Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 11
I« J ÍAI1 .9 HUDACIU ! KiAI i 'iSJWmOTfíMIiaZQIV 3lQii.I8K• JOflOl/.
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNIILÍF FIMMTÚDAGÍÍR ÍL-MAL J99X
3 01
C 11
Fiat 500 aftur
á götuna að ári
Vaxandi þörf fyrir ódýran og hentugan smábíl
í umferðaröngþveiti stórborganna
Stundum gerist það, að einhver algengur varningur verður siðar
meir táknrænn fyrir viðkomandi tíma, fyrir hina „góðu, gömlu
daga“ eins og stundum er sagt og margir horfa til með söknuði.
Þetta hefur nú gerst með 500-módelið af Fiat, sem kom fyrst fram
á dögum „italska efnahagsundursins" á sjötta áratugnum.
Þegar bíllinn, sem rúmaði fjög-
urra manna fjölskyldu, kom fyrst
á markað svaraði kaupverðið til
árslauna iðnverkamanns en þrátt
fyrir það seldist hann eins og heit-
ar lummur. Er skýringin sú, að í
ítölskum almúgafjölskyldum
hjálpast allir að við að afla tekna
fyrir heimilið og alltaf er reynt að
leggja eitthvað fyrir.
Fiat 500 var framleiddur til
ársins 1975 en ennþá má finna
um eina milljón þessara bíla í
ítölskum borgum þar sem þeir
njóta smæðarinnar þvi betur sem
umferðaröngþveitið vex. Það er
líklega þess vegna sem forráða-
menn Fiat- verksmiðjanna hafa
ákveðið eftir alllanga umhugsun,
að nú sé aftur kominn tími til að
hugsa „smátt“.
I október á næsta ári kemur
Fiat 500 aftur á götuna og að sjálf-
sögðu miklu fullkomnari en áður
var og í takt við hinn nýja tíma í
Evrópu verður bíllinn framleiddur
í Póllandi.
Nýja gerðin af Fiat 500 verður
aðeins 25 sm lengri en sú gamla
og hún verður ýmist búin tvígeng-
is- eða fjórgengisvél. Ef marka
má myndir af fyrstu líkönunum
verður bíllinn um flest svipaður
öðrum litlum einkabílum á mark-
aðnum nema hvað verðið varðar.
Að því er stefnt, að hann verði
allt að 25% ódýrari en Pandan, sem
nú er ódýrasti bíllinn, sem Fiat-
verksmiðjurnar framleiða.
Flug
Boeingað
selja De
Havilland
ítölsku og frönsku fiugvélasmiðj-
urnar Alenia og Aerospatiale
liafa náð samningum við Boeing
í Bandaríkjunum um kaup á De
Havilland fiugvélasmiðjunum í
Kanada, sem eru dótturfyrirtæki
Boeing.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið
upp, og ekki liggur enn fyrir endan-
legt samþykki kanadískra stjórn-
valda, sem tilskilið er áður en unnt
er að undirrita kaupsamninginn.
Hjá De Havilland eru aðallega
smíðaðar smærri farþegavélar bún-
ar hverfilhreyflum, oft nefndar
„skrúfuþotur", og hefur gengið erf-
iðlega að aðlaga þá smíði rekstri
Boeing, sem smíðar stærri farþega-
þotur. Einnig hefur Boeing átt í
útistöðum við stéttarfélög starfs-
manna í Kanada, og framleiðslan í
De Havilland smiðjunum í úthverfi
Toronto gengið skrykkjótt.
Alenia og Aerospatiale vinna
sameiginlega að smíði Airbus far-
þegaþotunnar ásamt brezkum og
þýzkum flugvélasmiðjum. Auk þess
smíða smiðjurnar sameiginlega
skrúfuþotur af gerðunum ATR 42
og ATR 72, en fyrir liggja pantan-
ir á 538 af þessum vélum. Þá standa
Alenia og Aerospatiale í samning-
um við Deutsche Aerospace
(DASA) um samvinnu við þróun
nýrrar 80-130 sæta farþegaþotu til
nota á styttri flugleiðum.
Heimild: Financial Times.
> SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR
PLÖTURILESTAR
J|| jfTk SERVANT PLÖTUR
■ I I 1 II SALERNISHÓLF
MJ * • BAÐÞIUUR
ELDHÚS-BORÐPLÖTUR
LAGER-NORSK HÁGÆÐAVARA
Þ.MRBBÍHSSOH&CO
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
Hlutabréf
Gengi hlutabréfa 9. maí 1991
K lutafélag kaupgengi sölugengi
1,67.0 1,700
2,350 2,450
WEk Auðlind hf. 0,995 1,047
5,450 5,700
■» Flugleiðir hf. 2,310 2,410
0,950 1,000
2,480 2,580
1,720 1,800
Hlutabréfasjóðurinn hf. 1,570 1,650
Eignarhaldsfél. Iðnaðarbankans hf. 2,000 2,100
Olíufélagið hf. 5,400 5,650
2,150 2,250
6,000 6,300
4,010 4,190
Skeljungur hf. 6,020 6,300
7,050 7,360
0,950 1,000
1,660 1,750
Utgerðarfélag Akureyringa' hf. 3,770 3,950
WBF Þróunarfélag íslands hf. 1,640 1,740
Hlutabréf (þessum fyrirtækjum eru ril sölu hjá okkur núna.
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, sími 689080
Metsölubhó á hverjum degi!
Vöiu
sýningar
eru okkar fag
Höfum umboð fyrir allar
helstu vörusýningar í Evrópu
og víðar.
Lóttu okku sjó um ferðina
fyrir þig hvert ó land sem er.
Hjó okkur finnur þú fagfólkið.
11111111 s 11111
-VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA
Austurstræti 17
Slmar 622011 & 622200
Flugleiðir flytja
frakttil ogfrá
Evrópu í stórum stíl
Fraktvélar Flugleiða fljúga á sunnu-
dögum, og oftar ef þarf, til og frá
Evrópu, nánar tiltekið Oostende í
Belgíu. Burðargeta fraktvélanna er 45
tonn og því eru þessar ferðir tilvaldar
fyrir þá sem þurfa að flytja vörur í
stórum einingum eða miklu magni.
Starfsfólk Flugleiða aðstoðar viðskipta-
vini sína fúslega við að koma fraktinni
á endanlegan áfangastað ef á þarf að
halda. Daglegt áætlunarflug Flugleiða
er síðan til 15 landa og þangað flytja
Flugleiðir að sjálfsögðu einnig frakt.
Nánari upplýsingar í síma 690 101.
FLUGLEIDIR JSS'
F R A K TJT