Morgunblaðið - 18.05.1991, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.05.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991 --------------,-----I--—|-|----|--- B 3 inni. Fátt er leiðinlegra en stjómend- ur sem slá taktinn dauðri hendi. Túlkunin getur verið svo margbreyt- ileg og því reyni ég að kanna nýjar víddir þar sem ég tel að þær séu fyrir hendi. Túlkunin getur verið mismunandi hveiju sinni en hug- myndin að baki breytist ekki — hún ljær verkinu aðeins nýjan lit í það og það skiptið. Ekki er alltaf auð- velt að kenna mörkin á milli þess mögulega og ómögulega en þar held ég að reynsla mín af tónsmíðum komi mér að góðu haldi. Mikilsvert er að sú þekking og sú sköpunar- gáfa sem tónlistarmaðurinn býr yfír haldist hönd í hönd. Þá verður listin ekki fyrir borð borin. — Að lokum langar mig til þess að þakka íslendingum fyrir að hafa boðið kómum til landsins. Margir hafa stutt við bakið á okkur og við kunnum þeim bestu þakkir fyrir. Kórinn mun ferðast um landið og halda tónleika á Akureyri og í Reykjahlíðarkirkju auk þess að syngja á kirkjulistahátíð. Vonandi munu landsmenn hafa nokkra ánægju af tónleikum okkar. Gunnsteinn Ólafsson er kvaddur með tárum og kórinn syngur lofsöng guði til dýrðar. Astæðan fyrir því að þetta efni hefur verið Mendelssohn svona hug- leikið er vafalaust sú að hann var sjálfur trúskiptingur. Hann var gyð- ingur sem lét skírast og með þessu verki er hann jafnframt að segja sína eigin reynslusögu og játa sína kristnu trú með svona áhrifamiklum hætti.“ Mendelssohn var rómantískt tón- skáld og Hörður segir tónlist hans bera þess merki. „Þetta er afskaplega aðgengilegt verk og hljómfallegt, hugljúft með marga lagræna söngva sem segja má að gangi beint í æð. Stemmningin í kómum hefur verið að stigmagnast á undanförnumy vik um þannig að ég vona að við náum hápunkti næsta föstudag." hs Kirkjulistahátíð '91 hefstídag Kirkjulistahátíð Listvinafélags Haligrímskirkju og Reykjavíkur- prófastsdæmis verður sett í dag klukkan 14 í Hallgrímskirkju. Hátíðin stendur í tvær vikur og verður margt listviðburða er tengj- ast tró og trúariðkun í kirkjum borgarinnar fram til 1. júní en þá-Iýkur Kirkjulistahátíð 91. Dr. Hjalti Hugason formaður framkvæmdanefndar Kirkjulistahátíðar setur hátíðina með ávarpi. Þor- steinn Pálsson kirkjumálaráðherra flytur ávarp, Biskup íslands herra Ólafur Skúlason flytur ávarp og séra Ragnar Fjalar Lámsson flyt- ur bænarorð. Þá fmmflytja leikar- amir Helgi Skúlason og Helga Bachmann fmmflytja hátíðarljóð eftir Matthías Johannessen, sér- staklega ort af þessu tilefni. Þá munu Mótettukór Hallgríms- kirkju, Dómkórinn, kór Langholts- kiriqu o g Camerata Vocale frá Freiburg í Þýskalandi syngja. Að setningarathöfninni lokinni má segja að hver viðburðurinn reki annan þvf strax klukkan 17 verða Mozarttónleikar í Laugar- neskirkju. Flutt verða verkin Vesperae Solennes de Confessore KV 339 ogTe Deum KV 141. Flytjendur era Sigríður Gröndal sópran, Dúfa Einarsdóttir alt, Þor- geir Andrésson tenór og Halldór Vilhelmsson bassi, kammersveit og kór Laugameskirkju. Konsert- meistari er Hlíf Siguijónsdóttir og stjómandi Ronald Tumer. Á hvíta- sunnudag verða fluttar tvær mess- ur eftir Mozart við hátíðarguðs- þjónustur í Langholtskirkju og Neskirkju klukkan 11. í Lang- holtskirkju verður flutt Messa í D-moIl KV 65. Flytjendur em Þóra Einarsdóttir sópran, Björk JÓnsdóttir alt, Bjöm Jónsson ten- ór og Ragnar Davíðsson bassi, hljóðfæraleikarar og kór Lang- holtskirkju. Stjómandi er Jón Stef- ánsson. I Neskirkju verður flutt Messa í G-dúr KV 49. Flytjendur em Ingveldur Ólafsdóttir sópran, Stefanía Valgeirsdóttir alt, Einar Örn Einarsson tenór og Eiríkur Hreinn Helgason bassi. Stjómandi er Guðni Þ. Guðmundsson. Þessi messa verður einnig flutt við há- tíðarguðsþjónustu í Hallgríms- kirkju klukkan 11 á annan hvita- sunnudag. Verðlaunakórinn Camerata Vocale heldur tónleika í Lang- holtskirkju á annan hvítasunnu- dag klukkan 17. Stjómandi er Winfried Toll. Kórinn syngur verk eftir Mendelsohn, J.S. Bach, Sc- hönberg, Gesualdo, Poulenc, Bmckner, Rheinberger og Reger. Að kvöldi sama dags klukkan 20 heldur breski konsertorganistinn Nicolas Kynaston tónleika í Bú- staðakirkju. Hannleikurþarverk eftir Mozart, Frank Bridge, J.S. Bach, Marcel Dupré og Max Reg- er. Kynaston heldur aðra tónleika í Dómkirkjunni á miðvikudags- kvöldið klukkan 20. Efniskráin er önnur en á þeim fyrri helguð breskum tónskáldum að miklu leyti m.a. John Bull, William Bo- yce og Edward Elgar. Á föstudaginn klukkan 12 flyt- ur sænski listfræðingurinn Elisa- beth Stengaard erindi í Safnaðar- heimili Langholtskirkju um kirkjur og kirkjulist í samtímanum. Klukkan 18 á föstudaginn flytur dr. Hjalti Hugason hugleiðingu um Pál postula í Hallgrímskirkju, er hann nefnir Hver varst þú, Páll postuli? Þetta er samverustund fyriróratoríuflutninginn síðar sama kvöld. Óratorían Páll postuli eftirFelix Mendelsohn-Bartholdy verður framflutt hér á landi klukk- an 20 þetta kvöld í Hallgríms- kirkju. Flytjendur em Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Alina Dub- ik mezzósópran, Frieder Langten- ór, Adreas Schmidt baritón, Mót- et.tukór Hallgrímskirkju og Sinf- óníuhljómsveit íslands. Stjómandi er Hörður Áskelsson. Seinni vika Kirkjulistahátíðary verður kynnt næstkomandi laug- ardag. Heimsþekktur organisti leikur á Kirkjulistahátíð Breski konsertorganistinri Nicolas Kynaston er gestur Kirkjulistahát- íðar og heldur tvenna tónleika hér, í Bústaðakirkju á mánudagskvöld og Dómkirkjunni á miðvikudagskvöld. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Mozart, Frank Bridge, J.S. Bach, Marcel Dupré, Max Reg- er, John Bull, William Boyce og Edward Elgar. Nicolas Kynaston er einn ör- fárra orgelleikara í heimin- um í dag sem sinnir ein- göngu tónleikahaldi og hef- ur hann ferðast vítt og breitt um heimsbyggðina í því skyni undanfar- . in 25 ár. KYnaston er fæddur í Devonskíri á Englandi árið 1941. Hann stund- aði nám við Royal College of Music í London undir handleiðslu þeirra Fernando Germani og síðar Ralph Downes. Um 10 ára skeið var hann organisti við Westminster Dómkirkj- una í London en árið 1966 sagði hann stöðu sinni lausri til að geta helgað sig tónleikahaldi. Hann kom fyrst fram sem konsertorganisti í Royal Festival Hali í London 1966 og síðan þá hefur hann orðið mjög eftirsóttur. Hann hefur leikið í flest- um löndum Evrópu og komið fram á mörgum tónlistarhátíðum, svo sem í Tónlistarhátíðinni í Aþenu, Marien- bad Festival í Tékkóslóvakíu, Alþjóð- legu orgelhátíðinni í Róm og Ensku Bach hátíðinni. Hann hefur einnig leikið í Tókýó, Hong Kong, Kóreu, í Bandaríkjunum og á Filipseyjum. Nicolas hefur gert fjölda upptaka, bæði fyrir breska, franska og þýska útgefendur og hefur hann fengi verðlaun fyrir margar þeirra. Nicolas kennir bæði við háskólana í Oxford og Cambridge. Hann er fyrsti Bret- inn sem hefur setið í dómnefnd Nicolas Kynaston. Grand Prix des Chartres. Hann var kjörinn heiðursfélagi Royal College of Organists árið 1976. Tónleikar Kynastons í næstu viku hefjast klukkan 20 bæði kvöldin. listar eins og Schönberg sem þurreys túlkunarform rómantíkurinnar með dramatískum ópum og köllum og hins vegar Gesualdo, sem krefst allt annarrar söngtækni; tónninn er sléttur og hljóðfæralíkur en engu að síður þaninn til hins ýtrasta. — Tónlist Gesualdos hljómar svo fersk að maður gæti nánast haldið hana frá 20. öld en ekki þeirri 17. Ég minnist þess þegar freskumar í Sixtínsku kapellunni vom hreinsað- ar. Þá sáu menn skyndilega fyrir sér nýjan heim. Litasamsetningin reynd- ist miklu ómstríðari en menn höfðu vanist — engu var líkara en þær hefðu verið málaðar af expressi- onískum málara á þessari öld. Þann- ig sé ég Gesualdo fyrir mér. Ég vil miklu skarpari litaskil og hljómavíxl í verkum hans en menn hafa hingað til þorað að láta sig dreyma um. Þannig tel ég að við komumst feti nær Gesualdo og hugmyndaheimi hans. — Annað sem heillar mig við kórsöng er togstreita hrynjandi og öndunar — hvernig hægt sé að teygja á hendingu án þess að fara út fyrir mörk öndunarinnar. Ég leik mér stöðugt að þessari vídd í túlkun- minn í kór- og hljómsveitarsljórn í Dusseldorf og kannski komst ég einmitt á bragðið með Mendelssohn í gegnum hann. Hann hefur margoft stjórnað þessu verki og lánaði mér einmitt raddskrána sína og ég hef dálítið gaman af því að þar em ýms- ar athugasemdir og tákn sem koma öll heim og saman við það sem hann kenndi mér á sínum tíma.“ Aðspurður um önnur sönghlutverk segir Hörður hina einsöngvarana hafa á hendi ýmis hlutverk. „Tenór- inn fer í klæði Stefáns píslarvotts sem var grýttur og deyddur. Síðan syngur tenórinn hlutverk Bamabas- ar, trúboða og samstarfsmanns Páls. Þeir syngja m.a. tvo mjög fallega dúetta. Tenórinn bregður sér líka í hlutverk sögumanns. Það er annar Þjóðverji, Frieder Lang, sem syngur þessa rödd. Sópranröddina syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir og þar er einn- ig um ýmis hlutverk að ræða. Sögu- maður, engill og rödd guðs. Hlutverk mezzosópranraddarinnar er frekar lítið, ein aría og eitt resitativ, en það er pólska söngkonan Alina Dubik sem nú er búsett hér á landi sem syngur.“ Hörður segir efni óratóríunnar mjög skýrt. „Þetta er saga Páls post- ula. í upphafi er hann ungur gyðing- ur, Sál frá Tarsus, ofstækisfullur í garð kristinna manna og hann vill útrýma þeim. Svo verður hann fyrir því að guð ávarpar hann af himnum ofan þegar hann er á leið til Damask- us að draga kristna fyrir dóm. Rödd guðs spyr hví hann ofsæki sig og Sál svarar hvað hann eigi að gera og honum er sagt að fara inn í borg- ina og bíða nánari fyrirmæla. Sál blindast og í þrjá daga er hann blind- ur. Þá kemur til hans kristinn mað- ur, Ananías að nafni, og segir honum að hann eigi að láta skírast og boða kristna trú. Þar snýst hann og verð- ur Páll postuli. Þetta er fyrri hluti verksins en í seinni hlutanum sem er skýrt aðgreindur segir frá ferðum Páls milli hinna kristnu safnaða og baráttu hans við andstæðinga sína. Verkið endar á því að Páll er að kveðja söfnuðinn í Efesus og hann Camerata Vocale syngja Monteverdi-piano. Þar eru áherslumar allt aðrar og samhengið gjörólíkt. Það má líkja stíl í tónlist við málaralist. Enda þótt bæði mynd- ir Michelangelos og van Goghs séu þmngnar spennu þá er hún með- höndluð á gjörólíkan hátt hjá þessum tveimur máluram enda vom þeir uppi á ólíkum tímum. Efnisskráin sem við syngjum á íslandi er mjög dramatísk. Það tákn- ar liti og umbrot ólíkra blæbrigða. Þessi umbrot em skýmst hjá Gesu- aldo. Mér fínnst hann hrikalegur! Palestrína er sífellt hampað sem mesta snillingi endurreisnartímans en hann er langt frá því að vera jafn spennandi og Gesualdo. Ég er hrifnastur af tónlist eins og hans sem er í stöðugri ummyndun. Vitanlega er til góð tónlist sem stendur í stað og á líka að gera það líkt og Palestr- ina. En það sem fyrir mér vakti á íslandi var að taka fyrir mismun- andi form tilfínningaþmnginnar tón- Morgunblaðið/Einar Falur Hörður Áskelsson telja honum það eitt til ágætis að hafa endurvakið tónlist Bachs. í dag em menn famir að meta þetta af meira hlutleysi og vegur Mend- elssohns hefur vaxið mjög á undan- fömum áratugum. Mendelssohn var gyðingur og nasistar eyddu öllum verkum hans sem þeir komu höndum yfir og orgelverk hans voru lengi vel ekkert spiluð." Hörður hefur æft í allan vetur með Mótettukórnum sem nú er stærri en nokkm sinni fyrr, um 80 manns. „Okkur hefur ekki veitt af tímanum því hlutur kórsins í þessu verki er óvenju stór. Hann er í mismunandi hlutverkum, stundum er kórinn hinn kristni söfnuður allra tíma, stundum beinn þátttakandi í atburðarásinni sem gyðingar, lýður og heiðingjar í dramatískari köflum verksins.“ Aðalhlutverkið Pál postula syngur Þjóðveijinn Andreas Schmidt. Hann er að syngja þetta hlutverk í fyrsta skipti og því gaman að fá að njóta frumraunar þessa þekkta söngvara hér á landi. Þeir Hörður eru góðir kunningjar, skólabræður frá Duss- eldorf og eflaust muna margir eftir þessum úrvalssöngvara frá því fyrir tveimur árum er hann tók þátt í flutningi Mótettukórsins á Elía. „Andreas er orðinn einn af þessum stóru söngvuram á meginlandi Evr- ópu núna og það er gaman að segja frá því að faðir hans var kennari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.