Morgunblaðið - 04.06.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI I IRpRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1991
B 5
>
Morgunblaöið/Einar Falur
:ín úr andliti Axels Nikuiássonar þegar hann mundur kylfuna í hornabolta. Axel lék hornabolta í Bandaríkjunum þegar
ttleik.
g
u
:ð
n
ir
R
,11
b
n
a
i,
5,
á
u
á
i-
2l
ð
ð
n
i.
i-
n
á
ft
g
tt
k
.a
it
ti
á
KR, sagði að það hafi verið ómetan-
legt að fá að hann til liðs við KR.
„Það eru forréttindi að hafa fengið
að Ieika með þessum mikla keppnis-
manni. Axei er geysilega sterkur
varnarleikmaður, sem bakkar aðra
leikmenn upp þegar þeir gera mis-
tök í vörn. Þá er hann mjög hvetj-
andi og lætur leikmenn heyra það
þegar þeir slá slöku við. Hann hef-
ur leikið geysilega stórt hlutverk
hjá KR og landsliðinu. Stundum ber
ekki mikið á honum, en þrátt fyrir
það er hann alltaf að vinna þýðing-
armikil hlutverk fyrir liðsheildina,"
sagði Guðni.
Ákveðinn að hætta
Axel hefur verið að bæta sig á
hverju ári sem leikmaður og hefur
hann leikið lykilhlutverk með KR
og landsliðinu, þrátt fyrir að bak-
meiðsli hafi hijáð hann. Torfi Magn-
ússon, landsliðsþjálfari, sagði að
enginn leikmaður ætti að hætta á
toppnum. „Það yrði sárt að horfa
á eftir Axel,“ en Axel svaraði Torfa
með því að segja að það væri alltaf
erfitt að liætta því það væri einfald-
lega svo gaman að leika körfuknatt-
leik. „Það eru alltaf gerðar meiri
og meiri kröfur til leikmanna. Ég
vil ekki verða útslitinn karl í íþrótt-
inni, sem veit ekki sinn vitjun-
artíma. Mér finnst minn tími vera
kominn til að taka mér hvíld og
nota frítíma minn í annað en æfa
og leika körfuknattleik. Það mun
svo koma í ljós hvort unnusta mín
fær leið á mér heima og sparki mér
á æfingar,“ segir Axel.
„Það verður mjög erfitt að fylla
það skarð sem Axei kemur til með
að skilja eftir sig, ef hann hættir.
Hann fær ekki að hætta. Það er
ekkert vit í því að leyfa mönnum
að setjast í helgan stein, þegar þeir
eiga mikið eftir,“ segir Guðni
Guðnason. Jón Kr. Gíslason segir
að bakmeiðsli Axels hafi ýtt á að
hann legði skóna á hilluna. „Ég hef
þó ekki trú á að hann hætti.“
Axel segir að það sé eitt sem
togar - það er að leika með lands-
liðinu. „Andinn er mjög góður í
landsliðinu og með iiðinu leika
strákar sem vita hvað þarf að gera
til að sigra og kunna til verka. Það
er frábært að leika með landsliðinu,
sem leikur körfuknattleik sem hent-
ar íslendingum best - að leika
pressuvörn út um allan völl,“ sagði
Axel, en hann segir að körfuknatt-
leikur á íslandi sé í stöðugri sókn.
„Það hefur verið haldið mjög vel
á spilunum. Forráðamenn og leik-
menn hafa ekki byggt upp neinar
skýjaborgir. Körfuknattleikur er
geysilega skemmtileg íþrótt, þar
sem ailtaf er eitthvað að gerast.
Hraðinn og krafturinn er-mikill og
íþróttin hentar einnig vel sem sjón-
varpsíþrótt. Besta dæmið um aukn-
ar vinsæidir körfuknattleiksins er
að hann hefur slegið handknatt-
leiknum við hvað áhorfendafjölda
varðar tvö síðastliðin keppnistíma-
bil.
Ekki rétt að fjölga útlendingum
Axel er alfarið á móti þeirri hug-
mynd að fjölga útlendingum í úr-
valsdeildinni. „Hugmyndir um að
félög geti teflt fram tveimur útlend-
ingum er út í hött. Keflvíkingar,
sem eru með fimm landsliðsmenn,
myndu aldrei sætta sig við að tveir
landsliðsmenn myndu sitja á bekkn-
um langtímum saman. Það yrði lé-
leg fjárfesting hjá félögum að fá
annan útlending til að láta hann
sitja á bekknum. Efniviðurinn er
mikill hér á landi. Það þarf frekar
að hlúa að honum heldur en að
fjölga útlendingum," sagði Axel
Nikulásson.
Það verður mikil eftirsjá í Axel,
ef hann stendur við ákvörðun sína
að hætta. Það kemur alltaf maður
í manns stað, en það kemur enginn
annar Axel Nikulásson í íslenskan
körfuknattleik.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Breiðablik hóf
titilvömina
með stórsigri
BOLTINN fór að rúlla í 1. deild
kvenna íknattspyrnu um helg-
ina þegar KA-stúlkur komu
suður og léku tvo leiki. Fyrri
leikurinn var á laugardag á
malarvellinum á KR-svæðinu.
Þar lék KA við heimamenn sem
sigruðu 3:2 íjöfnum leik. Á
sunnudag lék KA við íslands-
meistara Breiðablik og mátti
þola stórt tap, 4:0.
Leikur KR og KA var jafn fram-
an af. Um miðjan fyrri hálfleik-
inn náði KR forystunni með sjálfs-
marki KA. Arna Steinsen, þjálfari
KR, átti fyrirgjöf
Hanna fyrir mark KA. Það-
Katrín an átti Anna systir
Fiiðnksen hennar skot að
niarki af stuttu færi,
boltinn fór í varnarmann og skaust
þaðan í markið. Stuttu síðar komst
KR í 2:0 þegar Guðrún Jóna Kristj-
ánsdóttir skoraði glæsilegt skalla-
mark eftir hornspyrnu Kristrúnar
Heimisdóttur. Staðan í leikhléi var
2:0.
Á fyrstu mínútu síðari hálfleiks
minnkuðu KA-stúlkur muninn.
Markið kom eftir hornspyrnu,
þvaga myndaðist fyrir framan mark
KR. Arndís Ólafsdóttir náði að pota
boltanum í netið. Um miðjan síðari
hálfleik jafnaði Hjördís Úlfarsdóttir
leikinn fyrir KA.
Eftir jöfnunarmarkið einkenndist,
leikurinn af miðjuþófi og jafntefli
lá í loftinu. Sigurmark KR, þegar
aðeins fjórar mínútur voru til leiks-
loka, kom því nokkuð á óvart. He-
lena Ólafsdóttir fékk þá sendingu
hægra megin við KA-markið. Hún
hitti boltann vel úr léiegu færi og
sendi hann í fjær hornið fram hjá
Sigríði Páisdóttur, markverði KÁ,
sem áður lék með KR.
„Leikurinn var nokkuð kafla-
skiptur. KR lék mun betur í fyrri
hálfleik og átti nokkur góð mark-
tækifæri sem ekki nýttust. KA
komst betur inn í leikinn í síðari
hálfleik, var þá mun meira með
boltann, en náði kannski ekki að
skapa sér jafnhættuleg færi og KR
fékk í þeim fyrri. Þegar á heildina
er litið hefði jafntefli verið sann-
gjörn úrslit miðað við gang leiks-
ins, enda var ekki mikið að gerast
á vellinum þegar Helena gerði út •
um leikinn," sagði Arna Steinsen,
þjálfari KR, eftir leikinn.
Þreytumerki hjá KA-stúlkum
íslandsmeistarar Breiðabliks
hófu titilvörnina af krafti með stór-
sigri á KA á Kópavogsvelli á sunnu-
dag. Blikarnir voru mun sterkari
allan tímann og markið þeirra meg-
in var aldrei í hættu. Hins vegar
hefur það án efa spilað inn í að
KA var þarna að leika sinn annan
leik á jafnmörgum dögum og því
þreyta í liðinu. Blikastúlkur lék hins
vegar á als oddi og verða greinilega
til alls líklega í sumar.
Sigríður Tryggadóttir gerði
fyrsta mark Blika með glæsilegu
skoti beint úr aukaspyrnu af 30
metra færi. Markið kom eftir tæp-
lega 20 mínútna leik. Nokkrum
mínútum síðar kom annað mark
Breiðabliks þegar Hrafnhildur
Gunnlaugsdóttir skoraði eftir lag-
legan undirbúning Magneu Magn-
úsdóttur. Eftir markið dofnaði að-
eins yfir leiknum og staðan var 2:0
í leikhléi.
Síðari hálfleikur var aðeins fimm
mínútna gamall þegar Blikastúlkur
bættu þriðja markinu við. Þar var '
Magnea að verki með góðu einstakl-
ingsframtaki þar sem hún stakk sér
inn fyrir varnarmenn KA. Lára
Ásbergsdóttir, nýkomin inn á sem
varamaður, rak smiðshöggið á
verkið með fallegu marki fimmtán
mínútum fyrir leikslok. Blikastúlkur
voru mun nær því að bæta við
mörkum en KA-stúlkur að svara
fyrir sig og Ásta B. Gunnlaugsdótt-
ir átti góðan skalla í þverslá KA-
marksins stuttu fyrir leikslok.
„Þegar við heyrðum úrslitin í leik
KR og KA í gær urðum við hrædd-
ar, en spilið gekk vel hjá okkur í
dag. Það virtist ekki koma að sök
að þessu sinni að lykilmanneskjur
vantaði í liðið hjá okkur. Við verðum
með í toppbaráttunni, enda er stefn-
an að sjálfsögðu að veija titilinn,“
sagði Ásta Gunnlaugsdóttir.
■ Úrslit / B6
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Glæsilegt marfc
SELFOSS vann Tindastól 2:1 í
2. deild á Sauðárkróki á laugar-
dag. Þetta var dæmigerður
vorleikur á grasi, þar sem
heimamenn voru meira með
boltann, en gestirnir nýttu fær-
in.
Selfyssingurinn Páll Guðmunds-
son gerði gull af marki og
breytti stöðunni í 2:0 skömmu fyrir
hlé. Hann tók aukaspyrnu nálægt
miðlínu og þrumu-
Björn skot hans sleikti
Björnsson þverslána og inn,
skrífar gersamlega óverj-
andi og fallegasta
mark sumarsins. Skömmu áður ein-
lék Sigurður Fannar Guðmundsson
í gegnum sofandi vörn Tindastóls
og skoraði af öryggi.
Heimamenn sóttu stíft í seinni
hálfleik undan vindi, en vörn gest-
anna var þétt. Björn Björnsson
minnkaði muninn úr vítaspyrnu, en
Sigurður Fannar innsiglaði sigur
Selfyssinga á síðustu mínútu eftir
varnarmistök.
Marinó Þorsteinsson dæmdi mjög
Páll Guðmundsson.
vel og ef leikir verða eins dæmdir
í framtíðinni þurfa menn ekki að
kvíða.
Maður leiksins:
Sigurður Fannar Guðmundsson,
Selfossi.
Bestir í alþjóðlegum sportfatnaði
SÆVAR KARL &. SYNIR1
^
Kringlunni, sími 689988