Morgunblaðið - 04.06.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.06.1991, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1991 TENNIS / STIGAMOT ÓLAFUR Sveinsson úr TFK og Guðný Eiríksdóttir, Þrótti, voru sigurvegarar á fyrsta stigamóti sumarsins í tennis sem haldið var á sandgrasvöllum Þróttar um helgina. ÆT Iúrslitaleiknum í karlaflokki mætti Ólafur Stefáni Pálssyni Víkingi og sigraði Ólafur 2:1 í spennandi viðureign. Stefán vann gggmBB fyrsta leikinn 6:1 Frosti eftir að Ólafur hafði Eiösson náð forystunni eftir skrifar fyrstu lotu. Ólafur hafði nokkra yfir- burði í tveimur síðustu leikjunum, hann sigraði 6:2 og 6:1. Hinn fertugi Christian Staub hafnaði í 3-4 sæti ásamt Óðni Ægissyni TFK. íslandsmeistarinn sl. tvö ár, Einar Sigurgeirsson féll óvart út í átta manna úrslitum, Hann hætti keppni vegna meiðsla' er hann var undir 2:0, í öðrum leik gegn Óðni en þann fyrri vann Óðinn 7:5. Saman unnu þeir félagar tvíliðaleik er þeir báru sigurorð af Ólafi Sveinssyni og Eiríki Ónundar- syni Þrótti 6:3 og 7:6. Guðný með þrenn gullverðlaun Guðný Eiríksdóttir úr Þrótti var mjög sigursæl á mótinu en hún hreppti þrenn gullverðlaun, fyrir einliða-, tvíliða- og tvenndarleik. Guðný mætti Hrafnhildi Hannes- dóttir Fjölni í úrslitum einliðaleiks- ins. Hrafnhildur náði snemma und- irtökunum og eftir sex lotur hafði hún 4:2 forystu. Guðný sneri þá leiknum sér í hag og sigraði 6:4 og 6:2.1 tvíliðaleiknum sigruðu þær Guðný og Steinunn Björnsdóttir þær Guðfinnu Steindórsdóttir og Samiek Vala Issa 4:6, 6:4 og 6:2. I tvenndarleiknum lék Guðný með Eiríki Önundarsyni gegn Ás- dísi Ólafssyni og Einari Óskarssyni TFK og unnu þau fyrrnefndu 6:3 og 6:1. Rúmlega sextíu keppendur tóku þátt í mótinu. Leikmönnum eru gefin stig eftir árangri á mótinu og hefur það áhrif á niðurröðun keppenda á íslandsmótinu. Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson Ólafur Sveinsson úr TFK og Guðný Eiríks- dóttir, Þrótti, voru sigurvegarar á fyrsta stiga- móti sumarsins í einliðaleik í tennis. Á myndinni fyrir ofan er Ólafur í úrslitaleiknum gegn Ste- fáni Pálssyni. Guðný, á myndinni til hliðar, er einbeitt á svip í úrslitaleiknum gegn Hrafnhildi Hannesdóttur. Guðný sigursæl Ólafur Sveinsson sigraði í einliðaleik karla Morgunblaöið / Frosti Áslaug Óskarsdóttir og Leonardo Snelleman eru hér ásamt Hrafnhildi Hannesdóttir sem tekur þátt í þremur alþjóðlegum tennismótum í sumar. Bestir í alþjóðlegum sportfatnaði SÆVAR KARL &. SYNIR Kringlunni, sími 689988 PRESSU SÖLUBARNA Stofnfundur Stofnfundur Tennisfélags Kópavogs verður haldinn nk. þriðjudagskvöld við Kópa- vogsskóla. Einar Sigurgeirsson og Ólaf- ur Sveinsson, landsiiðsmenn í tennis spila sýningarleik _sem hefst kl. 20. Þeir Einar og Ólaf- ur verða þjálfarar félagsins í sumar. Þeir sem hafa áhuga á að læra tennis í sumar geta hringt í síma 45389 á milli 19-21 á kvöldin og fá nánari upplýsing- ar. Tennisíþróttin áfram- tíðina fyrir sér á íslandi ALÞJÓÐA Tennissambandið stóð fyrir tennisnámskeiði hér á landi \ síðustu viku. Hollendingurinn Leonardo Snelleman, sem er einn fremsti unglingaþjálfarinn í Svíþjóð kom hingaðtil lands og leiðbeindi tennisþjálfurum, leikfimikennurum og iðkendum umtennis. Snelleman hefur starfað í Svíþjóð sl. þrjú ár og hann hefur meðal annars kennt í „Davies-cup skólan- um,“ en það er skóli fyrir bestu ungl- ingana hveiju sinni. Frosti Aðalstarf hans er Eiðsson hins vegar þjálfun skrifar hjá KFUM Borás, sem er þekkt fyrir mikið unglingastarf enda eru margir af bestu tennisleikurum Svíþjóðar í unglingaflokki innan raða félagsins. Snelleman lét vel af dvölinni hér á landi og sagði að geta unglinganna hefði komið sér á óvart. „Ég held að tennisíþróttin eigi mikla framtíð fyrir sér hér á landi. íþróttin hefur vaxið mjög mikið á alla síðustu árum með tilkomu betri aðstöðu en til þess að íþróttin öðlist almennar vinsældir og Islendingar öðlist afreksfólk þá þarf að vera hægt að stunda íþrótt- ina allt árið. Fleiri félög þurfa að koma til og nauðsynlegt er að kynna íþróttina vel í grunnskólum og helst þyrfti að koma af stað skólamóti í tennis. í Svíþjóð eru um eitt þúsund tenn- isfélög starfandi og flest þeirra hafa yfír að ráða völlum innan- og utan- húss. Unglingastarfíð hefur skilað Svíum nokkrum af bestu tennis- mönnum heims og Svíþjóð er núver- andi heimsmeistari landsliða í karla- flokki. Gífurlegur uppgangur hefur verið í íþróttinni og miklu skiptir að tennis er ekki lengur bundin við þá sem betur eru settir. í Svíþjóð geta allir stundað tennis en t.d. í Þýska- landi þarf unglingur að eiga vel stæða foreldra til þess að geta stund- að íþróttina." Hrafnhildi boðiðámót Snelleman bauð Hrafnhildi Hann- esdóttir til móts í Svíþjóð en Hrafn- hildur sem er þrettán ára hefur tek- ið miklum framförum og er meðal bestu tennisleikara hér á landi í kvennaflokki. „Ég held að Hrafnhild- ur sé góð fyrirmynd fyrir aðra tennis- leikara. Afreksfólk er nauðsynlegt í öllum íþróttum til þess að hvetja aðra iðkendur til að ná sama ár- angri og ég held að færni hennar eigi að geta orðið öðnim unglingum hvatning, ekki aðeins í kvenna- flokki,“. Hrafnhildur er ekki alveg ókunnug í Svíþjóð, hún bjó þar í íjögur ár með foreldrum sínum og var í tennis- félagi í Lundi eitt þeirra. Hún mun taka þátt í tveimur sterkum alþjóð- legum mótum í sumar. Hrafnhildur leikur á Bofors mótinu í tvíliðaleik með breskri stúlku og fer síðan til Borás þar sem hún fær að spreyta sig í einliðaleiknum á öðru móti sem tennisfélagið KFUM Borás stendur fyrir. í þessum mánuði fer Hrafnhildur til Brússel þar sem að hún er fulltrúi íslands í kvennaflokki á Ólympíudög- um æskunnar og það stefnir því í viðburðaríkt sumar hjá henni.„Eg er mjög spennt í að fara út að keppa og það á örugglega eftir að verða mjög skemmtilegt, þó að ég geri mér engar sérstakar vonir um árangur.“ ÍMémR FOLK ■ BRYAN Robson, fyrrum fyrir- liði enska landsliðsins sem stýrði Manchester United til sigur í Évr- ópukeppni bikarhafa, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Un- ited. Sögusagnir voru uppi um að nú myndi Robson, sem er 34 ára, hætta að leika og gerast þjálfari. En hann er greinilega á öðru máli. ■ DA VID Pleat hefur verið boð- ið að taka við framkvæmda- stjórastöðunni hjá Luton. Pleat, sem fór frá Luton 1986 til að taka við Tottenham, var rekinn frá 2. deildarliðinu Leicester í janúar. Jim Ryan, framkvæmdastjóri Lu- ton, var sagt upp störfum aðeins tveimur dögum eftir að hann hafði bjargað liðinu frá falli í 2. deild með því að vinna síðasta leikinn í deildarkeppninni. ■ HERTA Berlin, sem leikur í þýsku Bundesligunni, rak í síðustu viku þriðja þjálfarann á þessu keppnistímabili. Peter Neururer tók við liðinu í mars og stjórnaði því 11 leiki og náði aðeins tveimur stigum. Á laugardaginn tapaði liðið fyrir Bayern Míinchen, 7:3 og þá var mælirinn fullur og hann látinn fara. Hinir þjálfararnir sem reknir voru í vetur eru Werner Fuchs og Pal Csernai. I LÆKNIR ítalska liðsins Lazio hefur skoðað skurðaðgerðina á Paul Gascoigne á myndbandi og er svo ánægður með framkvæmdina að Lazio er tilbúið að greiða Tott- enham um 420 millj. ÍSK sem fyrir- framgreiðslu vegna væntanlegra kaupa. Seve Ballesteros sigraði í bresku meistarakeppninni. Annar sigur Ballesteros áviku Spánveijinn Seve Ballesteros sigraði í bresku meistara- keppninni í golfí um helgina. Hann fór á 13 höggum undir pari og kom inn á 275 höggum eða þremur höggum á undan næstu mönnum. Þetta var þriðji sigur Spánveijans í síðustu fjórum mótum og annar á viku. Ballesteros var með sjö högga forystu fyrir síðasta keppnisdag og því kom óöryggi á síðasta hring ekki að sök. „Eg lék ágætlega á síðasta degi, en púttin voru ekki nógu góð,“ sagði Spánveijinn. „Það eina sem skipti máli var að sigra, það var takmarkið og ég náði því.“ Ballesteros er nú 5. á heimsaf- rekalistanum og launahæstur evr- ópskra kylfinga í ár með liðlega 20 milljónir ÍSK fyrir árangurinn á mótum ársins. ■ Úrslit / B6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.