Morgunblaðið - 04.06.1991, Page 1

Morgunblaðið - 04.06.1991, Page 1
1 t HANDKNATTLEIKUR Þorbergur Aðalsteinsson. Þorbergur þjálfar Aftureldingu Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildar liðs Aftureldingar í Mosfellsbæ. „Við viljum rífa liðið upp og Þorbergur er rétti maðurinn til þess,“ sagði Jóhann Guðjónsson, form- aður handknattleiksdeildar Aftureldingar, við Morgunblaðið. „Þorbergur hefur gert góða hluti og við höfum trú á honum,“ bætti hann við. Þorbergur verður önnum kafínn vegna landsliðs- ins, en Jóhann sagði að það kæmi ekki niður á Aftureldingu. Ráðinn yrði aðstoðarþjálfari, en ekki væri frágengið hver það yrði. Siggeir Magnússon hefur skipt í Aftureldingu úr Stjörnunni og Jón Andri Finnsson úr Fram. Þá hefur verið rætt við Pál Ólafsson, yngri, í KR, en ekkert ákveðið í því efni. Geir Sveinsson afturíVal? Geir Sveinsson, landsliðsmaður í handknattleik, sem hefur leikið með spænska liðinu Granoll- ers undanfarin tvö ár, er laus allra máia þar og leikur sennilega með Val næsta keppnistímabil. „Eg hef ekki ákveðið mig endanlega, en Valur er vissulega ofarlega í huganum." Um helgina var ákveðið á Spáni að næsta keppn- istímabil mega þrír erlendir leikmenn vera með hveiju liði, en þó aðeins tveir spila hveiju sinni. Þetta var gert fyrst og fremst með félögin í huga, sem taka þátt í Evrópukeppni, en þar mega þrír útlendingar leika með hveiju liði. Geir sagði að Granollers hefði rætt þann möguleika að hann yrði áfram sem þriðji erlendi leikmaður félagsins, en hann ætti eftir að skoða það nánar. Ekki væri spennandi að æfa stíft en fá svo kannski ekkert að leika og ef sú staða kæmi upp bitnaði það fyrst og fremst á sér sem landsiiðsmanni. „Ég tek mér tveggja vikna frí og tek síðan ákvörðun." Geir Sveinsson. ■ Leikir helgarinnar / B5 Dómarar með hljóð- nema vegna upptöku Íþróttaþáttur með breyttu sniði hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld og verður framvegis á þriðjudögum klukkan 21. Meðal nýjunga má nefna að áhorfendur fá tækifæri til að sjá hlutverk dómara í knattspymuleikjum frá öðru sjónarhorni en áður hefur tíðkast. Stöð 2 fékk sam- þykki dómaranefndar KSÍ og stjórnar KSÍ fyrir því að dómari í einum leik í 1. deild væri með hljóðnema innan klæða og fá áhorfendur þannig að heyra hvað hann sagði og hvað var sagt við hann meðan á leik stóð. Ef atriðið heppnast vel stendur til að halda þessu áfram. Heimir Karlsson, íþróttafréttamaður Stöðvar 2, sagði við Morgunblaðið að hugmyndin væri að sýna hið erfiða starf dómarans. „Ætlunin er ekki að refsa mönnum, hvorki dómurum né leikmönn- um, heldur að sýna starf dómara frá annarri hlið en almennt tíðkast. I hverju tilviki fær viðkomandi dómari heimild til að skoða efnið áður en það verður sent út, þannig að þetta verður gert í fullri samvinnu og samráði við dómara." Breska sjónvarpsstöðin ITN hefur tek- ið á starfí dómarans á ámóta hátt og fyrir skömmu fengu íslenskir unglinga- og héraðsdómarar að sjá slíkan þátt á ráðstefnu, þar sem sýnt var frá leik Mill- wall og Arsenal í Englandi. Dómaraþátturinn verður fyrst sýndur í næstu viku, en meðal efnis í kvöld má nefna að Guðmundur Torfason, miðheiji St. Mirren og fyrrum landsliðsmaður, syngur tvö lög eftir sjálfan sig og Eyjólf- ur Kristjánsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson keppa í spjótkasti. Heimir sagði að Eyjólfur hefði hrifist svo að söng Guðmundar að hann væri að hugsa um að bjóða honum að syngja á næstu plötu sinni! TitiliMiMÍn UA#«-» rtATriwri Morgunblaðið/KGA Titiivomin nofst meo storsign íslandsmeistarar Breiðabliks hófu titilvörnina með stórsigri á KA, 4:0, á sandgrasvellinum í Kópavogi á sunnudag. Fyrsti leikur 1. deildar kvenna í ár fór fram daginn áður á malarvelli KR, er heimaliðið sigraði KA 3:2. Á myndinni eru Arndís Ólafsdóttir, KA, sem gerði annað mark liðsins gegn KR, og Magna Magnúsdóttir, UBK, en hún gerði einmitt eitt marka meistaranna í leiknum. Hltt JVtagmtlifaMfc 1991 ÞRIDJUDAGUR 4. JUNI BLAÐ KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA VIÐTAL VIÐ KÖRFUKNATTLEIKSKAPPANIM AXEL NIKULÁSSOIM / B4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.