Morgunblaðið - 05.06.1991, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1991
41
fclk ■
fréttum
SUMAR
Litað úti í blíðunni
Aleiðinni á pósthúsið sá fréttaritari börnin á leikskólanum Barnabóli
á Þórshöfn sólbrún og sæt úti áð lita við nýju borðin sín í 20
stiga hita.
COSPER
Hann er búinn að sleikja þennan brjóstsykur í mánuð.
Má hann ekki taka bréfið utan af honum?
ÆSKULÝÐSSTARF
60 börn á vordögnm kirkjunnar
Um 60 þátttakendur tóku þátt
í vordögum barnanna sem
Kálfatjarnarkirkjaefndi til 27. maí
með stuðningi Vatnsleysustrand-
arhrepps.
Vordagarnir voru haldnir í ann-
að sinn og voru þeir með líku sniði
og í fyrra, en þar fór fram söng-
ur, leikir og íþróttir og var starfað
bæði innan húss og utan. Þátttak-
endur voru á aldrinum 6-12 ára.
Leiðbeinendur voru Ásgeir Páll
Ágústsson, Þórunn Sigurðardóttir,
Guðmundur Þórðarson íþrótta-
kennari og séra Bjarni Þór Bjarna-
son héraðsprestur, ásamt þremur
unglingum úr hreppnum.
Að sögn Sesselju Sigurðardótt-
ur formanns sóknarnefndar er
ýmislegt fleira að gerast hjá kirkj-
unni í þessum mánuði, Árlegur
kirkjudagur verður 9. júní kl.
14.00, þá er 50 ára fermingar-
börnum sérstaklega boðið til að
vera viðstödd og Kvenfélagið Fjóla
verður með kaffisölu í Glaðheim-
um í tilefni dagsins.
Þá eru þau tímamót. í þessum
mánuði að séra Bragi Friðriksson
hefur verið prestur við Kálfatjarn-
arkirkju í 25 ár.
- EG.
Bob Geldof.
UÓSVAKINN
Bjarki Elíasson skólastjóri Lögregluskólans þakkar Guðbrandi
Þorkelssyni, fyrrverandi varðstjóra, farsæl störf í þágu skól-
ans. Við hlið þeirra standa fyrrverandi yfirlögregluþjónarnir
Óskar Ólason og Guðmundur Hermannsson.
LÖGREGLUSKÓLINN
Gamlar kempur heiðraðar
Lögregluskóla ríkisins var
slitið í 25. skipti fyrir
skömmu og við það tækifæri
voru heiðraðir þrír fyrrverandi
yfirmenn í lögreglunni, fyrir
langa og dygga þjónustu við
skólann. Þar var um að ræða
fyrrverandi yfirlögregluþjónana
Guðmund Hermannsson og
Óskar Ólason og Guðbrand Þor-
kelsson, fyrrverandi varðstjóra
og fengu þeir afhenta áletraða
skildi með merki skólans. Þeir
Guðmundur, Óskar og Guð-
brandur hafa kennt flestum
þeirra 782 lögreglumanna sem
lokið hafa námi frá skólanum
en þó ekki þeim 23 nýliðum sem
útskrifaðir voru við þetta tæki-
færi, að viðstöddum meðal ann-
arra Þorsteini Pálssyni dóms-
málaráðherra.
Þátttakendur og leiðbeinendur á vordögum Kálfatjarnarkirkju. Morgunbiaðið/Eyjólfur m. Guðmundsson
Bob Geldof framleiðir
sjónvarpsefni
Bob Geldof, popparinn sem
þekktastur er fyrir að vera
hvatamaður að alþjóðlega hjálpar-
uppátækinu „Live aid“ hefur nú
stofnað fyrirtæki með nokkrum
leikstjórum og framleiðendum
sjónavrpsefnis og er viðfangsefnið
einmitt það, þ.e.a.s. framleiðsla á
sjónvarpsefni. Fyrirtækið hefur
þegar sent frá sér fyrsta sjón-
varpsþáttinn, sem við kemur írska
rithöfundinum James Joyce. Þátt-
urinn verður sýndur í bresku sjón-
varpi 18. júní, en þá eru 50 ár lið-
in frá láti Joyce. Söguþráðurinn
er úr skáldsögu Joyce, „Ulysses“
og er söguhetjan Leopold Bloom.
Heitir myndin „Bloomsday“.
Geldof, sem núverið sendi frá sér
hljómplötu, sagði að hann væri
orðinn svo ráðsettur fjölskyldu-
maður að hann gerði varla annað
á kvöldin en að glápa á sjónvarp.
„Ég var einhvern tíman að rífast
við kunningja minn um hvað mér
þætti margt sjónvarpsefni lélegt
og þá sagði ha’nn einfaldlega, afx
hveiju framleiðir þú bara ekki
sjálfur það sem þú vilt horfa á.
Þú átt peninga, hefur hugmyndir
og þekkir tæknimenn í hrönnum.
Ég gat auðvitað ekki kjaftað mig
út úr svona röksemdarfærslu,"
sagði Geldof.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Stór hópur keppnisfólks
Vel yfir eitt hundrað þátttakend-
ur frá Sauðárkróki og úr ná-
grannabyggðum skráðu sig til
keppni í Landsbankahlaupinu, sem
fram fór þann 25. maí.
Þá var einnig fjöldi fólks sem
fylgdist með þesum íþróttaviðburði,
en þetta er í fyrsta sinn sem Lands-
bankahlaup fer fram á Sauðár-
króki, enda ekki nema nokkrir mán-
uðir síðan Landsbankinn haslaði sér
völl í Skagafirði.
Keppt var í ijórum riðlum og
hljóp Óttar Bjarnason, „Reykjavík-
urskokkari" fyrir öllum hópnum og
leiddi hlaupið.
í efsta sæti í hveijum riðli urðu:
Stúlkur fæddar 1978 og 79:
Hanna B. Hauksdóttir.
Drengir fæddir 1978 og 79:
Sveinn Margeirsson.
Stúlkur fæddar 1980 og 81:
Rakel Hermannsdóttir.
Drengir fæddir 1980 og 81:
1. ísak Einarsson.
- BB.
Sigurvegarar í öllum flokkum.
Morgunblaðið/BjÖrn Björnsson