Morgunblaðið - 21.06.1991, Qupperneq 4
4
MORGCNBl-ADltí ÝÖSttóAduk1 W Júdí Í991
Höfn í Hornafirði:
Milljónatjón vegna elds-
voða í húsgagnaverslun
Athafnasvæði olíufélaganna í 30 metra fjarlægð
MILLJÓNATJÓN varð í eldi í
Húsgagnaverslun JSG á
Alaugarey í Höfn í fyrrinótt.
Slökkviliði staðarins var tilkynnt
um eldsvoðann um kl. 4.30 aðf-
Vinnuslys í
Skúlatúni
VINNUSLYS varð við Vélamið-
stöð Reykjavíkurborgar í Skúla-
túni í gær þegar vökvaknúin
dæla vörubíls lenti ofan á fæti
manns sem vann að viðgerð
bílsins. Meiðsii mannsins eru ekki
talin alvarleg.
Maðurinn var að leita að leka í
vökvakerfi vörubílsins þegar dælan,
lenti á fæti hans. Hann mun hafa
brákast á tám. Vinnueftirlit ríkisins
kom á staðinn og kannaði aðstæður
og orsakir slyssins.
aranótt fimmtudags og logaði þá
mikill eldur á jarðhæð hússins
sem er tvílyft steinhús með kjall-
ara. I húsinu var húsgagna- og
smávöruverslun á báðum hæðum
og lager í kjallara. Allur varning-
ur, húsgögn, tæki og birgðir,
eyðilögðust í eldinum og af völd-
um sóts og vatns. Lögreglan á
Hornafirði telur að um milljóna-
tjón sé að ræða.
Slökkviliðið réð niðurlögum elds-
ins á um hálfri klukkustund ogtókst
að veija efri hæð hússins og kjall-
ara fyrir eldskemmdum, en allt inn-
anstokks brann á jarðhæðinni. Efri
hæð og kjallari er mikið skemmt
af sóti og vatni. Timburgólf er á
milli kjallara og jarðhæðar og mátti
litlu muna að eldur læsti sig í það,
að sögn lögreglu. Húsið er gömul
verbúð, byggt á fimmta áratugnum.
Alls tóku 13 slökkviliðsmenn þátt
í slökkvistarfinu á tveimur bílum.
í 50 fermetra útbyggingu sem
sambyggð er við verslunina er íbúð
og tókst slökkviliðinu að verja það.
Einn maður býr í húsinu og var
hann ekki heima við þegar eldurinn
kom upp.
Drengur á reiðhjóli varð fyrstur
var við reyk frá húsinu og gerði
hann lögreglunni viðvart um hann.
Húsið er á Alaugarey og er þar
engin byggð, en olíufélögin Skelj-
ungur og Olís hafa þar birgðastöðv-
ar og skammt undan er athafna-
svæði Esso. Aðeins 30 metrar eru
á milli hússins og bensíntanks og
að sögn lögreglu hefði eldur hæg-
lega getað komist í tankinn ef
hreyft hefði vind, en logn var þegar
eldurinn kom upp. Á athafnasvæð-
inu eru samtals fimm tankar með
bensíni og olíum og hefði getað
orðið stórbruni á svæðinu hefði eld-
ur komist í eldsneytið.
Ekki er ljóst hvað olli upptökum
eldsins.
VEÐUR
* - —
pppiin
-—r
mxzmmmmm
VEÐURHORFUR í DAG, 21. JÚNÍ
YFIRLIT: Skammt suðvestur af landinu er 1.010 mb hæð en grunnt
Iægðardrag yfir Norðausturlandi hreyfist lítið.
SPÁ: Vestlæg eða breytileg átt, gola eða kaldi. Víða hafgola sfðdeg-
is. Skýjað með köflum á Vestfjörðum og Norðausturlandi en ann-
ars bjart. Hlýjast verður í innsveitum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og
bjart veður um allt land. Áfram verður hlýtt.
Svarsfmi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V El
EE Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
TAKN:
Q
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
Alskýjað
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
4
K
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veöur
Akureyri 11 skýjað
Reykjavík 12 léttskýjað
Bergen 18 skýjað
Helsinki 18 skýjað
Kaupmannahöfn 11 skúr
Narssarssuaq 12 léttskýjað
Nuuk 4 þoka
Ósló 16 skúr
Stokkhólmur 18 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 24 heiðskfrt
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 17 skýjað
Chlcago 20 þokumóða
Feneyjar 21 skýjað
Frankfurt 12 rigning
Glasgow 18 skýjað
Hamborg 15 skýjað
London 16 skýjað
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 9 rigning
Madríd 27 hálfskýjað
Malaga 23 heiðskfrt
Mallorca 22 skýjað
Montreal 22 mistur
NewYork 21 þokumóða
Orlando 26 iéttskýjað
París 16 rigning
Madeira 19 skýjað
Róm 21 skýjað
Vin 21 léttskýjað
Washlngton 23 þokumóða
Winnipeg 16 úrkoma ígrennd
Atvinnumiðlun iðnnema:
Folk vantar í störf í bygg-
ingar- og málmiðnaði
Rafvirkjunarnemum bjóðast engin störf
ATVINNUMIÐLUN iðnnema hefur starfað í fyrsta skipti í sumar.
Afar misjafnlega gengur að finna störf handa iðnnemum. Nu vant-
ar 20-25 menn í störf í bygging;
störf hafa boðist í rafiðnaðinum.
Kristinn Einarsson fram-
kvæmdastjóri Iðnnemasambands-
ins sagði í viðtali við Morgunblað-
ið að Atvinnumiðlun iðnnema hafí
verið sett á lagginn í vor í fyrsta
sinn. Meginmarkmið hennar sé að
auka starfsreynslu iðnnema með-
an á námi stendur.
Iðnnemar í greinum byggingar-
iðnaðar, málmiðnaðar og rafiðnað-
ar hafa verið á skrá hjá atvinnu-
miðluninni. Hins vegar hefur
gengið misvel að finna þeim störf.
Er nú svo komið að nema vantar
í 20-25 störf í byggingar- og
málmiðnaðinum. Þessi störf eru
bæði á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni og að sögn Krist-
ins eru þetta fjölbreytt störf sem
geti veitt nemum í greininni mjög
góða reynslu.
Á hinn bóginn hefur ekkert
r- og málmiðnaðinum en engin
starf boðist í rafiðnaðinum og nú
eru á skrá hjá atvinnumiðluninni
um 10-12 rafvirkjanemar. Margir
þeirra eru búnir með skólann en
vantar tíu mánaða reynslu á
vinnumarkaðnum áður en þeir
geta tekið sveinspróf. Þessum
nemum hafa hins vegar engin
störf boðist og ef svo heldur sem
horfir eru talsverðar líkur að þeir
komist ekki í sveinspróf á réttum
tíma.
Kristinn kvað það einkar slæmt
mál ef iðnnemar ættu á hættu að
nám þeirra færi í súginn vegna
þess að þeim byðust engin störf.
Ekki er enn vitað hvemig á þessu
stendur. Hugsanlegt er að Iðnskól-
inn taki inn of marga nema í raf-
virkjun. Einnig getur verið að raf-
verktakar og aðrir sem vinna í
uppmælingu vilji ekki nema í
vinna, að sögn Kristins.
Reykjavík:
Sólskinsstundir
vel yfir meðaltali
SÓLIN hefur skinið 226 stundir í Reykjavík það sem af er júní.
Þetta eru 56 sólarstundum fleiri en í meðal júnímánuði. Að sögn
Trausta Jónssonar, veðurfræðings hjá Yeðurstofu íslands, er meðal-
tal sólskinsstunda í Reykjavík í júní um 170 klukkustundir.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
sagði að sólin skini að meðaltali 6
klukkustundir á dag í Reykjavík í
júní en það sem af er þessum mán-
uði hefðu mælst að meðaltali 10
sólskinsstundir á dag. Sólarstundir
í júní í ár eru þess vegna komnar
vel fram úr meðaltali og geta Reyk-
víkingar vel við unað. Trausti sagði
að til þess að slá sólarmet júnímán-
aðar í Reykjavík, sem er 313 sól-
skinsstundir, yrði sama veðurblíðan
að haldast til mánaðamóta og sól-
skin að mælast áfram að meðaltali
10 stundir á dag.
Uppblástur á Suður-
landi vegna þurrka
HÆTTA á miklum uppblæstri
hefur aukist verulega á Suður-
landi vegna hinna miklu þurrka
það sem af er júní. Andrés Arn-
alds, gróðurverndarfulltrúi hjá
Landgræðslu ríkisins, sagði að
moldarbörð væru víða orðin
skraufþurr og töluvert tjón hefði
þegar orðið vegna uppblásturs.
Að sögn Andrésar hefur það ver-
ið bót í máli að flesta daga hefur
verið fremur lítill vindur en um leið
og vindur hefur vaxið myndast
moldarmistur. Andrés sagði að
síðustu helgi hefðu sjálfboðaliðar
úr Ferðafélagi íslands verið að sá
í moldarbörð í Þórsmörk og hefðu
þeir ekkert getað unnið einn daginn
vegna moldroks. Ennfremur sagði
Andrés að jörðin væri víða illa út-
leikin eftir ofviðrið sem gekk yfir
í febrúar í vetur og ástandið magn-
aði upp hættuna á uppblæstri.
Andrés sagði að lokum að Land-
græðsla ríkisins reyndi markvisst
að vinna að því að loka þessum
sárum.