagstæðari ytri skil-
yrða en fjármagnskostnaður
lækkaði til verulega frá árinu
1989. Rekstrartekjur námu rétt
rúmum tveimur milljörðum á
árinu og vegur þar þyngst vöru-
sala verslunar sem nam um 832
milljónum. Sala landbúnaðaraf-
urða nam 642 milljónum og sala
sjávarafurða 330,4 milljónum.
Kaupfélag Héraðsbúa starfrækir
verslanir á Reyðarfirði, Egilsstöð-
um, Seyðisfirði og Borgarfirði
eystra. Afkoma þeirra var almennt
nokkru betri á síðasta ári en árið
1989 að því er fram kemur í árs-
skýrslu félagsins. Þakka stjórnend-
ur félagsins það stöðugu verðlagi
og hagræðingu í rekstri.
Frystihús kaupfélagsins á Reyð-
arfirði og Borgarfirði nutu betri
rekstrarskilyrða í sjávarútvegi á
síðastliðnu ári. Hjá frystihúsinu á
HMARK
HLUTABRÉFAMARKAÐURINN HF
G E N G I
HLUTABRÉFA
HMARKS vísitalan:
772^9%
frá
ára-
mótum
Útboð hluta-
bréfa ó órinu
4 milljarðar?
A aðalfundum nokkurra almenningshlutafélaga hefur verið
samþykkt heimild til stjórnar viðkomandi félags til sölu nýrra
hlutabréfa. Flugleiðir hafa samþykkt heimild til sölu 400 m.kr. að
nafnverði, íslandsbanki 1.500 m.kr., Eignarh.fél. Alaþýðubankans
400 m.kr., Hampiðjan 30 m.kr., Skeljungur 50 m.kr., Olíufélagið 50
m.kr., Skag'strendingur 50 m.kr., ÚA 50 m.kr. og Haraldur
Böðvarsson hf. 60 m.kr. Söluverðmæti allra þessara hlutabréfa
miðað við skráð gengi þeirra í dag er um 4.000 m.kr. Þess skal þó
getið að ekki er víst að hlutabréfin verði öll seld á þessu ári.
GENGI HLUTABRÉFA 1 KAUP- I SÖLU- I BREYTING IJÖFNUN I ARÐUR I SÖLUGENGI I V/H I ARÐUR
1 GENGI I GENGI I FRÁÁRAIVI. I 1991 I 1991 IINNRA VIRÐI I HLUTF. Imarkaðsv.
■ Ármannsfell hf 2,35 2,45 0,0%
□ Hf. Eimskipafélag Islands 5,45 5,67 9,2% 10,0% 15,0% 149% 17,00 2,45%
□ Flugleiðir hf 2,30 2,39 7,9% 10,0% 10,0% 107% 11,15 3,67%
□ Hampiðjan hf 1,72 1,80 4,4% 0,0% 8,0% 98% 13,22 4,26%
1 Hlutabréfasjóður VÍB hf 1,00 1,05 5,0%
■ Hlutabréfasjóðurinn hf 1,58 1,66 5,8% 10,0% 12,0% 115% 8,67 6,12%
□ islandsbanki hf 1,55 1,60 18,9% 0,0% 10,0% 116% 10,29 5,98%
□ Eignarh.fél. Alþýöub. hf 1,62 1,70 35,9% 10,0% 10,0% 109% 4,76 6,49%
□ Eignarh.fél. lönaöarb. hf 2,32 2,40 32,3% 9,4% 10,0% 109% 6,97 4,65%
□ Eignarh.fél. Versl.b. hf 1,73 1,80 32,9% 16,6% 10,0% 108% 8,05 6,99%
□ Grandi hf 2,48 2,58 15,7% 0,0% 8,0% 165% 11,52 3,10%
□ Olíufélagið hf 5,45 5,70 11,0% 20,0% 15,0% 101% 16,55 2,27%
ö Oliuverslun islands hf 2,15 2,25 11,9% 0,0% 10,0% 100% 15,83 4,26%
□ Sjóvá - Almennar hf 6,10 6,40 3,8% 10,0% 10,0% 325% 55,20 1,40%
□ Skagstrendingur hf 4,00 4,20 13,6% 10,0% 15,0% 105% 4,47 3,26%
□ Skeljungur hf 5,77 6,00 0,7% 10,0% 15,0% 117% 32,24 2,24%
□ Sæplast hf 6,95 7,25 -Nýtt- 10,0% 15,0% 174% 5,57 2,01%
□ Tollvörugeymslan hf 1,00 1,05 8,5% 10,0% 6,0% 88% 50,41 5,21%
□ Útgerðarfélag Akureyringa hf 3,82 4,00 25,0% 10,0% 10,0% 144% 10,20 2,27%
TILBOÐSSKRÁNING KAUP- I SÖLU- I SÍÐUSTU I JÖFNUN I ARÐUR I SÖLUGENGI I V/H I ARÐUR
TILB0Ð | TILB0D | VIÐSKIPTI | 1991 | 1991 | INNRA VIRÐI | HLUTF. | MARKAÐSV.
□ Faxamarkaðurinn hf 2,25 1,70 127% 6,2
■ Máttur hf 1,03 1,00 0,0% 0,0% 189%
Merklr að hlutabréf í fyrirtækinu eru nú fáanleg hjá HMARKI.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, Reykjavlk, Slmi: 68 15 30.
HMARK-algreiðsla, Skólavörðustíg 12. Reykjavík, Sími: 2 16 77.
118
Reyðarfirði voru rekstrartekjur um
273 milljónir og jukust um 16,2%.
Hagnaður sem hlutfall af tekjum
jókst úr 0,2% í 7,4%. Keypt voru
3.104 tonn af hráefni sem er 7,9%
aukning í heildarmagni en þar af
var bolfiskur 1.484 tonn og síld
1.432 tonn. Stjórnendur frystihúss-
ins segja ljóst að mun meira hrá-
efni þurfi til hússins þar sem það
geti annað mun meira magni en
þangað berst.
Tekjur frystihússins á Borgar-
firði námu alls rúmum 57 milljónum
króna og lækkuðu um 6,3% fr'aár-
inu áður. Afkoma frystihússins hef-
ur ekki verið betri en áður sem
skýrist af auknu aðhaldi í rekstri
og hagstæðum rekstrarskilyrðum.
Á hinn bóginn hefur hráefni hússins
farið minnkandi og er talin hætta
á að rekstrargrundvöllur versni ef
hráefni eykst ekki.
Rekstrartekjur vegna sölu land-
búnaðarafurða annarra en mjólkur
námu 388,6 milljónum á árinu og
drógust saman um 28,2 milljónir.
Sauðfé hefur fækkað á félagssvæði
kaupfélagsins vegna niðurskurðar
af völdum riðu en einnig hefur naut-
gripum fækkað. Þannig var slátrað
alls 33.965 dilkum og 762 nautgrip-
um. Mjólkusamlagið skilaði betri
afkomu í fyrra en áður sem rakið
er til lækkunar vaxta og hagstæð-
ari verðlagningar á kaseini. Tók
samlagið á móti rúmum 3 milljónum
lítra af mjólk sem er um 9% aukn-
ing.
Yfirlit yfir sjóðsstreymi sýnir
glögglega þann bata sem varð í
rekstri félagsins á síðastliðnu ári.
Handbært fr'a rekstri nam alls um
143,1 milljón samanborið við 41,8
milljón frá árinu áður.
Heildareignir kaupfélagsins
námu alls um 1.435,4 milljónum í
árslok. Eigið fé var 317,8 milljónir
og hafði aukist úr 216,6 milljónum
frá árinu áður. Eiginfjárhlutfall var
22,1%.
iHmHma
Valur áfram
formaður
VALUR Valsson mun gegna
áfram formennsku í banka-
stjórn íslandsbanka sam-
kvæmt ákvörðun bankaráðs-
ins nýverið.
Jafnframt var ákveðið að
ekki yrðu gerðar breytingar á
annarri verkaskiptingu banka-
stjóra og framkvæmdastjóra.
Þegar bankaráðið réði banka-
stjóra og framkvæmdastjóra til
starfa haustið 1989 var ákveðið
að Valur skyldi gegna for-
mennsku í bankastjórninni og
skyldi sú skipan haldast til að-
alfundar 1991.
Fyrirtæki
Tímamóthjá Steinull-
arverksmiðjunni
Hagnaður upp á 47,8 milljónir
m
■
REKSTUR Steinullarverksmiðj-
unnar hf. á Sauðárkróki gekk vel
á síðasta ári og skilaði hagnaði í
fyrsta skipti í sögu félagsins, en
aðalfundur félagsins var haldinn
sl. þriðjudag. Hagnaður eftir af-
skriftir og fjármagnskostnað var
47,8 milljónir króna. Eigið fé
Steinullarverksmiðjunnar í árslok
1990 var skv efnahagsreikningi
231,1 milljón og jókst úr 172,8
milljónum frá fyrra ári.
Kaupskip
Gláma hætt-
ir áætlunar-
siglingum
SKIPAFÉLAGIÐ Gláma hefur
auglýst að það sé hætt áætlunar-
siglingum. Að sögn Björns Har-
aldssonar, framkvæmdasljóra, er
ástæðan einfaldlega sú að þessar
siglingar hafa ekki reynst arð-
bærar, og er nú verið að leita
nýrra verkefna fyrir Jarlinn, sem
er eina skipið sem félagið gerir út.
Flestir sömu aðilar standa að
Glámu og áttu Skipafélagið Ok, sem
Eimskip keypti síðan og sameinaði
eigin rekstri. Skömmu síðar var
Gláma stofnuð og hóf útgerð Jaris-
ins. Björn segir hins vegar að sögu-
sagnir um að Eimskip sé sömuleiðis
að yfirtaka Giámu, eigi ekki við rök
að styðjast. Skýringin á þeim mis-
skilningi sé væntanlega að Jarlinn
hafi nýverið farið í slipp ytra og
Gláma þá samið við Eimskip að ann-
ast fyrir sig þá flutninga sem bókað-
ir höfðu verið en á farmgjöldum
Glámu. Önnur tengsl séu ekki þarna
á milli.
Bjöm segir að félagið sé nú m.a.
að leita fyrir sér um saltflutninga
og einnig aðra frystiflutninga enda
henti skipið best tii slíks. Jarlinn ligg-
ur nú bundinn við Ægisgarð.
Rekstartekjur Steinullarverk-
smiðjunnar á síðasta ári voru 369,6
milljónir króna miðað við 293,6 millj-
ónir árið áður. Rekstargjöld námu
267 milljónum skv. rekstarreikningi.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað var þannig 102,6
milljónir. Afskriftir ársins námu 74,9
milljónum og fjármagnskostnaður
var 30,6 milljónir króna. Tekjur
vegna verðbreytinga voru 50,7 millj-
ónir.
í árslok 1990 námu heildareignir
Steinullarverksmiðjunnar 878,7
milljónum króna. Skuldir voru 647,6
milljónir og eiginljárhlutfallið þvi
26,3%. Hreint veltufé hækkaði um
7,8 milljónir á síðasta ári og er
veltufjárhlutfallið nú um 2,0. Fjár-
magnsstreymi fyrirtækisins sýnir að
fjármunamyndun í rekstri var um
58,5 milljónir, sem er ríflega tvöföld-
un frá fyrra ári.
Útflutningstekjur félagsins voru
um 100 milljónir á síðasta ári miðað
við 60 milljónir árið 1989. Heildarút-
gjöld vegna erlendra aðila voru 37
milljónir og vaxtagjöld vegna er-
lendra fjárfestingarlána um 48 millj-
ónir. í ársskýrslunni segir að batn-
andi afkoma sé m.a. að þakka betri
nýtingu verksmiðjunnar vegna auk-
ins útflutnings. Heildarsala var á
síðasta ári 6.163 tonn sem er um
18% aukning frá fyrra ári.
Nýr stjórnarformaður Steinullar-
verksmiðjunnar er Lára Margrét
Ragnarsdóttir. Hún kemur í stað
Halldórs Kristjánssonar, ráðunejdis-
stjóra í iðnaðarráðuneytinu, sem er
á leið til Englands til starfa við Evr-
ópubankann. Lára Margrét situr í
stjórninni fyrir hönd forsætisráðu-
neytis. Árni Guðmundsson er vara-
formaður stjórnar og aðrir í stjórn
eru Jón Ingimarsson, fyrir hönd iðn-
aðarráðuneytis, Jón Helgi Guð-
mundsson, Stefán Guðmundsson og
Finnarnir Esa Tikke og Peder Biese
frá finnsku eignaraðilunum Partek.
Framkvæmdastjóri Steinullarverk-
smiðjunnar er Einar Einarsson.