Morgunblaðið - 09.05.1991, Page 4
4 C
MQRGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991
Hagfrædi
Meistaranám íhagfræði
hefst við Háskólann íhaust
Miðar að því að mennta og þjálfa hagfræðinga til starfa í einkageiranum
jafnt sem hjá opinberum aðilum
NÆSTA haust verður brotið blað í sögu viðskipta- og hagfræðideild-
ar Háskóla Islands þegar þar hefst kennsla til meistaraprófs í hag-
fræði. Deildin er ein sú fjölmennasta innan skólans og á undanförn-
um árum hafa útskrifast þaðan tugir viðskiptafræðinga árlega. Árið
1988 var deildinni skipt í tvær skorir, viðskiptaskor og hagfræði-
skor, og var nafni deildarinnar breytt við það tækifæri, en hún hét
áður viðskiptadeild Háskóla íslands. Viðskiptaskor útskrifar nú, eins
og áður, viðskiptafræðinga með cand.oecon.-gráðu eftir fjögurra ára
nám. Úr hagfræðiskor útskrifast menn hins vegar sem hagfræðing-
ar með B.S.-gráðu eftir þriggja ára nám. Fyrsti heili árgangur hag-
fræðinga úr hagfræðiskor útskrifast í júní nk. Hingað til hafa nem-
endur úr viðskipta- og hagfræðideild ekki átt kost á meistaranámi
í hagfræði hér á landi, en það stendur til bóta frá og með næsta hausti.
irtækjum ekki síður en hjá stofnun-
um og samtökum og í einkageiran-
um ekki síður en hjá opinberum
aðilum. Þráinn sagði að innan hag-
fræðiskorarinnar væri gott rými til
sérhæfingar í viðskiptalegum grein-
um. „Við erum eflaust með fleiri
slíkar greinar en þekkist í hagfræði-
deildum í háskólum erlendis. Við
viljum mennta hagfræðinga til
vinnu i einkageiranum ekki síður
en hjá hinu opinbera og leggjum
því áherslu á hina hagnýtu hlið
hagfræðinnar,“ sagði Þráinn.
Námið verður sérhannað
fyrir íslenskar aðstæður
Hins vegar miðast skipulag
meistaranámsins við að leggja
traustan fræðilegan grunn að frek-
ara framhaldsnámi í hagfræði fyrir
þá sem það kjósa. Námsskipulag í
meistaranáminu sem og námsgrein-
ar eru í samræmi við það sem vel
hefur gefist við virta erlenda hag-
fræðiháskóla. Þjóðhagfræði, rekstr-
arhagfræði og aðferðir í hagrann-
sóknum verða kjarni meistaranáms-
Þegar stofnað var til hagfræði-
skorar fyrir þremur árum var jafn-
framt ákveðið að stefnt skyldi að
því að hefja kennslu til meistara:
prófs í framhaldi af B.S.-náminu. í
febrúar sl. var síðan tekin ákvörðun
um að heij'a kennsluna haustið 1991
eftir að fyrsti árgangur úr hinu
nýja B.S.-námi í hagfræði útskrif-
ast. Þegar hafa helstu útlínur náms-
skipulagsins verið markaðar og
hlotið staðfestingu háskólaráðs.
Um er að ræða 45 eininga fram-
haldsnám í hagfræði sem lýkur með
M.S.-gráðu. Námið er skipulagt í
samræmi við hliðstætt nám við
bestu hagfræðiskóla í engilsaxnesk-
um löndum.
Morgunblaðið ræddi við Ragnar
Árnason, prófessor og formann
hagfræðiskorar, og Þráin Eggerts-
son, prófessor og varaformann
skorarinnar, um væntanlegt meist-
aranám, skipulag þess og vænting-
ar sem við námið eru bundnar.
Skipulagning meistaranámsins
miðast annars vegar að því að
mennta og þjálfa hagfræðinga til
starfa i samfélaginu. Þá er miðað
við að þeir starfí hjá framleiðslufyr-
Morgunblaðið/KGA
HAGFRÆÐINGAR — Frá vinstri sitja Guðmundur Magnússon, prófessor og forstjóri Hagfræði-
stofnunar Háskólans, Þráinn Eggertsson, prófessor, stjórnarformaður Hagfræðistofnunar og varaformaður
hagfræðiskorar, Ágúst Freyr Ingason, hagfræðinemi á 2. ári og ritari Ökonómíu, félags hagfræðinema, og
Ragnar Árnason, prófessor og formaður hagfræðiskorar.
Hagfræðistofnun gegnir
mikilvægu hlutverki
Aflar þekkingar á þjóðarbúskap íslendinga og tekur að sér þjónustuverkefni
fyrir stjórnvöld og einkafyrirtæki
HAGFRÆÐISTOFNUN Háskóla íslands var stofnuð árið 1989 og tók
til starfa í ársbyrjun 1990. Hlutverk stofnunarinnar er að efla vísinda-
legar rannsóknir í hagfræði og skyldum greinum, afla þekkingar á
þjóðarbúskap íslendinga, veita nemendum þjálfun í vísindalegum
vinnubrögðum og efla tengsl hagfræðirannsókna, ráðgjafar og
kennslu. Stofnuninni er einnig ætlað að taka að sér þjónustuverk-
efni fyrir stjórnvöld og einkafyrirtæki og á hún þannig náin sam-
skipti við aðrar íslenskar stofnanir á sviði efnahags- og atvinnu-
mála. Þá er Hagfræðistofnun ætlað að vera starfsvettvangur fyrir
Islendinga sem vinna að doktorsritgerðum við erlenda háskóla, jafnt
sem nýútskrifaða sérfræðinga. Forstjóri Hagfræðistofnunar er Guð-
mundur Magnússon, prófessor.
Hagfræðistofnun styður grunn-
rannsóknir við hagfræðiskor við-
skipta- og hagfræðideildar og veitir
mörgum nemendum á lokaári störf
undir leiðsögn kennara. Þau störf
nýtast nemendum oft við gerð loka-
ritgerðar. Að auki tekur stofnunin
að sér ýmis verkefni fyrir einkaað-
ila og opinber fyrirtæki og stofnan-
ir. Þá vinna kennarar þar mikið
rannsóknarstarf á eigin vegum.
Árið 1987 var hafin útgáfa sér-
stakrar ritraðar í hagfræði á vegum
hagfræðiskorar. í ritröð þessari,
sem ber heitið „Iceland Economic
Papers", eru birtar hagfræðilegar
ritgerðir. Nú eru alls komnar út 12
ritgerðir sem fjalla um ýmsar rann-
sóknir sem unnar hafa verið innan
hagfræðiskorar. Þá hafa rit um
rannsóknir kennara við deildina
hafa í mörgum tilfellum verið gefn-
ar út erlendis og vakið mikla at-
hygli. Að sögn Guðmundar Magn-
ússonar, prófessors og forstöðu-
manns Hagfræðistofnunar, hafa
einnig verið gefin út verkefni sem
unnin hafa verið fyrir utanaðkom-
andi aðila. „Hingað til hafa flest
verkefnin sem ekki eru bein rann-
sóknarverkefni kennara komið frá
opinberum aðilum sem óska eftir
umsögn eða athugun óháðra aðila
á einhveiju máli. Meðal þeirra verk-
efna er rannsókn á orkuverði á ís-
landi, sem unnin var fyrir iðnaðar-
ráðuneytið og verkefni um efna-
hagssamvinnu Evrópuþjóða og hag-
stjórn á íslandi fyrir forsætisráðu-
neytið. Þá hefur stofnunin unnið
skýrslu fyrir Samband íslenskra
viðskiptabanka um áhrif hagstjórn-
ar á afkomu banka. Þá má líka
nefna að innan stofnunarinnar hef-
ur lengi verið unnið að rannsóknum
á erlendum mörkuðum fyrir íslensk-
ar botnfiskafurðir og nokkuð hefur
verið um samnorræn verkefni,"
sagði Guðmundur.
Rannsóknirnar gera okkur
hæfari til ráðlegginga
Ragnar Árnason, prófessor og
formaður hagfræðiskorar, áréttaði
mikilvægi rannsóknarstarfsins inn-
an Hagfræðistofnunar. „Rannsókn-
irnar auka þekkingu og gerir okkur
þannig hæfari til ráðlegginga. Einn-
ig geta niðurstöður rannsóknanna
haft áhrif á ákvörðunartöku manna
í hinum ýmsu málum,“ sagði Ragn-
ar. Hann sagði ennfremur að kenn-
arar og starfsmenn við stofnunina
væru iðulega kallaðir á fund stjórn-
valda sem ráðgjafar. „Við höfum
t.d. verið virkir aðilar í þróun og
skipulagningu breytinga á stjórn-
kerfi fískveiða á íslandi og höfum
unnið að rannsóknum þess efnis frá
árinu 1976. Eins höfum við gagn-
rýnt óhagkvæmni í landbúnaði og
eigum okkar þátt í því að menn
tóku þessi mál til endurskoðunar.“
Ætlunin er að þeir sem stunda
meistaranám við viðskipta- og hag-
fræðideild frá næsta hausti starfi
við Hagfræðistofnun með náminu.
Tilgangurinn er að veita nemendum
reynslu við rannsóknir og fræði-
störf og gefa þeim kost á að afla
tekna á námstímanum. „Meistara-
námið mun þannig stuðla að auknu
rannsóknarstarfi hér á landi og
auka skilning manna á samhengi
íslensks efnahagskerfis. Almenn-
ingur er oft illa upplýstur um mikil-
væg mál og jafnvel stjórnmálamenn
taka rangar ákvarðanir vegna
þekkingarleysis. Nú sjáum við fram
á fjölgun vel menntaðra hagfræð-
inga á íslandi með sérþekkingu á
íslenskum aðstæðum. Það er í raun
forsenda skynsamlegrar efnahags-
stjórnunar hér á landi,“ sagði Guð-
mundur Magnússon, forstöðumaður
Hagfræðistofnunar Háskóla ís-
lands.
ins. Kjörgreinarnar höfða sérstak-
lega til íslensks raunveruleika, en
þær verða hagfræði náttúruauð-
linda og hagfræði smárra opinna
hagkerfa.
„Stór hópur þeirra sem útskrifast
úr hagfræðiskor nú í vor mun
líklega fara í framhaldsnám erlend-
is þar sem það var ekki fyrr en í
febrúar sl. sem fullvissa fékkst um
að kennsla til meistaraprófs hæfist
hér í haust. Þá voru þeir sem á
annað borð ætluðu sér strax í fram-
haldsnám búnir að sækja um í skól-
um erlendis. Við munum jafnframt
mæla með að bestu nemendurnir
úr B.S.-náminu sæki framhaldsnám
í hagfræði til útlanda þar sem þeim
býðst yfírleitt aðgangur að virtum
hagfræðiskólum, jafnvel með náms-
styrkjum. Það er öllum hollt að
víkka sjóndeildarhringinn, en sumir
eiga þó ekki hægt um slíkt vegna
fjölskylduaðstæðna og af ýmsum
öðrum ástæðum. Því er meistara-
nám hérlendis kjörið fyrir þá. Það
má ráða af viðbrögðum nemenda
hér að þeim þyki þetta spennandi,
sérstaklega vegna þess að við mun-
um bjóða upp á nám sem er sér-
hannað fyrir íslenskar aðstæður,"
sagði Ragnar.
„Það er mikilvægt fyrir íslenskt
þjóðfélag að eiga hagfræðinga sér-
menntaða í íslenskum aðstæðum
og íslensku hagkerfi," sagði Þráinn.
„Félagslegi þátturinn er ríkur í
hagfræðinni og hann- er auðvitað
mismunandi milli landa. Það er t.d.
hægt að deila um hversu gagnlegt
það er fyrir hagfræðing á Islandi
að vera sérfróður um bandarískan
vinnumarkað. Að þessu leyti mun
meistaranámið hér hitta beint í
mark. Hins vegar er alltaf gott að
þekkja fleiri hliðar á hveiju máli,
þannig að sennilega er best að hafa
hæfilega blöndu af hagfræðingum
sem fá lokamenntun sína hér heima
og þeim sem fara í framhaldsnám
erlendis. Meistaranámið hér mun
líka tryggja þeim, sem sérhæfðir
eru að utan, rannsóknarumhverfi á
íslandi til þess að viðhalda menntun
sinnni og þekkingu."
Nemendur aðstoða við
kennslu og rannsóknarstörf
í námsskipulaginu er gert ráð
fyrir að hægt verði að ljúka meist-
aranámi á 12 til 18 mánuðum. Hins
vegar er skipulagið miðað við að
nemendur með ófullkominn undir-
búning bæti við sérstöku undirbún-
ingsnámi og hljóti meistaragráðu
að loknu tveggja ára námi. Inntöku-
skilyrði verða væntaniega fyrst og
fremst þau að umsækjandi hafi lok-
ið fyrsta háskólaprófi í hagfræði
með góðri einkunn. Þó er gert ráð
fyrir að nemendur með önnur há-
skólapróf geti fengið skráningu til
meistaranáms í hagfræði. í slíkum
tilvikum yrði hins vegar um undir-
búningsár að ræða með einstakl-
ingsbundnum námsáætlunum sem
m.a. fælu í sér námsgreinar á B.S.-
stigi hagfræðiskorar. Því má gera
ráð fyrir að námstími nemenda án
háskólaprófs í hagfræði verði a.m.k.
2 ár.
í áætiunum hagfræðiskorar er
gert ráð fyrir árlegri nýskráningu
til meistaranáms í hagfræði sem
nemur 5 til 10 nemendum. Miðað
við líklegan meðalnámstíma gæti
heildarfjöldi skrásettra nemenda
því orðið 15 til 20 manns. Einn af
hornsteinum námsins er að nem-
endur verði virkir í því rannsókna-
og kennslustarfi sem fram fer við
viðskipta- og hagfræðideildina.
Þannig er stefnt að því að sem flest-
ir nemendur verði aðstoðarmenn við
hagrannsóknir og kennslu á vegum
hagfræðiskorar jafnhliða náminu.
Frestur til þess að skila inn um-
sóknum um meistaranám frá og
með næsta hausti rennur út 1. júlí
nk. Væntanlegum umsækjendum
er þó bent á að skila umsóknum inn
sem fyrst þar sem þær verða metn-
ar í þeirri röð sem þær koma inn.
Starfsfólk í viðskipta- og hagfræði-
deild Háskóla íslands mun veita
allar frekari upplýsingar og af-
henda nauðsynleg gögn. HKF