Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JUNI 1991
B 3
\RFJARÐAR
r Soniu Renard á Listahátíðinni í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Einar Falur
AKE LAGERBORG er aldursfor-
seti þessa hóps. Hann er Svíi og
hefur unnið í anda Fluxus-hreyfing-
arinnar gegnum árin. í verkum hans
má finna skyldleika við Súm-hreyf-
inguna hér á íslandi enda léku alþjóð-
legir straumar um Evrópu á þeim
árum. Lagerborg er vel þekktur í
Svíþjóð og á verk víða í Skandinavíu.
JURG ALTHERR er Svisslend-
ingur og af mörgum talinn einn
fremsti myndhöggvari Evrópu í dag.
Hann vinnur að sögn í ánda minimal-
ismans og verk hans eru einföld,
unnin í tré og járn, en stór og þung.
Verk hans er að finna víða í borgum
Sviss og einnig víðar um Evrópu.
VOLKER SCHÖNWART er
yngstur þeiira sem taka þátt í
Listahátíðinni. Hann er Þjóðverji,
rúmlega þrítugur að aldri. Hann
vakti fyrst verulega athygli í Þýska-
landi fyrir grafíkverk sín en hefur á
síðustu árum skapað sér gott orð á
sviði höggmyndalistarinnar.
íslendingarnir fimm eru allir í
hópi okkar þekktustu myndlistar-
manna. Það kann þó að vekja nokkra
forvitni að meðal þeirra eru tveir sem
ekki hafa sýnt stóra skúlptúra áður.
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
er einn af okkar best metnu mynd-
höggvurum og hefur skapað sér gott
orð bæði hér heima og erlendis.
BRYNHILDUR ÞORGEIRS-
DÓTTIR er einn af athyglisverðari
myndlistarmönnum okkar af yngri
kynslóðinni. Þetta verður í fyrsta
skipti sem hún sýnir skúlptúr í fullri
stærð ef svo má segja og því forvitni-
legt að sjá hvernig úr vinnst.
MAGNÚS KJARTANSSON er
einn af okkar þekktustu myndlistar-
mönnum. Hann hefur einkum verið
orðaður við málverkið en hefur þó
unnið að skúlptúrum jöfnum höndum
þó lítið hafí borið á því. Verk hans
á Listahátíð Hafnarfjarðar er fyrsta
tækifæri Magnúsar til að takast á
við stóran útiskúlptúr.
STEINUNN ÞÓRARINSDÓTT-
IR hefur getið sér gott orð fyrir
skúlptúra sína og verk hennar má
sjá við ýmsar opinberar byggingar í
Reykjavík og víðar. Verk hennar eru
fígúratív samanber minnismerki er
hún gerði fyrir bæjarfélögin í Sand-
gerði og Grundarfirði. Steinunn hef-
ur einkum unnið í leir og gler en er
nú að færa sig yfir í járnið og skúlpt-
úr hennar í Hafnarfírði er einmitt
afrakstur kynna hennar við járnið.
Alþjóðlega vinnustofan í Straumi
var opnuð með viðhöfn þann 1.
júní sl. Hún er opin almenningi
til 15. þ.m. og getur fólk komið
og fylgst með listamönnunum að
störfum, rabbað við þá og fengið
sér kaffibolla í fallegu umhverfi
í Hafnarfjarðarhrauni.
íöggvararnir
jórtán
Iþjóðlega viðurkenningu og þekkt-
stur er hann fyrir stóra útiskúlptúra
na úr bronsi sem standa víða við
pinberar byggingar í borgum Japan.
SEBASTIAN er óumdeilanlega
ekktasta nafnið í þessum hópi.
'ann er frá Mexíkó og er einn af
ekktustu myndlistarmönnum
eimsins í dag og verk hans er að
nna í öllum helstu listasöfnum og
öggmyndagörðum heimsins. Þekkt-
stur er Sebastian fyrir geómetríska
kúlptúra sína en einkenni þeirra eru
íargar kassalaga einingar sem hann
iðar saman. Verkið sem hann legg-
r til Listahátíðar Ilafnarfjarðar er
inmitt í þeim dúr. Sebastian hefur
ferli sínum unnið ti! ótal alþjóð-
legra verðlauna og eftir hann standa
um fjörutíu skúlptúrar víðsvegar um
heim, einkum í Bandaríkjunum og
Mexíkó. Það er fengur að komu Se-
bastians hingað til lands og þá ekki
síður verksins sem hann gefur til
Höggmyndagarðsins og er það vafa-
laust nokkurra tuga milljóna króna
virði.
ROWENA MORALES er einnig
mexikönsk. Hún hlaut fyrst alþjóð-
lega viðurkenningu fyrir hönnun og
gerð skartgripa en sneri sér síðan
að málverkinu og starfaði í anda
Femínistahreyfingarinnar. Hún hef-
ur á seinni árum vakið athygli fyrir
skúlptúra sína og er verk hennar að
finna í listasöfnum víða um heim.
Mozart-tónleikar
í Hafnarborg
Listahátíð Hafnarfjarðar hefst á háu nótunum
Einsöngvarar ásamt sljórnanda. Frá vinstri: Ragnar Davíðsson,
Guðný Árnadóttir, Helgi Bragason, Sigríður Gröndal og Þorgeir J.
Andrésson.
Fyrstu tónleikar Listahátíðar
Hafnarfjarðar verða annað kvöld
í Hafnarborg. Það er kór Hafnar-
fjarðarkirkju ásamt 16 manna
hljómsveit og sex einsöngvurum
sem syngur verk eftir W.A. Moz-
art undir stjórn Helga Bragason-
ar.
Helgi sagði í stuttu spjalli að
efnisskráin væri skipuð verkum
Mozarts vegna þess að nú á árinu
1991 eru liðin 200 ár frá dauða
tónskáldsins. Væri minning Moz-
arts þannig heiðruð víða um heim
á þessu ári.
Tónleikarnir hefjast með kon-
sertmótettunni Exultate Jubilate
K.165. Helgi sagði að verkið væri
frá árinu 1772. „Það er í fjórum
þáttum, sá fyrsti er hraður kafli í
konsertstíl með stuttum hljómsveit-
arkafla og tveimur meginhugmynd-
um. Annar kafli er stutt tónles. Sá
þriðji, andante, er hæg aría. Síðasti
þátturinn, Alleluia, er. glaðlegur
með stuttum innkomum hljómsveit-
arinnar," sagði Helgi. Einsöngvari
er Sigríður Gröndal.
„Þessu næst flytjum við fjórar
mótettur, Ave Verum Corpus,
Sancta María, Laudate Dominum
og Alma Dei Creatoris. Einsöngvar-
ar í tveimur síðasttöldu mótettunum
eru Hanna María Ólafsdóttir, María
Kristín Gylfadóttir, Sigríður E.
Snorradóttir, Sigríður Gröndal,
Guðný Árnadóttir og Þorgeir J.
Andrésson.
Tónleikunum lýkur með Messu í
C-dúr K.317, einsöngvarar eru
Sigríður Gröndal, Guðný Árnadótt-
ir, Þorgeir J. Andrésson og Ragnar
Davíðsson. „Þetta verk gengur jafn-
an undir nafninu Krýningarmessan
og er samið árið 1779 í tilefni af
minningarhátíð um Maríulíkneski í
pílagrímakirkjunni í Maria Plain í
nágrenni Salzborgar. Messan ber
einkenni hátíðarmessu fyrir það að
auk strengja og orgels notar Moz-
art blásturshljóðfæri og pákur.
Samkvæmt boði erkibiskupsins
Hieronymusar Colleredo sem Moz-
art var í þjónustu hjá, máttu mess-
urnar ekki taka meira en hálfa
klukkustund í flutningi. Fúgur voru
bannaðar. Vegna þessarar skipunar
verður að skara textann í Gloria
og Credo. í þessari messu notar
Mozart sér út fystu æsar þröngan
ramma sem honum var settur,"
sagði Helgi.
„Þetta er langstærsta verkefnið
sem kórinn hefur ráðist í fram að
þessu,“ sagði Helgi en hann hefur
starfað sem kórstjóri og organisti
við Hafnarfjarðarkirkju frá 1985.
Áður hefur kórinn haldið ferna
söngtónleika og flutt tvær messur
eftir Haydn, kantötu eftir J.S. Bach
og dagskrá tileinkaða Friðriki
Bjarnasyni tónskáldi.
„Kórstarfið hefur byggst upp
hægt og sígandi á þessum árum
og nú eru félagarnir orðnir 30 tals-
ins en voru aðeins fimm þegar ég
byrjaði við kirkjuna. Kórfélagamir
eru því flestir ungt fólk sem vill
gjarnan takast á við krefjandi verk-
efni og þetta er það sem heldur
kórnum saman. Sálmasöngurinn
nægir ekki til að halda áhuganum
vakandi,“ sagði Helgi Bragason
kórstjóri.
hs