Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 9

Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNIILÍF FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991 C 9 mannahöfn verði svæðisbundin fjármálamiðstöð í Evrópu. Þar hafa Danir ýmsa möguleika því að þeir eru bæði þátttakendur í norrænu samstarfi á þessu sviði svo og sam- starfi kauphalla ríkja innan Evrópu- bandalagsins. Kauphallir innan EB hafa sett á laggirnar sérstakt fyrir- tæki, Euroquote, sem ætlað er að dreifa upplýsingum frá verðbréfa- mörkuðum gegnurn gervihnött jafn- óðum og þær berast. Þá er einnig unnið að því verkefni innan Evrópu- bandalagsins að koma á sameigin- legri hlutabréfaskráningu 300-400 stærstu fyrirtækjanna innan banda- lagsins. Slík skráning myndi veita evrópskum fyrirtækjum sem eru áhugaverð fyrir alþjóðlega fjárfesta aðgang að skráningu í kauphöllum allra landanna eftir að þau hafa verið samþykkt í kauphöllinni í sínu heimalandi. Á síðasta ári var ennfremur breytt reglum til að draga úr hætt- unni á innherjaviðskiptum en þær fela m.a. í sér að skráðum fyrirtækj- um í kauphöllinni er gert skylt að leggja fram eigin reglur um við- skipti stjórnenda með hlutabréf við- komandi fyrirtækja. Um 30% verðfall á hlutabréfum í Svíþjóð Sænski verðbréfamarkaðurinn er sá stærsti á Norðurlöndum og er kauphöllin talin meðal þeirra 15 stærstu í veröldinni. Hlutabréfa- veltan í kauphöllinni í Stokkhólmi, á síðastliðnu ári nam 94 milljörðum sænskra króna (924 mrd. ísl. kr.) en skuldabréfaveltan nam alls um 1.030 milljörðum (10.127 mrd. ísl. kr.). Þar voru skráð alls 132 fyrir- tæki í árslok og hafði þeim fækkað úr 144 frá árinu áður. Ennfremur voru önnur 66 fyrirtæki skráð á OTC markaði við lok ársins. Aðilar að kauphöllinni voru um síðustu áramót 27 talsins en þar af 17 verð- bréfafyrirtæki og 10 bankar. Síðasta ár var að mörgu leiti óvenju- legt hjá kauphöllinni í Stokkhólmi einkum vegna þess verðfalls sem þá varð. Þannig féll hlutabréfaverð um 30% á árinu og markaðsvirði skráðra hlutabréfa lækkaði úr 744 milljörðum sænskra krónaí 525 milljarða. Þá var tekið í notkun nýtt viðskiptakerfi, SAX, í maí á síðastliðnu ári sem hafði í för með sér að miðlarar geta nú annast við- skiptin í eigin skrifstofum í stað þess að sinna þeim í kauphöllinni. Minnst umsvif í Finnlandi Kauphöllin í Finnlandi, Helsing- fors Fondbörs, hefur minnst umsvif af kauphöllum Norðurlandanna. Veltan á síðastliðnu ári nam alls um 20 milljörðum finnskra marka (303 mrd. ísl. kr.). Þar af nam velta með skuldabréf um 4,5 milljörðum marka (68,7 mrd. ísl. kr.). Alls 77 fyrirtæki eru nú skráð hjá kauphöll- inni. Eins og áður er getið átti finnski markaðurinn við mesta verðlækkun og samdrátt í veltu að etja á síðasta ári. Auk óvissuástandsins í alþjóða- REX skrífstofuh úsgögn fyrír heimilið og fyrírtækið SMIÐJUVEGI9, KÓPAVOGl, SÍMI 43500. málum má rekja það til minnkandi hagvaxtar í finnsku efnahagslífi en Finnar drógust aftur úr öðrum OECD ríkjum í þeim efnum. Á síðasta ári var haldið áfram að færa gjaldeyrisreglur í fijálsræðis- hátt og er nú heimilt að selja skuldabréf í finnskum mörkum er- lendis. Þar er ennfremur unnið að því að endurskoða löggjöf um ijár- festingar útlendinga í finnsku at- vinnulífi en þar verða hafðir til hlið- sjónar væntanlegir samningar EFTA og EB um hið evrópska efna- hagssvæði. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í umfjöllun um norrænu verð- bréfamarkaðina og má vænta frek- ari umfjöllunar síðar í viðskipta- blaði. Af þessu má þó vera ljóst að íslendingar geta margt lært af Norðurlöndunum á sviði verðbréfa- viðskipta. Hingað til hafa samskipt- in við kauphallirnar einkum verið fólgin í þátttöku Verðbréfaþings í samstarfi þeirra en segja má íslend- ingar hafi aðeins verið eins konar áheyrnarfulltrúar. Frekari þátttaka íslendinga í þessu samstarfi ætti að geta opnað fjárfestum hér á landi aðgang að norrænum verðbréfa- mörkuðum og á sama hátt upplýst Norðurlandabúa um þá möguleika sem hér er að finna. 400 ástæður fyrir IBM AS/400 Námskeið IBM og kennsluforrit bókhaldinu líf! Hœgt eraö setja upp nýjargagna- skrár eftir eigin höföi og tengja við þœr sem fyrir eru. Notandi getur búið til fyrirspumir og skýrslur að vild með ótal útreiknings- möguleikum - án forritunar. Bókhaldið vaknar til lífsins íþrívíðum myndum sem snúa má á aila kanta - þú bókstaflega vetiir fyrir þér rekstri fyrirtœkisins! íslensk forritaþróun hf kynnir ópus'Ali, nýjan viöskiptahugbúnað sent þú verður að sjá! ópus allt sameinar tvö úthreiddustu viðskipta- hugbúnaðarkerfi hér á latidi, Ópus og Allt, og innifelur að attki ótal nýjungar. Veldu reyndan viðskiptahugbúnað: Um 1200 fyrirtœki nota viðskiptahugbúnað frá íslenskri forritaþróun hf. og flestir framhaldsskólar landsins kenna á hann. Allir viðskiptafræðingar frá Háskóla íslands og stúdentar frá Verzlunarskólanum lœra á ópusiWi. Með þvt að velja ópus'AW velur þú öruggan hugbúnað og góða þjónustu frá traustu fyrirtæki. OtíUKílllt er * fararbroddv ópus 2WW má sveigja .... og teygja í allar áttir. Jafnt lítil sem stór fyrirtæki geta sett uþþ skjámyndir, skýrslur og gagnaskrár án forritunar og lagað þannig kerfin að eigin þörfum. OÖM S'allt erfyrir stjórnendur: ópusalW gefur •* v ..... stjórnendum nýja möguleika með sveigjanlegri skýrslugerð og fjölbreyttum útreikn- ingsmöguleikum, ásamt myndrænum upþlýsingum í lit og þrivídd sem snúa má á skjánum og glæða þannig bókhaldið lífi. ji stœkkar með þér: ópusallt er OpMSaj.it fáanlegur fyrir DOS eða OS/2 stýrikerfi, og netkerfi eða UNIX fyrir stœrri fyrirtœki með margar útstöðvar. O/líIVallt eV Ukafyrir stórfyrirtcekin: Allra •••••• stœrstu fyrirtœkin geta nýtt sér svokallaða "client-server" vinnslu með SQL fyrirspurnarstaðli. Þannig má flytja upplýsingar frá stóru tölvunum niður í einkatölvu með ópusallt, meðhöndla gögnin að vild og búa til skýrslur og mynd- - _ ir sem mun erfið- BBhB ÍSIGIISK ara er að gera á forriíajþrótmhf. StÓYU tölvUYlUYYl Engjateigur 3 -105 Reykjavflc - sími 67 15 11 Nýr JLfWdaiIl hugbúnaður -4k. •••••• ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ HANN! ABeus/sI*

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.