Morgunblaðið - 29.05.1991, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ AFLABROGÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ
B 5
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
Liður í námskeiðinu var að láta liífa sig upp í þyrlu úr sjó.
Slysavaniaskólinn
er mjög vel sóttur
GRUNNNÁMSKEIÐ Slysavarnaskóla sjómanna var haldið fyrir
skömmu í Grundarfirði og Stykkishólmi. Skip skólans, Sæbjörg,
kom á staðina og aðstoðaði slysavarnafélög heimamanna við
framkvæmd námskeiðsins. Því sem næst allir starfandi sjómenn
tóku þátt í námskeiðinu, meðal annars 105 manns í Grundafirði
og mun það metaðsókn.
Fyrsta daginn var á nám-
skránni endurlífgun, ofkæling og
eðli eldsins. Annan daginn var
kennsla í siglingum, notkun
slökkvitækja og gúmmíbáta og
þriðja daginn maður fyrir borð,
reykköfun og ýmsir búningar og
seinasta daginn björgun með
þyrlu og ýmislegt annað viðkom-
andi slysavörnum og björgun.
Hin ýmsu slökkvitæki voru
sýnd og meðferð þeirra. Þá var
sett upp leiksvið, þar sem allt var
sýnt sem tilheyrir reykköfun,
sýnd og reynd notkun björgunar-
netja, Markúsarnetið og Björg-
vinsbeltið.
Námskeiðið setti mikinn svip á
lífið á Nesinu þá daga sem það
stóð. Verulegur áhugi var á þess-
um málum, ekki síður hjá þeim
sem ekki gátu verið með. Um-
ræðuefni manna þessa daga snér-
ist að svo miklu leyti um nám-
skeiðið og efni þess, að jafnvel
mergjuðustu kjaftasögur voru
látnar bíða betri tíma.
Skólastjóri Slysavamaskóla
sjómanna er Þórir Gunnarsson
og fastir starfsmenn auk hans
em Höskuldur Einarsson sem sér
um kennslu í endurlífgun og eld-
vörnum og Halldór Árnason sem
stjórnar sjóæfingum.
Valentínus Guðnason, einn
þátttakenda frá Stykkishólmi,
var ekki í vafa um að þetta nám-
skeið hefði tekist vel í alla staði
og eins að svona námskeið hefði
átt að vera mikið fyrr á ferð-
inni. Hann sagði að nemendur
hefðu haft mjög gott af þessu
enda hefði áhuginn sýnt það best
með einni bestu mætingu sem
hér hefði þekkst. Hann sagði
einnig að þeir sjómenn sem hann
hefði rætt við væm á sama máli
og væru þakklátir Slysavarnafé-
lagi íslands fyrir að hafa hrundið
þessu af stað.
FRYSTISKIP
Nafn Staorð Afll Uppistaða Úthd. Löndunarst.
HALLDÚRA HF 61 236 22.5 Rœkja Hafnarfjörður
NÖKKVIHU15 283 44,9 Rœkja Hafnarfjörður
HILMIRSU 171 642 74,4 Gróluða Hafnarfjörður
LANDANIR ERLENDIS
Nafn Staarö Afli Uppist.afla Söluv. m. kr. Maðalv. kg. Löndunarst.
I FREYJA RE 38 84,3 Rorskur 13,5 160,28 Hull
BÖRKURNK 122 135,7 Þorskur 21,9 161,40 Grimsby
I ENGBYRE1 174,9 Karfi/Grál. 20,8 118,95 Bremerhaven |
RAN HF4 172,4 Karfi/Grál. 19,8 114,91 Cuxhaven
UTFLUTNINGUR
23.VIKA
Bretland Þýskaland Önnur lönd
Áætlaðar landanir Þorsk. Ýsa Ufsi Karfi
Óskar Halldórsson RE 157 Geysir BA140 60 20 10 80
Áætlaðar landanir samtals 60 20 10 80
Heimilaður útflutn. í gámum 291 475 83 156
Áætlaður útfl.samtals 351 495 93 236
Sótt var um útfl. í gáumuni á 477 660 238 369
Það er ekki mikið
spjall í stöðinni
VESTMANNAEYJUM - „ÞAÐ
er bara létt hljóð í mér. Sjó-
mannadagur framundan og loks-
ins komin blíða,“ sagði Sigur-
björn Árnason, skipstjóri á Sæ-
faxa VE 25, þegar Verið spjall-
aði við hann um hádegi í gær.
Sæfaxi er 73 tonna trébátur í
eigu Bergs Hugins og stundar hum-
arveiðar í sumar. „Við byijuðum
14. maí og það hefur gengið ágæt-
lega hjá okkur. Ég fór fyrst austur
í Skeiðarárdýpi en það var ekki al-
veg nógu gott þar þá. Síðan höfum
við verið til skiptis í Háfadýpinu
og þarna austurfrá. Humarinn er
nokkuð góður en hann er þó stærri
austurfrá.
Það gekk ekki alveg nógu vel
fyrst. Maður er reyndar alveg óvan-
ur humarveiðum. Egtók við bátnum
nú fyrir vertíðina en hef sjálfur aldr-
ei verið á humri. Maður hefur bara
borðað hann hingað til,“ sagði
Bjössi.
„Við lönduðum í gær og fórum
út um hálf tíu í gærkvöldi. Við erum
í Háfadýpinu og erum búnir að taka
eitt hol. Það voru 10 körfur af heil-
um humri og eitthvað smotterí af
skottum. Það hefur verið frekar
rólegt yfir þessu í nótt og ég held
að þessir átta bátar sem eru héma
hafi flestir verið að fá svipað.
Reyndar er rólegt yfir mönnum og
það er ekki mikið spjall í stöðinni.
Bjössi sagði að ekki væri mikill
fiskur með humrinum hjá þeim en
þó hefði verið lokað svæði í Háfa-
dýpinu vegna smáýsu. „Ófeigur
fékk eitthvað af lýsu og smáýsu en
við á þessum litlu pungum höfum
ekkert fengið af því enda drögum
við mikið hægar en Ófeigur. En
þetta er bara lokað um stundar
sakir og vonandi verður það opnað
aftur því við höfðum ekkert fengið
nema humar á svæðinu."
Sæfaxi er með stóran humar-
kvóta og sagðist Bjössi ekki hafa
trú á að þeir næðu að klára hann
allan. „Nei, blessaður vertu, við
höfum aldrei að klára þennan kvóta
okkar enda er hann um 40 tonn
af heilum humri.“
„Heyrðu ég er að hífa núna. Það
er bara svo mikil blíðan að maður
veit varla hvernig á að snúa bátn-
um. Logn og sólskin. Maður kann
sér varla læti því það hefur verið
suðvestankaldaskítur síðan við byij-
uðum á humrinum. Núna er það
bara sól og blíða og ég hef mestar
Signrbjörn Árnason,
skipstjóri á Sæfaxa
áhyggjur af því að sólbrenna hérna
í glugganum.
Heyrðu, ég er að fara að taka
það. Hringdu á eftir og þá get ég
sagt þér hvað var í þessu,“ sagði
Bjössi og kvaddi. Það var létt í
honum hljóðið stuttu seinna þegar
slegið var á þráðinn aftur. „Það
voi'u tveir og hálfur poki inn fyrir.
En það er mikið af alls kyns drasli
í þessu, spærlingur, koli og dót en
ég held að þetta sé talsvert meira
en í morgun'."
Skuldir SR allt að 700
milljómr í árslok 1991
„VIÐ höfum verið með
Fyrirtækið gjaldþrota
ef ekkert verður gert ;;kki. t1";:"1' e4“. I,,enfr
o þessi fjarhagsvandi verður
leystur,“ segir Jón Reynir Magnússon framkvæmdastjóri Síldarverk-
smiðja ríkisins (SR). „Það eru að koma mánaðamót og ég sé ekki
hvernig við komumst í gegnum þau nema eitthvað komi til. Við höfum
verið nánast tekjulausir í heilt ár og ef fyrirtækið hefur engar tekjur
í ár verða skuldir þess 600-700 milljónir um næstu áramót.“
Jón Reynit' Magnússon segir að
stærsti liðurinn sé afborganir og
vextir af lánum, sem SR hafi ekki
getað greitt í langan tíma. „Það
liggja á okkur ýmsar kröfur, til
dæmis frá Rafmagnsveitum og eft-
irstöðvar af framkvæmdum, sem
við vorum í á Seyðisfirði eru einnig
stór liður,“ segir Jón Reynir en
endurbygging verksmiðju SR á
Seyðisfirði kostaði um 500 milljónir.
„Mér skilst á fiskifræðingum að
þeir vilji helst ekki gefa út neinn
loðnukvóta fyrr en eftir loðnuleið-
angur í október eða nóvember,“
segir Jón Reynir. Hann segir að
sjávarútvegsráðuneytið, fjármála-
ráðuneytið og Landsbankinn ætli
að ræða saman um vanda SR. „Við
erum í rauninni að bíða eftir því.“
Jón Reynir segir að ákveðið hafi
verið í vor að veita SR ríkisábyrgð
fyrir 300 milljóna króna láni, sem
væntanlega yrði tekið erlendis.
„Vandi SR er hins vegar miklu
meiri en þessar 300 milljónir og
auðvitað þarf að skuldbreyta ein-
hvetju. Það er augljóst að fyrirtæk-
ið verður gjaldþrota ef ekkert verð-
ur gert. í vor var ákveðið að veita
200 milljónum til skuldbreytinga
hjá loðnuverksmiðjunum en það er
óvíst hvort við fáum eitthvað af
því,“ segir Jón Reynir.
Hann segir að það hjálpi öðrum
loðnuverksmiðjum að þær séu
tengdar öðrum rekstri, þó ekki
Faxamjöl í Reykjavík, Krossanes-
verksmiðjan á Akureyri og Fiski-
mjöl og lýsi hf. í Grindavík.
Vetksmiðjur SR eru á Skaga-
strönd, Siglufirði, Raufarhöfn og
Seyðisfirði. Öllum starfsmönnum
SR, rúmlega 120 manns, var sagt
upp störfum um mánaðamót janúar
og febrúar sl. en ákveðið var að
endurráða 46 þeirra, þar af eru um
12 á vélaverkstæði SR á Siglufirði.
Jón Reynir segir að lög um SR
séu úrelt og þau hái verksmiðjunum
en lögin eru að uppistöðu frá árinu
1938. í lögunum sé til dæmis gert
ráð fyrir að SR séu einokunarfyrir-
tæki en talið sé að lögin heimili
ekki verksmiðjunum að eignast skip
til hráefnisöflunar fyrir.þær eða að
skip eignist verksmiðjurnar. Því
hafi SR veitt nokkrum útgerðum
loðnuskipa lán til að skipin legðu
upp afla hjá fyrirtækinu.
Hann segir að árið 1989 hafi
verið skipuð nefnd til að fjalla um
þessi lög og Halldór Ásgrímsson,
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra,
hafi haft mikinn áhuga á að gera
SR að hlutafélagi. Hins vegar hafi
ekki verið samstaða um það í síð-
ustu ríkisstjórn.
RÆKJUBA TAR
Nafn Staarö Afll SJóferöir Löndunarst.
GUNNAR BJARNASON SH 25 178 8,1 2 ólafsvík
GARDARIISH 164 142 7,4 2 Ólafsvík
ÓLAFUR BJARNASON SH 137 104 7.1 1 Ólafsvík
SIGLUNES SH 22 101 12,2 2 Grundarfj.
FANNEY SH 24 103 8Í2 2 Grundarfj.
HAUKUR BERG SH 20 104 5,0 1 Grundarfj.
FARSÆLL SH30 101 10,5 2 Grundarfj.
GRUNDFIRÐINGURSH 12 103 5,4 2 Grundarfj.
SÓLEYSH 150 63 7.6 2 Grundarfj.
SUNNUBERG GK 199 385 23,4 1 isafjörður
HÁBERG GK299 366 19,2 1 ísafjörður
vIkíngúr ak ioo ' 950 28.8 1 ísafjörður
[ DRÖFNSI67 ‘ 30 3.2 1 isafjörður
OGMUNDUR RE 94 187 14,8 1 Siglufjöröur
Hl'L GARE49 199 24,3 1 Siglufjörður
HÖFRUNGUR AK91 445 36,3 1 Siglufjörður
ARNEYKE50 7 197 8,1 1 Siglufjörður
SÚLAN EA 300 391 12,0 1 Húsavik
[BJÖRG jÓNSDÖTfÍR PH 321 273 20 7 1 Húsavík
GEIRIPÉTÚRSÍÞH44 181 18,0 1 Húsavík
JÚLlUS HAVSTEEN PH 1 285 84,0 1 Húsavík
GUÐRÚN ÞORKELSD. SU211 365 11,5 1 Eskifjörður
SÆUÓNSU104 142 11.0 1 ' Eskifjörður
HUMARBA TAR
Nsfn Staorð Afll SjófsrölrI Löndunarst.
HARPA GK 111 144 9,5 2 Höfn
ÞINGANES SF25 152 6,1 1 Höfn
HUMARBA TAR
Nafn Stasrð Afti Sjóferölr Löndunarst.
SIGURÐÚR ÓLAFSSON SF 44 124 10,5 2 Höfn
HVANNEY SF 51 115 10,4 2 Höfn
LYNGEYSF61 146 3.9 1 Höfn
ERLINGUR SF65 101 10,8 2 Höfn
BJARNIGÍSLASON SF 90 101 7.7 2 Höfn
ÆSKANSF 140 72 5,2 1 Höfn
ÆSKANSF 141 152 8.2 2 Höfn
FREYRSF20 105 10, 2 Höfn
STEINUNNSF 10 116 12,3 2 Höfn
STJÖRNUTINDUR SU <59 138 6,4 1 Höfn
VI'SIRSF64 150 5,9 1 Höfn
HAUKAFELL SF40 103 17,7 2 Höfn
ÁGÚSTA HARALDSD. VE 108 2,8 Vestmeyjar
ÓFEIGUR VE 325 138 3 Vestmeyjar
ARNAR ÁR 55 147 4.6 1 Þorlákshöfn
JÓNiNA ÍS 93 75 2.6 1 Þorlákshöfn
DALARÖST ÁR63 104 2.9 1 Þortákshöfn
AKUREYSF 122 86 2,0 1 Þorlákshöfn
GULL TOPPURÁR 321 29 1.3 1 Þortákshöfn
SNÆTINDUR ÁR88 88 5,2 1 Þorlákshöfn
FRÓDIÁR 33 103 4.2 1 Þorlákshöfn
NJÖRDUR ÁR38 105 4,2 1 Þorlákshöfn
JÚLÍUSÁR 111 102 4.2 1 ÞorlákshÖfn
JÖHANNA ÁR 206 71 1.6 1 Þorlákshöfn
EYRÚNÁR66 24 3.3 1 Þorlákshöfn
REYNÍR GK47 72 3,2 1 Grindavík
SIGRÚN GK380 51 5,0 1 Grindavfk
ÞORSTEINN GÍSLAS. GK 2 76 0.6 2 Grindavík
ÓSKKE5 51 9,3 2 Sandgerði
HAFNARBERG RE 404 70 6.2 2 Sandgeröi
ÞÓR PÉTURSSON ÞH 50 143 7.6 Kefiavik