Morgunblaðið - 18.05.1991, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.05.1991, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLÁÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991 NYTJAHLUTIR • • • fátækt,“ segir Kogga og er ákveðin. „Því vil ég gjarnan festa mig, og það sem ég hef verið að þróa allan .þennan tíma, í sessi í hugum fólks sem mitt.“ - Tengist þessi eftiröpun þeim mikla flölda leirlistarmanna sem út- skrifast hafa síðustu ár? „Meðal annars, en samt kemur alltaf fullt af nýju fólki með ferskar og nýjar hugmyndir og þarf ekkert að leita til annarra. Margt af þessu unga fólki er mjög sjálfstætt. Ég hef þijóskast við og neitað að trúa að einhveijir séu það ósjálfstæðir að þeir þurfi að „fá lánað“ á jafn áberandi hátt hjá öðrum, en þegar fólk er farið að koma unnvörpum til mín og tala um þetta fínnst mér að ekki sé hægt að neita því lengur. Höfundarréttarmál eru mjög stutt á veg komin hjá okkur svo ekkert er hægt að gera, en auðvitað fínnst manni að listamenn ættu ekki að þurfa neitt sem heitir höfundarrétt- arlög. Hvað er sköpun? Það er ekki handverkið sjálft. Éf menn apa eitt- vað hrátt eftir öðrum eru þeir ekki listamenn." Kogga kom heim frá námi í Dan- mörku árið 1975. Þá segist hún hafa verið leitandi, hún prófaði ýmis- legt innan fagsins eins og eðlilegt er hjá þeim sem kemur út úr skóla. „Fyrst kenndi ég við Myndlista og handíðaskólann, og fluttist síðan til Búðardals þar sem ég fór að gera tilraunir með íslenska leirinn. Þar var ég í þijú ár og fann ákveðna leið með sérstakri tækni. Kannski voru það friðurinn og róin, og fjar- lægðin frá listalífi höfuðborgarinnar sem gerðu það að verkum að maður var fijálsari og fann sig betur.“ Spennandi þegar hlutimir fara að taka rými - Verkin á sýningunni hefur þú unnið á verkstæðinu fyrirtækisins Glit. Hversvegna þar en ekki á þinu eigin verkstæði? „Hjá mér er ekkert pláss fyrir svona stóra hluti. Svo er stærsta ofn landsins að finna hjá Glit. Ég þurfti á honum að halda, svo ég leitaði til forráðamanna fyrirtækisins og fékk þessar fínu móttökur. Ég hefði ekki getað þetta ef sú aðstaða hefði ekki verið fyrir hendi. Nú hefur mér ver- ið boðin varanleg aðstaða hjá Glit, og það er ómetanlegt. Ég ætla að skipta vinnunni, vera fasta daga vik- unnar þar og síðan hina dagana á verkstæðinu mínu við að gera gjafa- vöru. Ég lít ekkert öðruvísi á litlu nytjahlutina mína, þótt ég sé farin að vinna einnig að þessu. Það er alltaf jafn gaman að búa þá til. Þar leggur maður ekki eins mikið undir í hveijum grip, ég geri meira af til- raunum, leik mér og þróa mig áfram. Nú hef ég ekki sýnt í sjö ár, og fyrst og fremst vegna þess að mér hefur ekki fundist ég vera tilbúin. Ég hef verið að finna mig í þessu og vildi höndla efnin, formin og tæknina vel áður en ég færi af stað. Sumir velta því þá fyrir sér af hveiju ég sé að gera svona stóra hluti, en það er aðallega spennandi fyrir mig sjálfa þegar hlutirnir eru farnir að taka rými. Þeir eru jafnvel famir að taka jafn mikið rými og maður sjálfur, og maður getur farið að horfast í augu við þá. í þessari stærð eru hlutirnir famir að standa sjálfir og ekki hægt að fela þá lengur." -Það hlýtur að vera ákaflega erfítt að vinna með leirinn í þessum stærðum. „Já, í raun og veru býður efnið ekki upp á svona stærðir. Það eru þennsla, sprungur og þá er þyngdin gífurleg. Ég fór með tonn af leir í verkin. Stærstu vasarnir eru um hundrað kíló og ég hef þurft tvo og þtjá menn til að lyfta þeim með mér. Þetta er mikil ögrun þegar maður hefur verið að vinna í smáa hluti lengi. Ég verð að stækka hlutina aðeins svo fólk komi auga á þá! Oft er eins og fólk taki meira mark á hlut þegar hann er orðinn stór og virðulegur, þó að notagildið hverfí kannski fyrir vikið.“ - Verður ekki erfitt að fara aftur að vinna að litlu hlutunum þegar þessari töm lýkur? „Að sumu leyti verður það hvíld. En þegar maður rífur sig upp og breytir til á þennan hátt þá fæðast ótal hugmyndir. Sjónarhornið verður allt annað og ný sýn opnast.“ Til skammar að ekki sé til listiðnaðarsafn - Hver finnst þér vera staða nytj- alistar á íslandi í dag? „Mér finnst það til skammar fyrir íslensku þjóðina að ekki skuli vera til neitt listiðnaðarsafn á íslandi. Við eru að pukrast með örfáa hluti í Þjóðminjasafninu; gömlu veflistina og útskurðinn, og það er ekki margt. En það eina sem við eigum af slíku er frá því í eldgamla daga. Við eigum enga nytjalist frá tuttugustu öld. Hvar eiga ferðamenn að sjá íslenska nytjalist, og hvar eiga börnin að öðlast virðingu fyrir nyjalist, hönnun og handverki? Éf við ætlum okkur einhvem hlut í iðnaði í framtíðinni þarf að byija strax þar, á að mennta unga fólkið okkar og sýna því hvað hefur verið gert. Keramik er ákaf- lega ung grein á íslandi, árið 1927 kom Guðmundur frá Miðdal fram. Nú er fyrsta kynslóð íslenskrar leir- listar að hverfa, en hvergi er að finna verk eftir þetta fólk á safni. Með tímanum verður ekki auðveldara að finna þessa hluti og ætla að gera eitthvað fyrir þá. Auðvitað á að velja bestu verk listamanna á safn jafn óðum, og vera stolt að stilla þeim upp. Hjá þjóðum eins og Finnum og ítölum, sem þekktar em fyrir listiðn- að, er víða að finna góð og falleg listiðnaðarsöfn og það er menningar- bragur á því. Eins og staðan er í dag, vinna íslenskir keramikerar að verkum sínum árum saman, halda síðan sýningu með stoltum og vön- duðum hlutum - og fara svo aftur með þá heim í skúr. Hér er byggt endalaust utan um verslun og pen- inga, en það er ekki byggt utan um handverkið, það sem þjóðin er að gera. Góður maður sagði við mig um daginn að það besta sem gæti kom- ið fyrir íslensku þjóðina væri að fisk- urinn hyrfi í nokkur ár. Auðvitað er ég ekki að óska þess, en það er nokkuð til í þessu. Eitthvað slíkt virðist þurfa að henda til að farið verði að sýna iðnaði, hönnun og handverki þá athygli sem eðlileg er. Það verður aldrei nema nauðsynin sé brýn. Að baki hveijum einasta grip sem við flytjum inn er hugsun ogjiróun listamanna-og hönnuða. A íslandi er ótrúlega mikið af list- amönnum; listmálurum til dæmis. Ég hef þá persónulegu trú að stór hluti af þessu fólki eigi ekkert endi- lega heima í listmálun. Margir ættu betur heima í listiðnaði og hönnun, en fara ekki í þær greinar vegna virðingarleysisins sem þeim eru sýndar. Þar yrðu margir virkari í þjóðfélaginu en þeir eru í dag. Ekki svo að skilja að ég ætli mér að kveða upp úr um það hver á heima á hvor- um staðnum, það getur vel verið að allt þetta fólk hafi köllun, en ég held samt að margir hafi fyrst og fremst köllun til að skapa en bein- ast á eitt svið frekar en annað, því virðingarleysið er svo mikið gagn- varð listiðnaði. Þar er þjóðin að missa af miklum hæfileikum og sköpunarkrafti, vegna tómrar van- visku.“ Viðtal: Einar Falur Ingólfsson KIRKJULISTAHÁTÍÐ Litir og dramatísk uppbygg- ing þýðingarmest í kórtónlist Ég hef mælt mér mót við mann að nafni Winfried Toll á nýlegu kaffi- húsi í Freiburg, rétt handan við dómkirkjuna. Gott ef mér sýnist ekki bindingshúsin andspænis mér vera að geifla sig framan í nýlegar hallir á dýrustu lóðum borgarinnar en steinlagt og þvengmjótt strætið kræk- ir fyrir hvert horn til að blanda sér ekki í þvargið. Eg veit að maðurinn sem ég bíð eftir er sagður guðfræðingur, tónskáld, söngvari og kórstjóri. Þegar hann riíjar upp viðburð-. aríkt æviskeið sitt verða róttækar hugmyndir hans um tónlist öllu skilj- anlegri. Hann ólst upp á kaþólskum heimavistarskóla þar sem söngur var í hávegum hafður. Þegar röddin gaf sig á unglingsárunum snerist áhug- inn að tónsmíðum og hljóðfæraleik. Ljóða og leiklestrar Lesið úr ðCristnihaldi undir lökli, f jjallkirkj- unni ug ijóðum sem iengjast sumri eg sól Á KIRKJULISTAHÁTÍÐ verða fluttar tvær leiklestrar- dagskrár og ein ljóðadagskrá í kirkjum og safnaðarheimil- um Reykjavíkurprófastdæm- is. Ljóðadagskrána Undir sumarsól, sem Sigurður Val- geirsson hefur tekið saman, flytja skáldin Matthías Joh- annessen og Ingibjörg Har- aldsdóttir, og annar leiklest- urinn, Myndir úr Fjallkirkj- unni, sem byggður er á skáld- sögu Gunnars Gunnarssonar, er fiuttur af Helgu Bachmann og Helga Skúlasyni. Hinn leik- lesturinn er byggður á Kristnihaldi undir Jökli, eftir Halldór Laxness. Hallgrímur H. Helgason hefur búið verkið til flutnings en lesarar verða Rúrik Haraldsson og Þor- steinn Gunnarsson. Dagskrámar verða, eins og fyrr segir, fluttar í ýms- um kirkjum og safnaðar- heimilum Reykjavíkur- prófastdæmis þá daga sem Kirkjulistahátíð ’91 stendur. Dagskráin lítur þanng út í meg- inatriðum, endanleg tímasetning er ekki komin í sumum tilvikum, og þá geta einhveijar breytingar orðið og lestrar bæst við en það verður auglýst síðar: Þriðjudagur 21. maí: Kristnihald undir Jökli, kl. 20.00 í Bústaðakirkju. Miðvikudagur 22. maí: Myndir úr Fjallkirkjunni í Grens- áskirkju. Fimmtudagur 23. maí: Myndir úr Fjallkirkjunni í Ár- bæjarkirkju. Laugardagur 25. maí: Kristnihald undir Jökli í Lang- holtskirkju kl. 20.00. Sunnudagur 26. maí: Kristnihald undir Jökli, í Lang- holtskirkju kl. 20.00. Mánudagur 27. mai: Ljóða- dagskráin verður flutt í Dóm- kirkjunni, og Kristnihald undir Jökli í Seltjamarneskirkju. Þriðjudagur 28. maí: Ljóða- dagskrá í Langholtskirkju. Miðvikudagur 29. mai: Kristnihald undir Jökli, í Árbæj- arkirkju, Myndir úrFjalIkirkj- unni í Kópavogskirkju, og Ijóða- dagskráin í Hólabrekkukirkju kl. 20.30. Fimmtudagur 30. maí: Myndir úr Fjallkirkjunni í Lang- holtskirkju og ljóðadagskráin í Neskirkju. Trúarstarfið í skólanum dró hann til guðfræðináms en þó fann hann fljótt að tónlistin átti sterkari ítök í honum og því settist hann í tónlistar- háskólann í Freiburg án þess þó að binda enda á guðfræðinámið. Hann lagði aðallega stund á tónsmíðar og var verðlaunaður fyrir verk sín. Þá var eins og drengjaröddin kæmi aft- ur úr kafinu og honum var spáð miklum frama á einsöngvarabraut- inni. Tenórröddin náði ekki þeim þroska sem látið hefði spádómana rætast svo hann sneri sér að söng- kennslu og kórstjórn í nágrenni borgarinnar og vorið 1988 var hann ráðinn stjórnandi Camerata Vocale í Freiburg. Kórnum fór mjög fljótt fram og tveimur árum síðar var hann kjörinn besti kammerkór Þýskalands. Boð fylgdu til Frakk- iands og Portúgal. Nú til íslands. Winfried er hæglyndur maður en ræða hans ber ódrepandi viljastyrk vitni. Engin furða þótt „dramatúrg- ía“ sé fyrsta orðið sem hann nefnir þegar talið berst að tónlist. — Dramatúrgía og litir. Þegar ég stjórna hef ég allan hugann við þau litbrigði sem leynast í tónlistinni. Margir stjórnendur vilja aðeins vera trúir nótnatextanum en þeir eru í raun þrælar hans. Hlutverk tón- listarmannsins er að túlka þá hug- mynd, þann heim sem felst að baki nótnanna en ekki nóturnar sjálfar. Þar skiptir dramatúrgíska hliðin Rætt við Winf ried Toll, stjórnanda „Cnmernta Vocale' sköpum. í kórsöng er tæknin til þess að koma dramatúrgíunni til skila mjög ólík eftir því hvar litið er. í Þýskalandi má t.d. greina tvenns- konar kórsöng: í Norður-Þýskalandi hallast menn heldur að hinum ein- falda og gi-anna tóni, líkt og hjá drengjakór þar sem tónninn er gjör- samlega flatur, en hér í Suður- Þýskalandi er frekar byggt á hinum studda tóni, látið reyna meira á rödd- ina. Enda þótt erfitt sé að alhæfa í þessu efni þá held ég að skiptingin í Evrópu sé nokkuð á þessa leið eft- ir norðri og suðri. — Vissulega verður ekki horft fram hjá kórsöng í löndum eins og Englandi og Svíþjóð þar sem hinn einfaldi söngur er ráðandi, en þann- ig finnst mér dramatíkin sem í tón- listinni býr verða hálfpartinn útund- an. Englendingar syngja stundum t.d. Mendelssohn eins og Josquin og það er misskilningur. Þar liggur allt annar hugmyndaheimur að baki. — Líka Brahms. Hann er rómantískt tónskáld og rómantíkinni er hið líkamlega nauðsynlegt. Þannig verð- ur rómantískur tónn að vera studdur af öllum líkamanum. Að syngja Verdi-piano er líka allt annað en að Oratórían Páll postuli Oratórían Páll postuli eftir Felix Mendelssohn-Bartholdy verður frum- flutt hér á landi næsta föstudag af Mótettukór Hallgrímskirkju og Sinfó- niuhljóinsvcit íslands. Einsöngvarar eru Andreas Schmidt barítón, Sigr- ún Hjálmtýsdóttir sópran, Frieder Lang tenór og Alína Dubik mezzó- sópran. Konsertmeistari er Andrzeij Kleina og stjórnandi er Hörður Ágústsson. Hörður sagði þetta merkilegan viðburð fyrir sig og Mótettu- kórinn þar sem um frumflutn- ing hériendis væri að ræða. „Þeim fer óðum fækkandi stóru ófluttu verkunum þar sem íslenskt tóhlistarfólk hefur verið duglegt á síðustu árum við að frumflytja stóru verkin úr tónlistarsögunni. Páll postuli er ein af merkustu óratóríum 19. aldarinnar." Eftir Mendelssohn liggja tvær stórar óratóríur; Páll postuli og Elía sem Mótettukórinn flutti á síðustu kirkjulistahátið fyrir tveimur árum. „Við erum semsagt að ljúka við að flytja óratóríur Mendelssohns," sagði Hörður. Aðspurður um sögulegan bakgrunn verksins sagði hann að þessar óratóríur Mendelssohns hefðu komið fram á sínum tíma sem mjög vel þegið framlag þar sem ekkert hafði komið fram er vakti áhuga frá því Haydn samdi sínar óratóríur, Sköpunina og Árstíðirnar. Óratórían Páll postuli var frum- flutt í Dusseldorf árið 1836 þegar Mendelssohn var 27 ára að aldri. Hann var þá þegar þekktur sem hljómsveitarstjóri og stjórnaði sjálfur frumflutningnum á verkinu. Hörður stundaði einmitt framhaldsnám í org- elleik, kórsstjórn og hljómsveitar- stjórn í Dusseldorf og tengist því þeirri hefð sem er fyrir flutningi á verkum Mendelssohns þar í borg í gegnum nám sitt. „Þetta verk á sér fyrirmyndir í verkum barokktímans," sagði Hörð- ur. „Það er partur af þessari rómant- ísku hugsun að horfa til baka og lofa það sem gamalt er. A þessum tíma var Mendelsohn að uppgötva óratóríur Bachs og Handels á þessum tíma, verk sem legið höfðu í þagnar- gildi um langa hríð. Margir fullyrða að það sé honum að þakka að þessi verk glötuðust ekki. I þessari hrifn- ingu sinni á tónsmíðum Bachs og Handels er hann sjálfur að semja sínar óratóriur og það er ekkert óeðli- legt að gæti áhrifa í efni og formi. Hvergi er þó um stælingu að ræða heldur eins konar hliðsjón sem lýsir sér í sérstökum rómantískum stíl Mendelssohns.” Hörður bætir því við að Mend- elssohn hafí síðar fengið á sig slæmt orð í tónlistarsögunni fyrir að tónlist hans hefði ekki þótt frumleg og talin bæði væmin og sykursæt. „Sumir gengu meira að segja svo langt að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.